Morgunblaðið - 20.01.1995, Page 26

Morgunblaðið - 20.01.1995, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMHUGUR í VERKI FYRSTU viðbrögð landsmanna við landssöfnuninni Samhugur í verki sem hófst kl. 20 í gærkveldi, eru fagur vitnisburður um hug þjóðarinnar, þá djúpu sam- kennd og einlægu samúð, sem hún vill sýna fjölskyldunum í Súðavík, sem eiga um svo sárt að binda. Þegar þjóðin stendur frammi fyrir jafn hörmulegum atburðum og þeim, sem áttu sér stað í Súðavík, koma hennar helstu mannkostir í ljós. Hún sameinast um að gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að lina sárs- aukann, sefa sorgina og hjálpa. Áður en eiginleg söfnun hófst í gærkveldi, höfðu nán- ast 15 milljónir króna safnast og kl. 20.30 nam söfnunar- féð rúmri 21 milljón króna. Upp úr kl. 22 í gærkveldi nam upphæðin 34,5 milljónum króna og er söfnuninni lauk um kl. 23.00 höfðu safnast 38 milljónir króna. Þessi miklu og skjótu viðbrögð bera íslendingum lofsvert vitni og vekja vonir um góðan árangur þá þijá daga sem eftir lifa söfnunarinnar. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, opnaði þetta sameiginlega átak Rauða krossins, Hjálparstofnunar kirkj- unnar og fjölmiðla, með ávarpi sem sent var út í beinni útsendingu á báðum sjónvarpsstöðvunum og öllum út- varpsstöðvum og er birt í heild í Morgunblaðinu í dag. Frú Vigdís sagði m.a.: „Á þungbærum stundum þjöppum við okkur saman, heilsteypt þjóð við andstreymi í íandi, þar sem náttúruöflin hafa birst okkur grimm og óvægin. Harmar hafa sótt okkur heim og við finnum það glöggt, sem endranær, þegar að okkur er höggvið, hve nákomin við erum hvert öðru. Átakanlegur missir og harmur eins, verður missir og harmur þjóðarinnar allrar. Hvarvetna á íslandi, dvelur hugur manna, þessar stundir hjá þeim sem orðið hafa fyrir miklum raunum. Samhygð okkar er einlæg og sterk og öll vildum við eiga ráð til að létta þeim þungar sorgar- byrðar. Við stöndum máttvana andspænis því, sem orðið er og ekkert fær breytt. En tíminn nemur ekki staðar, heldur er sá einn kostur okkar, að halda áfram og leita allra leiða til að milda áföllin og vernda þá, sem fyrir reiðar- slagi hafa orðið. Okkur gefst nú öllum færi á að rétta þeim hjálparhönd og votta þeim samkennd okkar í lands- söfnun, sem ber einkunnarorðin Samhugur í verki. Stuðn- ingur okkar og einhugur, getur á þann veg veitt þeim, sem að hefur verið vegið, styrk til að ganga til móts við komandi tíma.“ Hafsteinn Númason og Berglind M. Kristjánsdóttir misstu börn sín þijú í snjóflóðinu. Harmur þeirra er slík- ur, að útilokað er fyrir aðra, að setja sig í þeirra spor. Því er það hetjulega mælt hjá Hafsteini, á baksíðu Morgun- blaðsins í gær, þegar hann segir: „Maður hugsar um að gefast ekki upp, flytja suður og byija upp á nýtt einhvers staðar annars staðar ... Við eigum ástvini annars staðar á landinu sem standa við bakið á okkur og mér hefur þótt vænt um þá almennu hluttekningu sem maður hefur fundið fyrir um land allt í þessari miklu sorg.“ Enginn getur fært syrgjendunum aftur ástvinina, sem þeir urðu að sjá á bak, í náttúrurhamförunum í Súðavík. Það er bæði rétt og skiljanlegt, sem hin unga móðir, Sig- ríður Rannveig Jónsdóttir, segir i samtali við Morgunblað- ið í gær, en hún og maður hennar, Þorsteinn Örn Gests- son, misstu dóttur sína, Hrafnhildi Kristínu, rúmlega árs- gamla: „Mér er nákvæmlega sama um allar mínar eigur. Þær skipta ekki nokkru máli. Það eru lífin sem skipta máli.“ Undir þetta hljóta allir að taka, hvort sem þeir eru syrgjendur frá Súðavík, eða aðrir Islendingar, sem úr fjarska fylgjast með, af hluttekningu og eru með Súðvík- ingum í huganum. Við vitum öll, að við færum syrgjendun- um ekki aftur ástvinina, en við viljum gera hvað við get- um, til þess að þeir, sem nú glíma við djúpa sorg, þurfi ekki jafnframt að takast á við áhyggjur dægurþrasins. Með almennri þátttöku í landssöfnuninni Samhugur í verki, getur þjóðin lagt lítið lóð á vogarskálarnar, til þess að styðja við bak Súðvíkinga. Morgunblaðið hvetur alla landsmenn til þess að láta sér það tækifæri ekki úr greip- um renna, heldur að sýna í reynd, samhug í verki, með því að gefa til söfnunarinnar, sem stendur til sunnudags- kvölds. Það sem einu sinni var fallegt 230 manna þorp er nú ekki svipur hjá sjon Alger eyði- legging í miðhluta Súðavíkur Loks rofaði til í Súðavík í gær og þá blasti við mönnum sú hrikalega eyðilegging sem snjóflóðin hafa valdið þar. Blaðamennimir Pétur Guuuarssou og Egill Ólafssou og ljósmyndaramir Ragnar Axelssou og Ingibjörg Ólafsdóttir hafa skráð atburðina við Isafjarðardjúp í máli og myndum. SKEMMDUNUM í Súðavík eftir snjóflóðin sem féllu á mánudag verður vart með orðum lýst. Af um 70 hús- um í bænum eru a.m.k. 22 gjöró- nýt eða stórskemmdg. í miðhluta bæjarins er eyðileggingin alger. Það sem einu sinni var fallegt 230 manna þorp er nú ekki svipur hjá sjón. Síðasta húsið skemmdist í snjóflóði sem féll úr Traðargili á hádegi í gær. Það hús var í bygg- ingu. Almannavamanefnd Isafjarðar gaf fjölmiðlum kost á að skoða afleiðingar snjóflóðanna í Súðavík í gær. Eyðileggingin sem við blasti er gífurleg. Á stóru svæði í mið- hluta bæjarins eru öll hús annað- hvort gjörónýt eða stórskemmd. í útjaðri bæjarins eru einnig skemmd hús, en úögur hús eyðilögðust í snjóflóði sem féll að kvöldi mánu- dags. Snjóflóðið hefur leikið nokkur hús þannig að það hefur fallið þvert á húsin, farið í gegnum þau og brotið niður þak, útveggi og allt sem fyrir varð. Aðeins gaflarnir standa uppi. Ut um allt er brak úr húsunum, stólar, föt, húsgögn, sængur, leik- föng, reiðhjól, bílar. Öllu ægir sam- an. Nokkur hús standa uppi þrátt fyrir að snjóflóðið hafi fallið á þau. Flest eru þau stórskemmd. í einu húsi eru herbergi full eða hálffull af snjó. Dyr og gluggar eru brotn- ir og skafrenningur á greiða leið inn. í húsinu ýlaði brunaboði, fjór- um dögum eftir að snjóflóðið féll. Ljós í leikskólanum Leikskólinn í Súðavík stendur að mestu uppi þrátt fyrir að vera í miðju snjóflóðasvæðinu. Hann er hins vegar hálffullur af snjó og mjög mikið skemmdur. Það var undarleg tilfínning að kíkja inn í leikskólann þar sem fyrir fáum dögum voru börn að leik. Ósjálf- rátt leitar hugurinn til bamanna sem létust í flóðinu. Þrátt fyrir að leikskólinn sé á kafí í snjó og stór- skemmdur var ljós í einu herbergj- anna. Rafmagn virðist ekki farið af skólanum þrátt fyrir hamfarim- ar. Ljósið er eins og tákn. Það er þrátt fyrir allt ljós í myrkrinu. Krafturinn í snjóflóðinu hefur verið óskaplegur. Sjá má á stöku stað steyputeina standa upp úr veggjum. Sjö tommu þaksperrur eru brotnar í mask. Þakplötur eru undnar og rifnar. Reynt að koma á vegasambandi Eftir að veðrinu slotaði í gær var hafíst handa við að ryðja snjó af veginum á milli Súðavíkur og ísafjarðar. Það er margra tíma verk og ekki hættulaust. Á veginn hefur fallið fjöldi snjóflóða og snjó- flóðahættan vofír enn yfír. Lík þeirra sem létust í snjóflóð- inu verða flutt frá Súðavík til ísa- fjarðar í dag. Kistulagning mun fara fram á Isafírði og minningar- þjónusta verður á ísafírði á morg- un. Útför hinna látnu verður ekki sameiginleg. Hús og fiskur að skemmast Rafmagn fór af Súðavík þegar seinna snjóflóðið féll á bæinn að kvöldi mánudags. Heimamenn komu rafmagni á hraðfrystihúsið Frosta með tengingu við rækju- skipið Kofra, sem gert er út frá Súðavík. í gær tókst síðan að koma rafmagni á til bráðabirgða með því að leggja kapal yfir snjóinn að dís- ilrafstöðinni í útjaðri bæjarins. Ekki reyndist hins vegar unnt að koma rafmagni á frystivélar í hraðfrystihúsinu. Þar liggur fískur undir skemmdum, t.d. er þar mikið af lausfrystri rækju sem líklega er ónýt. Þau hús sem ekki lentu í snjóflóðinu liggja einnig undir skemmdum. Það var hins vegar ekki fyrr en í gær, þegar veðrið lægði og rafmagni var komið á, sem aðstæður sköpuðust til að forða húseignum frá frekari eyði- leggingu. Símasambandslaust er við Súða- vík og verður ekki reynt að koma símanum í lag fyrr en sérfræðingar koma til bæjarins frá Reykjavík. Aðeins einn farsími er í þorpinu. í veðurhamnum í fyrrinótt slitn- aði rækjuskipið Kofri frá bryggju í Súðavík. Mikil hætta var talin á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.