Morgunblaðið - 20.01.1995, Side 37

Morgunblaðið - 20.01.1995, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MINIUINGAR FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 37 BJARNISIGURÐUR FINNSSON + Bjarni Signrður Finnsson fædd- ist á Ytri-Á í Ólafs- firði 18. janúar 1928. Hann lést í Landspítalanum 10. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Finnur Björnsson, f. 16. september 1895, d. 29. maí 1986, og Mundína Freydís Þorláksdóttir, f. 8. apríl 1899, d. 5. des- ember 1985. Hann átti 19 systkini, þar af komust 16 til fullorðinsára. Eftirlifandi eru fjórtán. Hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Elísdóttur, hinn 15. desember 1949. Þau eignuð- ust fjögur börn og eru þau: 1) Elín, f. 1951, gift Halldóri Ólafssyni, búsett í Hafnarfirði. 2) Erla, fædd 1953, gift Sigur- geir Aðalgeirssyni, búsett á Húsavík. 3) Haukur, f. 1956, giftur Ernu Svavarsdóttur, bú- settur í Hafnarfirði. 4) Hörður, f. 1965, giftur Ollý Smáradótt- ur, búsettur í Keflavík. Barna- börnin eru orðin 11 og barna- barnabörnin eru fjögur. Utför Bjarna fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag. í DAG kveð ég tengdaföður minn Bjarna Finsson hinstu kveðju. Eg kynntist tengdaforeldrum mínum fyrst fyrir rúmum 13 árum er ég kom fyrst inn á heimili þeirra á Borgarholtsbrautina með Herði syni þeirra. Ég man að það fyrsta sem ég hugsaði var hvað þau áttu fallegt heim- ili. Seinna þegar við bjuggum hjá þeim og eftir að dóttir okkar Kolbrún ída fæddist kynntist ég elsku þeirra og hlýleik. Þeg- ar þau tóku mér eins og sinni eigin dóttur inn á þeirra heimili. Eftir að við eignuð- umst okkar eigin íbúð á Selfossi voru það ófá- ar ferðirnar sem amma og afí komu til okkar, alltaf tilbúin að hjálpa okkur, við sem vorum eiginlega að leggja af stað út í lífið ung og óreynd. Okkur er minnisstæð síðasta ferð afa Bjarna á æskuslóðir hans á Ytri-Á á Ólafsfirði sumarið 1993. Hann hafði gaman af að segja frá sögunni þegar hann tók nafna sinn út á fjörðinn til að vitja netanna. Þegar þeir komu í land, kaldir og blautir, varð þeim stutta á orði að- eins fimm ára að nú væri gott að fá heitan kaffisopa hjá ömmu Stínu eins og hann vissi að afi var vanur að fá. Það var gaman að sjá hvað Bjarni hafði mikinn áhuga á sumarbú- staðnum sem þeir feðgar smíðuðu með hjálp barnanna og tengdabarn- anna. Já, þær voru ófáar stundirnar hans þar með fjölskyldu sinni. Nú er búin þessi langa og stranga barátta hans við krabbameinið. Þrátt fyrir allan söknuðinn erum við þó þakklát fyrir að hans þraut er á enda. Hann átti elskulega eigin- konu sem er búin að standa við hlið hans í veikindum með ótrúleg- um styrk og krafti. Megi algóður Guð styrkja hana og börn þeirra á þessum erfiðu tímum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Ollý Smáradóttir. Okkur hér við Sundlaug Kópa- vogs langar aðeins að minnast Bjarna Finnssonar. Bjarni starfaði hjá Sundlaug Kópavogs um nokk- urt skeið eða þar til að hann varð að láta í minni pokann fyrir þeim sjúkdómi sem að endingu heltók hann og kvaddi hann til feðra sinna. Þegar sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig hjá Bjarna tók hann því með jafnaðargeði sem einkenndi hann en hann var með óbilandi baráttuþrek og barðist hatramlega við þennan óboðna gest sem settist að í líkama hans. Og þrátt fyrir þetta hélt Bjarni áfram að vera meinfyndinn og var gaman að glett- ast við hann. Bjarni sá um bað- vörslu í skólasundi, var þar bæði strangur og hlýr. Sáum við hann bæði hugga og hjálpa ungum mönn- um. Á sínum yngri árum var Bjarni á síld með Eggert á Víði II., þeim mikla aflamanni. Vann Bjarni einn- ig hjá Vegagerð ríkisins í mörg ár úti á landi við vegagerð og brúar- gerð á stórvirkum vinnuvélum sem þurfti örugglega að sýna útsjónar- semi við. Ekki kunnum við að segja frá ætt Bjarna en hann var uppalinn á Ytri-A í Ólafsfirði og átti mörg systkini og hafði gaman af að minn- ast þess. Þegar Ólafsfjörð bar á góma birti yfir Bjarna og sögur frá uppvextinum sagði hann með mik- illi innlifun og var þá gaman að hlusta á karl. Fiskurinn nánast upp í fjöru, heyskapur að sumri eða sögur um snjóinn að vetri. Bjami kom í heimsókn til okkar eftir að hann varð að hætta að vinna og meðan heilsan hans leyfði það. Kunnum við honum þakkir fyrir þær heimsóknir og að fá að fylgj- ast með honum. Margar góðar minningar sem koma í huga okkar hér við sundlaugina þessa dagana, viljum við þakka fyrir. Þær minn- ingar geymum við með okkur. Starfsfólk Sundlaugar Kópavogs. í dag verður Bjarni Finnsson lagður til hinstu hvílu eftir vist í þessu jarðlífi. Vil ég kveðja þennan góða mann með nokkrum orðum. Kynni okkar urðu stutt en mjög ánægjuleg. Ég hitti hann fyrst haustið 1991. Hann var að hætta störfum hjá Strætisvögnum Kópa- vogs en ég var að leita eftir starfs- manni við sundlaugina. Mér eru enn í fersku minni fyrstu kynnin. Hann kom gangandi í áttina til mín kím- inn á svipinn með hattinn á kollin- um. Mér leist strax vel á þennan góðlega mann og hugsaði með mér: „Hann er rétti maðurinn í starfið." Það fór eftir og Bjarni kom fljótlega til starfa en verksvið hans var að annast baðvörslu hjá grunn- skólanemendum. Hann hafði alla kosti sem góðan samstarfsmann mega prýða. Var samviskusamur, geðgóður, hnittinn í tilsvörum og skemmtilega stríðinn. Bjarni hafði gott lag á að halda uppi hressilegum umræðum. And- blærinn meðal starfsmanna og kennara var því fijálslegur og óþvingaður. Hann var árrisull og fyrsta verk- ið var að hella uppá kaffi í kaffi- stofu eldri byggingarinnar þar sem kennarar höfðu aðstöðu. Ef ég varð ekki var við komu hans sagði kaffi- ilmurinn sitt. Morgunstundimar okkar eru dýrmætar í minningunni. Ég held ég taki ekki of djúpt í ár- inni þó ég segi að kynni okkar Bjarna hafi þróast í vináttu. Á stutt- um tíma fræddumst við margt hvor um annan. Hann var áttundi í röð tuttugu systkina, fæddur og uppal- inn á Ytri-Gunnólfsá í Ólafsfirði. Bar hann sterkar taugar til heima- haganna en þekkti víða til. Hann hafði í mörg ár unnið hjá Vegagerð ríkisins víðs vegar um land og vann til dæmis við byggingu Borgarfjarð- arbrúarinnar. Hann var mikill nátt- úruunnandi og sagði mér meðal annars frá sumarbústaðnum sínum fyrir austan fjall. Þar var hann að klæða landið sitt skógi. Að sögn hafði Bjarni alltaf verið heilsuhrastur. En eftir ánægjulegt samstarf í u.þ.b. ár dró ský fyrir sólu. Hann greindist með illvígan sjúkdóm. En engan bilbug var á honum að finna. Af bjartsýni og seiglu barðist hann, en máttinn þraut smám saman. Að því kom að hann hafði ekki nægilegt þrek til að vinna. Síðasti vinnudagur hans var í október 1993. Eftir það dvaldist hann oft á sjúkrahúsi og lést á Landspítalanum árdegis 10. janúar. Skorti því rúma viku í að hann næði 67 ára aldri. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka Bjarna fyrir stutta en ánægjulega samfylgd. Ég votta eftirlifandi konu hans, Kristínu El- ísdóttur, afkomendum þeirra og venslafólki mína innilegustu samúð. Höfum það hugfast að þó Bjarni Finnsson sé horfinn af þessu til- verustigi lifir minningin um góðan dreng. Hún verður aldrei frá okkur tekin. Ingimundur Ingimundarson. RAÐAUGi YSINGAR Aðalfundur Félag jarðeiganda við Þingvallavatn minnir félaga sína á aðalfundinn á morgun, laugar- dag 21. janúar, kl. 15.00 í Kringlukránni, Borgarkringlunni. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. ^ VERSLUNARMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat- kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, endurskoð- enda og trúnaðarráðs í Verslunarmanna- félagi Flafnarfjarðar fyrir árið 1995. Framboðslistum skal skila á skrifstofu félags- ins, Lækjargötu 34D, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi mánudaginn 23. janúar 1995. Stjórnin. NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embaettisins, Hörðuvöllum 1, Selfossi, þriðjudaginn 24. janúar 1996, kl. 10.00, á eftirfarandi eignum: Dynskógar 18, Hveragerði, þingl. eig. Guðmundur Sigurðsson og Sigríður B. Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur eru Húsasmiðjan hf., Byggingarsjóður ríkisins og sýslumaðurinn á Selfossi. Laufhaga 9, Selfossi, þingl. eig. Ásgrímur Kristófersson, gerðarbeið- andi er Búnaðarbanki (slands. Vallholt 16, íbúð C á 1. hæð, Selfossi, þingl. eig. Björn H. Eiríks- son, gerðarbeiðendur eru Lifeyrissj. verkalýðsfél. á Suðurlandi, Líf- eyrissj. rafiðnaðarmanna og Byggingarsjóður ríkisins. Sýslumaðurinn á Selfossi, 19. janúar 1995. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, 3. hæð, þriðjudaginn 24. janúar 1995 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum: Aðalgata 47, Suðureyri, þingl. eig. Þorvaldur Þór Maríusson, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Brautarholt 6, Isafirði, þingl. eig. Kristján B. Guðmundsson, gerðar- beiðendur Búnaðarbanki íslands, Bæjarsjóður ísafjarðar, Elías Gísla- son, G.H. heildverslun, heildverslunin Edda hf., innheimtumaðurríkis- sjóðs, Landsbanki (slands, ísafirði, og Lifeyrissjóður Vestfirðinga. Brekkugata 1, e.h., Þingeyri, þingl. eig. Birgir Örn Ólafsson, gerðar- beiðandi innheimtumaður ríkissjóðs. Fjarðargata 30, 0104, Þingeyri, þingl. eig. Ragnar Örn Þórðarson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna. Hafraholt 44, ísafirði, þingl. eig. Agnar Ebenesersson og Sigríður Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og innheimtu- maður ríkissjóðs. Heimabæjarstígur 2, (safirði, þingl. eig. Sigurður R. Guðmundsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóöur ríkisins, Tryggingastofnun rfkisins og íslandsbanki hf. Hlíðarvegur 7, 0102, 1. h. t.h., (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Hlíðarvegur 7, 0201, 2. h. t.v., (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Hlíðarvegur 7, 0301, 3. h. t.v., Isafirði, þingl. eig. Dröfn Snorradótt- ir og Magnús Rafn Magnússon, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík- islns. Mb. Sigurvon (S-500, þingl. eig. Fiskiðjan Freyja hf., gerðarbeiöandi Landsbanki fslands, (safirði. Sólbakki 6, Flateyri, þingl. eig. Einar Oddur Kristjánsson, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild. Túngata 31B, Eyrarbakka, þingl. eig. Júlíus Geir Geirsson, gerðarbeið- endur eru Lífeyrissj. starfsm. ríkisins, Eyrarbakkahreppur, sýslumað- urinn á Selfossi og (slandsbanki hf. 0513. Urðartjörn 9, Selfossi, þingl. eig. Karl Svavar Þórðarson og Svava Björk Jónsdóttir, gerðarbeiðendureru Byggingarsjóður ríkisins, Gjald- heimtan í Reykjavík, (slandsbanki hf. 0586, sýslumaðurinn í Kópa- vogi, tollstjórinn í Reykjavík og Bæjarsjóður Selfoss. Túngata 17, efri hæð, ísafirði, þingl. eig. Hlynur Þór Magnússon, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Þuríður Péturdóttir. Túngata 19, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna. Flugmenn -flugmenn Allsherjaratkvæðagreiðsla um heimild til - stjórnar FÍA til boðunar verkfalls hjá Flug- félaginu Atlanta hf. hefst í dag kl. 14.00 og lýkur fimmtudaginn 26. janúar 1995. Átkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu FÍA, Háaleitisbraut 68, milli kl. 09.00 og 16.00. Stjórnin. Aðalfundur Sammenntar verður haldinn íTæknigarði 20. janúar 1995 kl. 15.30 Dagskrá: Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 1993-1994. Reynslan af COMETT áætluninni. Kynning á Leonardó áæltun Evrópusam- bandsins um starfs- og endurmenntun. Umræður um þátttöku ísiands í Leonardó áætluninni. Kosning stjórnar. Önnur mál. Fundurinn er opinn öllum, sem áhuga hafa á samstarfi atvinnulífs og skóla, en þeim, sem hafa áhuga á að sækja fundinn, eru vinsam- legast beðnir að skrá sig í síma 569 4900. Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla. Blab allra landsmanna! Sýslumaðurinn á Isafirði, 19. janúar 1995. - kjarni máhins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.