Morgunblaðið - 20.01.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Tilvísanakerfið -
Nýjasta aðförin
Frá Sigríði Gunnarsdóttur:
NÚ ER MIKIÐ rætt og ritað um
áform heilbrigðisráðherra um að
koma á tilvísanakerfí og sýnist
sitt hveijum, eins og jafna er þeg-
ar auknar álögur á sjúklinga eru
til umræðu. Líklega gera margir
sér grein fyrir að tindinum í lífs-
gæðum hefur verið náð í bili og
eftir það liggur leiðin annaðhvort
lárétt eða niður á við. Við verðum
samt að reyna að sporna við fótum
og glata ekki umræðulaust áföng-
um til jafnara lífs sjúkra og heil-
brigðra, sem tók áratugi að ná.
Mér er til efs að ráðamenn (flestir
heilbrigðir þegnar með bærileg
laun) geri sér nokkra grein fyrir
því hversu mikilvægt trúnaðar-
samband er milli læknis og sjúkl-
ings, sér í lagi ef um langvinna
sjúkdóma eða afleiðingar slyss er
að ræða. Nú skal áframhaldið lagt
í dóm heilsugæslulæknis sem telur
sig ef til vill fullfæran um að sjá
um það sem þarf að gera. Flestir
eru uppburðarlitlir þegar til átaka
kemur og sætta sig við orðin hlut,
eða halda menn að með því að
kæra afstöðu heimilislæknis haldi
þeir áfram að hafa þann sama
heimilislækni? Þá hefur það trún-
aðarsamband verið rofið.
Mig langar líka til að nefna
áhyggjur og ótta sem fyrrnefndir
sjúklingahópar finna til þegar allt-
af er verið að breyta og skerða
og fólk með laun undir fátæktar-
mörkum er svo sannarlega komið
á heljarþröm. Einnig gamalt fólk
sem bundist hefur trúnaðarsam-
bandi við einhvern ákveðinn lækni
og þarf að fá að leita til hahs
áfram. Ég trúi því líka að þetta
fyrirkomulag geti í vissum tilfell-
um orðið til að seinka sjúkdóms-
greiningu, til dæmis á alvarlegum
gigtsjúkdómum og öðrum sjúk-
dómum sem krefjast sérhæfðra
rannsókna.
Nú skora ég á fólk að láta álit
sitt í ljós, það hefur lítið heyrst
frá raunverulegum þolendum
þessarar breytingar - sjúklingum
- sem bæði munu borga og taka
afleiðingum, ef eitthvað fer miður
við þennan óljósa sparnað. Einnig
vil ég minna lækna á að hafa jafn-
an hag skjólstæðinga sinna í fyrir-
rúmi, þegar þeir taka ákvarðanir
um mótleik og heilbrigðisyfirvöld
á að taka upp betri vinnubrögð
og leyfa meiri umræðu í samfélag-
inu, áður en ákvarðanir eru teknar
um mikilvæg mál. Förum því gæti-
Iega og gefum okkur tíma til að
komast að bærilegu samkomulagi
öllum til hagsbóta, það skiptir
ekki öllu máli hvaða mánaðamót
verða fyrir valinu.
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
Heiðarási 14, Reykjavík.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fjölda fyrirspurna
varðandi Internet-tengingu
við Morgunblaðið, skal eftir-
farandi áréttað:
Tenglng vlð helmasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast
heimasíðu Morgunblaðsins,
sláið inn slóðina:
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar
upplýsingar um blaðið, s.s
netföng starfsmanna, upp-
lýsingar um hvernig skila á
greinum til blaðsins og
helstu símanúmer.
Morgunblaðlð á
Internetlnu
Hægt er að nálgast
Morgunblaðið á Internetinu
á tvo vegu. Annars vegar
með því að tengjast heima-
síðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimas-
íðu blaðsins og velja Morg-
unblaðið þaðan.
Þessi þjónusta er endur-
gjaldslaus til I. febrúar nk.
Senrilng efnls
Þeir sem óska eftir að
senda efni til blaðsins um
Internetið noti netfangið
mbl@centrum.is. Mikilvægt
er að lesa vandlega upplýs-
ingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins.
Það tryggir öruggar send-
ingar og einnig að efnið
rati rétta leið í blaðið. Senda
má greinar, fréttir, auglýs-
ingar og myndir eins og
fram kemur á heimasíðu
blaðsins.
Mismunandi tenglngar
við Internet
Þeir sem hafa Net-
scape/Mosaic-tengingu eiga
hægt um vik að tengjast
blaðinu. Einungis þarf að slá
inn þá slóð sem gefin er upp
hér að framan.
Þeir sem ekki hafa
Netscape/Mosaic-tengingu
geta nálgast þessar upplýs-
ingar með gopher-forritinu.
Slóðin er einfaldlega slegin
inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota
a.m.k.14400 baud-mótald
fyrir Netscape/Mosaic teng-
ingar. Hægt er að nota af-
kastaminni mótöld með
Gopher-forrtinu.
Frá Jónasi Guðnasyni:
ARNHILDUR Valgarðsdóttir hélt
tónleika í Norræna húsinu 28.
desember. Eins og fram hefur
komið í blöðum er hún að ljúka
Post-graduate gráðu frá The Roy-
al Scottish Academy of Music and
Drama nú á komandi vori.
Þetta voru mjög ánægjulegir
tónleikar. Arnhildur kynnti sjálf
verkin sem var skemmtileg ný-
breytni og það skapaði strax per-
sónulegt og jákvætt andrúmsloft.
Arnhildur byijað á Preludiu og
fúgu eftir Bach og lék síðan Part-
itu númer 6 einnig eftir Bach.
Flutningur hennar var lifandi og
skýr og hljómaði einkar áheyri-
lega.
Túlkun Arnhildar á Bach var
Tónleikar
Arnhildar
Valgarðs-
dóttur
frjálslegri en margir eiga að venj-
ast en slíkt er alþekkt í sögu tón-
listarinnar nú á dögum og nægir
að nefna tvo heimsþekkta píanó-
leikara í því sambandi þá Horow-
itz og Glenn Gould. Andstæðurnar
í þessum verkum Bachs tókst
henni að láta hljóma sannfærandi
og mynda hljómfagra heild.
Eftir hlé spilaði Arnhildur fyrsta
kafla „Reliqué“ sónötunnar eftir
F. Schubert.
í kynningu Arnhildar á þessu
verki sýndi hún með tóndæmum
hversu skyld „Reliqué“ sónatan
er hljómsveitarverkum. Þetta
veitti innsýn í verkið svo áheyrand-
inn naut betur þessa ljúfa verks í
flutningi Arnhildar. Þessir tónleik-
ar eru eins og fram hefur komið
þáttur í lokaprófi hennar frá
skosku academíunni.
Að baki slíkra tónleika hlýtur
að liggja mikil vinna og ögun og
augljóst að Arnhildur hefur notið
tilsagnar frábærra kennara.
JÓNAS GUÐNASON,
Hringbraut 87, Reykjavík.
ALDARMINNING
Tónleikar í Gerðubergi
laugardaginn 21. janúar kl. 17.00
fiavíð Stefánsson
frá F agraskógi
r r
Elín Osk Oskarsdóttir, sópran
Þorgeir J. Andrésson, tenór
&
Jónas Ingimundarson, píanó
flytja söngva við ljóð Davíðs Stefánssonar
Kynnir: Valgerður Benediktsdóttir, ritstjóri
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Ríkisútvarpið/Rás 1
Borgarbókasain Reykjavíkur
Vaka Helgafell
- kjarni málsins!
ÚTSALA 10-60% AFSLÁTTUR
Vetrarfatnaður, skí&agallar, dúnúlpur, °p'ö )) hufl1in6l ^
íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. k|U9ío-u? sportbúðin
* Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655