Morgunblaðið - 20.01.1995, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.01.1995, Qupperneq 42
HVÍTA HÚSIO / SÍA 42 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Nú allan larhringinn EGLA -RÖÐOG REGLA Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. I DAG HÖGNIHREKKVÍ SI BRIDS IJmsjón Guðmundur Páll Arnarson ÞEGAR vörnin er að sækja sinn lengsta lit í þremur gröndum, ræður oft úrslit- um að hægt sé að nota inn- komurnar í réttri röð, þ.e.a.s. þannig að sá varn- arspilarinn sem er styttri í litnum geti notið sína inn- komu fyrst. Þetta er þekkt staða: Norður ♦ D10976 V - ♦ - * - Vestur Austur 4 Á83 4 G52 * - ♦ - INIII 4 - ♦ - 4 - Suður ♦ K4 V - ♦ - ♦ - Ef sagnhafi spilar smáum spaða á kónginn tryggir vestur vörninni auð- vitað tvo slagi á litinn með því að drepa á ás. En ef hann má ekki við að missa innkomuna strax, er snjallt bragð að dúkka. Sagnhafi er þá vís með að spila næst á tíuna. Fallegt afbrigði af þessari stöðu litur þannig út: Norður 4 Á64 4 Á87 ♦ D7 4 K9632 Vestur Austur 4 1073 4 D952 4 G3 IIIIH 4 D1064 4 KG852 111111 ♦ 1093 4 ÁG5 4 108 Suður 4 KG8 4 K952 ♦ Á64 4 D74 Suður spilar þrjú grönd og vestur kemur út með smáan tígul. Drottning blinds á siaginn og sagn- hafí spilar strax 'laufi á drottningu. Við sjáum hvað gerist ef vestur drepur á ásinn. Sagnhafi dúkkar tíg- ulkónginn og drepur þriðja tígulinn á ás. Spilar svo laufi á níu blinds. Austur fær slaginn á tíuna.en á ekki tígul til svo sagnhafi vinnur sitt spil. Þessi vandræði getur vestur séð fyrir og reynt sitt besta með því að dúkka laufdrottningu og það fum- laust. Þegar sagnhafi sér gosann koma í næsta slag gæti hann látið lítið úr borði. Sem er rökrétt spila- mennska ef reiknað er með ásunum í austur. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 9-5 frá mánudegi til föstudags Frábær þjónusta hjá TM HRAFNHILDUR Val- björnsdóttir hringdi til að lýsa ánægju sinni með þá þjónustu ‘sem hún fékk hjá Tryggingamiðstöð- inni. í byijun desember, nánar tiltekið á sunnu- degi er enginn var heima, kviknaði í íbúð hennar. Maður í húsinu varð elds- ins var og lét lögreglu og slökkvilið vita og á hann bestu þakkir skildar fyrir. Þegar Hrafnhildur kom heim var íbúðin í rúst svo hún hringdi í heimasíma starfsmanns TM og var hann mættur innan klukkustundar, náði í sendibíl sem tók allt úr íbúðinni, gluggatjöld, húsgögn o.fl. Morguninn eftir komu sjö konur til að þrífa, sem tók 2-3 daga, og annað málað. Þá komu húsgögnin, gardínur og annað sem fjarlægj; hafði verið. Allar greiðslur sem hún þurfti að leggja út voru greiddar strax inn á reikning hennar frá TM svo hún gæti staðið í skil- um. Allir lögðust á eitt við að koma í stand og tók það aðeins tíu daga svo hún gat haldið jól í tandurhreinu húsi. Hrafnhildur þakkar þessa frábæru þjónustu TM sem henni fannst með eindæmum. Gleraugu fundust GLERAUGU í svartri umgjörð fundust á Vesturgötu sl. miðviku- dagsmorgun. Upplýs- ingar í vinnusíma 29500 frá kl. 9-17. Ölöf. Jakki tapaðist LJÓSDRAPPAÐUR hálf- síður jakki tapaðist í Ömmu Lú sl. föstudags- kvöld. Jakkans er sárt saknað. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 5512557 eða 620118. Budda tapaðist LÍTIL svargræn budda með axlaról tapaðist í miðbænum eða á ein- hveiju öldurhúsinu þar sl. föstudagskvöld. í budd- unni voru m.a. skilríki. Finnandi vinsamlega hringi í síma 5512557 eða 620118. Fundarlaun. Bíllyklar fundust TVEIR bíllyklar á kippu merktir Sjóvá fundust við Hólmasel í Seljahverfi sl. miðvikudag. Upplýsingar í síma 76373. Með morgunkaffinu Víkverji skrifar... OFBELDISMÁL eru oft til um- ræðu meðal almennings og þá oftast í kjölfar óhugnanlegra atburða, sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Ohugur slær fólk um stundarsakir en síðan virðist fenna yfir atburðinn og margir uppalend- ur verða kærulausari að nýju til dæmis varðandi sjónvarpsefni og tölvuleiki. I viðræðum sem Víkverji átti við skólafólk í vikunni kom fram að ákaflega ofbeldisfull og óhugnanleg mynd var sýnd á Ríkissjónvarpinu síðastliðið laugardagskvöld, Tor- tímandinn II með Arnold Schwarz- enegger. Sýning myndarinnar hófst seint um kvöld eða rétt fyrir kl. 23 og því kom það kennara sjö ára barna mjög á óvart að heyra eftir helgina, að mörg barnanna ræddu um myndina eins og þau hefðu séð hana. Hann gerði því skyndikönnun í bekknum og gátu tólf sjö ára börn sagt frá atburðum, þannig að ljóst var að þau höfðu að einhveiju eða öllu leyti horft á mynd, sem var ekki við hæfi yngri en 16 ára eins og Ríkisútvarpið auglýsti. xxx IFRAMHALDI af þessari umræðu kom fram að fjöldi ofvirkra barna eykst ár frá ári. Þá telja kennarar sig geta séð á hegðun barna hvort þau hafi verið að horfa á ofbeldisfullar kvikmyndir. Er nema von að stjórnandi þessa skóla hafi varpað fram spurningunni: „Við hvaða vanda eigum við skóla- fólk ekki að glíma úr því að foreldr- arnir virðast svona kærulausir um þessi mál?“ Víkveiji veit einnig dæmi þess að tölvuleikur var tekinn af barni sem sýndi ákaft eirðarleysi í skóla. Einnig var sá tími takmarkaður sem það mátti vera í öðrum tölvuleikj- um. í kjölfarið mátti fljótt sjá nokkra breytingu á hegðan barns- ins, en foreldrarnir höfðu ekki tengt hegðanina tölvuleikjunum. XXX ETUR verið að þágufallssýki sé að aukast mikið í þjóðfélag- inu? Víkveiji hefur lúmskan grun um að svo sé. Fljótlega eftir að ung vinkona Víkveija, sem var vanin á að tala rétt mál á heimili sínu, hóf skóla- göngu á síðastliðnu hausti, fór að bera á ambögum í máli hennar, sem ekki höfðu heyrst áður; „mér lang- ar“, „mér hlakkar" og fleiru í þeim dúr, og foreldrana rak í rogastans. Greinilegt var að þetta hafði barnið heyrt í skólanum. Víkveija finnst skrýtið ef kennarar reyna ekki að leiðbeina börnum hvað þetta varð- ar, því þeir hljóta að heyra að ekki er allt með felldu. xxx HAFA menn ef til vill gefist upp í baráttunni gegn þágufalls- sýki og öðrum ambögum? Víkveiji heyrði íslenskufræðing eitt sinn halda því fram að aukin þágufalls- sýki væri einfaldlega þróun, sem ekki yrði stöðvuð. Geta menn sætt sig við það? X X x REYKINGAR eru Víkveija ekki að skapi, fjarri því. Það er því ömurlegt til þess að vita, að reyk- ingar unglinga séu að aukast á ný, og það mikið. Það er að minnsta kosti tilfinning Víkveija að sú sé raunin og fékk hann það reyndar staðfest hjá starfsmanni í heilbrigð- isþjónustunni að fleirum finnst svo vera. Er áróðurinn ekki nægilegur, ekki nógu „ljótur" eða hvernig stendur á þessu? Unglingar í dag hljóta að vera nógu skynsamir til að skynja hættuna samfara reyk- ingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.