Morgunblaðið - 23.03.1995, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Árangurslaus fundur í deilu flugfreyja og þriggja
daga verkfall boðað í næstu viku
Yfirmenn Flugleiða sinna
öryggisþj ónustu í flugvélum
FLUG Flugleiða fellur ekki niður fari flugfreyjur í verkfall
28., 29. og 30. mars næstkomandi. Yfirmenn félagsins ætla
að gegna öryggisþjónustu um borð í flugvélunum, að því er
segir í frétt frá Flugleiðum í gær. Erla Hatlemark, formaður
Flugfreyjufélags íslands, sagði í gær að með þessum aðgerðum
væru Flugleiðir komnir í stríð við flugfreyjur.
Gert er ráð fyrir að hægt verði
að halda innanlandsfluginu að
mestu gangandi og takmarkaðri
þjónustu um borð í millilandaflug-
vélum. Um 8.500 farþegar eiga
bókað far með vélum félagsins
verkfallsdagana. í gær var haldinn
árangurslaus samningafundur hjá
ríkissáttasemjara í vinnudeilu Flug-
freyjufélags íslands og Flugleiða
og ekki boðað til nýs fundar.
Yfirmenn Flugleiða, sem hafa
hlotið tilskilda þjálfun, munu sinna
störfum öryggisvarða um borð í
flugvélum félagsins. Að sögn Ein-
ars Sigurðssonar blaðafulltrúa
Flugleiða hefst þjálfunin á föstudag
og lýkur fyrir boðaða verkfallsdaga.
Ekki liggur fyrir hvað margir yfír-
menn verða þjálfaðir, en forstjóri
og framkvæmdastjórar ásamt yfír-
mönnum sem ganga þeim næst
verða í fyrsta hópnum.
Breyta verður
áætlunum
Að sögn Einars er reiknað með
að áætlunum verði breytt, því ekki
tekst að manna allar vélar með svo
skömmum fyrirvara. „Við teljum
afar mikilvægt að halda landinu
opnu, því þetta er mikilvægasti
bókunartími ferðaþjónustunnar,“
sagði Einar. Þegar yrði vart áhrifa
boðunar verkfallsins á bókanir.
Einnig væri mikilvægt að halda
uppi samgöngum innanlands, ekki
síst þegar samgöngur á landi eru
erfíðar, að sögn Einars.
Aðspurður hvort þessar aðgerðir
fengju staðist vitnaði Einar í hlið-
stæðar aðgerðir nýlega hjá breska
flugfélaginu Brittania. „Við horfum
til þeirra laga og reglna sem gilda
um flugreksturinn í innlendum lög-
um og alþjóðlegum. Það verður
fýrst og fremst öryggisgæsla um
borð og þjónusta eftir því sem tök
eru á.“
Strandar á tvennu
í frétt Flugleiða segir að flug-
freyjur hafi hafnað tilboði félagsins
um kjarasamning sem fól í sér
kauphækkanir til jafns við það sem
samið hefur verið um á almennum
markaði. Þá segir að kjaradeilan
strandi á tveimur meginatriðum.
Annars vegar hafí flugfreyjur kraf-
ist sambærilegra hækkana og flug-
menn og flugvirkjar fengu með
hagræðingarsamningum við Flug-
leiðir. Félagið segist vera reiðubúið
að semja um þetta atriði.
Hins vegar geri flugfreyjur kröfu
um að þeim verði gert kleyft að
láta af störfum við 63 ára aldur „en
halda þó verulegum hluta launa þar
til taka á fullum lífeyri þeirra úr
Lífeyrissjóði verslunarmanna
hefst". í fréttinni segir að Flugleið-
ir telji útilokað að samningar náist
um þessa síðari kröfu, en félagið
hafí boðið þeim flugfreyjum og
þjónum, sem vilja hætta við 63 ára
aldur, störf á jörðu niðri.
Stríðshanskanum
kastað
Erla Hatlemark, formaður Flug-
freyjufélags íslands, sagði samn-
inganefndina ekki hafa hafnað
neinu tilboði í gær því ekkert tilboð
hefði verið lagt fram. Með þessum
aðgerðum væru Flugleiðir komnir
í stríð við flugfreyjur.
Hún minnti á að í verkfalli flug-
freyja 1973 hefði annað flugfélagið,
sem flugfreyjur áttu þá í vinnudeilu
við, sett öryggisverði um borð í
vélar sínar. Þá var leitað til Alþjóða-
sambands flutningaverkamanna
um að setja afgreiðslubann á flug-
vélamar erlendis. Ekki reyndi á
bannið því verkfallið leystist áður
en til þess kæmi.
Dorgað í
verkfalli
f KENNARAVERKFALLI
reyna börnln að finna sér eitt-
hvað til dundurs og drepa tím-
ann. Dorgveiði hefur ekki verið
mikið stunduð á Laugarvatni
en var þó reynd í góðviðris-
kafla á dögunum. Fréttaritari
hitti þijá drengi sem legið
höfðu á ísnum af og til í tvo
daga til að Iokka bröndur á
öngulinn. Strákamir sögðu að
félagi þeirra hefði veitt einn
strax í fyrstu tilraun daginn
áður, en síðan hefði ekkert
veiðst þrátt fyrir margskonar
gómsæta beitu, s.s. silung, gul-
ar baunir, lýsispillur og ána-
maðka.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Skákþing
Norðurlanda
Cramling og
Hansen efst
ÖNNUR umferð svæðamóts Skák-
þings Norðurlanda var tefld í gær.
Þau Pia Cramling og Sune Berg
Hansen em efst í 1. til 2. sæti með
tvo vinninga hvort.
Úrslit urðu þau að Curt Hansen
og Erling Mortensen gerðu jafntefli
líkt og Jonathan Tisdal og Margeir
Pétursson, Hannes Hlífar Stefáns-
son og Þröstur Þórhallsson, Marko
Manninen og Ralf Akesson.
Pia Cramling vann Simon Ag-
desten, Sune Berg Hansen vann
Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson
tapaði fyrir Lars Bo Hansen, Einar
Gausel sigraði Lars Degerman,
Jonny Hector vann Thomas Ernst
og Tapani Sammalvuo tapaði fyrir
Rune Djurhus.
Margeir Pétursson er efstur ís-
lenskra þátttakenda og er í 3. til
8. sæti ásamt þeim Curt Hansen,
Lars Bo Hansen, Erling Mortensen,
Einar Gausel og Jonathan Tisdall
með l*/2 vinning.
■ Mikil harka/47
■ ♦ ♦ ♦---
Bruggstöð lok-
að í Breiðholti
LÖGREGLAN í Reykjavík lagði á
mánudagskvöld hald á eimingar-
tæki og áhöld til landaframleiðslu
í bílskúr við Krummahóla.
Tveir menn á þrítugsaldri, sem
báðir hafa komið við sögu bmgg-
mála áður, höfðu tekið skúrinn á
leigu.
I bílskúrnum var 200 lítra eim-
ingartæki og 600 lítrar af gambra
sem nýlega hafði verið lagt í.
-----♦ ♦ ♦----
Patreksfjörður
Hættuástandi
aflýst
ALMANNAVARNANEFND Pat-
reksfjarðar aflýsti hættuástandi í
bænum um kl. 18.00 í gærkvöldi.
Fengu allir íbúar bæjarins sem gert
hafði verið að rýma heimili sín að
snúa aftur heim.
Fyrr um daginn hafði hættu-
ástandi verið aflýst á svæði neðan
Geirseyrargils, en afráðið að bíða
fram undir kvöld að aflýsa hættu
við Mýrar og Urðir, þar sem um
80 metra snjóflóð féll í fyrrakvöld.
>
i
I
i
\
\
\
\
Fimmta verkfallið orðið það næstlengsta
VERKFALL kennarafélaganna
er orðið annað lengsta verkfall
sem kennarar hafa staðið í til
þessa. Hingað til hefur ekki til
þess komið að skólastarf á skóla-
ári eða önn hafi farið í vaskinn
vegna verkfalls.
Yfirstandandi verkfall er
fimmta verkfallið sem samtök
kennara fara út í. Kennarar í
Kennarasambandi íslands fóru
fyrst í verkfall 1977, en KÍ var
þá innan BSRB. Áhrifa þess
gætti einnig í framhaldsskólum,
því að húsverðir fóru í verkfall
og óheimilt var því að opna skól-
ana. Útskrift varð með eðlileg-
um hætti.
KÍ fór aftur í verkfall með
BSRB árið 1984 og stóð það í
26 daga. Skólastarfi þá var einn-
ig bjargað með aukinni kennslu
og breyttu skipulagi í skólunum.
Kennarar í HÍK sögðu upp
störfum í ársbyrjun 1985 og
tóku uppsagnirnar gildi 1. mars.
Um 400 kennarar mættu ekki
til starfa fyrr en 24. mars þegar
deilan leystist. Hún kom mis-
munandi niður á nemendum þar
sem einungis hluti kennara
sagði upp störfum. Skólarnir
leystu þau vandamál sem sköp-
uðust vegna vinnustöðvunarinn-
ar með ýmsum hætti.
HÍK var í verkfalli 16.-30.
mars 1987. Verkfallið náði til
flestallra framhaldsskóla nema
Verslunarskólans og kennsla
skertist einnig í efstu bekkjum
grunnskóla. Eftir að deilan
leystist var kennt á laugardög-
um, í páskavikunni og sumar-
daginn fysta. Próf voru að
mestu leyti með hefðbundnum
hætti.
Verkfall HÍK 1989 stóð í 42
daga og var lengsta kennara-
verkfallið til þessa. Eftir að það
leystist var kennt í flestum skól-
um í nokkra daga og próf síðan
lögð fyrir. Víða var þó vetrar-
einkunn látin gilda sem lokaein-
kunn. Nokkrir skólar létu nægja
að gefa nemendum einkunnina
M, þ.e. metið, eða F, þ.e. fall.
BSRB
14dagar, 11.-25. okt.
1978
1980
1982
1984 BSRB
ÍEEEl HÍK
1986
ÍET51 hík
1988
IEEE1 HÍK
1990
1992
1994
Truflun
á skólastarfi
í vinnudeilum
1977-95
(uppsagnir)
26 d., 4.-30. okt.
| 24 d., 1 .-24. mars
|l4dagar, 6-30. mars
6. apríl-18. maí, 42 dagar
HÍK/KÍI
22. mars, 34 dagar
Engar opinberar tölur liggja
fyrir um hvað margir nemendur
flosnuðu upp úr námi vegna
verkfallanna. Ljóst er þó að
margir nemendur hafa tafist í
námi vegna þeirra. í könnun
sem Morgunblaðið gerði í fjór-
um stórum og meðalstórum
skólum eftir vinnustöðvun kenn-
ara 1985 kom fram að 90 nem-
endur gerðu hlé á námi vegna
hennar.
Yfirstandandi verkfall hefur
staðið yfir í 34 daga. Þó að verk-
fallið 1989 hafi staðið lengur
hefur yfirstandandi verkfall að
sumu leyti þegar raskað skóla-
starfi meira en það gerði. Verk-
fallið 1989 hófst í lok skólaárs-
in^i þegar búið var að kenna í
þrjá ^ mánuði á vorönninni, en
nu hofst verkfall þegar einungis i
var húið að kenna í rúman mán-
uð á önninni. Það er því erfiðara
að nota sömu aðferð og 1989,
byggja lokaeinkunn á vetrar-
einkunn, þar sem á svo litlu
námi er að byggja.