Morgunblaðið - 23.03.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.03.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1995 31 AÐSEIMDAR GREINAR Miklar umbætur í frjálsræðisátt ALÞÝÐUFLOKKURINN er rót- tækur umbótaflokkur. Fullyrða má að jafnróttækar skipulagsumbætur og breytingar í frjálsræðisátt í við- skiptalífinu hafa ekki verið gerðar á jafnskömmum tíma og á starfs- tíma ráðherra Alþýðuflokksins í við- skiptaráðuneytinu frá 1988. Markmið breytinganna hefur verið að auka athafnafrelsi í við- skiptum, efla samkeppni í hagkerf- inu og setja traustar og sanngjarn- ar almennar leikreglur á þessu sviði. Löggjöfin á þessu sviði er orðin nútímaleg, frjálslynd og byggist á sömu meginhugmyndum og gerist og gengur í nágrannaríkjum okkar. Að hluta til hafa breytingarnar ver- ið gerðar vegna aðildar íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Fjármagnsmarkaðurinn Allt fram á miðjan síðasta áratug var fjármagnsmarkaðurinn hér- lendis afar vanþróaður og heftur í ljötra miðstýringar. Þeim miklu Fullyrða má, segir Jón Baldvin Hannibalsson, að jafnróttækar skipu- lagsumbætur og breyt- ingar í frjálsræðisátt í viðskiptalífinu hafa ekki verið gerðar á jafn- skömmum tíma og á starfstíma ráðherra Al- þýðuflokksins í við- skiptaráðuneytinu frá 1988. framförum sem orðið hafa í þessum efnum á síðustu árum hefur ekki verið nægjanlegur gaumur gefinn. Bönkum hefur fækkað og einn öflugur einkabanki orðið til, verð- bréfafyrirtæki, verðbréfamiðlarar, verðbréfasjóðir og eignarleigufyrir- tæki hafa skotið rótum. Undir for- ystu Alþýðuflokksins hefur íslensk- ur ijármálamarkaður siglt inn i nútímann. Með lögum um verðbréfasjóði voru settar ítarlegri reglur um starfsemi þeirra en áður giltu, m.a. um íjárfestingarstefnu og aðskilnað frá verðbréfafyrirtækjum. Með breytingum á lögum um viðskipta- banka og um sparisjóði árið 1992 voru teknar upp nýjar alþjóðlegai eiginfjárreglur fyrir banka og spari- sjóði. Tilgangur þessara breytinga var bæði sá að samræma reglur hér á landi alþjóðlegum reglum en ekki síður að gera ríkar kröfur til fjárhagslegs styrks banka og spari- sjóða þannig að þeir geti staðist áföll. Frelsi í gjaldeyrismálum Á sviði gjaldeyrismála hafa ráð- herrar Alþýðuflokksins rutt úr ■ HJÁ KLETTINUM, kristnu snmfékigi í Hufnarfirði, verður helgina 24.-26. mars Wynne Goss í heimsókn. Hann er fæddur 1953 og veitir forstöðu The Vine Christ- ian Center í Suður-Wales sem er ört vaxandi kirkja. Wynne predikar fagnaðarerindið á áhrifamikinn hátt, m.a. í gegnum tónlist, en hann hefur mikla trú á mikilvægi lofgjörð- ar og tilbeiðslu. Margir hafa frels- ast og læknast þegar þeir hafa brugðist við boðskap hans og á slík- um stundum hefur Drottinn oft þjónustað í gegnum hann í spá- mannlegum söng, segir í fréttatil- kynningu frá Klettinum. Samkomur verða sem hér segir: Föstudag 24. mars kl. 20.30, laugardag 25, mars kl. 20.30 og sunnudag 26. mars kl. 16.30. Samkomurnar verða haldnar í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7, Hafnarfirði. vegi áratuga gömlu hafta- og skömmtunarkerfi. Frá 1990 hefur markvisst verið unnið að því að brjóta niður gjaldeyrismúrana, ýmist með breytingum á reglu- gerðum eða lögum. íslendingar búa nú loks við algert frelsi í gjald- eyrismálum. Á síðustu árum hefur færst í vöxt að glæpamenn noti fjármála- fyrirtæki til að koma illa fengnu fé í umferð, þ.e. þvætti peninga. Und- ir forystu Álþýðuflokksins var ákveðið 1992 að ísland skyldi taka þátt í alþjóðlegu samstarfi um að- gerðir gegn peningaþvætti. Gildi þess sýndi sig seint á árinu 1994 þegar í ljós kom að erlent fjárglæfrafyrir- tæki reyndi að nota íslenska banka til að koma illa fengnu fé í umferð. Samkeppnislögin Ein mikilvægustu lög síðari ára fyrir ís- lenskt viðskiptalíf eru án efa hin nýju sam- keppnislög sem sett voru snemma árs 1993. í þeim er gengið út frá samkeppni sem meginreglu og lagt Jón Baldvin Hannibalsson bann við hvers konar aðgerðum sem eru til þess fallnar að skerða samkeppni. Þessi lög eru mikilvæg fyrir smáfyrirtæki og ein- staklinga í atvinnu- rekstri sem starfa í samkeppni við opinber fyrirtæki og stofnanir. Verkefnin framundan -Áfram þarf að vinna að umbótum á fjármagnsmarkaði. Sétja þarf ný lög um Seðlabanka íslands, breyta ríkis- bönkunum í hlutafélög og selja þá þegar markaðsaðstæður leyfa. Það er arfur frá liðinni tíð að hólfa fjárfestingarsjóði atvinnuveganna í sundur og reisa víggirðingar milli þeirra. Það stenst ekki á nútíma markaði. Alþýðuflokkur- inn vill að þetta kerfi verði stokk- að upp, sjóðir sameinaðir og þeim breytt í hlutafélög. Það verk er þegar hafið undir forystu Alþýðu- flokksins. Alþýðuflokkurinn getur státað af árangri af umbótum í fijálsræðis- átt. Honum er treystandi til að halda því starfi áfram. Um það verður m.a. kosið 8. apríl. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins - Jafn- aðarmannaflokks Islands. Vandaðar og nytsamar fermingargjafír BAKPOKAR Jrail 45 1 Verð kr. 8.880 IMlllHJimimmr. 7.992 BBHbHCSbRHHHKSJHBBBBBBHHIHHIIBBHHHHEhÍIHBHBBIH 1 Discovery 55 1 Verð kr. 10.880 1'ÍHliHHIlliHHlBBlkr. 9.792 \ ^ Panther 60 1 Verð kr. 12.680 Fermingartilboð ajnngilak. SVEFNPOKAR Scout LUXÍ -8-° - " Verð kr. 9.990 nimuimiiiiBikr. 8.991- Lillehammer io° verðkr.10.480 Fermingartilboð IgloO -18° Fermingartilboð ».390‘ Verð kr. 13.495 11.470* TJOLD Lichfieldiii Falcon 130 Fermingartilbo 2 manna Verð kr. 11.990 □kr. 10.791* Falcon 180 2-3 m. Verð kr. 13.840 mTimmiiMkr. 12.456- Hawk 180 2-3 m. Verð kr. 16.990 r. 15.29F Fermingartilboð GONGUSKOR Mirage leðurgonguskór Verð kr. 9.990 kr. 8.99F Fermingartilboð Einnig skiðatöskur frá kr. 2.000, hanskar, húfur, gleraugu og margt, margt fleira. ‘Tilboösverö miöast viö staögreiöslu. S/tfWR fRAMUR Raögreiöslur • Póstsendum samdægurs. Umboðsmenn um land ailt. Snorrabraut 60 • Sími 561 2045
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.