Morgunblaðið - 23.03.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Svona fór um sióferð þá
ÞAÐ hafa sennilega ekki aðrir en
unga fólkið ánægju af þeim gríð-
arlegu pollum sem myndast hafa
á götum bæjarins eftir að fór að
hlána. Þessir piltar voru að leik í
Hlíðarlundi í gærdag, útbjuggu
dálítinn fleka sem þeir hugðust
sigla á um stöðuvötnin sem þar
höfðu myndast. Sjóferðin varð
hins vegar endaslepp, burðargeta
flekans gerði ekki ráð fyrir sigl-
ingu með þijá innanborðs - og
flekinn sökk.
Allt að 30% skattpenínga
hafa farið í snjómokstur
SVEITARSTJÓRNARMENN hafa áhyggjur af
miklum kostnaði við snjómokstur í vetur og
komu þær fram í umræðum á fundi bæjarstjórn-
ar á þriðjudag.
Þórarinn E. Sveinsson bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokks sagði ijárveitingu Akureyrarbæjar
til snjómoksturs löngu búna og hefði starfs-
manni Héraðsráðs Eyjafjarðar verið falið að
kanna hvort til væru sjóðir sem hægt væri að
leita til með fjárveitingar. Sagðist hann vita
dæmi þess að lítil sveitarfélög í nágrenni Akur-
eyrar væru búin að eyða allt að 30% af skattpen-
ingum sínum í snjómokstur. Þá gat hann þess
að mjóikurbíll sem var á ferðinni í Eyjafirði á
þriðjudag hefði ekið um djúp snjógöng og hefði
snjórinn náð um 2 metra yfir bílinn.
Getur skert framkvæmdagetu í sumar
„Þetta eru ekkert annað en náttúruhamfarir og
mörg sveitarfélög eiga í erfiðleikum með að
kosta allan þennan mokstur. Því höfum ákveðið
að athuga hvort til séu sjóðir sem hægt er að
leita til,“ sagði Þórarinn og bætti við að nú
væri að hlána, vorið væri vonandi á næsta leiti
þó svo ekki væri hægt að lofa neinu slíku í
bæjarstjórn.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki,
sagði geypilegt fjármagn hafa farið í snjóhreins-
un í vetur. Þó væri farið að draga úr mokstri í
íbúðargötum, en ástæða væri til að hafa áhyggj-
ur af hamförum þegar færi að hlána að ráði,
þíðan vekti ekki gleði allra. „Það er ljóst að ein-
hvers staðar verður að taka þetta fjármagn og
þetta getur vissulega haft áhrif á framkvæmda-
getu okkur í surnar," sagði Sigurður, en snjóm-
okstri væri hvergi nærri lokið, mikið verk væri
eftir við að gera götur ökufærar og að bregðast
við hlákunni.
„íslenskur sjávarútvegur á alþjóðavettvangi"
Ráðstefna um sjávarútveg í Háskólabíói (sal 3) laugardaginn 25. mars.
Ráðsteínustjóri: Gestur Geirsson.
DAGSKRÁ:
09.30 Innritun.
10.00 Jón Þórðarson, forstöðumaður
sjávarútvdeildar. HA, setur ráðstefnuna.
10.10 Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra.
10.35 Jóhann Sigurjónsson, aðstoðarforstjóri
Hafrannsóknastofnunar.
10.55 Gunnlaugur Ingvarsson,
framkvæmdarstjóri lcemac.
11.15 Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands íslands.
11.35 Fyrirspurnir og almennar umræður.
12.00 Matarhlé. Hádegisverður á Hótel Sögu.
13.00 Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra.
13.25 Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.
13.50 Grímur Valdimarsson, forstöðumaður RF.
14.15 Páll Gíslason tæknilegur framkvæmdarstjóri
Goodman Shipping
14.35 Steingrímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi.
Halldór Ásgrímsson Framsóknarflokki.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Kvennalista.
Ágúst Einarsson Þjóðvaka.
16.05 Fyrirspurnir og almennar umræður.
17.00 Steindór Sigurgeirsson formaður
Stafnbúa slítur ráðstefnunni.
Þátttökutilkynningar eða fyrirspurnir berist fyrir föstudag Ráðstefnugjald er 3.500 kr., innifalin eru
um simbref 96-30998 eða símsvara 96-26138. ráðstefnugögn og veglegur hádegisverður
Vinsamlegast tilgreinið miðafjölda, nafn og heimilisfang á Hótel Sögu.
ásamt vinnu- og heimasíma.
Félag sjávarútvegsfræðinema við Háskólann á Akureyri
ISLANDSBANKI
sjóváqIIalmennar
L
Landsbanki
íslands Skeljungurhf.
(Sjá einnig auglýsingu á bls. 617 í Textavarpinu).
Störf við
Giljaskóla
auglýst
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti á fundi á þriðjudag
að nýr skóli sem byggður verð-
ur í Giljahverfi skuli heita
Giljaskóli.
Þá var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar að óska eftir við
Fræðsluskrifstofu Norður-
lands eystra að auglýst verði
eftir umsóknum skólastjóra og
kennara við skólann.
Nokkrar umræður urðu um
málið á fundi bæjarstjórnar
og þannig velti Sigurður J.
Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki,
því upp hvort skynsamlegt
væri í fyrstu að skólastjóri
Síðuskóla sæi einnig um skóla-
stjórn í hinum nýja skóla, eink-
um í ljósi þess hversu Gilja-
skóli yrði fámennur til að byija
með. Sigríður Stefánsdóttir,
Alþýðubandalagi, sagði aftur
á móti mikilvægt við uppbygg-
ingu nýrra skóla að ráðinn
yrði skólastjóri til að stjórna
skólanum frá upphafi.
Baráttufund-
ur foreldra
BARÁTTUFUNDUR foreldra
verður haldinn í Dynheimum
kl. 20.30 í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 23. mars.
Börnin hafa ekki komist í
skólann í tæpar fimm vikur
vegna kennaraverkfalls og
vilja foreldrar á Akureyri ræða
það ástand sem upp er komið
vegna þess.
Fundur
G-listans
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalags-
ins, verður meðal þeirra sem
fram koma á almennum
stjórnmálafundi G-listans sem
haldinn verður í Alþýðuhúsinu
á Akureyri í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 23. mars kl.
20.30.
Einnig verða þar Bryndís
Hlöðversdóttir, lögfræðingur
ASÍ, en hún skipar 2. sætið á
G-listanum í Reykjavík, og
efstu menn G-listans á Norð-
urlandi eystra, þau Steingrím-
ur J. Sigfússon, Árni Steinar
Jóhannsson og Sigríður Stef-
ánsdóttir.
Þrír einleikir
ÞRÍR einleikir verða sýndir á
„heitum fimmtudegi" í Deigl-
unni í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 23. mars kl. 20.30 og
einnig verða þeir sýndir n.k.
laugardag 25. mars kl. 16.00.
Einleikirnir eru eftir Ingi-
björgu Hjartardóttur og heita
Dóttirin, Bóndinn og Slag-
hörpuleikarinn. Þættirnir
segja sögu þriggja kvenna sem
eiga að baki mismunandi feril.
Laufás-
prestakall
KIRKJUSKÓLI á laugardag,
25. mars í Svalbarðskirkju kl.’
11.00 og í Grenivíkurkirkju
kl. 13.30.
Guðsþjónusta í Grenivíkur-
kirkju sunnudagskvöldið 26.
mars kl. 20.30. Sóknarprest-
urinn kemur og messar sjálfur
og fermingarbörn aðstoða.