Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 62,3 millj- ónir fyrir lagningu Suðuræðar BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka rúmlega 62,3 milljón króna tilboði lægstbjóðanda, Víkurverks hf., í lagningu áfanga B, Suðuræð- ar fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Þrettán tilboð bárust í verkið. Tilboð lægstbjóðanda er 65,3% af kostnaðaráætlun. Næsta lægsta tilboð átti Loftorka Reykjavík hf., sem bauð 69,33% af kostnaðaráætl- un. Næst kom Guðjón Þorkelsson, sem bauð 69,87% af kostnaðaráætl- un. Þrettán tilboð Aðrir sem buðu voru Klæðning hf., sem bauð 71,41% af kostnaðar- áætlun, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hf., sem bauð 71,76% af kostnaðaráætlun, Völur hf., sem bauð 72,57% af kostnaðaráætlun, Vinnuvélar Jóa Bjarna, sem bauð 77,98% af kostnaðaráætlun, Grafan hf., sem bauð 79,64% af kostnaðar- áætlun, J.V.J. hf., sem bauð 82,03% af kostnaðaráætlun, Dalverk sf., sem bauð 82,55% af kostnaðaráætl- un, Jarðvélar sf., sem bauð 83,99% af kostnaðaráætlun, Bergbrot hf., sem bauð 85,11% af kostnaðaráætl- un og Sigurverk hf., sem bauð 99,55% af kostnaðaráætlun. -----» ♦ ♦ Rúmar 43,2 milljónir í mal- biksviðgerðir BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka rúmlega 43,2 milljón króna tilboði lægstbjóðanda Loftorku hf., í malbiksviðgerðir í Reykjavík. Fjögur tilboð bárust gatnamála- stjóra í heildarverkið en útboðsgögn gerðu ráð fyrir að hægt yrði að skipta verkinu í áfanga. Aðrir sem buðu voru Malbik og völlun hf., Halldór og Guðmundur og Hlaðbær - Colas hf. I víking Morgunblaðið/Þorkell JÓN Baldur Þorbjörnsson á hafnarbakkanum í Reykjavík við breyttan Toyota Hilux sem seldur hefur verið til Þýskalands. Fyrsti breytti jeppinn fluttur út til Evrópu FYRSTI jeppinn sem fluttur er út breyttur frá íslandi til kaup- anda í Evrópu fór í skip í gær. Um er að ræða Toyota Hilux sem Toyota aukahlutir og fleiri aðilar hafa breytt fyrir fyrir- tækið ísfar sem hefur unnið að markaðssetningu breyttra bíla í Evrópu á undanfömum miss- emm. Fjölmargir innlendir aðil- ar koma að breytingunum á bílnum og segir Jón Baldur Þorbjömsson lyá ísfari að hér geti skapast talsverður iðnaður í kringum bílabreytingar ef vel tekst til. Undirbúningur að þessu máli hófst fyrir einu og hálfu ári og hefur Isfar tvisvar tekið þátt í jeppasýningu í Köln í Þýska- landi og sýnt þar breyttan Hilux jeppa. Vörumerki fyrirtækisins nefnist Der Islander og er það skrásett þjá þýsku einkaleyfis- stofunni. Helmingur aukahluta íslenskir í hnotskurn lítur dæmið þannig út að fluttur er inn óbreyttur Hilux og hér er hon- um breytt í samræmi við óskir kaupenda. Nokkrir aðilar sem í upphafí tóku þátt í verkefninu hafa nú dregið sig út úr því, þeirra á meðal Ujólbarðavið- gerð Vesturbæjar, Stál og Stansar og Ferðaskrifstofan Addís. í þeirra stað kom inn í verkefnið fyrirtækið Handverk, sem framleiðir m.a. millikæla og vatnskassa. Jón Baldur segir að um helm- ingur aukahluta í bílnum sé ís- lensk framleiðsla. Hann segir að komi fram ósk um aðrar gerðir bíla verði leitað eftir til- boðum um breytingar á þeim þar sem hagstæðast er. „Ég vildi gjarnan að fleiri hagsmunaaðilar, þeir sem fram- leiða aukahluti fyrir þessa bíla hér á landi, tækju sig saman og ynnu að markaðssetningunni úti því þetta er það sem íslendingar hafa nóg af, varðandi kunnáttu og þekkingu,“ sagði Jón Baldur. Hópur íslenskra vísindamanna hefur sótt um tvær djúpar borholur norðan Islands á vegum alþjóðaverkefnisins Ocean Drilling Program Ávinningiirinn samsvaraði 400 ára framlagi íslands HÓPUR íslenskra vísindamanna hefur sótt um til alþjóðaverkefnisins Ocean Drilling Program (ODP) að boraðar verði tvær djúpar borholur og teknir kjamar úr svokölluðu Tjörnestrogi norðan við ísland, en það er um 140 km langt og 40-50 km breitt. Telja vísindamennimir mikl- ar líkur á að þar séu varðveitt nákvæm gögn um fomhaffræði norðurhafa, loftslagsbreytingar síðastliðinna 10 milljóna ára um norðurhvel jarð- ar og að úr setlögunum megi lesa nánast alla jarðsögu íslands. Þetta kom fram á vorráðstefnu Jarðfræðafélags íslands, sem haldin var í Odda í gær. Gífurlegur ávinningur Að sögn Guðmundar Ómars Friðleifssonar, jarðfræðings hjá Orkustofnun, sem er einn þeirra vísindamanna sem eiga aðild að umsókninni til ODP, er fyrsti dómur um umsóknina á þá leið að hún sé of einskorðuð við staðbundnar veður- farsbreytingar. Höfundum hennar þykir hins vegar gæta þar nokkurs misskilnings af hálfu gagnrýnenda, sem ekki hafi áttað sig á hvflíkur gagnabanki Island sé í sögu hafstrauma- og veðurfarskerfa í N-Atlantshafi. Er nú unnið að því að endurmeta markmið og áherslur vegna umsóknarinnar og gera áætlun um stuðnings- rannsóknir sem stuðli að því að skýra betur setfræðilega uppbyggingu Tjörnestrogsins. Guðmundur Ómar segir að gífurlegur ávinn- ingur væri að því ef umsókn íslensku vísinda- mannanna yrði samþykkt. Árlega eru farnir sex borleiðangrar á vegum ODP og kostar hver rannsóknarleiðangur um hálfan milljarð króna. Alls kostar ODP-verkefnið því um þijá milljarða króna á ári, en framlag íslands til verkefnisins er hins vegar aðeins 0,045%, eða um 1,3 milljón- ir króna. Fyrirliggjandi umsókn íslands um bor- anir í Tjömestrogið myndi væntanlega taka einn rannsóknarleiðangur og ávinningur af sam- þykktri umsókn svaraði þannig til um 400 ára óbreytts framlags íslands til verkefnisins. Er þá ótalinn sá rannsóknartími og kostnaður sem fylgir hveijum leiðangri við úrvinnslu og birt- ingu niðurstaðna, en það jafngilti 50-100 ára framlagi íslands til viðbótar. Eitt stærsta vísinda- verkefni í heimi ODP var stofnað árið 1985 og er það eitt af stærstu vísindaverkefnum sem stunduð eru í heiminum í dag, og er samstarf 20 þjóða. Starf- semi ODP gengur að segja má út á það eitt, að ná borkjömum upp úr hafsbotnunum og er rann- sóknaskipið Joides Resolution notað til þess. Skipið er 143 metra langt með bortum sem gnæfir 62 metra yfir sjávarmál. Það er útbúið tölvustýrðum staðsetningarútbúnaði sem gerir því kleift að halda staðsetningu fyrir ofan bor- holu sem er á rúmlega 8.000 metra sjávardýpi og getur það tekið um 1.000 langan kjama. Um borð í skipinu eru einhveijar fullkomn- ustu rannsóknarstofur í heiminum, búnar tækj- um til rannsókna á flestum sviðum jarðvísinda. Hver borleiðangur stendur í um tvo mánuði og í honum taka að jafnaði þátt 25-30 af fremstu vísindamönnum á sviði jarðvísinda. Með tilkomu rannsóknaskipsins og nýrrar bortækni hafa kjarnaheimtur aukist til muna og hefur það leitt til þess að vitneskja um hafsbotna jarðar hefur aukist gífurlega mikið á undanförnum árum, en ODP hefur skilað af sér um 100 km af bor- kjömum. Til Reykjavíkur í september Næsta sumar verða tveir borleiðangrar á veg- um ODP í nágrenni íslands og eru ein til tvær borholur áætlaðar innan íslenskrar efnahagslög- sögu í þeim fyrri. Að leiðangrinum loknum í byijun september kemur rannsóknaskipið Joides Resolution til Reykjavíkur þar sem skipt verður um áhafnir og teknar vistir. í tengslum við komu rannsóknaskipsins verður þá haldinn hér á landi fundur svokallaðra NORDBOR- og ESCO-nefnda innan Evrópska vísindasjóðsins, Europe Science Foundation, en íslendingar eiga aðild að ODP í gegnum umræddar nefndir. A göngn- skíðum norður yfir Kjöl SIGURSTEINN Baldursson, 23 ára, lagði af stað í gærkvöldi í göngu á skíðum yfir Kjöl. Sigur- steinn, sem er reyndur fjallamaður, ætlar að vera 10 daga á leiðinni og kveðst hann hafa besta fáanleg- an búnað meðferðis. Sigursteinn lagði af stað í gær- kvöldi frá vegamótunum við Gull- foss og Kjöl og ráðgerir hann að ganga þaðan að Fremstaveri sunn- an Bláfellsháls. Þaðan heldur hann til Hvítárness þar sem hann ráðger- ir að gista í skála Ferðafélags ís- lands en Hveravellir er næsti við- komustaður. Þaðan liggur leiðin að Ingólfsskála og Rauðafelli og ætlar hann að ganga austan við Illviðra- hnjúka og norðan Laugafellshnjúks á leið sinni að Laugafelli. Næstu viðkomustaðir eru Urðarvötn en Sigursteinn ráðgerir að koma niður í Glerárdal og vera á Akureyri laug- ardaginn 22. apríl. Hj’ólaði yfír Vatnajökul Sigursteinn sagði { samtali við Morgunblaðið áður en hann hélt af stað í gær að hann yrði með bestan fáanlegan búnað í ferðinni, þ.á m. talstöð, GPS staðsetningartæki og neyðarsendi. Hann dregur allan sinn búnað á sérstökum sleða og vegur hann samtals um 47 kg. Vist- ir hefur hann til 14 daga. Sigur- steinn sagði að megintilgangurinn með ferðinni væri sá að fá útrás úti í náttúrunni. Hann hafí mikið gert af því að ferðast einsamall að sumri til og sér finnist hann nú búa yfir nægri reynslu til að takast slíka ferð á hendur. Sigursteinn er félagi í íslenska alpaklúbbnum og hefur stundað klifur á Grænlandi og í Ölpunum en árið 1991 þjólaði hann yfir Vatnajökul ásamt fjórum félögum sínum. -----»-■» »---- Sölutölur ÁTVR fyrstu þrjá mánuði ársins Heildarsala áfengisjókst um 4,11% HEILDARSALA áfengis að bjór meðtöldum nam 1.990.296 lítrum fyrstu þijá mánuði ársins, eða 190.592 alkóhóllítrum. Sambæri- legar tölur frá árinu 1994 eru 1.911.675 lítrar, eða 193.045 alkó- hóllítrar. Aukningin milli ára er því 4,11% í lítrum en 1,27% samdráttur í alkóhóllítrum. Stafar sá samdrátt- ur m.a. af aukinni bjórsölu, en árið 1994 var hún 1.430.180 lítrar á móti 1.527.273 lítrum í ár, eða 6,79% meiri. Samdráttur varð í allri tóbaks- sölu fyrstu þijá mánuði ársins mið- að við sama tímabil í fyrra. Þannig nam heildarsala nef- og munntób- aks 3.190 kg á móti 3.202 kg í fyrra, sem er 0,36% samdráttur, heildarsala reyktóbaks nam 3.186 kg á móti 3.260 kg í fyrra, sem er 2,29% samdráttur, heildarsala vindlinga nam 89.418 mille á móti 95.020 mille, sem er 5,90% sam- dráttur og heildarsala vindla nam 2.610.732 stk. á móti 2.750.770 stk. í fyrra, en það er 5,09% sam- dráttur milli ára. í þessum tölum er ekki tekið til- lit til þess áfengis og tóbaks sem áhafnir skipa og flugvéla flytja inn í landið, eða þess magns sem ferða- menn taka með sér frá útlöndum eða kaupa í fríhöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.