Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 67 MARGRET KONRÁÐSDÓTTIR + Margrét Konr- áðsdóttir fædd- ist 25. febrúar 1908. Hún lést 6. apríl siðastliðinn. Foreldrar hennar Konráð Andrés- son, bóndi á Nýja- Bæ, Vatnsleysu- strönd, og kona hans, Guðrún Krisfjánsdóttir. Margrét átti þijú systkini; Guðrúnu, er dó í æsku, Krist- ján og Valdimar, er einn lifir þeirra systkina. Með Arna Eiríkssyni átti Margrét tvær dætur, Guðrúnu og Sigríði. Þau slitu samvist- um. 1960 giftist Margrét Aðal- steini Th. Gíslasyni, sjómanni, og bjuggu þau í Stigahlíð 22 þar til heilsa Margrétar bilaði og þau fluttust að Hrafnistu áriðl993. Margrét verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðju- daginn 18. apríl næstkomandi og hefst athöfnin kl. 15.00. MARGRÉT Konráðs- dóttir var langamma sona minna og einhver magnaðasti persónu- leiki er ég hef kynnst. Hún var komin yfir sextugt er ég fór að fara á fjörurnar við nöfnu hennar og dótt- urdóttur og við fyrstu kynni heillaði hún mig uppúr skónum allt annan hátt en dóttur- dóttirin. Margrét var glæsi- leg kona, líkamleg reisn hennar mikil, en þó var innri maðurinn enn magn- aðri. Sá kærleikur er verið hefur inntak kenninga kristindóms sem jafnaðarstefnu var henni innbor- inn og þó framkvæmd þeirra hug- sjóna í stórsamfélögum mannsins hafi jafnan verið í molum, voru kærleiksboðorðin á hreinu hjá Margréti og allt vildi hún fyrir mann gera. Mér er til efs að ég hefði haldið áttum, er kona mín hélt til náms í Danmörku og synir okkar voru ungir, hefði Margrét Konráðsdóttir ekki verið sú sem MINIMINGAR alltaf var hægt að treysta á. Syn- irnir, sem flökkuðu landa á milli, fundu miðju alheimsins í Stigahlíð 22, og alltaf var jafn spennandi að fara til gömlu ömmu, sem töfr- aði góðgætið úr ísskápnum eða stofuskápnum og ef í hart fór svefnhebergisskápnum. Margrét var eðalkrati og óvæg- in lífsbarátta mótaði lífskoðanir hennar. Hún vann fyrir sér og dætrunum hörðum höndum; í bak- aríi, verslunum eða á pijónastofu og skúraði á Tryggingastofnun snemma morguns jafnt sem síðla kvölds. Tímamót urðu í lífi hennar er hún giftist á miðjum aldri, Aðal- steini Th. Gíslasyni, sjómanni dáðadrengi, úr Innri-Njarðvík. Það varð þeim báðum til gæfu og hún kunni lagið á þeim gamla þegar á þurfti að halda. „Æ, Magga mín,“ sagði Steini stundum, þegar þau hlupu undir bagga með okkur feðgum og keyrðu okkur á Keflavíkurflugvöll í hið heimsfræga næturflug Flug- leiða. „Ósköp er dimmt yfir Ströndinni." Þá svaraði sú gamla að bragði. „Það er annað en í Njarðvíkinni. Þar er alltaf sól.“ Margrét Konráðsdóttir vakti ætíð yfir velferð ættarinnar. Þegar ég hóf búskap með nöfnu hennar og dótturdóttur í Þorlákshöfn var Kákasusgerlinum fljótlega komið í fóstur til okkar og átti hann, ásamt hákarlinum, er Aðalsteinn færði okkur í búið, stóran þátt í að heilsu minni var ekki ógnað í þorpinu því. Þó var eitt sem okkur vantaði: Kartöflurnar rauðu ís- lensku. Margrét taldi þær undi- stöðufæði hvers íslendings og það var ekki fyrr en við hjónin fluttum til Reykjavíkur að Margrét lét mig skrifa undir skjal þar sem sótt var um garðland að Korpúlfsstöðum. Þar vorum við hjón komin í komp- aní með þeim Aðalsteini og dætr- unum og íslenskar rauðar voru ræktaðar um árabil. Þvílíkar kart- öflur — meir að segja smælkið smakkaðist betur en styijuhrogn. Eðlislæg jafnaðarmennska gerði Margréti að vini alls þess sem lífsanda dró. Hörð ævikjör komu ekki í veg fyrir að hún næði miklum andlegum þroska. Hún kynntist dönskum siðum er hún var í vist hjá Mogensen apó- tekara ung að árum, og heimili hennar og Aðalsteins, í Stigahlíð 22, var danskt um margt. Þar fékk maður skinku og stundum bjór og Bing & Grondahl plattarn- ir skreyttu veggi. Þó átti nútíminn sitt griðland í heimi hennar. Hún hló sig máttlausa við að hlusta á smásögur Ólafs Ormssonar í út- varpinu og fannst myndir Tryggva Ólafssonar æði. Þegar hún var áttræð gáfum við Margrét, Henrik og Steinn henni og Aðalsteini lítið málverk eftir Tryggva. Þar var þorskhausinn í aðalhlutverki — enda Aðalsteinn tengdari sjónum öðrum höfuðskepnum fremur — og það ótrúlega gerðist. Margréti tókst að koma myndinni þannig fyrir í stofunni í Stigahlíð að Tryggvi Ólafsson varð hluti af dönsku aldamótaheimili. Þegar við Margrét Aðalsteins- dóttir slitum samvistum varð eng- in breyting á sambandi okkar Margrétar Konráðsdóttur. Hún var enn sem fyrr gamla amma sona minna, vinkona mín og ein- hver hjartahlýjasta manneskja sem ég hef kynnst. Vernharður Linnet. Stretsbuxur kr. 2.900 Konubuxur kr. 1.680 Mikiö úrval af allskonar buxum Opib ó laugardögum Bjóddu makanum með í viðskiptaferðina! 90% afsláttur fyrir maka ef hjón ferðast saman á viðskiptafarrými Fullt 90% Euroticket* 90% verð makaafsl. makaafsl. Keflavík - Kaupmannahöfn Keflavík - Álaborg 99.290 99.290 11.890 11.890 79.790 9.890 Tilboðið gildir til Keflavík - Árósar 99.290 11.890 30. júní 1995 Keflavík - Karup 99.290 11.890 Keflavík - Osló 96.980 12.180 78.080 10.280 Hámarksdvöl 1 mánuöur, Keflavík - Bergen 96.980 12.180 82.780 10.780 lágmarksdvöl engin. Keflavík - Stavanger 96.980 12.180 82.780 10.780 *Euroticket fargjald þarf aö bóka meö minnst fjögurra Keflavík - Stokkhólmur 109.670 12.370 88.070 10.170 daga fyrirvara. Keflavík - Gautaborg 99.670 11.370 79.970 9.370 Flogið er á þriöjudögum og föstudögum. Frá 3. júní er Keflavík - Jönköping 115.670 12.970 98.570 11.270 einnig flogiö á laugardögum. Keflavlk - Kalmar 115.670 12.970 98.570 11.270 Flugvallarskattur er innifalinn Keflavík - Malmö 103.470 11.670 88.170 10.170 í veröi. Keflavlk - Norrköping 117.570 13.170 100.170 11.370 Keflavík - Váxjö 115.670 12.970 98.570 11.270 Keflavík - Vásterás 110.770 12.470 100.170 11.370 Keflavík - Örebro 110.770 12.470 100.170 11.370 Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína eða söluskrifstofu SAS. M/SAS SAS á Islandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 172 Sími 562 2211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.