Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 59
PÁSKAMYIMDIR KVIKMYNDAHUSANNA
TÖLVULEIKUR; van Damme mundar byssuna.
TÍSKUFYRIRBÆRI; Marcello og Loren í Altman-
myndinni.
VÍ RUS; Hoffman í hasarmynd.
Dustín, Dainme,
Jim og félagar
Kvikmyndahúsin bjóða uppá nokkrar athyglisverðar
páskamyndir en þeirra á meðal eru spennumyndir
með Dustin Hoffman og Jean-Claude van Damme,
umdeild tískumynd Robert Altmans, nýjasta
mynd Jim Carreys og rómantísk gamanmynd
með Michael Keaton og Geena Davis. Arnaldur
Indriðason flallar um þessar myndir.
PERSÓNUR og leikendur páska-
mynda bíóanna, sem byrjuðu um
síðustu helgi og í þessari viku, eru
af ýmsum toga og myndirnar af
öllum stærðum og gerðum; spennumyndir
um vírusa og bardagamenn, farsi um tísku-
heim Parísarborgar, gamanmynd um ævin-
týri tveggja annálaðra heimskingja, róman-
tísk gamanmynd úr pólitíkinni vestanhafs
og fjölskyldumynd um milljónadrenginn
Rikka svo eitthvað sé nefnt.
Spennumynd með Hoffman
Dustin Hoffman fer með aðalhlutverkið
í páskamynd Sambíóanna sem heitir
vOutbreak“ eða í bráðri hættu á íslensku.
I henni leikur Hoffman, sem ekki er þekkt-
I ur fyrir að leika í spennumyndum hin síð-
ari ár, veirufræðing sem reynir að koma í
veg fyrir að banvænn vírus nái að breiðast
| út í litlu samfélagi í Kalifomíu og bjarga
lífi fyrrum eiginkonu sinnar, sem hefur
smitast. Leikstjóri er Þjóðverjinn Wolfgang
Peterson, sem síðast stýrði Clint Eastwood
í myndinni í skotlínu en með önnur hlut-
verk fara m.a. Morgan Freeman, Rene
Russo og Cuba Gooding jr.
Tvær vírusmyndir fóru í framleiðslu nær
samstundis í Hollywood en hin, „Crisis in
1 the Hot Zone“, varð að engu eftir að Rob-
ert Redford og Jodie Foster hættu við að
■ leika í henni. Þar með varð leiðin greiðfyr-
■ ir „Outbreak“, sem verið hefur vinsælasta
myndin vestanhafs undanfarnar vikur.
Framleiðandinn, Arnold Kopelson, fékk
Wolfgang í leikstjórasætið og réð Ted Tally
til að endurskrifa handritsdrögin en hann
hafði gert handrit spennumyndarinnar
Lömbin þagna. „Dustin stóð sig vel,“ er
haft eftir framleiðandanum, Amold Kopel-
5 son („Platoon"), um hasarmyndaleikarann
Hoffman. „Hann á eftir að veita Stallone
harða samkeppni."
Önnur páskamynd Sambíóanna er ævin-
týrið um milljónadrenginn Richie Rich eða
Rikka ríka með milljónadrengnum Mac-
aulay Culkin í aðalhutverki. Hún segir af
strák sem skyndilega verður milljónamær-
ingur eftir að foreldrar hans farast í flug-
slysi að því að talið er. Hann þráir að eign-
ast félaga í nokkrum götustrákum í grennd-
inni og á endanum snúa þeir bökum saman
1 gegn óþokkanum John Larroquette, er reyn-
ir að hreppa auðinn. Leikstjóri er Donald
■ Petrie.
• Myndin komst í fréttir þegar faðir Culk-
ins, sem einnig er umboðsmaður hans, gerði
óheyrilegar launakröfur fyrir hönd sonar
síns og einnig tók það hann dágóða stund
að ákveða hver skyldi leikstýra myndinni.
Culkin litli hlaut vinsældir í gegnum Aleinn
heima- myndimar og er hæstlaunaða barna-
stjarna sem til er.
Þá sýna Sambíóin einnig nýjustu mynd
Tommy Lee Jones, „Cobb“, um samnefnda
hornaboltastjörnu í Bandaríkjunum á fyrstu
áratugum aldarinnar.
Ástir ræðuhöfundanna
Aðalpáskamynd Háskólabíós er róman-
tíska gamanmyndin „Speechless" eða Orð-
laus með Michael Keaton og Geena Davis
í aðalhlutverkum undir leikstjórn Ron Und-
erwoods („Tremors"). Keaton og Davis leika
ræðusmiði hjá andstæðingum í pólitík sem
rugla saman reytunum en svo vill til að það
nákvæmlega sama gerðist hjá ræðuhöfund-
unum Mary Matalin og James Carville, sem
skrifuðu bók um málið um það bil sem
myndin komst á skrið og vakti mikla at-
hygli vestra. Handritshöfundurinn, Robert
King, segist þó hafa fengið hugmyndina
löngu fyrir þann samslátt og kynnt hana
MGM-kvikmyndaverinu strax árið 1989 svo
um helbera tilviljun er að ræða.
Framleiðandi myndarinnar er finnski
hasarmyndaleikstjórinn Renny Harlin, sem
kvæntur er Davis, og er þetta fyrsta mynd-
in sem þau gera í sameiningu; stykki núm-
er tvö er sjóræningjamyndin „Cutthroat
Island“. Aðrar nýjar myndir bíósins yfir
hátíðirnar eru rómantíska gamanmyndin
„Naked in New York“ eða Nakinn í New
York með Eric Stoltz og hópi þekktra leik-
ara, m.a. Tony Curtis, og ný mynd frá
breska leikstjóranum Peter Greenaway,
Barnið í Macon, með Julia Ormond í aðal-
hlutverki.
Heimskari en Bakkabræður
Myndir sem byggjast á ómengaðri
heimsku hafa verið vinsælar í Hollywood
hin síðari ár en enginn verið heimskulegri
eða vinsælli en „Dumb and Dumber“ eða
Heimskur heimskari, páskamyndin í Lauga-
rásbíói og Borgarbíói á Akureyri. Hún er
með Jim Carrey og Jeff Daniels í aðalhlut-
verkum og segir frá einkabílstjóra, sem
Carrey leikur og hefur ekki hálft vit á við
Bakkabræður, og vin hans, leikinn af Dani-
els, sem er enn heimskari. Þeir leggja upp
í mikinn eltingarleik þegar einn kúnninn,
sem Carrey hefur ekið út á flugvöll, gleym-
ir tösku sinni, viljandi að því er virðist, og
fávitafélagarnir elta hana yfir Bandaríkin
að skila töskunni.
Vinsældir Carreys, sem er kanadískur
skemmtikraftur, hafa verið með ólíkindum
frá því hann lék gæludýraspæjarann Ace
Ventura í samnefndri mynd. Eftir það kom
Gríman, svo Heimskur heimskari og hann
fer með eitt aðalhlutverkið í þriðju Batman-
myndinni orðinn einn bestlaunaði leikari
draumaverksmiðjunnar.
Belgískur bardagamaður
Nýjasta mynd belgíska sparkfræðingsins
Jean-Claude van Damme verður sýnd í
Stjörnubíói yfir hátíðirnar. Hún heitir Bar-
dagamaðurinn eða „Streetfighter“ og er
fyrsta myndin sem handritshöfundurinn
Steven E. de Souza leikstýrir en hann á
að baki fjölda hasarmyndahandrita eins og
„The Running Man“ og „Die Hard“. Þessi
mynd er byggð á þekktum tölvuleik og seg-
ir frá björgunarleiðangri van Damme í
smáríki í þriðja heiminum þar sem einræðis-
herrann, Raul Julia, heldur áhrifamönnum
í gíslingu. Raul lést úr krabbameini fljótlega
eftir tökur myndarinnar. Van Damme hefur
eiginlega fyllt upp það tóm sem Chuck
Norris skildi eftir en hefur enn ekki náð í
vegsemd og vinsældum þangað sem Stall-
one og sérstaklega Schwarzenegger standa
á stalli.
Altman í París
Bandaríski leikstjórinn Robert Altman
hefur orðið að tískufyrirbrigði hin síðari ár
eða frá því hann skopaðist eftirminnilega
að Hollywood í Leikmanninum. Nýjasta
myndin hans, „Pret-a-porter“ eða Parísar-
tískan, tekur fyrir tískuheiminn í háborg
fatatískunnar, ParíS, og fær Altman til liðs
við sig ijöldann allan af frægum leikurum
beggja vegna Atlantsála. Nægir að nefna
Tim Robbins og Julia Roberts að vestan
og Marcello Mastroianni og Sophia Loren
að austan. Eins og í Leikmanninum kvik-
myndaði Altman í raunverulegum partýum
tískufólksins og á tískusýningum og ber
margan tískukónginn fyrir augu. Einum
kóngana var ekki skemmt undir myndinni.
Karl Lagerfeld brást reiður við ummælum
um sig og lét banna hana í Þýskalandi.
Altman segist hafa ætlað að gera ekta
franskan farsa og hafði Feydeau að fyrir-
mynd.
MILLJÓNASTRÁKURINN; Culkin í Rikka ríka. RÆÐUHÖLD; Keaton og Davis í Háskólabíói. TVEIR heimskir; Carrey og Daniels.