Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 77 AUGLYSINGAR Traustur leigjandi óskar eftir bjartri og fallegri 3ja-4ra herb. íb. eða hæð í Þingholtum, Vesturbæ eða Sel- tjarnarnesi til leigu a.m.k. í eitt ár frá 1. júní. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 611485 næstu daga. Húsnæði fyrir heildverslun Bergdal hf., heildverslun, leitar eftir hús- næði fyrir vörugeymslu og skrifstofu á Reykjavíkursvæðinu. Æskileg stærð á lager væri 500-700 fm. og á skrifstofu 100-200 fm. Húsnæðið þarf að vera á jarðhæð með inn- keyrsludyrum og auðveldri aðkomu. Ef þú hefur húsnæði sem gæti hentað, vinsamlega hafðu samband við Sverri í síma 680888 (fax 680747) eða 610666 (um helgina). íslensk fjölskylda sem flyst til Reykjavíkur erlendis frá á kom- andi sumri óskar eftir íbúðarhúsnæði (4 svefnherbergi) til leigu í tvö ár frá og með 15. júlí. Æskileg staðsetning í Reykjavík er skólahverfi Austurbæjarskóla, en aðrir staðir í borginni koma þó vel til greina. Mánaðarleiga kr. 50-60 þús. Vinsamlegast sendið upplýsingar og/eða til- boð til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „í - 15040“, fyrir 1. maí nk. HÚSNÆÐI í BOÐI Tjarnargata 14 - til sölu Falleg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð, ca 100 fm, í gömlu, virðulegu húsi við Tjörnina. íbúðin er til sýnis laugardaginn 15. apríl frá kl. 13-16. Oakland - San Francisco Til leigu frá 15. maí til 1. sept. 1995 tveggja herbergja rúmgóð og björt íbúð í Oakland, Kaliforníu. Stutt frá San Francisco og Berke- ley. Greiðar samgöngur. Upplýsingar í símum 91 -36007 og 91 -666707. TIL SÖLU Til sölu Móel vinnuskúr 2,5x7 m. Traktor Kuboda 34 ha með ámoksturstækjum. Útungunarvél 120 eggja. Lurkaketill lítið notaður. Upplýsingar í síma 98-21598. Fiskvinnsluhús Til sölu er fiskvinnsluhús við Unubakka 21 í Þorlákshöfn. Húsið er hannað til fullvinnslu á fiski í neytendapakkningar. Stærð hússins er 6.626 rúmm. og 1.375 fm skv. fasteigna- mati, að hluta til á tveimur hæðum, byggt 1988. Húsið er steinhús með stálklæðningu og stálsperrum. í húsinu er frystiklefi, 12x15 m, með tvöföldum frystiblásurum og kælir, 10x15 m að stærð. Húsinu fylgir ýmiss bún- aður til fullvinnslu á fiski. Áhugasamir kaupendur snúi sér til Einars Pálssonar í síma 624070. Iðnþróunarsjóður, Framkvæmdasjóður Islands, Byggðastofnun. Fiðla til sölu Til sölu er mjög hljómfögur og góð fiðla. Hún verður til sýnis á Þórsgötu 20 (gengið inn bakatil inni í horni) milli kl. 17 og 19 í dag, fimmtudag. Fiðlan er metin á 150-200 þúsund, en hægt er að semja um gott staðgreiðsluverð. Til sölu hlutabréf í Hótel Valaskjálf hf. á Egilsstöðum Egilsstaðabær auglýsir hér með til sölu hluta- bréf sín í Hótel Valaskjálf hf. á Egilsstöðum. Eignarhluti Egilsstaðabæjar nemur 24 millj- ónum króna að nafnverði, en heildarhlutafé félagsins nemur kr. 56.462.566. Hótel Valaskjálf hf. er almenningshlutafélag. Egilsstaðabær auglýsir til sölu hlut sinn í heild eða að hluta. Þeir, er áhuga hafa á kaupum á framan- greindum hlutabréfum, beini skriflegum til- boðum til skrifstofu Egilsstaðabæjar, Lyng- ási 12, 700 Egilsstöðum, merktum: „Hluta- fé“, fyrir 22. apríl nk. (Ath. lenging tilboðs- frests vegna tilmæla). Egilsstaðabær áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Bæjarstjóri. Kór Seltjarnarneskirkju Getum bætt við okkur fólki í allar raddir. Áhugasamir mæti á kóræfingu í kirkjunni þann 20. apríl kl. 20.00. Kórstjórnin. BESSASTAÐAHREPPUR Hlið - ferðaþjónusta Atvinnumálanefnd Bessastaðahrepps aug- lýsir eftir áhugaaðilum um uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hliði í Bessastaða- hreppi. Ein meginforsenda uppbyggingar á jörðinni er sá straumur ferðamanna, sem þegar legg- ur leið sína til Bessastaða á ári hverju. Merkir þættir í sögu Álftaness tengjast m.a. Bessastöðum, en saga staðarins er samofin sögu þjóðarinnar allt fram til vorra tíma. Einnig er sjósókn á opnum bátum frá Álfta- nesi og búskapur þess fólks, sem þar bjó fyrr á tímum, dæmigert fyrir sjávar- og bú- skaparhætti fyrri alda og þar með samofin sögu þjóðarinnar allrar. Þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér nánar hugmyndir atvinnumálanefndar Bessastaða- hrepps um uppbyggingu ferðaþjónustu á Álftanesi með þátttöku í huga, er bent á að umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 26. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Bessa- staðahrepps á almennum skrifstofutíma í síma 653130. Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi. Garðabær Raðhús til úthlutunar Garðabær hefur til umráða tvö raðhús í almenna kaupleigukerfinu, sem verða laus til úthlutunar í byrjun maí nk. Um er að ræða hús í Bæjargili. í almenna kaupleigukerfinu veitir Húsnæðisstofnun ríkisins 90% lán til 43ja ára með 4,9% vöxtum. Skilyrði fyrir úthlutun er að umsækjandi standist greiðslu- mat og geti staðgreitt 10% útborgun. Húsunum fylgir bifreiðageymsla sem þarf að fjármagna sérstaklega. Nánari upplýsingar veitir Hrund Grétarsdóttir á bæjarskrifstofunum við Vífilstaðaveg á milli kl. 8.00 og 12.00 í síma 658500. Garðabær. TILKYNNINGAR Orðsending frá menntamálaráðu- neytinu varðandi iðnréttindi í símsmíði. Þeir, sem vilja afla sér iðnréttinda í sím- smíði, skulu sækja um þau til menntamála- ráðuneytisins. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu, sími 560 95 60, Félagi íslenskra símamanna, sími 563 65 61 og Félagi tæknifólks í rafiðnaði, sími 568 14 33. A KOPAVOGSBÆR Starfsstyrkir til listamanna íKópavogi Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um starfsstyrki til lista- manna úr Kópavogi fyrir árið 1995. Veittir verða nokkrir starfsstyrkir og koma þeir listamenn einir til greina, sem búsettir eru í Kópavogi. Umsóknarfrestur um starfsstyrkina er til 28. apríl nk. Umsóknum um framangreinda starfsstyrki skal skila til Lista- og menningarráðs Kópa- vogs, Fannborg 4, 200 Kópavogi. Lista- og menningarráð Kópavogs. DAGSBRUNI Verkamannafélagið Dagsbrún Orlofshús 1995 Umsóknareyðublöð um dvöl í orlofshúsum félagsins í sumar verða afhent á skrifstofu félagsins á Lindargötu 9 frá og með þriðju- deginum 18. apríl nk. Umsóknum skal skilað aftur á sama stað eigi síðar en 3. maí. Húsin eru: 2 hús í Svignaskarði, Borgarfirði. 1 hús í Flókalundi, Vatnsfirði. 3 íbúðir á Akureyri. 2 hús á lllugastöðum, Fnjóskadal. 2 hús á Einarsstöðum í Héraði. 5 hús í Ölfusborgum. 1 hús í Úthlíð í Biskupstungum. 1 hús í Hvammi í Skorradal. Þeir, sem ekki hafa fengið sumarhús sl. fimm ár, hafa forgang með úthlutun. Vikuleiga er kr. 7.000, nema í Hvammi kr. 10.000. Verkamannafélagið Dagsbrún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.