Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
Suðurhólum 30,
er andaðist í Landspítalanum 7. apríl,
verður jarðsungin frá Fella- og Hóla-
kirkju þriðjudaginn 18. apríl kl. 13.30.
Jpn Cleon Sigurðsson, Guðlaug Ólafsdóttir,
Ágúst Óli Óskarsson,
Viiborg Sigríður Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GÍSLÍNU KRISTÍNAR
STEFÁNSDÓTTUR,
Miðgörðum,
Grenivík,
sem lést fimmtudaginn 6. apríl sl., fer
fram frá Grenivíkurkirkju þriðjudaginn
18. apríl kl. 14.00.
Gísli Friðrik Jóhannsson, Borghildur Ásta ísaksdóttir,
Margrét Sigrfður Jóhannsdóttir, Oddgeir ísaksson,
Stefán Jóhannsson, Þórey Aðalsteinsdóttir,
Nanna Kristín Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir okkar,
BALDUR STEFÁNSSON
frá Hvammbóli,
verður jarðsunginn frá Skeiðflatarkirkju
í Mýrdal laugardaginn 15. apríl kl. 14.00.
Systur hins látna.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GESTURBJÖRNSSON
frá Brún, Reykjadal,
Meðalholti 3,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 18. apríl kl. 10.30.
Kolbrún Gestsdóttir, Ragnar Árnason,
Svafar Gestsson, Jakobína Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÓLAFUR SIGURÐSSON
frá Eyrarbakka,
Grænumörk 5,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn 15. apríl kl. 13.30.
Ólöf I. Símonardóttir,
Pétur H. Ólafsson, Lisa Bang,
Ása Ólafsdóttir,
Gunnhildur Ólaf sdóttir, Borgar Ólafsson,
Stefán Örn, Anna Kristín, Tinna,
barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
I
#
OLAFUR
SIG URÐSSON
+ ÓIafur Sigurðsson var
fæddur í Guðmundarhúsi á
Eyrarbakka 1. febrúar 1915.
Hann lést 3. apríl siðastliðinn.
Foreldrar hans voru Sigríður
Ólafsdóttir og Sigurður Guð-
mundsson, bæði borin og barn-
fædd á Eyrarbakka. Ólafur var
5. í röð 10 systkina. Þau voru:
Baldur; f. 1906, Guðmundur, f.
1907, Astríður, f. 1910, Hlíf, f.
1912, d. 1978, Páll, f. 1916,
Geirmundur, f. 1915, Garðar,
f. 1922, Ingibjörg, f. 1924, Sól-
rún, f. 1928. Afkomendur hans
eru: Pétur Herbert, f. 13. sept-
ember 1940. Móðir hans er
Kristín Pétursdóttir, f. 1913.
Ása, f. 1945 og Gunnhildur, f.
1949. Móðir þeirra er Soffía
Þorkelsdóttir, f. 1915. Barna-
börn eru: Stefán Örn Péturs-
son, f. 1969, Anna Kristín Pét-
ursdóttir, f. 1977. Tinna Stef-
ánsdóttir, dóttir Ásu, f. 1973.
Barnabarnabörn eru: Pétur
Arnar Stefánsson, f. 1991, og
Hrafnhildur Ása Ævarsdóttir,
dóttir Tinnu, f. 1992. Ólafur
ólst upp í foreldrahúsum á Eyr-
arbakka. Hann nam við Barna-
skóla Eyrarbakka og Héraðs-
skólann á Laugarvatni. Síðar
nam hann matargerðarlist á
Hótel íslandi (gamla). Hann
giftist Soffíu Þorkelsdóttur.
Þau skildu. Sambýliskona hans
um árabil varð þá Fríður
Bjarnadóttir, f. 1911, d. 1978.
Sambýliskona hans síðustu árin
var Olöf I. Símonardóttir frá
Stokkseyri, f. 1916. Þau bjuggu
siðustu 15-16 árin á Selfossi.
Ólafur verður jarðsettur frá
Selfosskirkju 15. apríl kl. 13.30.
ÉG ER yngri af tveimur barna-
barnabömum hans langafa míns,
bara 3ja ára, heiti Hrafnhildur Ása,
mamma mín heitir Tinna, pabbi
minn Ævar og amma mín Ása, al-
veg eins og ég.
Við Óli afi skoðuðum alltaf sam-
an steinana sem hann og Lalla
amma höfðu tínt og slípað, svo
margir fallegir og mjúkir.
Mamma sat með mig í fanginu,
heima hjá okkur í Svíþjóð, sýndi
mér stóm myndina af Óla afa, grát-
andi sagði hún mér að hann væri
dáinn, ég kjökraði. Til að hugga
okkur sagði hún að við mundum
alltaf geyma hann í hjartanu, þá
fór ég að hágráta og sagði henni
mömmu að það væri svo sárt að
kyngja svona stórri mynd, hún
sagði að ég þyrfti þess ekki, svo
urðum við glaðar aftur.
F.h. Hrafnhildar Ásu Ævarsdóttur.
Ása Ólafsdóttir.
Ólafur Sigurðsson frá Eyrar-
bakka - æskuvinur minn og skóla-
bróðir - er látinn eftir alvarleg
veikindi hin síðustu misseri. Ég var
fyrir löngu búinn að telja mér trú
um að hann myndi ná a.m.k. 100
ára aldri. Fyrir örfáum ámm leit
hann út sem maður um fimmtugt,
fallegur, glaðlegur og léttur í öllum
hreyfmgum, svo sem voru einkenni
hans alla tíð. Það renndi ennfremur
stoðum undir þessa skoðun mína
að faðir hans náði 99 ára aldri og
móðir hans varð 103 ára gömul.
Farsælt hjónaband þeirra stóð í
meir en 70 ár, sem mun vera mjög
sjaldgæft. Svo frétti ég að alvarleg
meinsemd hefði komið í ljós í höfði
hans og engu yrði bjargað. Þar með
urðu spár mínar að engu.
Það var gott að alast upp á Eyr-
arbakka á þriðja áratugnum og bar
þar margt til. Frábær barnaskóli,
fjölbreytt félagsstörf fyrir börn og
unglinga, og umhverfi sem hafði
upp á margt að bjóða bæði til sjós
og lands. Þá lá það í loftinu að
Eyrarbakki átti merka sögu, sem
einn stærsti verslunarstaður á ís-
landi í margar aldir. Verslunarhús
Lefollís og Kaupmannshúsið eða
Húsið á Eyrarbakka báru þessu
augljóst vitni. Frá þeim andaði sag-
an um reisn og mikil umsvif á liðn-
um öldum.
Hitt var þó mest um vert að
æskuheimili Ólafs á Eyrarbakka -
Búðarhamar - var eftirminnilegt
myndar- og menningarheimili. For-
eldramir voru samhentir í því að
búa börnum sínum hin bestu upp-
eldisskilyrði sem völ var á. Börnin
voru tíu. Sex synir og fjórar dætur,
sérlega glæsilegur hópur. Það var
því ekkert smá verkefni að ala upp
tíu börn með þeim myndarbrag sem
hjónin á Búðarhamri gerðu. Húsa-
kynnin voru glæsileg að þeirra tíma
hætti. Hreinlæti og snyrtimennska
eins og best getur verið. Börnin
voru frá fyrstu tíð vanin á háttvísi
og góða framkomu og báni
bemskuheimili sínu fagurt vitni.
Foreldramir stjórnuðu hinum stóra
barnahópi sínum af ástúð og mildi.
Yfirbragð heimilisins var fijálslegt
en allt í föstum skorðum. Þar var
alla tíð systir Sigríðar - Ása Ólafs-
dóttir - sem önnur móðir barn-
anna. Ása var mikil myndarkona -
bæði i sjón og raun. Hún andaðist
fyrir fáum árum nær 100 ára að
aldri. Mér er það minnisstætt - sem
dæmi um heimilisbraginn - að eitt
sinn fyrir hádegi á sunnudegi, er
ég átti þangað erindi, var búið að
leggja á borð fyrir fjölskylduna, sem
var átján manns. Við hvert sæti var
auk hins hefðbundna borðbúnaðar
mjallhvít tauservíetta í fallegum
hring. Þetta var heldur fátítt á
Eyrarbakka á þessum tíma, en
sýndi þann myndarbrag sem á
heimilinu ríkti.
Það var svo haustið 1932 að við
Ólafur lögðum leið okkar í Héraðs-
skólann á Laugarvatni, ásamt Páli
bróður hans og Ingibjörgu Heiðdal.
Þá hafði skólinn starfaði í fjóra
vetur en fáir eða engir sótt hann
frá Eyrarbakka. Þetta var yndisleg-
ur tími fýrir okkur öll og samheldn-
in mikil. Ég og bræðumir voru her-
bergisfélagar á Laugarvatni báða
vetuma sem við dvöldum í skólan-
um. Betri félaga var ekki hægt að
hugsa sér. Þar kom háttvísin og
snyrtimennskan best í Ijós. Bjöm
Jakobsson kennari tók fljótlega upp
á því að kalla okkur Bakkabræður.
Þegar hann sá okkur saman sagði
hann gjaman: Hvað segja Bakka-
bræður í dag? Þetta létum við okk-
ur vel líka og höfðum gaman af.
Ólafur og Páll voru ágætis íþrótta-
menn og hafði Björn þá í hávegum.
Ólafur var lang besti fímleikamaður
skólans þessa tvo vetur og hlaut 10
í íþróttum á burtfararprófi. Gilti
einu hvort um var _að ræða æfíngar
á hesti eða dýnu. í flikk-flakki gat
hann oftlega stokkið það sjö sinnum
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfír eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfílega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar em beðnir að
hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví-
verknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá em ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
+
Móðir mín og tengdamóðir,
GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu, Reykjavík, 6. apríl, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Björg Ragnarsdóttir, Einar Jónsson.
Ástkœra,
HULDA HELGADÓTTIR,
Blönduhlfð 11,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. apríl kl.
13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Slysavarnafélag íslands.
Aðstandendur.
+
Útför elskulégs eiginmarins míns og
föður,
ÁRNA SNJÓLFSSONAR
skipstjóra,
Bólstaðarhlíð 48,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 18. apríl kl. 13.30.
Marta Imsland,
Hrefna Árnadóttir.