Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
4-
AKUREYRI
Grýtubakkahreppur
vill hafnasam-
lag með Akureyri
SVEITARSTJÓRN Grýtubakka-
hrepps hefur óskað eftir viðræðum
við fulltrúa í hafnarstjórn Akur-
eyrarhafnar um stofnun hafnar-
Áttatil-
boð í
gatnagerð
ÁTTA tilboð bárust í gatnagerð
og frárennslislagnir við orlofs-
hús við Kjarnaskóg á Akureyri.
Samið hefur verið um smíði
húsanna og er stefnt að því að
fyrstu gestimir geti dvalið í
þeim síðsumars.
Kostnaðaráætlun ráðgjafa
gerði ráð fyrir að verkið kosti
um 10,5 milljónir króna.
Lægsta tilboðið var frá Akur-
verki á Akureyri sem bauðst til
að vinna verkið fyrir rúmar 5,6
milljónir króna eða 53,5% af
áætluðum kostnaði. Aðrir sem
buðu í verkið voru Guðmundur
Gunnarsson, Akureyri, Pípu-
lagnaverktakar, Blönduósi, Möl
og sandur, Akureyri, Jarðverk,
Dalvík, Ari B. Hilmarsson,
Þverá, Malarharpan, Björgum í
Amarneshreppi, og Vélaleiga
H.B., Akureyri.
Lyftur opnar
alla páska-
dagana
SKÍÐASVÆÐIÐ í Böggvis-
staðaflalli við Dalvík verður
opið alla páskadagana.
Lyfturnar verða opnar frá
kl. 10.00 til 17.00. Fullorðnum
stendur til boða að kaupa 3ja
til 5 daga lyftukort, á 1.200 til
2.000 krónur. Verð fyrir böm
er helmingi lægra.
Þá verða ferðir með snjótroð-
ara á Böggvisstaðafjall og
Böggvisstaðadal páskadagana.
Þrautabraut verður opin fyrir
börn, firmakeppni í samhliða-
svigi verður í dag, skírdag, rat-
leikur fyrir skíðafólk og fót-
gangandi verður á páskadag
og risasvig fyrir 15 ára og eldri
verður á annan páskadag.
Gesta-
vinnustofa
GILFÉLAGIÐ á Akureyri býður
gestum og gangandi að skoða
hina nýju gestavinnustofu fé-
lagsins í dag, fímmtudaginn 13.
apríl, frá kl. 14.00 til 18.00.
Gestavinnustofan er ætluð
myndlistarmönnum, sem geta
fengið hana lánaða í einn til
þtjá mánuði meðan þeir vinna
að list sinni. Gengið er inn í
vinnustofuna um Deigluna.
samlags Akureyrar og Grenivíkur.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps sagðist telja að
slíkt hafnasamlag gæti orðið báðum
aðilum til góðs, en ekki þó síst
Grýtubakkahreppi. Eftir að Utgerð-
arfélag Akureyrar hóf að reka
frystihús Kaldbaks á Grenivík á
liðnu ári hefur mest öllum fiski sem
þar fer til vinnslu verið landað á
Akureyri og hann keyrður til Greni-
víkur.
Tekjutap
„Við höfum því tapað umtals-
verðum tekjum vegna þessa og
megum ekki við því. Að okkar
mati yrði þægilegra að hafa hafn-
irnar undir sama hatti, þá þarf ekk-
ert að vera að rífast um hvar eigi
að landa aflanum," sagði Guðný.
Viðræður hafa ekki farið fram
um hugsanlega stofnun slíks hafna-
samlags, en Guðný sagði að menn
myndu hittast og ræða málin eftir
páska.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skinnaiðnaður hf.
styrkir íþrótta-
og menning-arstarf
SKINNAIÐNAÐUR hf. afhenti í
gær styrki að upphæð hálf milljón
króna til styrktar starfsemi á sviði
íþrótta- og menningarmála.
Afráðið var að veita fimm aðil-
um þessa styrki í stað þess að
verja litlum upphæðum til marg-
víslegrar starfsemi. AIIs bárust 19
umsókir um styrkina.
Þeir sem hlutu styrki Skinnaiðn-
aðar að þessu sinni voru Sundfé-
lagið Óðinn, sem fékk 100 þúsund
krónur til að sjá um aldursflokka-
mót Sundsambands íslands á Ak-
ureyri í lok júní næstkomandi,
Vemharð Þorleifsson júdómaður
fékk 170 þúsund, krónur til undir-
búnings fyrir Ólympíuleikana í
Atlanta á næsta ári, íþróttafélagið
Eik fékk 100 þúsund krónur vegna
þátttöku í íslandsmóti íþróttafé-
lags fatlaðra, Myndlistarskólinn á
Akureyri fékk styrk að upphæð
100 þúsund krónur til að koma á
samstarfsverkefni norræna barna
á „Upplýsingahraðbrautinni“ og
þá hlaut Jens Kristinn Gíslason
félagi í Nökkva, félagi siglinga-
manna á Akureyri, styrk að upp-
hæð 30 þúsund krónur til þátttöku
í siglingakeppninni „Tall ship’s
race.“
Morgunblaðið/Rúnar f>ór
Milt regn
eftir harðan
vetur
ÚRKOM AN á Akureyri síðustu
mánuði hefur verið í formi snjó-
komu, en í gærdag brá svo
óveiyulega við að það rigndi
heil ósköp um tíma. Börnin
voru ekki sein á sér að skella
sér í gallann og út að sulla í
pollunum.
Ólafsfjarðarvatn
Dorgveiði-
dagur
fjölskyld-
unnar
Ólafsfjörður. Morgunblaðið.
DORGVEIÐIDAGUR fjölskyld-
unnar verður haldinn á Ólafs-
fjarðarvatni á laugardaginn fyrir
páska, 15. apríl frá kl. 10.00 til
15.00.
Þetta er liður í hátíðarhöldum
vegna 50 ára afmælis Ólafsfjarðar-
bæjar sem haldið verður upp á
með margvíslegum hætti í ár.
Dorgveiðidagurinn er hugsaður
sem skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una og verða veitt verðlaun fyrir
besta árangur í öllum flokkum.
Engin þátttökugjöld verða.
Olafsfjarðarvatn er eitt gjöful-
asta fiskivatn á landinu, þar veið-
ist lax, bleikja og jafnvel þorskur,
koli og síld. í bígerð er að halda
stóra dorgveiðikeppni á vatninu í
maímánuði.
Von
og vísa
LISTVINAFÉLAG Akureyrar-
kirkju efnir til tónleika í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju næstkom-
andi laugardag, 8. apríl kl. 17.00
en þeir bera yfirskriftina Von og
vísa.
Þar koma fram Anna Pálína
Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson
og flytja efni af geislaplötu sinni,
Von og vísa sem hefur að geyma
þekkta sálma í nýjum og óvenjuleg-
um útsetningum.
Anna Pálína er þekkt fyrir flutn-
ing sinn á vísnatónlist, en Gunnar
Gunnarsson er organisti og djass-
píanisti.
Messur um páskana
AKUREYRARPRESTAKALL:
Fermingarguðsþjónustur í dag,
skírdag kl. 10.30 og 13.30. Fyrir-
bænaguðsþjónusta og almenn
altarisganga kl. 20.30. Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11.00 föstudag-
inn langa. Messa á Dvalarheimilinu
Hlíð kl. 16.00. Kór aldraðra syng-
ur, organisti Sigríður Schiöth. Alt-
arisganga kl. 19.30 sama dag
vegna ferminga á skírdag. Hátíð-
arguðsþjónusta í Akureyrarkirkju
kl. 8 árdegis á páskadag, á FSA
kl. 10.30., í Akureyrarkirkju kl.
14.00. þar sem Barnakór Akur-
eyrarkirkju syngur og á hjúkrunar-
deild aldraðra Seli kl. 14.00. Hátíð-
arguðsþjónusta verður í Minja-
safnskirkjunni kl. 17.00 annan
páskadag og í Miðgarðakirkju í
Grímsey kl. 14.00.
GLERÁRKIRKJA: Fermingar-
messur í dag, skírdag kl. 10.30
og 14.00. Guðsþjónusta föstudag-
inn langa kl. 14.00. Hátíðarmessa
kl. 8 árdegis á páskadag, léttur
morgunverður í safnaðarsal eftir
messu. Helgistund á skaflinum við
Skíðastaði í Hlíðarfjalli kl. 13.00 á
páskadag. Fermingarmessa kl.
14.00 annan páskadag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Gol-
gatasamkoma föstudaginn langa
kl. 20.00. Upprisufögnuður páska-
dag kl. 8.00. Almenn samkoma kl.
20.00 sama dag. Deildarstjóra-
hjónin Anne og Daníel Óskarsson
stjórna og tala á samkomunum.
Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: ,
Brauðsbrotning, ræðumaður Ás-
grímur Stefánsson í dag, skírdag
kl. 20.30. Samkoma, ræðumaður
Rúnar Guðnason, föstudaginn
langa kl. 15.30. Samkoma í umsjá
ungs fólks laugardaginn 15. apríl
kl. 20.30. Hátíðarsamkoma, ræðu-
maður Jóhann Pálsson, páskadag
kl. 15.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Eyrarlandsvegi 26. Messa skírdag
kl. 18.00, föstudaginn langa kl.
15.00, láugardaginn 15. apríl kl.
23.00 og páskadag kl. 11.00.
I
I
t
I
»
\
8 NÝIR ALI-SUN UÓSABEKKIR
GEISLAGOTU 12 - SÍMI 25856
Ó'TeppnnosiD
TRYGGVABRAUT 22 - SIMI 25055
ax
/
CL