Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Námskeið í út-
skurði á Jökuldal
Vaðbrekku, Jökuldal - Nám-
skeið í útskurði var haldið á veg-
um endurmenntunardeildar
Bændaskólanna á Hólum og
Hvanneyri í umsjá Búnaðarsam-
bands Austurlands, og stóð í þrjá
daga.
Námskeið á vegum endur-
menntunardeildar skólanna hafa
verið haldin hér á Austurlandi frá
því 1992 aðallega á Skriðu-
klaustri en einnig að Syðri-Vík í
Vopnafirði, Múlaskóla í Djúpa-
vogshreppi og nú síðast í Klaust-
urseli.
Kennari á útskurðarnámskeið-
inu var Ólafur Eggertsson bóndi
á Berunesi, hann hefur að jafnaði
átta nemendur á hveiju námskeiði
og var þetta tíunda námskeiðið
er hann kennir á í vetur.
Ólafur byrjaði að skera út í tré
1992 og lærði útskurð í endur-
menntunardeild Kennaraháskól-
ans en Ólafur er kennari að
mennt. Ólafur byijaði síðan að
kenna útskurð árið 1994 en hann
hafði verið kennari við Grunnskól-
ann að Hamraborg í Berufirði
fram undir þann tíma auk þess
að reka blandaðan búskap ásamt
ferðaþjónustu að Berunesi. Vegna
skipulagsbreytinga var skólinn að
Hamraborg lagður niður.
Námskeiðin sem Ólafur hefur
kennt á í vetur hafa verið á vegum
Fræðsluskrifstofu Austurlands,
kvenfélaganna, og líka hefur
hann verið með námskeið á eigin
vegum, auk námskeiða á vegum
endurmenntunardeildar Bænda-
skólanna.
„Námskeiðin henta bæði byij-
endum og lengra komnum.
Áhersla er lögð á beitingu verk-
færa og meðferð, enfaldan mynd-
skurð og stafagerð ásamt ofurlít-
illi efnisfræði, og þátttakendum
leiðbeint um verkfæraeign og
vinnuaðstöðu sagði Ólafur.
Þátttakendur á námskeiðinu
voru flestir af Jökuldal og Héraði
en einn þátttakandi var úr
Fljótsdal.
Ágústa Ósk Jónsdóttir bóndi á
Eiríksstöðum, einn þátttakenda á
námskeiðinu, skar út þijá hluti
eins og flestir þátttakendur aðrir
á námskeiðinu. Hún sagðist aldrei
hafa skorið út í tré áður og reynd-
ar ekki einu sinni hafa séð áhöld-
in sem notuð eru áður. Sagðist
Ágústa hafa náð betri tökum á
útskurðinum en hún átti von á,
og geta eftir þetta námskeið skor-
ið út einfalda hluti án hjálpar ef
hún fengi sér viðeigandi verkfæri.
„Ég hafði mjög gaman af þessu
námskeiði og var mjög ánægð
með aðstöðuna í Klausturseli sem
og líka kennsluna hjá Ólafi,“
sagði Ágústa að lokum.
FRIÐSEMD Thorarensen, íþróttamaður Rangárvallasýslu 1994,
Friðsemd valin
íþróttamaður Rang-
árvallasýslu
Hvolsvelli - Friðsemd Thorarensen
var valin íþróttamaður ársins 1994
í Rangárvallasýslu. Þetta er í þriðja
skiptið sem hún hlýtur þennan heið-
ur en Friðsemd, sem er aðeins 14
ára gömul, hefur náð glæsilegum
árangri í fijálsum íþróttum og á
m.a. íslandsmet í sínum aldurs-
flokki.
Það er Kiwanisklúbburinn Dímon
sem stendur fyrir vali á íþrótta-
manni ársins og heiðrar hann að
auki keppendur í hverri íþrótta-
grein. Þá velur klúbburinn það
íþróttafélag sem talið er sinna sínu
fólki best en að þessu sinni var það
íþróttafélagið Garpur í Holta- og
Landsveit sem varð fyrir valinu.
LAIMDIÐ
Ólafur Eggertsson
FRÁ námskeiðinu í útskurði.
Ágústa Ósk Jónsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Skafmiðaleikur
með íspinnum
frá Kjörís
Níu þúsund
vinningar
í boði
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði
Hús flutt inn
frá Skotlandi
Fáskrúðsfirði - Hús Loðnuvinnsl-
unnar hf. á Fáskrúðsfírði kom í vik-
unni með skipi frá Skotlandi þar sem
það var smíðað hjá Butler verksmiðj-
unum. Vinna við að reisa húsið hefst
eftir páska.
Tæki í verksmiðjuna, sem keypt
voru í Bandaríkjunum, eru komin til
Fáskrúðsfjarðar og vinna við upp-
setningu þeirra hefst fljótlega.
Tækin eru 8 og 20 ára gömul.
Upphafléga var keypt verksmiðja
sem hafði 700 tonna afkastagetu á
sólarhring og kostaði 1,1 milljón
dollara, eða um 70 milljónir ís-
lenskra króna. Síðar var bætt við
tækjum úr annarri verksmiðju og
við það hækkaði verðið í 2 milljónir
dollara og afkastagetan í 1.000 tonn.
Kaupin á tækjunum voru háð sam-
þykki Landsbanka íslands og Fisk-
veiðisjóðs.
Morgunblaðið/Hallgrimur Magnússon
ÞRÍR togarar í Grundarfjarðarhöfn, Klakkur, Drangur og Oce-
an Hunter, sem skráður er í Seattle í Bandaríkjunum, en áhöfn-
in er frá Færeyjum.
Fimm togarar landa
í Grundarfirði
Grundarfirði - Fimm togarar
landa nú afla sínum í Grundar-
firði. Þrír þeirra, Runólfur,
Klakkur og Drangur, eiga
heimahöfn sína í Grundarfirði,
en auk þeirra munu tveir erlend-
ir togarar koma með úthafskarfa
að landi.
Mikil vinna hefur verið við
fiskvinnslu í Grundarfirði undan-
farið, og fyrirsjáanlegt er að
vinnan aukist á næstunni. í
tveimur fiskvinnslustöðvum, Sæ-
fangi hf. og Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar hf., hefur verið
komið upp aðstöðu til að vinna
úthafskarfa. Munu tveir erlendir
togarar sjá um öflun hráefnis,
auk heimatogaranna þriggja,
sem stunda hefðbundnar veiðar.
Selfossi - KJÖRÍS í Hver-
agerði kynnir þessa dag-
ana nýjan leik sem tengist
framleiðslu íspinna. í
hverjum pakka af íspinn-
um sem boðinn er til sölu
er skafmiði ásamt þeim
átta íspinnum sem í pakk-
anum eru.
Vinningar eru yfir
9.000, í vor verður m.a. í
boði fjölskylduferð og
fimm heimsborgarferðir
koma í pakkana seinni
part sumars. Þá eru í boði
fjallahjól og Legó-öskjur
og þeir sem ekki fá vinn-
ing geta sent skafmiðann
inn til Bylgjunnar þar sem
dregið verður úr innsend-
um miðum þrisvar yfir
árið. Leikurinn er sam-
starf Kjöríss við Legó og
Reykjalund.
Hjá Kjörís hf. í Hvera-
gerði vinna að staðaldri
30 manns við ísgerð og
10 bætast við yfir sumar-
ið.
Morgunblaðið/Sig. Jðns.
Skafið af ísmiðanum frá
Kjörís. Það er Laufey Sif
Lárusdóttir sem hér
kannar einn skafmiðann.