Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 19
NEYTENDUR
Jakkaföt með teflonhúð og buxur sem má þvo í þvottavél
ungnautakjöt
Ekki verri þótt
þau vökni
I HERRAGARÐIN -
UM, Aðalstræti og
Kringlunni fást nú
jakkaföt með teflon-
húð sem, að sögn Sig-
urþórs Þórólfssonar
verslunarstjóra, er nýj-
ung í fataframleiðslu.
Jakkafötin eru frá
þýska fyrirtækinu
Cruse og kosta 24.980.
Þau eru úr 45% ull og
TEFLON hrindir
frá sér vökva.
55% polyester. Teflonið á að hindra
að hvers kyns vökvi setjist ofan í
efnið og valdi blettum. Vökvinn perl-
ar ofan á efninu og því verða jakka-
fötin ekki verri þótt þau vökni, t.d.
í rigningu. Sigurþór segir að þótt
Cruse-jakkaföt með teflonhúð séu
látin 20 sinnum í hreinsun, sé 85%
af tefloninu enn í efninu og sjaldnar
þurfi að hreinsa slik
föt en önnur, vegna
þess hve teflonið
hrindir frá sé óhrein-
indum.
Ullarbuxur
sem má þvo
Þýska fyrirtækið
Gardeur hefur hafið
framleiðslu á silkifóðr-
uðum buxum úr 100%
ull, sem má þvo í þvottavél við 30
o. Slíkar buxur fást í þremur sniðum
í Herragarðinum og kosta 9.480 kr.
Sigurþór segir að varla þurfí að
pressa buxurnar eftir þvott og fitu-
blettir og önnur óhreinindi hverfi
alveg. Ekki megi setja buxurnar í
þurrkara, en þær þoli vel væga vindu
í þvottavél.
ULLARBUXUR, sem má
þvo í þvottavél.
KJÖTUMBOÐIÐ hefur sett á mark-
að ungnautakjöt undir vörumerkinu
Alltaf ferskt. Á umbúðum kemur
fram að kjötið er fullmeyrnað og
er meyrnunarferli nautakjöts út-
skýrt. „Okkur fannst skorta þessar
upplýsingar fyrir neytendur," segir
Helgi Oskarsson, framkvæmda-
stjóri. „Þarna er um að ræða valið
ungnautakjöt, í flestum tilfellum
lundir, fille og innanlærisvöðva, sem
pakkað er í lofttæmdar umbúðir
fyrir fullmeyrnað kjöt.“
Á umbúðum kemur fram meyrn-
un kjötsins miðað við tíma sem lið-
inn er frá slátrun. „Þremur dögum
eftir slátrun er kjötið skorið í sneið-
ar, sem pakkað er strax. Kjötið er
kælt allan tímann og þegar það er
sett í sölu, á 10. degi frá slátrun,
hefur það náð um 80% meyrnun.
Þá er það tilbúið til matreiðslu, en
geymsluþol er allt að fjórar vikur.“
Kjötinu fylgja upplýsingar frá
Uifari Finnbjörnssyni, matreiðslu-
meistara, þar sem hann greinir frá
steikingaraðferðum og tíma. Einnig
kemur fram að 90-100% meymun
á nautakjöti næst ekki fyrr en 20
dögum eftir slátrum og að litur
kjötsins dökknar með tímanum.
„Það er eðlilegt og orsakast af
skorti á súrefni. Þegar umbúðimar
em opnaðar fær kjötið aftur sinn
ljósrauða og girnilega lit á 30 mín-
útum.“
Sindrandi stjörnur
á augnhárin
ÞAÐ sem glóir, hvers kyns pjátur
sem stirnir á, nýtur mikilla vin-
sælda um þessar mundir, ef
marka má evrópsk tískurit. Kona
sem notar glansandi varalit,
gylltan augnskugga eða silfrað-
an augnblýant tollir samkvæmt
þessu í tiskunni. Ekki er verra
ef hún gengur í silfurlitum bux-
um eða stíg-
vélum.
I tískuhús-
um er gengið
svo langt að
framleiða litl-
ar glansandi
myndir til að
líma á lakkað-
ar neglur, og
glitrandi
stjörnur til að
festaáaugn-
hár. The
European
greindi nýlega
frá því að
helstu tísku-
drósir i Lond-
on, Mílanó og
París væru
nyög hrifnar
af stjörnum til að lima á augnhár-
in. Spurst var fyrir um sljörnur
af þessu tagi í nokkrum snyrti-
vörubúðum í Reykjavík og sagð-
ist afgreiðslufólk kannast við
þær úr erlendum tískublöðum,
en ekki hafa þær til sölu. „Það
er ólíklegt að íslenskar konur
hafi áhuga á þessu, nema til að
nota á tískusýningu eða grímu-
balli," var efnislega svar flestra.
Tískuskríbent The European
segir að glans og glamúr sé hluti
af tískustraumum sem kenndir
eru við 7. áratuginn og sú tíska
sé enn ríkjandi. Vitnað er í bresk-
an viðskiptajöfur sem framleiðir
gerviaugnahár. „Gerviaugnhár
valda því augu virðast stærri.
Morgunblaðið/Kristinn
Gjafavöru-
verslun
flytur r
VERSLUNIN E.B.A.S. gjafavör-
ur, sem áður var til húsa að
Snorrabraut 29, hefur flutt sig
um set að Laugavegi 103 við
Hlemm. Sem fyrr býður verslun-
in upp á fjölbreytt úrval af gjafa-
vörum fyrir öll tilefni. Eigendur
verslunarinnar eru Einar H.
Bridde og Alda Sigurbrandsdótt-
ir, sem hér sést á myndinni í nýju
versluninni.
HÆGT er að líma sljörnur beint á augnhár eða
á gerviaugnhár, eftir því hversu skrautleg augn-
umgjörðin á að vera.
Þau eru til í mörgum litum,
lengdum og þykktum og falla
mjög vel að tískunni núna. Þeir
sem vilja geta skreytt augnum-
gjörðina enn frekar með því að
líma smástjörnur eða annað
skraut á gerviaugnhárin. Plat,
gervi og tíska haldast alltaf í
hendur, en nú er það augljósara
en oft áður.“
REYNISVATN
Meistaramót Reykjavíkur
Dorgveiði
Á Reynisvatni í Reykjavík er hafiö meistaramót Reykjavíkur í dorgveiöi. Allir sem kaupa
veiðileyfi taka sjálfkrafa þátt í mótinu og eru glæsileg verðlaun í boði.
1. verðlaun: Veiði og viðlegubúnaður frá Seglagerðinni Ægi ásamt áletrun
með nafni vinningshafa á glæsilegan farandbikar.
2. verðiaun: Flugustöng meðtijóli ásamt flugukastkennslu.
3. verðlaun: Kvöldverður fyrir tvo á veitingastaðnum Við Tjörnina.
Verðlaunin eru veitt fyrir stærstu fiskana sem veiddir verða í vetur í dorgveiði.
Opið er alla virka daga þegar veður leyfir frá kl. 13.00-19.00
og um helgar frá kl. 10.00-19.00.
Veiðileyfið kostar kr. 2.000 og eru fimm fiskar innifaldir í veiðileyfinu.
Veiðimenn fá inneignarnótu nái þeir ekki að klára veiðikvótann þann dag sem veiði
hefst og gildir hún þar til kvótinn fimm fiskar er tæmdur þó ekki lengur en til næstu
áramóta.
Mótinu lýkur um leið og ís tekur af vatninu.
Opið verður alla daga um hátíðirnar frá kl. 10.00-19.00. Upplýsingar í síma 985-43789.
Veiðivörður.
wlett-Packard prentara
. M i
Liturinn er galdurinn. Hewlett-Packard er trygging fyrir gæðum, endingu
og endalausri ánægju í litaútprentun.
Hátækni til framfara
HP LaserJet 4L geislaprentarinn.
Tilvalinn prentari fyrir
elnstaklinga og smærri fyrirtæki.
Tilboésverö:
HP ScanJet llcx litaskanninn.
Glæsilegur hágæöa borðskanni.
Hérá stórlækkuöu veröi.
Tilboösverð:
kr. 59.900 stgr. kr. 99.900 stgr.
Kfl
■„<> *
S A
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664