Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 23
CXI IXT
' STUTT
Síldveiði-
deila við
Eystrasalt
ENN ein fisHveiðideilan hefur
nú skotið upp kollinum er
snurða hljóp á þráðinn í samn-
ingaviðræðum Eistlendinga
og Litháa. Ríkin deila um
veiðar í Eystrasalti, en eist-
neska strandgæslan segist
hvað eftir annað hafa tekið
litháíska togara að ólöglegum
síldveiðum í Riga-flóa, sem
yfirvöld í Tallinn telja heyra
til Eistlands. Litháar hafa
hins vegar hótað að kæra töku
togaranna til Alþjóðadóm-
stólsins í Haag.
Biblía rit-
skoðuð
PRANSKUR dómstóll hefur
fyrirskipað útgefanda að fjar-
lægja and-gyðingleg ummæli
úr nýlegri biblíuútgáfu. Um
er að ræða tvær setningar
sem þykja vera endurómur
gamalla fordóma kaþólikka
gagnvart gyðingum. í annarri
setningynni eru gyðinglegir
siðir á borð við umskurð sagð-
ir „þjóðfræði". Hin hljóðar
svo: „Um aldir hefur fólk tal-
að um þjóð gyðinga sem þá
sem drápu Guð. Það var að
vissu leyti satt, þar sem þessi
þjóð var ófær um að yfirvinna
ofstæki sitt.“
Rússar gefa
út skjöl um
Hitler
RÚSSNESKT útgáfufyrir-
tæki mun í næsta mánuði
gefa út léyniskýrslur um líf,
dauða og afdrif líkamsleifa
Adolfs Hitlers á geisladiski.
Að sögn útgefenda sannar
efnið að Hitler framdi sjálfs-
morð árið 1945 og að sovésk
yfirvöld brenndu lík hans og
losuðu sig við öskuna 25 árum
síðar. Skjölin eru úr safni
KGB.
Vaxtahækk-
un í Svíþjóð
SÆNSKI seðlabankinn til-
kynnti í gær um vaxtahækk-
un, einum degi eftir að banka-
stjórinn Urban Backström
sagði ríkisstjórninni að nauð-
synlegt væri að draga úr út-
gjöldum ríkisins. Frá og með
19. apríl hækka útlánsvextir
í 9% úr 8,5% og innlánsvextir
úr 6,5% í 7,5%.
Fiskur
bjargar ekki
hjartanu
BANDARÍSK rannsókn hefur
leitt í ljós að mikil fiskneysla
dregur ekki í öllum tilfellum
úr hættunni á hjartasjúkdóm-
um. Rannsókn sem læknar í
Boston gerðu á 45.000 körl-
um leiddi í ljós að tíðni hjarta-
sjúkdóma á meðal þeirra sem
borða físk einu sinni eða tvisv-
ar í viku, var hin sama og hjá
þeim sem borða físk fimm til
sex sinnum í viku. Niðurstöð-
urnar voru kynntar í New
England Journal of Medicine.
Reuter
Þingmenn reknir út
FJÖLDI hermanna braust inn
í þinghúsið í Mínsk í Hvíta-
Rússlandi í gær og rak út þing-
menn sem þar höfðu verið í
hungurverkfalli til þess að lýsa
vanþóknun sinni á Alexander
Lúkashenko forseta, sem sæk-
ist eftir auknum völdum. For-
setinn hefur hótað að leysa
þingið upp samþykki það ekki
að efna til þjóðaratkvæðis um
ný stjórnlög. Myndin var tekin
f þingsalnum áður en hungur-
verkfallsmönnum var stökkt
þaðan.
Rússar beittu óþarfa
hörku í Samashkí
Genf. Keuter.
ALÞJÓÐA Rauði krossinn (ICRC)
hélt því fram í gær, að rússneskar
hersveitir hefðu banað að minnsta
kosti 250 manns, aðallega óbreytt-
um borgurum, er þær tóku tsjetsj-
ensku borgina Samashkí um síðustu
helgi.
Jean-Marc Bornet, yfirmaður
ICRC í Evrópu, sakaði Rússa um
að hafa beitt óeðlilega miklum her-
styrk við töku borgarinnar. Stjórnin
í Moskvu hefur haldið því fram að
Kigali. Reuter.
VOPNAÐIR menn myrtu 31 flótta-
mann frá Rúanda í árás á flótta-
mannabúðir í Zaíre í fyrrinótt. Árás-
in er hin fyrsta sem gerð er á slíkar
búðir frá þvi að alda fjöldamorða
hófst fyrir réttu ári í Rúanda.
Talsmaður flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, Chris Bowers,
sagði að árásarmennirnir hefðu
komið að Birava-búðunum, sem
standa við Kivu-vatn, á bátum á
fimmtudagskvöld. Hefðu þeir gengið
um búðirnar, þar sem um 9.000
manns dveljast, skotið á flóttafólk
og varpað handsprengjum að því.
29 létu lífið og 54 særðust, þar af
12 alvarlega. Tveir þeirra létu lífið
skömmu' síðar. Á meðal hinna látnu
voru konur og börn.
Bowers hafði eftir vitnum að árás-
armennimir hefðu verið í herklæðum
Bonn. Reuter.
GÚNTHER Guillaume, austur-
þýski njósnarinn sem batt enda á
pólitískan feril Willy Brandts kansl-
ara Þýskalands, lést á mánudag.
Hann hafði verið hjartveikur um
árabil og lést af völdum hjartaslags.
Guillaume lést á heimili sínu í
Eggersdorf skammt frá Berlín.
Hann var náinn samverkamaður
Samashkí hafi verið vigi tsjetsj-
enskra uppreisnarmanna.
„Árásin var óskipuleg og enginn
greinarmunur var gerður á hernað-
arlegum skotmörkum og bústöðum
óbreyttra borgara. Hér var um gróft
tilræði við öll mannúðarsjónarmið
að ræða og smánarlegt brot á
mannréttindum," sagði Bornet.
Hann sagði að erfitt væri að
meta nákvæmlega hvert mannfall
hefði verið í bænum er hann féll í
og komið frá Rúanda. Talsmenn
stjórnvalda í Rúanda sagði að stjórn-
arflokkur tútsa bæri ekki ábyrgð á
árásinni. Flóttamennirnir í búðunum
eru hútúar sem flýðu Rúanda í fyrra.
Leitað að hútúum
Á fimmtudagskvöld var ráðist á
fólk á eyju á Kivu-vatni. Að sögn
hjálparstarfsmanna kröfðust árásar-
mennirnir þess að fá upplýsingar um
hvar hútúar, sem báru ábyrgð á
fjöldamorðunum í Rúanda á síðasta
ári, væri að finna. Var þeim bent á
Birava-búðirnar.
Flóttamannahjálp SÞ hefur for-
dæmt árásina í fyrrinótt og hyggst.
rannsaka hverjir beri ábyrgð á
henni. Hvetja SÞ ennfremur til þess
að öryggisgæsla verði hert i búðun-
um.
Brandts, þáverandi kanslara, er
hann var fyrir tilviljun afhjúpaður
sem njósnari árið 1974.
Hann var dæmdur árið 1975 í
13 ára fangelsi fyrir landráð en
látinn laus 1981 er vesturveldin og
austantjaldsríkin skiptust á njósn-
urum. Fluttist hann til Austur-Berl-
ínar og bjó þar í góðu yfirlæti.
hendur Rússum síðastliðinn laugar-
dag. Lík kynnu að hafa dulist full-
trúum ICRC er þeir fóru um borg-
ina á mánudag og þriðjudag.
Samashkí er í 35 kilómetra fjar-
lægð frá Grosní, höfuðstað
Tsjetsjníju, og þar búa að jafnaði
8.000 manns. Meirihluti þeirra
hafði flúið ófriðinn undanfarið og
sagði Jean-Marc Bomet, að þegar
Rússar sóttu inn í borgina hefðu
aðeins 3.000 manns verið eftir.
Mitterrand
vill hætta
sem fyrst
París. Reuter.
FRÁNSKA dagblaðið Le Figaro
skýrði frá því í gær að Frangois
Mitterrand Frakklandsforseti vilji
láta af embætti fyrr en venja er í
kjölfar forseta-
kosninga. Síðari
umferð kosning-
anna verður 7. maí
og segir blaðið
Mitterrand vilja
hverfa úr embætti
10. maí en kjör-
tímabili hans lýkur
20. maí.
Mitterrand er með krabbamein í
blöðruhálskirtli og voru fyrr í vetur
uppi vangaveltur um hvort hann
gæti setið út kjörtímabilið. Talsmenn
hans hafa sagt frétt blaðsins byggða
á getgátum. Það sé í höndum stjórn-
lagaráðsins að lýsa formlega yfir
úrslitum kosninganna eftir að það
hafi gengið úr skugga um að þau
séu rétt. Samkvæmt stjórnarskránni
hefur stjórnlagaráðið allt að tíu daga
til að kanna kærur og önnur vafa-
atriði en í undanförnum kosningum
hefur ráðið tekið sér þrjá til sex
daga til þess.
Síðustu embættisverk Mitterr-
ands eru hátíðahöld í tilefni þess að
50 ár eru liðin frá lokum heimsstytj-
aldarinnar síðari í Evrópu. Mun hann
fara til London 7. maí og aftur til
Parísar þar sem verða hátíðahöld
sama dag. Þá flýgur hann til Berlín-
ar 8. maí og til Moskvu þann 9.
Hútúar myrtir
í búðum í Zaíre
Guillaume látinn
msssbml..
FEllihýsin mest
seldu á íslandi.
Emm fluttir úr Lágmúlanum.
Sendum bœklinaa um allt land
\ EVROHF
Suðurlandsbraut 20, simi 588-7171.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bflasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Opið í dag kl. 10-19,
laugardag kl. 10-17,
2. páskadag kl. 13-18.
Toyota Corolla GLI Llftback '93, hvítur,
sjólfsk., ek. 35 þ. km., spoiler, rafm. i rúð-
um O.fl. V. 1.290 þús.
MMC Colt EXE '91, hvitur, 5 g., ek. 58
þ. km., samlitir stuðarar o.fl. V. 760 þús.
Sk. ód.
V.W Golf GT '93, 3je dyra, rauður, 5 g.,
ek. 28 þ. km., sóllúga, spoiler o.fl. V. 1.300
þús.
Suzuki Vltara JLXi 4ra dyra '92, 5 g., ek.
62 þ. km. V. 1.650 þús.
Sjaldgœfur bfll: Audi 1,8 Coupé '91, grés-
ans., 5 g., ek. 80 þ, km., sóllúga, rafm. í
rúöum, álfelgur, geislaspilarl o.fl. V. 1.480
þús. Sk. ód.
Ford Bronco 2.9 XLT '88, rauður/grár, 5
g., ek. 112 þ. km., fallegur jeppi. V. 1.090
þús.
Daihatsu Feroza EL II '94, blár, 5 g., ek.
aöeins 11 þ. km., tveir dekkjagangar. V.
1.490 þús.
MMC L-300 Mlnibus 4x4 '91, 5 g., ek.
71 þ. km. V. 1.600 þús. Sk. ód.
Toyota Corolla Liftback XL '88, 5 g., ek.
108 þ. km. Gott eintak. V. 540 þús.
V.W Golf CL '91, blár, 3ja dyra, sjálfsk..
ek. 35 þ. km„ 1600 vél. V. 750 þús.
Toyota Landcrulser stuttur bensln '88,
5 g„ ek. 108 þ. km„ 31“ dekk, álfelgur
o.fl. V. 1.150 þús.
Toyota Corolla XL '88, 3ja dyra, blár, 4
g„ ek. 70 þ. km. V. 490 þús.
Peugeot 205 XR '90, 5 g„ ek. aðeins 34
þ. km. V. 480 þús.
Nýr bfll: Dodge Dakota Sport V-6 4x4,
'95, sjálfsk., álfelgur.rafm. í rúðum o.fl.
V. 2,5 millj.
Nlssan Sunny 4x4 Statlon '91, 5 g„ ek.
47 þ. km„ rafm. (rúðum o.fl. V. 1.050 þús.
Toyota Corolla Liftback '92, hvítur, 5 g„
ek. 41 þ. km. V. 980 þús.
Tilboðsv. á fjölda bifreiða
Sýnishorn:
MMC Lancer GLX '89, 5 g„ ek. 95 þ.
km„ rafm. í rúðum o.fl. V. 670 þús. Til-
boðsverð 590 þús.
M. Benz 230 E '81, sjálfsk., gott eintak.
V. 390 þús. Tilboösverö 260 þús.
Ford Escort 1,3 LX '83, 5 g„ ek. 120 þ.
km. V. 145 þús. Tilboðsverð 95 þús.
Toyota Ex Cap '87, 8 cyl„ 38“ dekk, læst
drif o.fl., verklegur jeppi. V. 1.080 þús.
Tilboðsverð 890 þús.
Vantar góða bfla á skrá og á staðinn.