Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 41
AÐSENDAR GREINAR
„Sælir eru þeir sem hafa
ekki séð og trúa þó“
„ÞÉR TRÚIÐ ekki, nema þér
sjáið tákn og stórmerki,“ sagði
Jesús. Og víst gerði hann tákn og
stórmerki, svo sumir tóku að trúa
á hann. Og enn er Jesús að gera
tákn og stórmerki. Sumum tökum
við eftir og öðrum ekki. Sumum
viljum við veita athygli en annað
finnst okkur svo sjálfsagt að við
tökum hreinlega ekki eftir þeim.
Spjátrungur eða
lifandi frelsari?
Fyrir nokkrum árum átti ég sam-
tal við heimilismann á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Maður þessi var lífs-
reyndur, vel ern og hafði frá mörgu
ffln
<ý>m
ðí
í þessari grein fjallar
Sigurbjörn Þorkels-
son um upprisu lif-
andi frelsara.
Guð verið að vitja mín á sinn óút-
skýranlega hátt. Ég er sannfærður
um og er enn að þarna var Guð
að segja mér og sýna að sonur
hans Jesús Kristur væri enginn
spjátrungur eins og ég hafði hald-
ið, heldur sá, sem hann sagðist
vera og Biblían vitnar um, Guðs
eingetinn sonur og lifandi frelsari
okkar mannanna.
Eftir þetta ákvað ég í barnslegri
einlægni að fylgja Jesú Kristi og
með honum hef ég reynt að lifa
alla tíð síðan. Það líður ekki 'sá
dagur að ég leggist ekki á hnén
við rúmið mitt til þess að biðja til
hans og þakka.“
Já, þetta samtal við þennan lífs-
reynda, einlæga og staðfasta
kristna trúmann varð mér til um-
hugsunar og kenndi mér margt.
Jesús og Tómas
Þeir eru fleiri sem hafa efast um
upprisu hins lifandi frelsara, enda
okkur mönnunum sjálfsagt eðlilegt
að efast a.m.k. að einhverju marki.
Eða svo segir sagan okkur og svo
má merkja ef litið er til samtímans.
Einn af tólf lærisveinum Jesú,
Tómas, hann efaðist einnig þegar
hinir lærisveinarnir sögðu honum
að þeir hefðu séð Jesú. Tómas
sagði: „Sjái ég ekki naglaförin í
höndum hans og geti sett fingur
minn í naglaförin og lagt hönd
mína í síðu hans, mun ég alls ekki
trúa.“
Viku síðar voru lærisveinarnir
aftur saman komnir og þá Tómas
með þeim. Dyrnar voru læstar. Þá
kemur Jesús, stendur mitt á meðal
þeirra og segir: „Friður sé með
yður.“
Síðan segir hann við Tómas:
„Kom hingað með fingur þinn og
sjá hendur mínar og kom með hönd
þína og legg í síðu mína, og vertu
ekki vantrúaður, vertu trúaður."
Tómas svaraði: „Drottinn minn
og Guð minn.“
Jesús segir við hann: „Þú trúr,
af því þú hefur séð mig. Sælir eru
þeir sem hafa ekki séð og trúa þó.“
Til þess ritað
„En þetta er ritað til þess að þér
trúið, að Jesús sé Kristur, sonur
Guðs, og að þér í trúnni eigið líf í
hans nafni.“ (Jóh.20:31).
Höfundur er framkvæmdastjóri
Gídeonsfélagsins á Islandi.
Sigurbjörn
Þorkelsson
að segja. Þegar tal okkar barst að
trúmálum sagði hann:
„Það var skömmu eftir stríðsárin
að ég var að lesa í Nýja testament-
inu, gamalli bók sem faðir minn
hafði átt. Ég var forvitinn, leitandi
ungur maður og las oft í Biblíunni
af einskærri forvitni á þeim árum.
Við lesturinn vöknuðu jafnan
margar spurningar og þær urðu
fleiri eftir því sem ég jók lesturinn,
enda var ég ekki tjlbúinn að taka
öllu sem ég las. Ég hafði mikla
fyrirvara, en þó jók ég Biblíulestur-
inn stöðugt. Ég man að eitt sinn
var ég að lesa í Jóhannesarguð-
spjalli orð Krists, þau öngruðu mig.
Hann sagðist geta allt mögulegt,
já og ómögulegt. Er þetta ekki
bara einhver spjátrungur hugsaði
ég með mér. Var hann með mikil-
mennskubrjálæði, hann sagðist
geta hitt og þetta og gerði hluti
svo menn stóðu agndofa eftir. Á
þessu augnabliki var ég afskaplega
vantrúaður. Ég man að ég lá í rúm-
inu mínu, hélt á Biblíunni og var
mikið hugsi. Á þessari stundu gerð-
ist hlutur, sem ég mun aldrei
gleyma. Ég leit upp úr Biblíunni
og horfði á vegginn fyrir framan
mig. Þá sá ég undurfagran ljós-
geisla sem ég veit ekki hvaðan
kom. Litunum í honum get ég ekki
með nokkru móti lýst, en áhrifin
sem ég varð fyrir á þessari stundu
voru svo yndisleg. Orð fá ekki lýst
þessari sérstöðu upplifun með
nokkru móti. Þegar ég svo lokaði
Biblíunni hvarf þessi geisli.
Þessi atburður er mér enn svo
skýr og greinilegur. Á þessari
stundu eignaðist ég frið og trúars-
annfæringu. Á þessari stundu og
alla tíð síðan hef ég ekki verið í
nokkrum vafa um að þarna hafi
Herrahártoppar
Herrahárkollur
SÉRLEGA STERKUR
OG FALLEGUR ÞRAÐUR
r Pantið einkatíma
r RÁÐGJAFI Á STAÐNUM
Lækkun iðgjalda á fasteigna- og
fjölskyldutryggingum
Hækkun á bönus í
kaskótrvggingum
Tveir gjalddagar og engin
sjálfsábyrgð í
ábyrgðartryggingum ökutækja
Blákaldar
staðreyndir
og samanburður á kjörum
staðfesta kosti TM trygginga
Lækkun iðgjalda.á fasteigna- og fjölskyldutryggingum.
Viðskiptavinir TM fá endurgreiðslu frá og með 1. aprfl 1995.
Hækkun á bónus. Hæsti bónus kaskótrygginga hækkar úr 40% í
50% frá og með 1. maí 1995. Ef kaskótjón verður útvegar TM
bílaleigubíl í allt að 5 daga.
Tveir gjalddagar og engin sjálfsábyrgð. Greiðslur á ábyrgðar-
tryggingum ökutækja skiptast niður á tvo gjalddaga á ári og
sjálfsábyrgð er engin.
Prósentur segja ekki allt, staðreyndir og
samanburður leiða í Ijós að TM tryggingar eru
hagkvæmar tryggingar.
Kynntu þér góð kjör á tryggingum hjá TM.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
Aðalstræti 6-8, 101 Reykjavík, sími 26466.
Sérvcrslun
Borgarkringlunni,
sími 32347.