Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraídur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMFÉLAGS-
VANDIOG TRÚ
AFREK mannsandans á öld vísinda og tækni hafa stund-
um orðið til þess að maðurinn hefur gleymt því að
hann er sjálfur hluti af sköpunarverkinu og sett sjálfan sig
í hlutverk skaparans, fundizt Guð óþarfur. Þetta á reyndar
ekki aðeins við í heimi raunvísindanna, heldur hefur maður-
inn stundum reynt að móta mannlegt samfélag með vísinda-
legum hætti; lengst gekk það í Sovétríkjunum, þar sem trúar-
brögðum var kastað fyrir róða og sótt fram til fullkomnunar
í nafni vísindalegs sósíalisma; þar átti að búa til fullkomið
velmegunarsamfélag og nýjan mann.
Allir vita hvernig sú tilraun endaði. Vestræn ríki völdu
aðra leið; leið lýðræðis og einstaklingsfrelsis. Engu að síður
hefur borið á því í auknum mæli í samfélagi okkar að krist-
in trú hefur verið á undanhaldi og gildi hennar síður í háveg-
um höfð en áður; meðal annars vegna trúar á vísindalegar
og „samfélagslegar“ lausnir á flestum vanda.
Nú er það rétt að forsenda ýmissa framfara á Vesturlönd-
um var sá aðskilnaður trúarlífs og rökhugsunar, sem hefur
átt sér stað að meira eða minna leyti. Árangur í raunvísind-
um náðist þá fyrst þegar menn hættu að leita guðlegra skýr-
inga á náttúrufyrirbærum og leituðust við að skilja gang-
verk, alheimsins á þess eigin forsendum. Sama á við um
samfélagsvísindi; forsenda ýmislegra framfara hefur verið
sú að greina eigin lögmál samfélagsins og leita leiða til breyt-
inga á því, í stað þess að trúa á að guðleg forsjón ætlaði
mönnum stað í samfélagsstiganum.
Samt líða vestræn samfélög, þar sem fijálst framtak hef-
ur stuðlað að meiri velmegun en ella og tækifærin ættu að
vera næg til að skapa betra mannlíf, fyrir glæpi, upplausn
fjölskyldna og samfélagslega lausung. Ábyrgðartilfinning
hefur verið á undanhaldi. Velferðarþjóðfélagið, sem í upp-
hafi var að miklu leyti byggt á kristnum gildum, svo sem
náungakærleik og mannúð, hefur að sumu leyti snúizt upp
í andhverfu sína. Það hefur tekið frá mörgum einstaklingum
ábyrgðina á eigin lífi. Það hefur jafnframt leyst margan
manninn undan þeirri skyldu að hjálpa náunganum; sú skylda
er lögð á ópersónulegt almannavald.
Hætta er á að í stað kristins samhjálparsamfélags, þar
sem menn bera annars vegar ábyrgð á eigin gerðum og
koma hins vegar eins fram við aðra og þeir vildu að komið
væri fram við þá, komi samfélag, þar sem gerðar eru kröfur
um frelsi og réttindi á sem flestum sviðum en enginn hefur
skyldur nema ríkisvaldið. í ópersónulegum samskiptum
þiggjandans, þegnsins, og veitandans, ríkisins, verður jafn-
vel þakklæti hjákátlegt hugtak. Og ef ábyrgðartilfinning er
ekki fyrir hendi, er hætta á að athafnafrelsi snúist upp í
frelsi manna til að gera á hlut annarra án þess að taka
ábyrgð á gerðum sínum.
Við megum ekki gleyma kristnum rótum samfélags okk-
ar. Þau gildi, sem það hvílir á, eru kristin og ástæða margra
þeirra vandamála, sem við glímum við í dag, er sú að þau
hafa verið á undanhaldi. Undanfarin misseri hafa ýmsir
stjórnmálaleiðtogar í Evrópu, jafnvel á vinstri vængnum,
þar sem kristin lífsviðhorf hafa ekki alltaf verið í hávegum
höfð, talað um þörfina á þeirri festu, sem kristin lífsgildi
veita samfélaginu.
Kristin lífsgildi eignast hins vegar ekki nýja fótfestu þótt
stjórnmálamenn eða aðrir átti sig á mikilvægi þeirra. Krist-
in viðhorf — um náungakærleik og samhjálp, mapnhelgi og
mikilvægi hvers einstaklings, ábyrgð mannsins á verkum
sínum frammi fyrir Guði og skyldur hans við náunga sinn
— byggjast á trú á boðskap kristindómsins. Siðaboðskapur
kristninnar verður ekki afritaður úr Biblíunni inn í samfélag-
ið án þess að trú á hið lifandi Guðsorð sé til staðar.
Fagnaðarerindi kristninnar talar aldrei skýrar til okkar
en á páskum. Fyrirheit upprisunnar um sigur á dauðanum
og eilíft líf er mikilvægasta uppspretta trúar á Krist. Þetta
fyrirheit er jafnframt hvatning til ábyrgðar; við lifum áfram
og verðum að standa skil á gerðum okkar í þessu jarðiífi
frammi fyrir Guði. Þannig leggur kristindómurinn okkur í
raun þríþætta ábyrgð á herðar, gagnvart sjálfum okkur,
náunganum og Guði okkar.
Páskahátíðin er gott tækifæri til að íhuga trúarboðskap
kristninnar, við guðsþjónustugjörð í einhverri af kirkjum
landsins eða með sjálfum sér, og hefja hversdagslífið að
nýju eftir hátíðarnar með gott vegarnesti trúarinnar til að
leggja sitt af mörkum til ábyrgs og mannúðlegs samfélags
— kristins samfélags.
Morgunblaðið óskar lesendum sínum og landsmönnum
öllum gleðilegra páska.
HJÖRDÍS Kjartansdóttir á sjúkrahúsi í Gautaborg. Myndin var tek-
in þegar hún talaði fyrst heim í síma eftir aðgerðina.
sóknum vegna vöðvasjúkdóms-
ins. Þegar niðurstöður úr þeim
Iiggi fyrir fari Hjördís í æfingar
og þjálfun til að styrkja sig.
Magnea segir að Hjördis fái
að fara í sænskan skóla einu sin
í viku til að fá eitthvað að gera,
eitthvað skemmtilegra en að fa
á sjúkrahúsið í blóðprufur og
rannsóknir.
Hjördís Kjartansdóttir, 12 ára,
fékk nýtt hjarta í janúar
Fer í aðgerð
fyrir vísindin
HJÖRDÍS Kjartansdóttir, 12 ára
hjartaþegi, segist hafa það fínt
í Gautaborg þar sem hún verður
ásamt foreldrum sínum, Magneu
Guðmundsdóttur og Kjartani Ol-
afssyni, fram í ágúst en hún fékk
nýtt hjarta 19. janúar sl.
Hjördís fer í blóðprufu annan
hvern dag og í sýnatöku á fjög-
urra vikna fresti. Hún fær ís-
lenskan kennara til sín tvisvar í
viku í klukkutíma í senn og byrj-
ar í næstu viku að sækja sænskan
skóla einu sinni í viku.
Ferfyrir vísindin
Hjördís segist hafa lítið þol
vegna vöðvasjúkdóms sem hún
er með en móðir hennar segir
hana mun þrekmeiri en hún var
áður, núna geti hún hjólað og
gengið tímunum saman. Hún
segir að Hjördís sé alveg rosa-
lega dugleg. Núna á næstunni
eigi t.d. að skera í lærið á henni
vegna vöðvasjúkdómsins. ís-
lenskur læknir, Már Túliníus, sé
að rannsaka sjúkdóminn og hann
hafi beðið hana um leyfi til þess.
Magnea segir að Hjördís hafi
enga vissu fyrir því að hún fái
neinar viðbótarupplýsingar við
þann uppskurð en fyrir vísindin
ætli hún að fara í hann engu að
síður.
Magnea segir mikinn samgang
milli Islendinganna, sem séu í
Gautaborg vegna líffæra-
ígræðslu. Fjölskyldan hafi t.d.
daglega samband við Ásdísi Stef-
ánsdóttur, sem fékk hjarta og
lungu í september sl. Það sé
mikill stuðningur að henni fyrir
Hjördísi því alltaf þegar eitthvað
komi upp á hjá Hjördísi þá sé
hægt að spyrja Ásdísi hvort hún
hafi haft þessi sömu einkenni og
fá hjá henni góð ráð.
í rannsóknum vegna
vöðvasjúkdóms
Magnea segir þau hjónin hafa
nóg að gera að snúast í kringum
Hjördísi. Enn sé verið að gera
tilraunir með höfnunarlyf og
þess vegna þurfi hún að fara
svona oft í blóðprufur, eða þrisv-
ar í viku. Það sé í rauninni meira
mál heldur en að skipta um líf-
færi. Þá sé hún einnig í rann-
Qian Qichen, utanríkisráðherra Kína, á íslandi
FORSETI íslands, Vigdis Finnbogadóttir, ásamt Qian (við hlið Vigdís-
ar), eiginkonu utanríkisráðherrans, Zhou Hanqiong, og Jang Enzhu
aðstoðarutanríkisráðherra á Bessastöðum.
Morgunblaðið/RAX
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra heilsar kínverskum
starfsbróður sínum, Qian Qichen, í Leifsstöð í gær. Qian og fylgd-
arlið halda héðan til Bandaríkjanna á laugardag.
Lýsir ánægiu með
vaxandi samskipti
FRÁ því að Kína og fsland
tóku upp stjórnmálatengsl
1971 hafa samskipti ríkj-
anna farið stöðugt vaxandi
og sama er að segja um samstarf á
sviði stjórnmála og efnahagsmála,
einnig í vísindum og tækni, segir í
yfirlýsingu sem Qian Qichen, utan-
ríkisráðherra Kína og einn af vara-
forsætisráðherrum landsins, sendi
frá sér við komuna hingað til lands
í gær.
Ráðherrann segist hlakka til að
skiptast á skoðunum við íslenska
ráðamenn um samskipti landanna
og alþjóðamál.
SAS-vélinni með Qian, eiginkonu
hans, Zhou Hanqiong, Jang Enzhu
aðstoðarutanríkisráðherra og öðru
fylgdarliði Qians seinkaði nokkuð
vegna veðurs og lenti hún á Kefla-
víkurflugvelli laust fyrir klukkan 15.
Þar tóku á móti ráðherranum Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra og eiginkona hans, Bryndís
Schram, auk fleiri fulltrúa íslenskra
stjómvalda.
Kínverski utanríkisráðherrann
hitti Vigdísi Finnbogadóttur forseta
að máli að Bessastöðum skömmu
eftir komuna og mun ræða við Jón
Baldvin Hannibalsson og Davíð
Oddsson forsætisráðherra fyrir há-
degi í dag. Síðdegis mun Qian m.a.
skoða Nesjavelli en í kvöld bjóða Jón
Baldvin Hannibalsson og eiginkona
hans kínversku gestunum til kvöld-
verðar í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Á föstudag mun Qian snæða mið-
degisverð í boði Davíðs Oddssonar
og eiginkonu hans, Ástríðar Thorar-
ensen, á Þingvöllum. Síðar verður
farið að Geysi og Gullfossi.
Á laugardag mun Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri taka á
móti gestunum í ráðhúsinu og bjóða
til miðdegisverðar en kínversku
gestirnir halda áleiðis til New York
síðdegis.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir er fram-
kvæmdastjóri íslandsdeildar Amn-
esty International. Hún tjáði Morg-
unblaðinu að samtökin hefðu sent
ráðuneytum, þ. á m. utanríkisráðu-
neytinu, fréttatilkynningu þar sem
minnt er á víðtæk mannréttindabrot
kínverskra stjórnvalda. íslandsdeild-
in hefur sérstaklega reynt að vekja
athygli á sex málum af þessu tagi.
Meðal þeirra er mál tíbetskrar nunnu
sem haldið er í fangelsi vegna trúar-
skoðana sinna.
Amnesty
krefst úrbóta
„Við skorum á alla sem hitta
Qian að máli hér til að taka þessi
mál upp við hann og láta það ekki
duga heldur krefjast úrbóta,“ sagði
Jóhanna.
Er blaðamaður ræddi við utanrík-
isráðherra kom fram að hann væri
sjálfur félagi í Amnesty og hefði
kynnt sér skýrslur samtakanna um
mannréttindabrot í Kína. Hann var
spurður hvort hann myndi taka þessi
mál upp á fundinum í dag með Qian.
„Mannréttindamál verða rædd á
fundinum eins og önnur mál,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
„Tek fúslega
að mér þetta
hlutverk“
UTANRÍKISRÁÐHERRA Kína og
eiginkona hans munu snæða kvöld-
verð á heimili Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra
og eiginkonu hans á föstudag.
Eiginkona utanríkisráðherra,
Bryndís Schram, lýsti því yfir í
fyrra eftir að nokkur umræða hafð
orðið um dagpeningagreiðslur að
hún myndi ekki gegna neinum
skyldustörfum á vegum ráðuneytis
ins það sem eftir lifði kjörtímabils-
ins. Af þessu tilefni vildi Bryndís
koma eftirfarandi á framfæri:
„Kjörtímabilinu er lokið og ég
hélt satt að segja að mínu hlutverki
væri þar með lokið. En það var
skírskotað til þess af hálfu ráðu-
neytisins að herra Qian og eigin-
kona hans, frú Zhou, voru ágætir
gestgjafar okkar Jóns Baldvins
þegar við heimsóttum Kína fyrir
réttu ári. Ráðuneytið taldi að ég
gæti þess vegna ekki skorast undai
því að vera gestgjafi þeirra þegar
þau væru að endurgjalda heimsókr
okkar. Á þeirri forsendu tek ég
fúslega að mér þetta hlutverk sem
góð og gegn húsmóðir."
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 49
íslensk menningarhátíð í fjórum þýskum borgum
Öll þýsk böm lesa
sögurnar um Nonna
HÉR Á LANDI voru staddir
um síðustu helgi þeir dr.
Winfried Gellner frá
menningarmálaráði
Kölnarborgar í Þýskalandi og Horst
Adam frá menningarmálaráði þýsku
borgarinnar Bielefeld til þess að
undirbúa þátttöku íslenskra lista-
manna í íslenskri menningarhátíð í
Þýskalandi, sem fram mun fara í
fjórum þýskum borgum í sumar,
Bonn, Köln, Bielefeld og Krefeld.
Það er landsstjórn þýska sam-
bandsríkisins Nordrhein-Westfalen
sem standa mun fyrir hátíðinni og
sameiginleg ákvörðun menningar-
málaráða borganna fjögurra liggur
fyrír um að veija umtalsverðum
fjármunum til slíkra hátíðahalda,
sem hefjast munu í Bonn á þjóðhá-
tíðardegi okkar Islendinga, þann 17.
júní, og standa munu til 10. júlí.
Þegar ég hitti þá Gellner og
Adam að máli á sjálfan kosninga-
daginn, lögðu þeir í upphafi máls
síns áherslu á það hversu ánægjuleg
samskipti þeir hefðu átt við nýskip-
aðan sendiherra íslands í Þýska-
landi, Ingimund Sigfússon, og
sendiráðsritarann Guðna Bragason,
sem hefðu aðstoðað þá eftir megni
við allan undirbúning.
Dr. Gellner lýsir fyrst aðdraganda
þeirrar hátíðar sem hefjast mun í
Þýskalandi eftir rúma tvo mánuði:
„1990 vorum við með umfangs-
mikla íslenska menningardagskrá í
Köln, sem er í raun grunnur þess
starfs sem við erum nú að hrinda
úr vör. Persónuleg samskipti og
sambönd mynduðust þá, sem við
erum nú að færa út og rækta á
báða bóga. Við það starf höfum við
notið jafnt aðstoðar sendiráðs ykkar
í Þýskalandi og utanríkisráðuneytis
íslands hér á landi.“
Adam bætir við: „Við höfum einn-
ig orðið þess áskynja, með kynnum
okkar af íslensku listafóki og listvið-
burðum, að mjög margt áhugavert
á sér stað í íslensku menningarlífi
og við viljum endurspegla það helsta
sem hér er að gerast í heimaborgum
okkar.“
Þjóðveijar eru forvitnir!
- Burtséð frá aðdraganda há-
tíðarinnar. Hvers vegna teljið þið
að íslensk mennig sé mikilvæg til
kynningar í Þýskalandi?
Adam svarar og segir: „Ég myndi
lýsa því á þann hátt, að Þjóðveijar
eru foi-vitnir! Við viljum kynnnast
menningu annarra Evrópulanda og
ekki síst menningu afmarkaðra
svæða eða lands eins og
íslands, sem í huga
margra okkar hefur mikla
menningarlega sérstöðu.
Þess vegna komum við
hingað, svo við gætum
metið það sjálfir hvað af
því, sem þið hafið á boð-
stólum, við eigum að flytja til heima-
borga okkar.“
- Og hver eru fyrstu áhrifin?
Adam svarar aftur og segir:
„Fyrstu áhrifin, sem eru reyndar
önnur, eru yfirþyrmandi. Fólkið,
með landslagi sínu kemur því á
framfæri sem það vill segja á
kraftmikinn, jafnvel ótrúlega
þróttmikinn hátt.“
Mikil skírskotun til Þjóðverja
Dr. Gellner heldur áfram og seg-
ir: „Auðvitað er það svo hjá okkur
í Þýskalandi, að fyrsta þekking á
íslandi er um liðna tíð, eins og hvar-
vetna gerist.
Mikið verður um að vera í íslensku
menningarlífí í fjórum þýskum borgum
í sumar. Agnes Bragadóttir hitti tvo
menningarmálafrömuði frá Köln og
Bielefeld að máli og fræddist um dagskrá
menningarhátíðarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞEIR hlakka báðir til íslensku menningarhátíðarinnar í fjórum
þýskum borgum, sem hefst þann 17. júní nk. Horst Adam og
dr. Winfried Gellner.
Viljum endur-
spegla það
helsta sem
hér er að
gerast.
En engu að síður eigið þið íslensk-
ar bókmenntir, sem hafa mikla skír-
skotun til Þjóðveija, þar nefni ég
fyrstan Halldór Laxness. Það er
auðvitað engin tilviljun hversu mik-
ið af verkum Laxness hefur verið
gefið út í Þýskalandi. Nú nýlega
kom út mjög fallegt og vandað safn-
rit með níu þýðingum á verkum
Nóbelskáldsins sem mikið var lagt
í. Auðvitað var sú metnaðarfulla
útgáfa afar dýr, en samt sem áður
er ákvörðun um hana tekin vegna
þess að bókmenntaáhugi þýskra les-
enda leyfir það.
En þið eigið einnig barnabók-
menntir sem öll þýsk börn lesa, þar
meina ég sögurnar um Jón Sveins-
------- son (bækurnar um
Nonna). Þær eru geysi-
lega vinsæl lesning meðal
barna og eru meira að
segja gefnar út í vasabók-
arbroti.“
Þeir félagarnir segja að
““■■”■“ við undirbúning menning-
arhátíðarinnar í sumar, hafi verið
tekin ákvörðun um að færa heldur
út kvíarnar frá því sem var fyrir
fimm árum og leggja einnig áherslu
á að kynna það sem er að gerast í
menningar- og listalífinu hér á landi
í dag. Þannig vildu þeir stuðla að
því að koma á framfæri við gesti
hátíðarinnar- íslenskum kvikmynd-
um og kvikmyndagerðarmönnum,
nútímatónlist og tónlistarmönnum,
skáldum og rithöfundum.
Mest nærvera íslands
Gellner hefur orðið: „Það er
hreint ekki svo einfalt að útskýra
með hvaða hætti Norðurlönd og
menning þeirra höfða til Þjóðveija
og vekja með þeim áhuga á að
kynna heima fyrir hvað er á döfinni
á lista- og menningarsviðinu. Því
er þannig farið að minnsta landið,
ísland, er hjá okkur á menningar-
sviðinu með mesta nærveru og skír-
skotun, ekki aðeins um þessar
mundir, heldur hefur því verið þann-
ig háttað í allmörg ár. Finnland
fylgir fast í kjölfar Islands, en önn-
ur Norðurlönd ná ekki jafnsterkum
tökum á okkur, einhverra hluta
vegna.“
- Hver verða helstu áhersluatrið-
in á menningarhátíðinni hjá ykkur?
Adam svarar: „Við viljum reyna
að ná til sem flestra menningar-
og listgreina og gefa máls-
mjög stórar sýningar eða uppfærsl-
ur. Við viljum reyna að bjóða til
ókkar sem flestum listamönnum,
sem sjálfir munu kynna list sína og
ná þannig persónulegu sambandi
við gesti hátíðarinnar.“
Perlan, leikhópur
þroskaheftra
- Getið þið nefnt mér nokkur
dagskráratriði hátíðarinnar sem
þegar hafa verið ákveðin?
„Það má auðvitað líta á hápunkta
hátíðar sem þessarar frá mismun-
andi sjónarhóli. Persónulega vil ég
skilgreina afar sérstæðan viðburð
hátíðarinnar í sumar, sem einn há-
punktanna," segir Gellner, „en það
er sameiginlegt verkefni sem
þroskaheftir á Islandi og í Þýska-
landi munu vinna saman að með
uppsetningu leikrits.“
Adam segir að í Bielefeld séu
öflugustu samtök þroskaheftra í
Þýskalandi, sem heiti Betel. „Þeirra
höfuðmarkmið er að gera þroska-
heftum kleift að lifa og starfa úti
í samfélaginu, en ekki einangraðir
frá því. Leiklist og leikræn tjáning
er þýðingarmikill liður í þessu starfi
hjá Betel^ og leikklúbbur þroska-
heftra á íslandi, Perlan, hefur nú
fengið boð um að koma með leiksýn-
ingu til Bielefeld, ásamt því að taka
þátt í 10 daga leikprógrammi, þar
sem Betel verður gestgjafi þeirra.
Við gerum okkur öll vonir um að
þetta verði upphafið að öflugu sam-
starfi á þessu sviði,“ segir Adam.
Mikill fjöldi listamanna
- En aftur að hápunktum há-
tíðarinnar. Gellner heldur áfram: „Á
bókmenntasviðinu verður margt
áhugavert á döfinni hjá okkur. Síð-
an um miðjan áttunda áratuginn
hafa íslenskir nútímahöfundar verið
þýddir yfir á þýsku í síauknum
mæli. Síðustu fimm árin hafa
tengslin við íslenska höfunda aukist
til muna, í kjölfar þess að yfir-
gripsmikið kynningarhefti var gefið
út í Köln 1990, sem hét ísland. Þar
voru kynnt verk, bæði í bundnu
máli og óbundnu, eftir á milli 30
og 40 skáld og rithöfunda.
Síðustu fimm árin, ekki síst
vegna kynningarritsins, hafa svo
einstakir höfundar verið þýddir á
þýsku og verk þeirra gefin út.
Einar Kárason mun koma á hátíð-
ina og lesa úr skáldsögu sinni.
Sömuleiðis Thor Vilhjálmsson. Ingi-
björg Haraldsdóttir og Linda Vil-
hjálmsdóttir verða gestir okkar og
lesa úr ljóðum sínum. Ól-
vörum þeirra tækifæri til Önnur IMorð- a^ur Haukur Símonarson
þess að koma fram með urlönd ná ekkí ver(,ur væntanlega einnig
verk sín og list. Við mun-
um fá rithöfunda og skáld
til þess að lesa úr verkum
sínum, fá smærri tón-
listarhópa til þess að ...........
heimsækja okkur með tónlist sína,
sýna íslenskar kvikmyndir og fá
höfunda þeirra eða leikstjóra í heim-
sókn, jafnvel kynna íslenska list-
dansara.
Við erum ekki að sækjast eftir
því að fá heilu atvinnuleikhúsin í
heimsókn, heldur smærri leikhópa.
Sömuleiðis munum við ekki óska
eftir því að fá Sinfóníuhljómsveit
íslands eða íslensku óperuna í heim-
sókn. Þótt umtalsverðum íjármun-
um verði varið til hátíðarinnar af
landsstjórn Nordrhein-Westfalen og
borgunum fjórum, verðum við samt
sem áður að sníða okkur stakk eft-
ir vexti, og fjárveiting leyfir ekki
jafnsterkum
tökum á
okkur.
gestur okkar, en nú er
verið að setja upp út-
varpsleikrit eftir hann í
Þýskalandi. Hann ásamt
framleiðanda og leikstjóra
mun ræða við gesti um verk sín.
Einar Már Guðmundsson mun
sækja okkur heim á nýjan leik og
verður í fýlgd með íslensku kvik-
myndagerðarfólki, þar sem hann er
höfundur þýðingarmikils handsrits
kvikmyndar sem verður á hátíðinni,
þ.e. að Börnum náttúrunnar."
Þeir Gellner og Adam segja und-
ir lok samtals okkar, að ekki sé
tímabært að upplýsa um dagskrá
hátíðarinnar í smáatriðum, þar sem
enn sé verið að ræða við íslenska
listamenn, dansara, leikhópa og
ýmislegt hnýsilegt, sem þeir muni
greina frá síðar.