Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 53
!
ara við skólann gefur kost á. Ef við
lítum á þróun Háskóia íslands þá
urðu þau mistök þar að rannsókna-
stofnunum atvinnuveganna, At-
vinnudeild Háskóla íslands, var ýtt
þar út. Við erum hins vegar að leit-
ast við að brúa þetta bil hér, sam-
kvæmt nútímahugsunarhætti í vís-
indapólitík, þannig að fyrirtæki,
rannsóknastofnanir og háskólar
myndi þríhyrning í rannsóknasam-
starfi og rannsóknaverkefnin byggist
upp í samvinnu þessara aðila.
Stefnan sett á Sólborg
Vaxandi háskóli með umfangsmik-
il rannsóknatengsl þarf mikið svig-
rúm. Eins og málum er háttað nú fer
starf skólans fram á a.m.k. 5 stöðum
á Akureyri, hér í gamla Iðnskólanum
þar sem eru heiibrigðisdeildin og
kennaradeildin svo og bókasafn og
skrifstofur stjórnar skólans, í Glerár-
götu 36 eru sjávarútvegsdeild, rekstr-
ardeild og rannsóknastofnanir at-
vinnuveganna, Rannsóknastofnun
Háskólans er í Glerárgötu 34, í Odd-
fellowhúsinu erum við með fyrirlest-
rasal á leigu og á Fjórðungssjúkra-
húsinu er verkleg kennsla í hjúkrun.
Á þessu sést að við erum afar dreifð
um bæinn og af þessu er mikið óhag-
ræði og ástæðulaust í ekki stærra
samfélagi, ekki síst ef rannsóknasam-
félagið á að geta þjappað sér saman.
Af þessum sökum hefur verið eitt
af mínum fyrstu verkum að undirbúa
flutning Háskólans yfir á Sólborgar-
svæðið, sem nú hefur verið afhent
Háskólanum til afnota. Þar er fyrir
húsnæði sem mjög vel getur rúmað
þjónustuhlutverk Háskólans, fyrir
kennara, yfirstjórn skólans, félags-
starfsemi nemenda, skrifstofur
deilda, bókasafn til bráðabirgða,
mötuneyti og fleira. Til eru áætlanir
um að á næstu árum rísi þarna
kennslu- og rannsóknahúsnæði, basði
fyrir rannsóknastarf Háskólans,
rannsóknastofnanir atvinnuveganna
og jafnvel fyrirtæki sem við erum í
samstarfí við, og síðan háskólabóka-
safn. Akureyrarbær hefur þegar af-
hent Háskólanum 10 hektara lóð við
Sólborg, þannig að ekkert ætti að
hamla vexti skólans, og við getum
séð fyrir okkur að fljótlega á 21.
öldinni verði þar að minnsta kosti
1.000-1.500 manna háskóli.
Sólborgarsvæðið er landfræðileg-
ur miðpunktur Akureyrar og er mjög
glæsilegt svæði fyrir Háskólann, rís
hátt og verður áberandi einkennis-
svæði fyrir bæinn í framtíðinni. Stúd-
entagarðarnir eru úti í íbúðabyggð-
inni sjálfri og það er eðlilegt að svo
sé, en nauðsynlegt að tryggja að
garðarnir verði í framtíðinni í viðráð-
anlegri gönguleið frá skólanum.
Opið svæði - engir múrar
Sólborgarsvæðið hefur verið
skipulagt sem útivistarsvæði og ég
tel að það fari afar vel saman að þar
verði háskóla- og útivistarsvæði. Það
yrði til göfgunar fyrir skokkara og
skíðamenn og ekki síður akademíuna
ef á háskólasvæðinu væri skipulögð
almenn útivistaraðstaða. Það er
löngu liðin tíð að eigi að vera mið-
aldamúrar í kringum háskóla.
Ég stefni að því að hluti starfs
Háskólans á Akureyri flytji inn á
Sólborg strax í haust, bygging á
kennsluhúsnæði hefjist 1996 og unnt
verði að flytja inn í það 1997 og
1998. I kjölfar þess hefjist bygging
rannsóknahúss og bókasafns. Þeim
framkvæmdum verði lokið á fyrstu
árum 21. aldarinnar. Ef þetta verður
vel áfangaskipt ætti það ekki að
verða ofviða fjárveitingavaldinu. Hér
erum við ekki að byggja til nútíðar
heldur til framtíðar fyrir þær kyn-
slóðir sem erfa ísland.
Kennsla, rannsóknir, þjónusta
Stundum er deilt um það hvenær
skóli getur talist fullvaxta háskóli.
Háskólinn á Akureyri er auðvitað
nokkuð langt frá því að vera full-
vaxta rannsóknaháskóli að banda-
rískri fyrirmynd, ef það er haft til
viðmiðunar. Það er varasamt að
flækja sig í skilgreiningum af þessu
tagi. En Háskólinn hér hefur alla
burði til að sinna sínu hlutverki vel
á sviði kennslu, rannsókna og þjón-
ustu við sitt nánasta umhverfi. Hann
er ennþá að vaxa, en hann styrkist
með hverju árinu sem líður og ég sé
ekkert sem bendir til að þeirri þróun
verði snúið við.
Hugleiðingar að loknu verkfalli
og afloknum kosningum
KOSNINGUM til
Alþingis er nú lokið
og hefjast nú stjórnar-
myndunarviðræður.
Nýr kjararsamningur
kennara hefur verið
lagður fram. Verkfalli
var aflýst þann 22.
mars og flestir skólar
hófu störf að nýju
þann 23. mars. Frá
því að verkfall hófst
og þar til þvi var af-
lýst heyrðust margs
konar „raddir" í
samfélaginu, „raddir"
sem töldu sig vita gott
meira um kennslu-
starf og kennara en þeir sjálfir.
Þessr „raddir“ vissu oft á tíðum
nákvæmlega hvernig vinnutíma-
skipting kennara var, hvað þeir
kenndu, hvenær þeir væru í „fríi“
o.s./rv.
Ég velti því oft fyrir mér á þess-
um tíma og síðar hvort þetta fólk
hafi ekki verið í skóla eða átt börn
í skóla, þar sem kennarar mættu
til kennslu með tilbúin verkefni,
fóru yfir verkefni, sinntu málum
einstakra nemenda, töluðu við for-
eldra, skipulögðu bekkjarstarfið
o.fl og o.fl.?
Það má vel vera að það sé ókost-
ur við starf kennarans að hluti
starfsins er ósýnilegur. En því er
þannig farið með fleiri starfsstétt-
ir, s.s. fréttamenn þeirra starf er
ekki eingöngu það að sitja í út-
sendingu og þylja fréttirnar, þeirra
þarf að afla og þær þarf að und-
irbúa og það getur tekið langan
tíma. Fleiri stéttir væri hægt að
nefna þar sem hluti starfsins er
lítt sýnilegur þannig að það er
óþarfi að mínu mati að fjasast út
í kennarastéttina vegna þessa.
Það hefur verið sagt að það séu
engir peningar til en auðvitað vita
allir að það er til nóg af peningum
í þessu landi. Þjóðartekjur á mann
eru með því hæsta sem gerist í
heiminum, svo einhvers staðar
liggja peningarnir, þeim er bara
ekki réttlátlega skipt á milli
manna. Hér á landi, jafnt hjá rík-
inu sem öðrum, viðgangast allra-
handa duldar launahækkanir sem
ekki koma fram í kauptaxta
manna, s.s. ýmiskonar yfirborgan-
ir, óunnin yfirvinna, bílastyrkir,
dagpeningar, fatapeningar o.fl.
Kauptaxtar segja því ekki alltaf
alla söguna um raunverulegar ráð-
stöfunartekjur fólks. En þessa
hluti má líklega ekki tala um opin-
berlega. Allavega er það ekki gert.
Ríkisstjórnin gaf á sínum tíma
út fyrirmæli um sparnað og sam-
drátt í rekstri sjúkrahúsanna.
Draga átti úr hjartaaðgerðum á
ákveðnum hópum, senda fólk frek-
ar erlendis, eins og í því felist ein-
hver spamaður. Það kostar að
senda fólk til annarra landa í að-
gerðir og það kostar líka ef fólk
þarf að dvelja erlendis vikum eða
jafnvel mánuðum saman, fyrir
utan hversu mikil röskun slíkt er
fyrir fjölskyldur og veldur ómæld-
um óþægindum, óöryggi og óþarfa
kostnaði. Það á að loka deildum
yfir sumarmánuðina
o.fl. Fólk hættir ekki
að verða veikt
ákveðna mánuði á ári
af því að það þarf að
loka deildum á sjúkra-
húsum sökum lítils
rekstrarfj ármagns.
Hvaða sparnaður felst
í þessu?
Nokkrum dögum
fyrir kosningar gerð-
ust merkilegir atburð-
ir. Allt í einu var til
fjármagn sem m.a.
sjúkrahúsin fengu,
sem út af fyrir sig er
gott mál, en af hvetju
skyldi þetta fjármagn hafa verið
tekið af fyrir nokkrum vikum í
tengslum við sparnað og sam-
drátt? Er hugsanlegt að hér sé um
einhvers konar „kosningafjár-
magn“ að ræða? Fleiri slík tilvik
komu upp á síðustu viku fyrir
kosningar. Ákaflega einkennilegt
svo ekki sé meira sagt.
Við höfum hingað til viljað státa
okkur af góðu velferðarkerfi, en
ég held að við ættum að fara að
draga í land með það og hætta
þessum blekkingarleik. Það mætti
eflaust hagræða í heilbrigðiskerf-
inu sem og annars staðar í þessu
landi en það verður að gera í sam-
ráði við þá sem þar vinna en ekki
að koma með fyrirskipanir að ofan
eins og alltof oft gerist hér. Við
verðum að huga að því hverjar eru
þarfir þjóðarinnar og hvað það er
sem nýtist best þegnum þessa
lands þegar horft er fram á veg-
inn, hvaða viðmið við höfum í
rekstrinum, þ.e. þjóðfélaginu.
Verkefnum þjóðfélagsins verður
að raða í forgangsröð. Það er ekki
hægt að vinna eftir hentistefnu
þeirra sem með völdin fara. Tökum
eitt dæmi. Glerskálinn við Iðnó
sem kostaði 12 milljónir í bygg-
ingu verður nú rifinn og það verk
kostar 4 milljónir, til þessa verða
notaðir peningar okkar sem búum
hér í Reykjavík. Þarna er verið
að leika sér með almannafé. Hvað
á slíkt að þýða? Það þætti illa rek-
ið heimili sem færi svona með
peningana.
Það hefur löngum verið talið
að aukin menntun sé forsenda
fjárhagslegra_ og félagslegra
framfara, að íslendingar séu mikil
menntaþjóð, menntamálin eigi að
hafa forgang, það verði að auka
gæði menntunar, kennarar verði
að fá hærri laun, þeir hafi dregist
svo langt aftur úr, o.s.frv. Allt eru
þetta fögur orð en verða orðin tóm
ef framkvæmdin fylgir ekki í kjöl-
farið. Þetta viðurkenna allir stjórn-
málamenn, allavega í kosninga-
slagnum. Það er þörf á skipulags-
breytingum í skólakerfinu sam-
hliða breytingum í þjóðfélaginu.
Ef ekkert verður gert í þessum
málum getum við átt það á hættu
að standa frammi fyrir því að fólk
hættir að stunda kennslu og ungt
fólk hættir að leggja leið sína í
kennaranám. Það er ákaflega hart
að vera búinn að leggja á sig nokk-
urra ára nám, sem farið var í af
Björk Jónsdóttir
Skólavöröustíg 10
simi 611300
Til íermincfccrgjccfcc
Ný lína á handsmíðuðum
silfur- og gull-
skartgripum
Gott verð
Ég skora á þá, sem
koma til með að sitja í
næstu ríkisstjórn, segir
Björk Jónsdóttir, að
láta menntamál hafa
forgang.
áhuga, með því sem þar fylgir
þ.e. námslánum og tekjulausum
árum meðan á námi stóð, og bera
síðan ekkert úr býtum þegar upp
er staðið, ekki einu sinni fulla
stöðu við kennslu, kannski 50
-70% starf. Hver stendur í því?
Við komumst ansi langt á hug-
sjónum og áhuga en við lifum
ekki á þeim. Málið er einfalt, auka
verður hlutfall þjóðartekna til
menntamála, borga kennurum
hærri laun og hlúa betur að mennt-
un þeirra sem erfa eiga landið.
Það hefur ekki þótt vænlegur kost-
ur að bera sig saman við Tyrk-
land, Grikkland og Pólland fram
til þessa en við erum á sama báti
og þeir hvað framlög til mennta-
mála varðar. Norðurlandaþjóðirn-
ar sem okkur standa næst setja
mun meira í menntamál en við
gerum. Getum við talist velferðar-
þjóðfélag?
En hvar á að fá peninga til þessa,
spyija ef til vill einhveijir. Ég er
viss um að þeir eru til. Það er kom-
inn tími til að skattleggja fjár-
magnstekjur og stóreignamenn í
þessu landi, koma í veg fyrir skatt-
svik og óráðsíu i fjármálum ríkis-
ins, óráðsíu með skattpeningana
okkar. Ef tekið væri á þessum
málum og verkefnum raðað í for-
gagnsröð þá kæmi að mínu mati
fljótt í Ijós að peningarnir eru til.
Jón Baldvin sagði m.a. á fundi með
BSRB um skattamál rétt fyrir
kosningar að „skattakerfið þyrfti
að vera einfalt til þess m.a. að
koma í veg fyrir skattsvik“. Hvers
vegna í ósköpunum gerði síðasta
ríkisstjóm ekkert í þessu máli?
GUULSMIÐJAN
PYRIT - G15
\
\
URVAL \
SILFURKROSSA
TIL FERMINGAGJAFA \
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 15
SÍMI 55 1 1 505
Stjórnmálamenn em oft á tíðum
uppfullir af fögrum fyrirheitum
en síðan ber minna á framkvæmd-
inni. Á fundi með kennurum í
Drangey 23. mars sagði Sigríður
Anna Þórðardóttir að „árangur
þjóðar byggðist á menntun henn-
ar“, ég get verið sammála því, en
ítreka að til að svo megi vera verð-
ur að veita meiri peningum til
menntamála og gera raunhæfar
úrbætur á því sviði annars held
ég að árangur okkar sem þjóðar
verði ansi bágborinn
Hugleiðum hvað það er sem við
viljum bjóða börnum þessa lands
upp á hvað menntun varðar. Hvers
virði er menntun manninum?
Hvaða gildi hefur góð menntun
fyrir þjóðfélagið í heild? .
Frambjóðendur allra flokka orð
án raunverulegrar framkvæmdar
eru innihaldslaus. Ég skora á þá
sem koma til með að sitja í næstu
ríkisstjórn að láta menntamál hafa
forgang og sýna í verki að vilji .
er til að byggja upp raunhæft '
menntakerfi. Gerið menntun og
uppbyggingu skólakerfisins að
ykkar máli og munið að velferð
þjóðar byggist á menntun þegn-
anna. Menntun kostar peninga og
þeir peningar koma til með að
skila sér margfalt til þjóðfélagsins.
Höfuudur er aðstoðarskólastjóri
Safamýrarskóla.
TJALD\/AGI\IAR
Hlnlr vlnsælu
rQMANCffEZ vagnar.
Erum fluttir úr Lágmúlanum.
Sendum bæklinqa um allt land
IEVROHF
Suðurlandsbraut 20, simi 588-7171.
Aðeitts pað Besta nœst þér
62-62-62
JOGA GEGN KVIÐA
Þann 25. apríl nk. verður þetta vinsæla námskeið haldið í
Hafnarfirði. Námskeiðið er sniðið að þörfum þeirra, sem
eiga við kvíða og fælni áð stríða. Kenndar verða á
nærgætinn hátt leiðir Kripalujóga til að stfga út úr
takmörkunum ótta og óöryggis til aukins frelsis
og lífsgleði.
Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Leiðbeinandi Ásmundur Gunnlaugsson jógakennari.
Upplýsingar og skráning hjá Yoga Studio, C\& A
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, sfmar 651441 og 21033. -