Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 76
7 6 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Starfsmaður
Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann til að annasat þrif á tækjum og lager-
hald. Um er að ræða 70% starf, unnið í
dagvinnu.
Starfið gerir kröfur um að viðkomandi sé
líkamlega sterkur, skipulagður í vinnubrögð-
um, snyrtilegur og eigi auðvelt með mannleg
samskipti.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Ráðning verður fljótlega.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofunni, sem er opin frá kl. 9-14.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavördustíg la - 101 Reykjavlk — Sími 621355
Byggingarstjóri
Vegna verksmiðjubyggingar á landsbyggð-
inni óskast byggingarstjóri til starfa.
Fyrirhugaður byggingarrtími verður frá maí
til desember.
Starfið
★ Skipulagning framkvæmda.
★ Byggingarstjórnun og samræming verk-
þátta.
★ Samskipti við tækni- og iðnaðarmenn.
Hæfniskröfur
★ Haldgóð reynsla af byggingastjórn og
sambærilegum stórverkefnum.
★ Tæknifræði- eða sambærileg menntun.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Byggingarstjóri", fyrir
27. apríl nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration of occupational safety and health
Bildshöfða 16 Pósthólf 12220 ■ 132 Reykjavík _
Umdæmisstjóri
á Vestfjörðum
Laust er til umsóknar starf
umdæmisstjóra íVestfjarðaumdæmi
með aðsetur á Isafirði
Umdæmisstjóri hefur umsjón með starfi
stofnunarinnar í umdæminu, en það byggir
á lögum nr. 46/1980 um aðbúnað og holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Starfið
felur í sér auk stjórnunar á eftirliti með fyrir-
tækjum og ýmiskonar tækjabúnaði s.s far-
andvinnuvélum, kötlum, lyftum o.fl., fræðslu
af ýmsu tagi, sem einnig er töluverður þátt-
ur í starfinu. Um er að ræða fjölbreytt og
krefjandi starf á reyklausum vinnustað.
Leitað er að sjálfstæðum, framtakssömum
einstaklingi, konu eða karli, með staðgóða
tæknimenntun, t.d. tækni- eða verkfræði-
menntun. Önnur menntun getur þó komið
til greina. Starfsþjálfun er í boði við upphaf
starfs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður
Þórarinsson, deildarstjóri eftirlitsdeildar, í
síma 91-672500.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, skal skila til Vinnueftirlits
ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir 13. maí nk.
Verkefnisstjóri
- Þýskaland
Þýskt byggingaverktakafyrirtæki í eigu ís-
lenskra aðila óskar að ráða verkefnisstjóra
til starfa fljótlega.
Leitað er að nákvæmum og framtakssömum
tækni- eða verkfræðingi, helst með reynslu
af verklegum framkvæmdum.
Mjög góð þýskukunnátta er skilyrði.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar.
Umsóknir, er tilgreini aldur, fjölskylduhagi,
menntun og starfsreynslu, sendist skrifstofu
okkar fyrir 20. apríl.
ftJÐNlTÓNSSON
RÁÐGJÖF & RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
1
Bygginga-
verkfræðingur/
byggingatækni-
fræðingur
Vatnsveita Reykjavíkur óskar að ráða bygg-
ingaverkfræði eða byggingatæknifræðing til
að veita forstöðu innlagnadeild Vatnsveitu
Reykjavíkur.
Upplýsingar gefur yfirverkfræðingur.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk.
Umsóknir sendist til Vatnsveitu Reykjavíkur,
Breiðhöfða 13, 112 Reykjavík.
LYST HF.
óskar eftir að ráða 6 starfsmenn í liðstjórastörf.
Lyst hf., rekstraraðili McDonald’s á íslandi, er íslenskt fyrirtæki í eigu
íslenskra aðila. Fyrirtækiö starfar samkvæmt ströngum kröfum McDon-
ald’s International um gæði, hreinlæti og þjónustu. Mikil áhersla er lögð
á þjálfun starfsfólks og fer hún fram á veitingastöðunum, námskeiðum
og með skólasetu.
McDonald’s liðstjóri hefur umsjón með
svæðum og/eða vöktum og þarf, eins og
allir yfirmenn á McDonald’s, að kunna skil
á öllum störfum á veitingastaðnum. Þar með
talin pappírs- og skýrsluvinna.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin
skilyrði:
1. Vera fæddir 1975 eða fyrr.
2. Vera nákvæmir, töluglöggir, stundvísir og
áreiðanlegir.
3. Vera heilir heilsu og geta unnið erfiðis-
vinnu.
4. Vera kurteisir og þjónustuliprir.
5. Eiga gott með að vinna sem hluti af heild.
6. Geta stjórnað fólki og fengið það til að
vinna með sér.
Verðandi liðstjórar ganga í gegnum sérstaka
þjálfun á veitingastaðnum og þreyta eftir það
liðstjórapróf.
Viðkomandi þurfa að vera reiðubúnir að
leggja sig alla fram til þess að ná árangri.
Lyst hf. leitar að duglegu fólki sem hefur
áhuga á veitinga- og viðskiptarekstri.
Eingöngu koma til greina aðilar, sem vilja
leggja þetta fyrir sig sem framtíðarstarf.
Lyst hf. býður upp á starfsþjálfun, skemmti-
legt og líflegt vinnuumhverfi og mikla mögu-
leika að vinna sig upp hjá ungu fyrirtæki, sem
á framtíðina fyrir sér.
Umsóknir, ásamt mynd, sendist til skrifstofu
Lystar hf., Fákafeni 9, 108 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 21. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vélfræðingar
Okkur vantar mann með vélfræðimenntun
og þekkingu á kælikerfum. Sjálfstætt starf.
Góðir tekjumöguleikar. Óskað er upplýsinga
um nám og fyrri störf. Bjóðum greiðslu kostn-
aðar við flutning þúslóðar.
Góð vinnuaðstaða. - Framtíðarstarf.
Uppl. hjá framkvæmdastj. í síma 94-3092.
PÓLLINN HF., ísafirði.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast í sumarafleysing-
ar og í föst störf á kvöldvaktir.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast í sumarafleysingar og í
föst störf.
Verið velkomin að koma og kynna ykkur
heimilið, vinnutíma og vinnuhlutfall.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn-
um eða í síma 26222 alla virka daga.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ÁRMÚLA 12 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 814022
Frá Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla
Ráðið verður í neðangreindar stöður frá og
með 1. ágúst næstkomandi:
Hjúkrunarfræði (afleysing í eitt ár), viðskipta-
greinar, tölvufræði og lyfjafræði.
Allar nánari upplýsingar vpitir skólameistari
í síma 814022 eða í skólanum.
Umsóknum skal skila til skólameistara eigi
síðar en 10. maí næstkomandi.
Skólameistari.
Framleiðslustjóri -
fiskiðnaður
Traust fyrirtæki á landsbyggðinni óskar að
ráða framleiðslustjóra.
Starfið
★ Framleiðsluskipulagning og áætlanagerð.
★ Gæðamál.
★ Stjórnun.
Hæfniskröfur
★ Reynsla af fjölbreyttri fiskvinnslu.
★ Reynsla af framleiðslu fyrir erlenda
markaði.
★ Fisktækni- eða fiskvinnsluskólamenntun.
Hér er á ferðinni gott tækifæri fyrir réttan
aðila til að starfa hjá traustu fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Framleiðslustjóri -
fiskiðnaður", fyrir 26. apríl nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688