Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
MARK Measures fór með bændur úr Mýrdalnum í skoðunarferð um Þórisholt.
Bændur úr Mýrdal kynna
sér lífrænan búskap
Fagridalur. Morgunbiaðið.
MARK Measures frá Elm Farm í Bretlandi, sem er
einn fremsti sérfræðingnr á sviði lífrænnar búfjár-
ræktar á Vesturlöndum, var í Mýrdalnum dagana
23.-25. apríl á vegum Lífræns samfélags og var
hann með sýnikennslu og einkaráðgjöf fyrir bændur
í Mýrdalnum sem eru í lífrænum búskap eða hafa
áhuga á að kynna sér lífrænan búskap nánar.
Fréttaritari Morgunblaðsins fór í vettvangsskoðun
í Þórishoiti sem er venjulegt blandað bú. Auk hans
voru mættir fimmtán bændur úr Mýrdal til að fylgja
Mark í gegnum búrekstur að Þórisholti. Eftir skoð-
unarferð um búið var sest niður í Þórisholti og fór
þá Mark yfir helstu atriði í lífrænum búskap.
Rætt var um markaðsmöguleika framleiðenda,
reglur og vottun, meðferð jarðvegs og sáðskipti,
aðlögunarferlið, fyrstu 1-2 árin, og útgjöld vegna
breytinga í lífrænum búskap.
Hann taldi að ísland ætti mikla möguleika í líf-
rænni ræktun. „Helstu vandamál væru fóðuröflun-
in, Iítil reynsla væri af smáraræktun á íslandi, eng-
ar hráfosfatsnámur væru í landinu og lífræni mark-
aðurinn væri enn í mótun,“ sagði Mark.
Til gamans má geta þess að nú þegar hafa þrír
bændur í Mýrdal fengið vottun um lifræna fram-
leiðslu og eru líkur til að fleiri bændur bætist í
hópinn á þessu ári.
Tvímenningur í brids
A annað hundrað
pör á Islandsmóti
ÍSLANDSMÓTIÐ í tvímenningi í
brids hefst í húsnæði Bridssambands
íslands í Þönglabakka 1 í Reykjavík
á morgun, föstudag, og stendur fram
á mánudag. A annað hundrað pör
hvaðanæva af landinu taka þátt í
mótinu.
Mótið er í tvennu lagi. Á föstu-
dagskvöld og laugardag verður spil-
uð opin undankeppni og 23 efstu
pörin komast áfram í úrslitakeppnina
á sunnudag og mánudag. Þar bætast
einnig við tvímenningsmeistarar
hvers kjördæmis auk íslandsmeistar-
anna frá því í fyrra, Ásmundar Páls-
sonar og Karls Sigurhjartarsonar.
Meðan úrslitin eru spiluð verða í
fyrsta skipti haldin aukamót þar sem
keppt verður um verðlaun og verður
þátttaka öllum frjáls.
Skráningu lýkur
í dag
Skráningu í íslandsmótið lýkur í
dag á skrifstofu Bridssambandsins í
Reykjavík. Mótið hefst klukkan 19 á
föstudagskvöld og undankeppninni
lýkur kl. 21 á laugardagskvöld. Úr-
slitin hefjast á sunnudagsmorgni og
þeim lýkur síðdegis á mánudegi.
Jafnhliða verða haldin aukamót eins
og áður sagði.
Samkeppnisstofnun
Tilmæli um að hætta
með pizzaauglýsingn
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
beint þeim tilmælum til stjómenda
Pizzahússins að þeir hætti að aug-
lýsa að afsláttarmiðar frá öðrum
pizzastöðum gildi hjá þeim.
Sigrún Kristmannsdóttir, lögfræð-
ingur í Samkeppnisstofnun, segir að
stofnuninni hafi ekki borist athugas-
endir frá Pizzahúsinu vegna tilmæl-
anna. Hún sagðist ekki vita betur
en hætt hafi verið að birta auglýsing-
una.
Sigrún sagði Samkeppnisstofnun
hefði borist athugasemd frá sam-
keppnisaðila vegna auglýsingarinn-
ar. Hún sagði að í tilmælunum væri
vísað til 20. og 21. greinar Sam-
keppnislaga.
„Tuttugasta grein er eins konar
meginregla. Samkvæmt henni er
óheimilt að hafast nokkuð að sem
brýtur í bága við góða viðskipta-
hætti. En í 21. grein er talað um að
auglýsingar megi ekki vera
ósanngjamar gagnvart keppinautum
eða neytendum vegna forms þeirra
eða sökum þess að skírskotað er til
óviðkomandi mála,“ sagði Sigrún.
Hún sagði að fyrirtækinu hefði
verið gefínn kostur á að koma með
athugasemdir. Þær hefðu hins vegar
ekki borist.
Jón Baldvin
Biðlaun
Ólafur
Sighvatur
Engin biðlaun
Rannveig Össur
Ráðherrar og aðstoð-
armenn á biðlaunum
RÁÐHERRAR eiga rétt á biðlaun-
um í sex mánuði eftir að þeir fá
lausn frá embætti. Skilyrði þessa
er þó, að þeir hafí 'gegnt ráðherra-
embættinu í tvö ár eða lengur.
Af þeini ráðherrum, sem nú
gengu úr ráðherrastóli, eiga Jón
Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi
utanríkisráðherra, Ólafur G. Ein-
arsson, fyrrverandi menntamála-
ráðherra og Sighvatur Björgvins-
son, fyrrverandi heilbrigðis-, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, rétt á
biðjaunum.
Össur Skarphéðinsson sat í tæp
tvö ár sem umhverfísráðherra og
Rannveig Guðmundsdóttir í tíu mán-
uði sem félagsmálaráðherra og höfðu
þau því ekki eignast þennan rétt.
70% af launum ráðherra
í lögum er kveðið á um að hafí
maður gegnt ráðherraembætti í tvö
ár samfleytt eða lengur eigi hann
rétt á biðlaunum er hann lætur af
því starfi. Biðlaun skal greiða í sex
mánuði, talið frá fyrsta degi næsta
mánaðar eftir að hlutaðeigandi var
veitt lausn frá embætti. Biðlaun
skulu vera 70% af launum ráðherra
eins og þau eru á biðlaunatímanum.
Taki sá, sem nýtur biðlauna,
stöðu í þjónustu ríkisins, fellur nið-
ur greiðsla biðlauna, ef stöðunni
fylgja jafnhá eða hærri laun, en
ella greiðist launamismunurinn til
loka sex mánaða tímans.
Samkvæmt framansögðu eiga
þrír fyrrverandi ráðherrar rétt á
biðlaunum frá 1. maí að telja. Jón
Baldvin Hannibalsson og Sighvatur
Björgvinsson fá greitt þingfarar-
kaup, sem nemur 177.993 krónum
á mánuði, en ráðherralaun þeirra,
að meðtöldu þingfararkaupi, voru
293.728 krónur. Mismunurinn
nemur 115.735 krónum. Af þeirri
upphæð fá þeir Jón Baldvin og Sig-
hvatur 70%, eða rúmar 81 þúsund
krónur. Samtals verða mánaðar-
laun þeirra næstu sex mánuði því
259 þúsund krónur á mánuði.
Virðingarstaða en lægri laun
Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, fær biðlaun
næstu sex mánuði, líkt og Jón
Baldvin og Sighvatur. Ólafur tekur
hins vegar við embætti forseta Al-
þingis, en laun forseta eru ívið
hærri en þingfararkaup, eða
195.898 krónur á mánuði. Mismun-
ur á þeim launum og ráðherralaun-
um Ólafs er 97.830 krónur og af
þeirri upphæð fær Ólafur 70% ofan
á forsetalaunin, eða 68.481 krónu.
Laun hans næstu sex mánuði, fyrir
að gegna embætti forseta Alþingis
og þ'ggja biðlaun ráðherra, nema
því 264.379 krónum.
Forseti Alþingis er æðsti yfir-
maður starfsmanna Alþingis, þar
sem starfa rúmlega 80 manns.
Hann hefur ekki afnot af bifreið,
líkt og ráðherra. í lögum um laun
forseta íslands er ákvæði, þar sem
tekið er fram að þeir, sem fari með
forsetavald um stundarsakir skuli
samanlagt, meðan þeir gegna
starfanum, njótajafnra launa, mið-
að við mánaðarstarfstíma, og mán-
aðarlaun forseta eru. Þetta þýðir,
að sé forseti íslands fjarverandi í
mánuð, skipta forseti Alþingis, for-
sætisráðherra og forseti Hæsta-
réttar með sér tæplega 335 þúsund
króna mánaðarlaunum hans og fær
hver rúmar 111 þúsund krónur.
Laun forseta eru undanþegin opin-
berum gjöldum.
Biðlaun aðstoðarmanna
Laun aðstoðarmanna ráðherra
nema 135.108 krónum á mánuði,
en aðstoðarmenn eiga rétt á bið-
launum í þijá mánuði. Þar sem
þeir eru persónulegir aðstoðarmenn
ráðherra lýkur starfi þeirra þegar
ráðherra lætur af embætti.
Um aðstoðarmennina gildir sú
regla, að fari þeir í annað starf hjá
hinu opinbera, sem er jafn vel eða
betur launað, þá missa þeir rétt til
biðlauna. Hins vegar halda þeir,
líkt og ráðherrar, réttinum þótt
þeir fái starf ar.nars staðar.
Aðstoðarmenn ráðherra hafa
flestir að öðrum störfum að hverfa.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, aðstoðar-
maður Ólafs G. Einarssonar í
menntamálaráðuneytinu, kveðst
ætla að taka til við masters-nám í
stjórnmálafræði, en hún segir að
það hafi aldrei verið ætlan sín að
staldra lengur við í ráðuneytinu en
fram á þetta vor.
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar-
maður Halldórs Blöndal í landbún-
aðarráðuneytinu, sagði að hann
hefði sótt um starf framkvæmda-
stjóra Bændasamtakanna, en væri
annars í launalausu fríi frá starfi
sínu við Rannsóknastofnun land-
búnaðarins.
Margrét S. Björnsdóttir, aðstoð-
armaður Sighvats í viðskiptaráðu-
neytinu, fékk á sínum tíma launa-
laust leyfí frá forstöðumannsstarfi
við Endurmenntunarstofnun Há-
skólans.
Sigfús Jónsson, aðstoðarmaður
Sighvats í heilbrigðisráðuneytinu,
var á ferðalagi erlendis þegar
Morgunblaðið reyndi að ná tali af
honum, en hann hefur starfað hjá
ráðgjafaþjónustunni Nýsi hf..
Birgir Hermannsson, aðstoðar-
maður Össurar í umhverfísráðu-
neyti, sagði í gær að enn væri óljóst
hvað hann tæki sér fyrir hendur.
Ekki náðist í aðstoðarmennina
Braga Guðbrandsson, félagsmála-
ráðuneyti, sem er staddur erlendis
og Þröst Ólafsson, utanríkisráðu-
neyti, í gær.
Sumarhús til sölu
Til sölu glæsilegt sumarhús í landi Úthlíðar í Biskups-
tungum. Húsið er 65 fm. Afhendist fullbúið með heitum
potti. Sundlaug, verslun og golfvöllur í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi
í síma 98-22849.
Lögmenn Suðurlandi,
Austurvegi 3,
sími 98-22988.