Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ IMEYTEIMDUR Stefanía Runólfsdóttir hefur rekið verslun í 50 ár Morgunblaðið/Kristinn STEFANIA Runólfsdóttir er elsti kaupmaðurinn við Laugaveginn. Aldrei þurft að taka víxil SÚ SEM lengst hefur verslað við Laugaveginn, eða í fimmtíu ár, heitir Stefanía Runólfsdóttir. Hún hefur átt og rekið verslunina Blóm og húsgögn að Laugavegi 100. Stefanía er 83 ára gömul og vinn- ur ennþá nær fullan vinnudag. Hún afgreiðir í versluninni eftir hádegi en notar morgnana til útréttjnga. Þá skýst hún gjarnan upp í Árbæ til að kaupa inn blómin fyrir búð- ina. „Þegar ég stofnaði verslunina hét hún Blómabúð Austurbæjar. Skilyrði til verslunarrekstrarins voru ágæt. Ég var í eigin hús- næði. Maðurinn minn og ég byggð- um húsið á Laugavegi 100. Hann var með húsgagnaverkstæði og verslun á horninu. Þar smíðaði hann og seldi eigin framleiðslu auk þess sem hann flutti inn húsgögn. Blómaverslunin er Snorrabrautar- megin,“ segir Stefanía. Einfalt og gamal- dags bókhald „Ég hef alltaf séð um alla þætti verslunarinnar, innkaup, af- greiðslu, fjármál og bókhald. Bók- haldið er nú ósköp einfalt og gam- aldags hjá mér. Ég er ekki einu sinni með tölvu og ætla ekki að læra á tölvu,“ segir hún ákveðin. „í rekstrinum hef ég aldrei þurft að taka víxil og ég tek heldur ekki við plastkortum sem greiðslu en verslunin hjá mér hefur lítið liðið fyrir það.“ Stefanía útskrifaðist frá Verslunarskólanum árið 1930 _og hóf fljótlega eftir það störf í Út- vegsbankanum. Eftir 13 ár í bank- anum fór hún að vinna við hlið mannsins síns í húsgagnaverslun- inni, þar til hún stofnaði sína eigin. „Ég hef alltaf verið sjálfstæð og fundist við konur ættum að hafa sama kaup og karlmenn fyrir sömu vinnu. Ég var með tvö börn en vildi samt vinna úti. Móðursyst- ir mín bjó á heimilinu og gætti barnanna. Við bjuggum fyrir ofan verslunina, þar sem ég bý enn. Ég gat skotist heim til mín ef ég þurfti þess með. Ég hef líka alltaf haft stúlkur til að vinna á móti mér. Nú hef ég haft sömu stúlkuna í tuttugu ár svo okkur hlýtur að koma vel saman,“ segir hún og brosir. En reksturinn á blómaversl- uninni breyttist í tímans rás. Allir eru almenni- legir við mig „Þegar maðurinn minn missti heilsuna færðum við húsgögnin yfir í blómaverslunina. Núna versla ég aðallega með blóm og gjafavör- ur. Ég er ekki með neinn lager, það sem er til er hér frammi í búðinni," segir hún og bendir í kringum sig. „Ég fæ að kaupa nokkur stykki af hverjum hlut í einu. Það eru allir svo almennileg- ir við mig.“ Við spyrjum hvort blómasmekkur fólks hafi breyst á þessum árum. „Hér áður fyrr keypti fólk eina, þijár, fimm eða sjö rósir og þá vissi ég alltaf hvað hver vildi. Nú kaupir fólk bara eins margar og því sýnist allt frá einni rós upp í tugi rósa. Ég bjó líka til skreyting- ar hérna í gamla daga e'n er hætt því. Já, ýmislegt hefur breyst," segir hún. „Áður voru viðskiptavin- irnir miklu nær manni. Nú er þetta fólk komið á elliheimili eða undir græna torfu. Annað sem var skemmtilegra var að garðyrkju- bændurnir komu sjálfir með blómin í verslunina. Ég þurfti bara að sækja þau út í bílinn þeirra.“ — Hvernig finnst þér að reka verslun við Laugaveginn? „Laugavegurinn er yndisleg gata. Ég er fædd og uppalinn á þessum slóðum. Ég ætla að reka verslunina meðan ég hef heilsu til þess. Hvað ætti ég annars að gera?“ segir þessi ágæta kona, sem ennþá er full af eldmóði og áhuga á starfi sínu. Ostur í lok máltíðar TANNLÆKNUM ber saman um að heppilegast sé að bursta tennur eftir hveija máltíð. Sé þess ekki kostur mæla sumir með tyggi- gúmmíi í staðinn. Nýlega var bent á það í tímaritinu First að hollt og gott væri að borða ost í lok máltíðar, sérstaklega ef tannbursti og tannkrem væru ekki innan seil- ingar. Vitnað er í bandaríska tann- lækninn John J. Hefferen, sem jafnframt er prófessor við Kansas- háskóla, sem segir að gamlir sviss: neskir ostar séu góður kostur. „í þeir er mikið af fosfórum sem vega upp á móti sýrum sem skemma tennur.“ Geir Jónsson, forstöðumaður rannsóknarstofu Osta- og smjör- sölunnar, segist álíta að íslenskur gouda-ostur geri sama gagn og sá svissneski, enda sé hann ríkur af steinefnum, meðal annars fos- fór. „Minni fosfór er í ostum eins og kotasælu og íjómaostum. í smurostum er 'hann aftur á móti í talsvert ríkari mæli.“ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 13 ■■■■■ :■ : ' . í : ' : . ' : A ,■■¥ ' * LON D ScimIu piintunarstiðilimi i pósli cða hringdtt:|ia pantaðu Fiocmutis viirulislaiin. Við sondum Iiann lil [nn í póstkriifu samdffegurs. nafn_____________________________ heimilisfang__________________________ póstnr.,_________ $taður________________ kennitala__.’:.■..' y Ustinn kostar 490 kr. sem dregst fró fyrstu pöntun. Sendist til: FKEEMAN, BÆJAHHRAUNI 14, 222 HAFNAKFJ<>KÐU H. SÍMl 565 3900 Sínd: 565 3900 PARIS Frá kr. 22.000* Beint leiguflug íjúlí og ágúst Heimsferðir bjóða nu vikuferðir sínar til Parísar þriðja árið í röð og glæsileg ný hótel. Tryggðu þér sæti meðan enn er laust. Flug og bíll í viku: Frá kr. 29.300 Flug og hótel í viku: Frá kr. 36.600 *lnnifalið í verði: Flug og flugvallaskattar. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562-4600 wlett-Packard prentara Liturinn ergaldurinn. Hewlett-Packard ertrygging fyrirgæðum, endingu og endalausri ánægju í litaútprentun. Hátækni til framfara * s HP LaserJet 4L geislaprentarinn. Tilvalinn prentari fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Tilboðsverð: kr. 59.900 stgr. HP ScanJet llcx litaskanninn. Glæsilegur hágæða borðskanni. Hérá stórlækkuðu verði. Tilboðsverð: kr. 99.900 stgr. Tæknival Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.