Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 33 MINNINGAR + Margrét Gísla- dóttir fæddist 19. ágúst 1912 að Vallarhjáleigu í Gaulverjabæjar- hreppi, Arnes- sýslu. Hún lést 15. apríl sl. á heimili sínu í Smára- hvammi 15 í Hafn- arfirði. Foreldrar hennar voru hjón- in Guðfinna Sig- urðardóttir frá Borg á Stokkseyri, fædd 5. júní 1885, dáin 20. október 1944, og Gísli Jónsson bóndi, frá Stórólfshvoli, Hvolshreppi, Rangárvallasýslu, fæddur 26. október 1883, dáinn 26. desem- ber 1962. Systkini Margrétar voru: Sigurður, f. 9. júlí 1905, d. 20. nóvember 1976, Andrés, f. 10. nóvember 1909, Þórður, f. 28. MAGGA á Hvaleyri eins og hún var ávallt kölluð bjó mestan hluta ævi sinnar í Vesturkoti á Hvaleyri, ásamt systkinum sínum, eða þar til apríl 1911, d. 7. maí 1989, Ragnar, f. 21. mars 1917, Guð- mundur Óskar, f. 21. febrúar 1921, d. 25. ágúst 1967, Guðný, f. 20. ágúst 1923, og Hafsteinn, f. 13. júlí 1926, d. 16. mars 1981. Foreldrar hennar hófu búskap á Stokkseyri. Arið 1915 fluttu þau að Vesturkoti á Hva- leyri við Hafnar- fjörð og bjuggu þar allan sinn búskap. Margrét bjó á Hvaleyri til árs- ins 1967 er hún fluttist að Smárahvammi 15, Hafnarfirði, þar sem heimili hennar var upp frá því. Útför Margrétar Gisladóttur verður gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju í dag, 27. apríl, og hefst athöfnin kl. 13.30. þau fluttu árið 1967 inn í Hafnar- fjörð í Lindarhvamm 20, sem nú heitir Smárahvammur 15. Þqú af systkinunum eru á Iífi, Ragnar sem býr á Haukabergi við Hlébergsveg í Hafnarfirði, en af þeim fímm sem fluttu f Smára- hvamminn eru Andrés og Guðný eftir. Margar minningar koma í hugann þegar hugsað er til baka, en flestar tengjast þær dvöl okkar í Vestur- koti á Hvaleyri við Hafnarfjörð, þar sem nú er golfvöllur Keilis. Sem böm vorum við systkinin oft á Hvaleyrinni hjá afa og systkin- unum, og var það okkar sveit þótt ekki væri hún langt frá heimili okk- ar í Hafnarfirði. Þær systur voru ávallt nefndar saman og sagt: Ég er að fara til Möggu og Guðnýjar. Auðvitað mæddi mest á þeim Möggu og Guðnýju að hugsa um okkur krakkana þegar við vorum í heimsókn, og álltaf vom þær tilbún- ar með mat og kaffi á réttum tíma. Heimabökuð brauð og kökur vant- aði aldrei á borð. Þessi regla á matar- og kaffitím- um breyttist ekkert þótt flutt væri inn í Hafnarfjörð. Mjög ofarlega í minningunni er dvölin á Hvaleyrinni, hvort sem var að vetri eða sumri. Það er ómetanlegt hverju bami að fá að kynnast sveitinni, og kom- ast í svo nána snertingu við dýrin og náttúruna. Þegar mjólkað var, þótt gott að fá mjólkina spenvolga beint í munninn. Þótt búskapurinn teldist ekki stór, vom þó öll helstu húsdýrin á staðnum. í heyskap tóku allir þátt í að heyja, og var spennandi að fá að sitja á rakstrarvélinni og múavél- inni, en þær vom í fyrstu dregnar af hestum. Miklar breytingar voru að gerast í landbúnaði á þessum tímum og kynntumst við þeim. Ekki má gleyma öllum þeim möguleikum til leikja sem vom til staðar á Hvaleyrinni með túnin, fjör- una og hraunið. Á Hvaleyrinni vom fleiri býli og var talsverður kunningsskapur þar á milli, og lékum við krakkarnir okkur saman. Fastur punktur í tilvemnni var áramótabrennan á Hvaleyri, þar sem allir krakkamir höfðu undan- fama mánuði safnað dóti á brenn- una. Á gamlárskvöld var svo kveikt í að viðstöddum flestum íbúum Hva- leyrar ásamt skyldmennum. Eftir að flutt var í Smárahvamm- inn fékk Bjami smíðaaðstöðu í bíl- skúmum og þá gætti Magga þess vel að ekki félli úr kaffítími og mat- ur ef vart var við hann í skúmum, enda var það svo að ávallt var okkur boðið upp á veisluborð þegar okkur eða ijölskyldurnar bar að garði. Þótt heimsóknum í Smára- hvamminn hafi fækkað hin síðari ár fylgdist Magga alltaf vel með hvemig okkur vegnaði, og aldrei gleymdi hún bömunum. Afmælum barnanna mundi hún ávallt eftir og rétti þeim einhvern glaðning þegar þau komu í heimsókn. / I öllu því amstri og tímaleysi sem fylgir hinu daglega lífi nú til dags, gleymist oft hversu tíminn líður hratt og allt í einu stöndum við frammi fyrir því að skarð er höggv- ið í fjölskylduna eða vinahópinn. Alla tíð var mikill samgangur milli systkina og vinafólks á Hval- eyri, og fjölskylduboð um stórhátíð- ir fastur liður. Alltaf var mikil tilhlökkun að fara í þessi boð, ekki síst suður á Hva- leyri til Möggu og Guðnýjar. Um jólin var oft mikill snjór og ófærð og erfítt að komast, því trað- irnar fylltust af snjó. Þá var stund- um ekið yfir túnin ef frost var í jörðu, annars varð að leggja bílunum og ganga hluta leiðarinnar. Hægt er að skrifa langa grein um þau ævintýri og þær minningar sem við upplifðum í æsku og tengj- ast Hvaleyrinni og er minningin ljós- lifandi í hugskotum okkar. Við viljum þakka Möggu sam- fylgdina á liðnum árum og flytjum saknaðarkveðjur frá okkur, mömmu og fjölskyldum. Systkinum Möggu og aðstand- endum sendum við hugheilar sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu Margrétar Gísladóttur frá Hvaleyri. Guðfinnur Gísli Þórðarson, Bjarni Rúnar Þórðarson, Hrafnhildur Þórðardóttir. MARGRET GÍSLADÓTTIR ÓLAVÍA ESTER STEINADÓTTIR -4- Ólavía Ester ■ Steinadóttir frá Narfastöðum fæddist 3. janúar 1905 á Narfastöð- um í Melasveit í Borgarfirði. Hún lést á Dvalar- heimilinu Skjóli 17. apríl síðastlið- inn. Ólavía Ester var dóttir þjón- anna Steinunnar Sigurðardóttur og Steins Björns Arnórssonar sem bjuggu á Narfa- stöðum. Systkini Esterar, eins og hún var oftast kölluð, voru 12 að tölu. Af þeim eru nú lif- andi Þór og Jóhanna, hæsta- réttarlögmaður. Ólavía Ester var jarðsungin frá Fossvogskapellu 25. apríl síðastliðinn. ESTER ólst upp í sínum stóra systk- inahópi á Narfastöðum. Hún lagði stund á klæðskerasaum í Reykjavík á unga aldri og var einstök hag- leiksmanneskja í kúnststoppi. Ester lagði stund á leirkerasmíð á fullorð- insárum. Ég á græna leirkönnu eft- ir hana sem hún gaf mér og er mér dýrmæt Systir Esterar, Efem- ía, lagði á fullorðinsaldri stund á myndlist og eftir þær systurnar eru mörg listaverk úr hinu ótrúlegasta efni. Ester gætti bama Öddu Báru Sigfúsdóttur veðurfræðings, og eigimanns hennar, Bjarna Bene- diktssonar frá Hofteigi. Ester var skyld Bjarna. Geirþrúður, móðir Bjarna, var systir Esterar. Steinunn Jóhannsdóttir, dóttir Jóhanns bróður Esterar, var heima- gangur hjá föðursystur sinni á æskuárum sínum. Steinunn var mikið á Narfastöðum hjá frændfólki sínu. Ester og Arnbjörg, elsta syst- ir hennar, byggðu sér íbúð í fjölbýl- ishúsinu í Sólheimum 25. Steinunn á góðar minningar þaðan eins og víðar þar sem Ester bjó. Steinunn hefur alla tíð annast föðursyst- ur sína af mikilli alúð og séð um öll hennar mál. Hefur hún launað Ester vel umhyggjuna og reynst henni sem besta dóttir. Ég var svo lánsöm að alast að hluta til upp í Borgarfirði líka. Sælar voru þær stundir þegar móðir mín, Sigríður Oddsdóttir, og Halldóra Hjartardóttir bóndakona í Árdal í Andakílsárhreppi lögðu hnakkana á Jarp fyrir mömmu og Brún hans Jóns í Árdal fyrir Hall- dóru. Síðan héldu þær af stað ríð- andi í heimsókn til Péturs í Höfn og fólksins á Narfastöðum í Mela- sveit. Þetta voru dásamlegar stund- ir, af því að þessar tvær ágætiskon- ur áttu annars svo fáar tómstundir sem þær nutu eins ríkulega og þess- ara. Ég fékk stundum að fara með á Hvanna, sem kom frá Hvanneyri. Og þá var sko gaman. Síðan liggja leiðir mínar og Est- erar saman í Reykjavík þegar ég rek dagvistun fyrir aldraða á heim- ili mínu á Miklubraut 26. Og þar mætti einn Borgfirðingurinn til, Bjöm Guðmundsson, sonur sýslu- mannsins í Borgarnesi, Guðmundar Bjömssonar, Björn ólst upp í Borg- amesi. Alveg var dásamlegt að hlusta á Bjöm og Ester tala saman um daginn sem þau gengu, ásamt fleirum úr Borgarnesi og nærsveit- um, upp á Hafnarfjall. Þau töldu aftur og aftur um þennan dáindis- dag og eiginlega voru margar út- gáfur af þessari göngu, að minnsta kosti var afar skemmtilegt að heyra þau lýsa göngunni og aðdraganda hennar. Við settumst yfirleitt saman að snæðingi klukkan tólf og þá var sýslumannssonurinn Björn mættur í pressuðum jakkafötum í skyrtu og með slifsi og með hatt enda fyrirverandi forstjóri Sænsk- íslenska frystihússins. Björn var herramaður til orðs og æðis og hafði ríka kímnigáfu. Sama var að segja um Ester. Ingibjörg Pálsdótt- ir, sem rak matsölu á stríðsárunum á Reyðarfirði íklædd, samkvæmt tísku þess tíma, íslenskum skaut- búningi, var hógvær, þakklát og fádæma dugleg. Ég var tíður gest- ur á heimili Ingibjargar í Mjóuhlíð 8, enda aðeins yfir Mjóuhlíðina að fara að heiman frá mér. Ingibjörg sýndi mér mynd af sér í skautbún- ingnum með gult slegið hárið niður á mjaðmir. Ingibjörg hefði sómt sér vel sem fegurðardrottning Austurlands ef slík kosning hefði tíðkast þá. Ásta Jónasdóttir vissi mikið um hollustumataræði og vissi alltaf allt um heilsufæði og mataijurtir ræktaðar innanhúss meðal annars, því hún er dóttir Jónasar Kristjánssonar, sem stofn- aði heilsuhælið í Hveragerði. Eftir matinn vildi Ester snara sér í uppv- askið því hún þekkti ekki tækið uppþvottavél. Síðan fórum við oft í eftirmiðdagskaffi til Ingibjargar, Esterar, Björns, Ástu, Fanneyjar fi Styrktarfélag krabbametnsélúkra barna Minningarkort Styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna fást hjá félaginu í síma 676020. Ennfremur í Garðsapóteki og Reykjavíkurapóteki. -.... ►<<--■-- MRNRÐEflG Glæsilegur saiur, góð þjónusta og veglegt kaffihiaðborð kr. 790- ERFE DRYKHAN Veislusalur Lágmúla,4, simi 588-6040 Guðmundsdóttur eða Gyðu í Drápuhlíð svo einhveijar þessara dýrðarmannvera séu nefndar. Öll voru heimili þessa fólks fádæma fallega búin með handsaumuðum dúkum, púðum, myndum og lista- verkum. Ester bauð okkur upp á kaffi úr handgerðu leirbollastelli. Það var líka stór dagur þegar við drukkum eftirmiðdagskaffi saman á Hótel Borg og þá var með okkur Anton Sigurðsson húsasmiður á Fornhaga 26 með nýjan hattkúf! Þegar til þess viðraði, sem var oft því það er mikið skjól í görðun- um í Hlíðahverfi, settum við upp græna spilaborðið úti á stéttinni í garðinum og spiluðum brids. Við sátum með hatta til að láta sólina ekki trufla okkur. Starfstúlkur mín- ar, Þórdís Hauksdóttir og Brynja Gísladóttir, voru mjög svo liðtækar við spilamennskuna. Við fórum líka og spiluðum brids eða vist með öðrum öldruðum í Oddfellowhúsinu niður í Reykjavíkurborg. Ester bjó þá uppi í Breiðholti. Ester gaf mér biblíuna sína, þegar hún var flutt á Dvalarheimiiið Fell í Skipholti í Reykjavík. Hún hafði strikað undir með blýanti einmitt þá ritningarstaði sem mér þykir svo vænt um. Hún sagði hlæjandi að það væri best að biblían væri hjá mér. Seinna fluttist hún á Kumb- aravogsheimilið á Stokkseyri. Hún fór þaðan á Dvalarheimilið Skjól í Reykjavík og andaðist þar. Þeim fækkar óðfluga vinum mín- um frá dagvistuninni á Miklubraut 26. Dagarnir líða og allt breytist. En eitt er víst, góðar minningar breytast aldrei. Minningin um Ester er um duglega, tilfínningaríka og kankvísa konu sem langaði mikið til þess að hjálpa öðrum, búa til eitthvað fallegt og þoldi aldrei að hallað væri réttu máli. Guð blessi hana í nýju heimkynnunum sínum. Valgerður Þóra Benediktsson. + - Útför ÞÓREYJAR JÓNSDÓTTUR frá Hnappavöllum, Öræfum, Vesturgötu 113, Akranesi, verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 28. apríl kl. 11.00 f.h. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta Sjúkrahús Akraness njóta þess. Erla Guðmundsdóttir, Gísli S. Sigurðsson. Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku dóttur okkar og systur, GUÐMUMDU VALBORGU VALGEIRSDÓTTUR. Valgeir Ólafsson, Jarþrúður Bjarnadóttir, Kristján Tafjord, Vigfús Birgir Valgeirsson, Ásgeir Örn Valgeirsson, Guðbjörn Már Valgeirsson, Salomon Þór Tafjord. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HELGA EINARS PÁLSSONAR frá Hvammi l'Fljótum. • Ingibjörg Bogadóttir, Kristrún Helgadóttir, Karl Sighvatsson, Ingibjörg Karlsdóttir, Þórir Árnason, Sigurður Karlsson, Kristjana Hafliðadóttir, Helgi Einar Karlsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.