Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Móðir okkar, lést á Hrafnistu + STEFANÍA EINARSDÓTTIR, Hafnarfirði þriðjudaginn 25. apríl. Sigríður og Jóhanna Hinriksdætur. Móðir okkar, er látin. + ÞÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR, Rifkelsstöðum, Börnin. Systir okkar, + GUÐNÝ ELÍSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Reykjavík, þann 25. apríl. Halldóra Elísdóttir, Díana K. Kroyer. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN MAGNÚSSON bifreiðastjóri, Laufbrekku 27, Kópavogi, lést í Landspítalanum 25. apríl sl. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Áslaug Sigurðardóttir. t Elskuleg frænka Okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Helgastöðum, andaðist á elliheimilinu Grund 15. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðný Erla Eiríksdóttir, Jóna Maria Eiriksdóttir, Gísli Ástvaldur Eiriksson, Svava Eiríksdóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir ogafi, EINAR ÁSGEIRSSON forstjóri, Hvassaleiti 56, sem lést 20. apríl síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 28. apríl kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Ásgeir Einarsson, Elín Elíasdóttir, Sigurveig Einarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Sölvi M. Egilsson, Einar Karl Einarsson, Magnús Stefán Einarsson, Dana Lind og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNÍNA GUNNLAUGSDÓTTIR, Hrafnistu, áðurtil heimilis á Kleppsvegi 132, sem lést þann 19. apríl sl., verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. apríl kl. 15.00. Þorbjörg R. Einarsdóttir, Gunnlaugur Gunnarsson, Kristín Einarsdóttir, Einar Hjaltason, Jón H. Einarsson, Hulda Björnsdóttir, Gunnlaugur G. Einarsson, Jóna Haraldsdóttir, Hafdís M. Einarsdóttir, Gunnar Fjeldsted, Ingvar Einarsson, Ingiríður Þórisdóttir, Kjartan Einarsson, Katrín Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. HANNA KRISTJÁNSDÓTTIR + Hanna Kristj- ánsdóttir fædd- ist 17. október 1911 á Bíldudal. Hún lést 19. apríl sl. Foreldr- ar Hönnu voru Kristján Sigurður Magnússon, skip- sljóri, Bíldudal, og síðar fisksali í Reykjavík, f. 2.9. 1883 að Krossadal í Tálknafirði, d. 29.9. 1949 í Reykjavík, og kona hans Guð- mundína Ámadótt- ir, f. 15.9. 1886 í Reykjavík, d. 23.10. 1968 í Reylqavík. Systkini Hönnu voru: Magnús Kristjáns- son, sjómaður í Reykjavík, f. 20.7. 1905, d. 14.7. 1989, Lýður Hólm Kristjánsson, f. 17.10. 1906, d. 8.11. 1907, Guðný Kristjánsdóttir, f. 7.10. 1907, dvelur á Hrafnistu í Reykjavík, Sigrún Krisljánsdóttir, f. 29.5. 1909, d. 21.9. 1987, Guðbjörg Kristjánsdóttir Milner, f. 2.7. 1910, býr í Seattle í Bandaríkj- unum, Viktoría Kristjánsdóttir, f. 22.9. 1916, d. 10.1. 1987, og Þórður Krisljánsson, f. 12.10. 1919, dvelur á Vífilsstaðaspít- ala. Hanna giftist Jónasi Ingvari Ás- grímssyni rafverk- taka, f. 16.10. 1907 að Brimnesi við Fá- skrúðsfjörð, f. 2.9. 1978, og eignuðust þau fjögur börn. Þau em 1) Ásgrímur Jón- asson, rafm.iðnfr. í Reylqavík, maki Þó- rey Sveinbergsdótt- ir. Þeirra börn em Jónas Yngvi, Lára Sveinbjörg og Hanna María. 2) María, húsmóðir í Euclid, Ohio í Bandarikjunum. Maki hennar var Lonnie Lee Rall, látinn. Þeirra börn era Gary Dean (lát- inn), og Donna María. 3) Edda Guðmundina, íþróttakennari í Hafnarfirði. Maki hennar er Þórir Ingvarsson. Þeirra börn era Ivar, Gyða og Jónas Þór. 4) Ólöf Viktoría, þroskaþjálfi i Bteykjavík. Hennar börn era Ægir Eyberg Helgason, Sveinn Gauti Arnarsson og Hanna Rún Amarsdóttir. Hanna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 27. apríl, og hefst athöfnin kl. 15.00. ELSKU mamma mín. Nú ert þú farin frá okkur og því verður líf okkar ekki eins ljúft og áður. Þú kvaddir á þinn ljúfa hátt, í þann mund að sumarið birtist heima á íslandi, eins og kertaljós í andvara, ofurmjúkt. Og þú varst farin á hans fund, skaparans sem öllu ræður. Alltaf þegar öryggisleysi sótti á, var hægt að reiða sig á þig, mamma min. Þegar allt fór úrskeiðis gat ég alltaf farið til mömmu sem kyssti mig og huggaði þannig að lífíð brosti við mér á ný. Þannig var það með öll þín böm, bamaböm og tengdaböm. Þegar þú veiktist, drógumst við að þér eins og að segli. 011 vildum við hlynna að þér, eins og best við gátum. En það var lítið sem við gátum gert. Eg hef aldrei þekkt neinn sem svo margir hugsuðu hlýtt til. Allir vildu gera eitthvað. Okkur fannst heiður að geta á okkar litla hátt, hlynnt að þér, eins og þú annaðist okkur, öll þessi ár. Þú varst eins og sólargeisli. Og þegar ég sé slíkan smjúga gegn um skýin, þá hugsa ég til þín. Vertu blessuð, elsku mamma mín, þangað til við hittumst aftur. Þín, María D.J. Rall. Tengdamóðir mín, Hanna Krist- jánsdóttir, er látin eftir stutt en erfíð veikindi. Hún veiktist í byijun febrúarmánaðar og við greiningu reyndist sjúkdpmurinn vera illkynja og ólæknanlegur. Það var aðdáun- arvert og lærdómsríkt að fylgjast með því hvernig hún brást við og undirbjó brottför sína úr þessum heimi. Hún setti sér það takmark að ná að samgleðjast dóttursyni sínum á fermingardegi hans og að taka á móti dóttur sinni sem kom heim erlendis frá. Þessu takmarki náði hún. Ég var 19 ára þegar ég hafði mín fyrstu kynni af Hönnu. Það var um páska 1962 en þá kynnti sonur hennar mig fyrir henni sem verð- andi eiginkonu sína. Hún tók mér eins og dóttur og þróaðist með okkur vinátta þar sem hún leiddi mig og leiðbeindi og átt- um við góða samleið alla tíð. Hanna var af vestfírskum sjó- mannsættum, fædd og alin upp á Bíldudal við Arnarfjörð. Hún var dóttir Kristjáns Magnússonar sem lengi stýrði þilskipum frá Bíldudal og konu hans Guðmundínu Áma- dóttur sem ættuð var úr Reykjavík. Hún var sjötta bam í stómm og samhentum systkinahópi og hefur þessi grunnur eflaust mótað þá já- kvæðu afstöðu sem hún hafði til lífsins og sér í lagi til okkar yngra fólksins. Hanna fluttist ung til Reykjavíkur og þar hitti hún sinn lífsförunaut, Jónas Ásgrímsson raf- verktaka, en hann lést árið 1978. Þau bjuggu alla tíð hér í Reykjavík. Ég þakka tengdamóður minni sam- leiðina og þá væntumþykju sem hún ávallt sýndi mér og óska henni góðra samfunda við áður gengna ástvini. Þórey Sveinbergsdóttir. Einu sinni áttu heima á Kalda- bakka á Bfldudal sex systur og tveir bræður. Magnús, Gauja, Rúna, Gugga, Hanna, Viktoría, Bíbí og Doddi. Margar sögur hafa verið sagðar frá þeim æsku- og hamingu- dögum. Tengsl systkinanna hafa alltaf verið mikil og oft kátt á hjalla þegar þau hafa komið saman. Viktoría móðir mín og Hanna voru góðar vinkonur. Var ég skírð í höfuðið á Hönnu, en dóttir hennar eftir mömmu. Á meðan mamma lifði höfðu þær Hanna samband við hvor aðra á hveijum degi. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTINN ÞÓRÐARSON, Hátúni 19, verður jarösunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 28. apríl kl. 15.00. Sesselja Víglundsdóttir, Þórhildur Vigdís Sigurðardóttir, Helga Sigurðardóttir, Hörður Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Ég lít til liðins tíma og staldra við um stund. Hér er gott að vera og það birtist mynd af Hönnu minni. Hún kallar mig alltaf nöfnu sína. Það er eitthvað sérstakt við að vera nafna og setur mig á stall. Við Laugaveginn eiga Hanna og Jónas heima og Ásgrímur, María, Edda og Ólöf Viktoría (Lalla). Ég er lítil stúlka í heimsókn hjá þeim. Það er sólskinsdagur. Hanna er að skera niður franskbrauð. Ég vil gera eins. „Nei, þú ert of lítil og gætir skorið þig,“ segir frænka mín. Ég breytist í stóra frekju. Hanna réttir mér hnífínn og heldur við brauðið. Ég sker sigri hrósandi, margar sneiðar. Nú er því lokið og Hanna horfír brosandi á mig, hlær og segir: „Ég var búin að skera brauðið nafna mín og þú hélst bara að þú værir að skera.“ Sjálfsvirð- ingu minni er hnekkt í nokkrar sek- úndur, en svo skellihlæjum við báð- ar, nöfnurnar. Já, það er alltaf sólskin við Laugaveginn. Sólin færir sig í Skeiðarvoginn og við Bjössi bróðir fáum að búa þar, hjá Hönnu og Jónasi. Mamma er mikið veik, en okkur líður vel. Bjössi er niðri í kjallara með Jónasi að búa til flugdreka. Bjössi hleypur út á eftir drekanum með Eddu á hælunum. Ég og Lalla skokkum út í búð fyrir Hönnu. Svangur krakka- hópurinn er í kringum Hönnu í eld- húsinu. Hanna er ein af festingum tilverunnar. Hér eigum við heima þar til mömmu batnar. Kærleikurinn er dýrasta gjöfín frá Guði og frænka mín var rík. Sendi ég öllum ástvinum hennar innilegustu samúðarkveðjur. Perlur minninganna glitra, en það er gott þú þurftir ekki lengur að vera veik, Hanna mín. Ég veit að margir bíða heimkomu þinnar i ljósinu. Vertu sæl, elsku nafna mín. Bergný Hanna. Kynni okkur Hönnu hófust vetur- inn 1984 til 1985. Þá fluttum við báðar í götuna okkar, Boðahlein í Garðabæ. Hér hefur okkur liðið svo vel. Það var mikil eftirvænting hjá mér að flytja í nýbyggða eign, í nýju sveitarfélagi, í nýju hverfí. Ekki var eftirvæntingin minni að vita hvers konar nágranna maður kæmi til með að eignast. Það eina sem maður vissi að þeir myndu all- ir vera 67 ára eða eldri, en sjálf var ég 68 ára. Fljótlega eftir að ég flutti þama inn var fundur með nýbúum á svæð- inu og fór maður þá að grennslast fyrir um íbúa götunnar, hvort mað- ur þekkti ekki einhvem. Kom þá fljótt í ljós að einn nágranni minn var Hanna Kristjánsdóttir, og var íbúð hennar hinum megin götunn- ar, beint á móti minni. Ekki þekkti ég hana fyrir, en það kom í ljós að hún þekkti til mannsins míns, sem þá var nýlátinn. Tókust strax með okkur góð kynni, sem reyndar urðu að góðri vináttu okkar og fyrir þá vináttu og tryggð vil ég nú þakka, er leiðir okkar skiljast um stundarsakir. Þær em ófáar ferðimar sem við höfum farið saman, á kaffíhús eða skemmtikvöld, í búðir eða bíó og ferðalög innanlands og utan, en árið 1987 fórum við saman ógleym- anlega ferð til Spánar, áasmt Aðal- heiði vinkonu okkar hér í götunni. Þeir verða víst ekki fleiri í bráð, kaffibollamir, sem við drukkum gjarnan hvor hjá annarri, yfír léttu spjalli um lífíð og tilveruna, börnin okkar og bamabörnin. Ég kveð þig kæra vina, með klökkva, í hinsta sinn. Fjölskyldu Hönnu og ástvinum votta ég mína dýpstu samúð og bið ykkur Guðs blessunar. Hver minning er dýrmæt perla að iiðnum lífsins degi. Hin Ijúfu og hljóðu kynni af alhug þðkkum vér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, sem fengu að kynnast þér. (Davíð Stefánsson.) Sigríður Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.