Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 37
J I ! I í I í 3 j < 4 i i i i í í i 4 H MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 37. Elite-líósmyndafyrirsætukeppnin á Hótel íslandi Ásdís Maria Franklín, 16 ára, 174 sm. Sigurveg- ari valinn í kvöld SIGURVEGARI í Elite-ljósmynda- fyrirsætukeppninni verður valinn á Hótel íslandi fimmtudaginn 27. apríl. Húsið verður opnað kl. 19.30. Þrettán stúlkur keppa til úrslita. Karen Lee, fulltrúi Elite í New York, útnefnir íslenska sigurvegar- ann en þetta er í tólfta skipti sem Nýtt Líf og Elite standa fyrir fyrir- sætukeppni hér á landi. Þær stúlk- ur sem tekið hafa þátt í keppninni til þessa hafa margar hverjar átt mikilli velgengni að fagna og eru starfandi víða um heim. Sem dæmi má nefna þær Kristinu Haralds- dóttur, sem var fyrsti sigurvegar- inn hér á landi, Bertu Maríu Waag- fjörð, Snæfríði Baldvinsdóttur, Brynju Sverrisdóttur, Rögnu Sæ- mundsdóttur, Bryndísi Bjarnadótt- ur og Andreu Róbértsdóttur. Að þessu sinni tóku tæplega eitt hundrað stúlkur þátt í keppn- inni. Elite í New York valdi síðan úr hópnum þær þrettán stúlkur sem taka þátt í úrslitakeppninni á Hótel íslandi. Kolbrún Aðalsteinsdóttir hjá John Casablancas skólanum sá um að setja upp tískusýningamar og þjálfa stúlkurnar fyrir keppnina. Hólmfríður Jónsdóttir, 17 ára, 177 sm. Áslaug Pálsdóttir, 21 árs, 175 sm. Estrid Þorvaldsdóttir, 17 ára, 174 sm. Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, 17 ára, 184 sm. Helga Zoega, 19 ára, 176 sm. Hulda M. Einarsdóttir, 22 ára, 181 sm. Sunna Birna Helgadóttir, 16 ára, 178 sm. Sunna Þorsteinsdóttir, 15ára, 178 sm. Ásdís Sif Gunnarsdóttir, 18 ára, 177 sm. Gyða Hlín Björnsdóttir, 16 ára, 177 sm. Helga Erla Gunnarsdóttir, 17 ára, 176 sm. Sólveig Helga Zophonías- dóttir, 15 ára, 173 sm. Fr ímerkj asýn- ing 5.-8. maí nk. FRIMERKI Safnaöarltcimili Ilátcigssóknar FRÍMSÝN 95 Landsþing L.I.F. 6. mai. FRÍMERKJASÝNING verður haldin í nýju og glæsilegu safnaðar- heimili Háteigssóknar við Háteigs- veg í Reykjavík dagana 5.-8. maí nk. Er hún haldin í tengslum við árlegt þing Landssambands ís- lenzkra frímerkjasafnara. Sér Félag frímerkjasafnara um allan undir- búning undir sýninguna, enda gest- gjafi þingsins að þessu sinni. Á Frímsýn 95 verður margt áhugavert, m. a. ýmislegt, sem hef- ur ekki sézt áður opinberlega. Enn fremur nokkur íslenzk söfn, sem hafa ekki verið á sýningum um árabil. Þá verða þar sýnd í fyrsta skipti nokkur ný unglingasöfn. Gert er ráð fyrir, að frímerkjaefni verði í um 150 römmum. Auk þess verða sýnd söfn margra annarra hluta. Má þar m. a. nefna póstkort, barm- merki, minnispeninga og vindla- miða. Enn fremur mun mega sjá þarna söfn fingurbjarga, eldspýtu- stokka og spila. Ekki er unnt að nefna hér allt það, sem verður á Frímsýn 95, enda er sjón alltaf sögu ríkari. Þó skal vikið að nokkrum söfnum, sem mér er kunnugt um að verði á sýning- unni. Eins og venja er, verður sýn- ingarefni skipt í ýmsa flokka eða deildir, svo sem samkeppnisdeild, unglingadeild, opinn flokk og svo dómaraflokk. Síðastnefndi flokkur- inn kemur af eðlilegum ástæðum ekki til umsagnar, því að þar sýna dómarar sýningarinnar eigin söfn. Sigurður R. Pétursson sýnir safn sitt af Tveimur kóngum 1907- 1915, Jón Aðalsteinn Jónsson safn af dönsku tvílitu frímerkjunum 1870-1904, og Ólafur N. Eliasson verður í þessari deild með sýnishorn af svonefndum AV2 og OAT- stimplum frá stríðsárunum 1939- 1945. í samkeppnisdeild verða sex söfn. Af þeim á Þorvaldur Jóhannesson tvö um íslenzka flugpóstsögu á ár- unum 1945-1990. Er hann eini íslendingurinn, sem á efni i þessari deild. Hér má einnig nefna frímerki frá Dönsku Vestur-Indíum, sem Gunnar Loshamn frá Noregi sýnir. Þá er væntanlegt mótíf- eða teg- undasafn allar götur frá Indlandi og nefnist Fuglar kannaðir með frímerkjum. Að sögn er þetta stórglæsilegt safn. í þessari deild, en svonefndum Nálarflokki, verða þijú mótífsöfn, sem koma erlendis frá. Nöfn þeirra eru vissulega áhugaverð: I heimi apanna, Kettir það bezta í heimi og Furður undir- djúpanna. I unglingadeild verða allmörg skemmtileg söfn, sum áður kunn af sýningum, en önnur ekki. Hér eiga íslenzkir unglingar drjúgan hlut í. Gunnar Garðarson sýnir hér margverðlaunað safn sitt Ránfuglar í útrýmingarhættu, nú síðast í þess- um mánuði á COLOPEX ’95 í Bandaríkjunum. Þar hlaut það gyllt silfur og sérstök heiðursverðlaun frá Amerísku frímerkjasamtökun- um og þar að auki verðlaun sem bezta unglingasafnið. Guðni Friðrik Árnason sýnir safnið Kristófer Kól- umbus og fundur Ameríku, sem einnig hefur hlotið góð verðlaun; nú síðast á COLOPEX ’95 silfur- verðlaun og að auki heiðursverð- laun. Hlýtur að vera einkar ánægju- legt fyrir Guðna Friðrik að hljóta þessi verðlaun einmitt í Ameríku, á heimaslóðum Kólumbusar, ef svo má að orði komast. Gísli Geir Harð- arson sýnir safnið Tónskáld tveggja tímabila, en það safn er í stöðugri framför. Stríðið íEvrópu ogN.-Afr- íku 1939-45, er safn, sem Steinar Örn Friðþjófsson sýnir. Af söfnum erlendis frá má nefna safnið Eng- land - 2 dronninger, en það hefur áður sézt hér á sýningu. Ýmis nöfn erlendra safna benda til þess, að SÉRSTIMPLAR FRÍMSÝN 95. þau séu þess eðlis, að þau veki veru- lega athygli ungra safnara; nöfn eins og Risar fortíðar, Plútó og vin- ir hans og Afrísk gæludýr. í svonefndum opnum flokki Frímsýn 95 verður einnig margt að skoða. Þessi flokkur verður ekki dæmdur til verðlauna. Segja má, að þar geti menn séð í hnotskurn, á hversu marga vegu má skemmta sér við að safna frímerkjum og stimplum. Hér verður hlaupið á nokkrum söfnum. Indriði Pálsson sýnir þarna Auraútgáfuna 1876- 1902. Sigurður Þormar verður með stórt safn íslenzkra stimpla og Don Brandt sýnir útbreiðslu brúarstimpla um landið. Þór Þorsteins á stórt safn af Kristjáns X. frímerkjum. Benedikt Antonsson sýnir áreiðan- lega forvitnilegt efni, sem nefnist Frímerkjalandafræði. Ég veit, að hann hefur þar farið lítt troðna slóð. Jón Egilsson sýnir safn fjórblokka og blokka. Garðar Jóhann verður með söfn úr tveimur tímabilum Ungverjalands og enn fremur nokk- uð dularfullt efni, sem hann kallar Fólk og fleira fólk. Einar I. Siggeirs- son sýnir safn frímerkja, sem hann kallar Ferðalög Jóhannesar Páls II. um heiminn. En eins og kunnugt er, hefur núverandi páfi ferðazt miklu meira um heimsbyggðina en forverar hans gerðu um sína daga. Loks eru í þessum flokki tvö lítil söfn, sem mig minnir ég haft séð norður á Akureyri fyrir tæpum tveimur árum og vöktu athygli manna. Fanney Kristbjamardóttir á safn, sem hún nefnir Konur og ís- lenzk fn'merki, og Friðrik Ketilsson safnið íslenzkir fossar. Sýningarnefnd FRÍMSÝN 95 skipa þau Sverrir Einarsson, sem er formaður hennar, Fanney Krist- bjarnardóttir og Össur Kristinsson. Að sjálfsögðu verður sérstakt pósthús starfrækt á sýningunni, þar sem gestir geta fengið frímerki stimpluð með sérstimplum sýning- arinnar. Ástæða er tij þess að vekja sérstaka athygli á þessum stimpl- um, því að sérhver þeirra hefur táknrænt gildi, svo sem lesa má um í sýningarskrá. Rétt er að geta þess að lokum að aðgangur að FRÍMSÝN 95 er ókeypis. Hins vegar geta sýningar- gestir tekið þátt í hlutaveltu með frímerkjavinningum, þar sem verða engin núll. Enn fremur gefst mönn- um kostur á að leita að nafninu FRÍMSÝN 95, sem verður í nokkr- um römmum. Sá eða sú, sem finnur þau öll, getur átt von á góðum verð- launum. Jón Aðalsteinn Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.