Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 23
LISTIR
Bíódagar í keppni
barnamynda í Cannes
BÍÓDAGAR, kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, hefur verið valin til
þátttöku í keppninni um bestu barna-
myndina á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í maí. Bíódagar unnu nýver-
ið aðalverðlaun („grand prix“) á
bamamyndahátíðinni í Laon í Frakk-
landi. Verðlaununum fylgir 50.000
franka styrkur til dreifíngar mynd-
arinnar í frönskum kvikmyndahúsum
og í framhaldi af þátttöku í barna-
myndakeppninni í Cannes verður
myndin markaðssett í Frakklandi
sem barnamynd af dreifíngarfyrir-
tækinu K-Film, sem hyggst verja
alls um 10 milljónum íslenskra króna
til þess verkefnis. Sigri Bíódagar í
keppninni eru góðar líkur á víðtækri
dreifíngu hennar í frönskum kvik-
myndahúsum. Bíódagar verða af
þessu tilefni teknir að nýju til sýn-
inga í Stjörnubíói í maí, kl. 3 á sunnu-
dögum.
Jafnframt hlutu Bíódagar nýverið
áhorfendaverðlaunin á evrópsku
kvikmyndahátíðnni Mamers en Mars
í Frakklandi. Kvikmyndin er um
þessar mundir sýnd í kvikmyndahús-
um í tíu borgum í Þýskalandi og
hefur fengið afbragðs dóma gagn-
rýnenda. Gagnrýnandi tímaritsins
Zitty í Berlín kallar Bíódaga „lát-
laust meistaraverk". Tímaritið Ci-
nema nefnir leikstiórann „hinn ís-
lenska Fellini". í Joumal Frankfurt
segir gagnrýnandinn m.a.: „Friðriks-
son nær fram nýstárlegum blæbrigð-
um í mynd sinni. Hún hefur norrænt
yfírbragð sem er okkur framandi en
hrífur okkur jafnframt. Á þessum
norðlægu slóðum er skapgerð fólks-
ins hrein og bein. Samskipti eru ein-
læg, án fais og hégóma og dregin
er upp mynd af lífí íbúa, sem er jafn
hrein og hijúf og tært íslenskt fjalla-
loftið. Fögur og einlæg mynd.“ í
Foyer segir m.a. að Bíódagar séu
„afar norrænt svar við „Radio Days“
Woody Allens og „Líf mitt sem hund-
ur“ Lasse Hallströms. í FR segir:
„Hvert myndskeið er obláta, sérhver
endursýning verður endurholdgun. í
Bíódögum Friðriks Þórs Friðriksson-
ar tekur bíóið á sig ásjónu kirkjunn-
ar.“ Berliner Morgenpost: „í smáum
ævisögulegum frásagnarbrotum
tekst leikstjóranum að draga upp
ljóslifandi mynd af æskunni. .. að
auðga evrópsku kvikmyndina með
ljóðrænni og nærgætinni frásagnarl-
ist sinni andspænis áhlaupi banda-
rískra stórmynda." Berliner Zeitung
segir m.a.: „Það er engin tilviljun að
landar Friðriksson kalli hann „Fred-
erico“ í minningu hins mikla ítalska
leikstjóra. Reykjavík er Rimini hans.
Bíódagar hans Amarcord." Bonner
Generalanzeiger: „Bíódagar er fag-
urt myndverk, þar sem tíminn, sið-
fræðin og sálin leika stórt hlutverk.
Þarna glitra glettnar perlur gaman-
máls og harmleiks." Þess má að lok-
um geta að Bíódagar voru nýverið
frumsýndir í kvikmyndahúsum í Jap-
an, þar sem gagnrýnendur völdu jafn-
framt kvikmynd FViðriks Þórs, Böm
náttúrunnar, eina af tíu bestu mynd-
um síðasta árs. Um tíu þúsund manns
hafa nú séð nýjustu mynd Friðriks ,
Á köldum klaka en sýningum fer senn
að ljúka í Stjörnubíói.
Gardiner
listamaður
mánaðarins
ÞESSA dagana kynna verslanir
Skífunnar hljómsveitarstjórann
John Eliot Gardiner sem listamann
mánaðarins í klassískri tónlist.
Listamaður mánaðarins er úr
fremstu röð listamanna og tón-
skálda og geislaplötur hans eru
boðnar með 20% afslætti. Þá liggur
frammi sérprentað kynningarefni á
íslensku og í boði upptökur með
bestu flytjendum. Fyrsti listamaður
mánaðarins var mezzosópransöng-
konan Cecilia Bartoli.
John Eliot Gardiner hefur víða
komið við og spannar ferill hans
breitt tónlistarsvið. „Margar upp-
tökur sem Gardiner hefur haft af
veg og vanda, hafa markað tíma-
mót og þá þar nefna t.d. heildarút-
gáfu á sinfóníum Beethovens er
kom út á síðasta ári,“ segir í kynn-
ingu.
Tónlistarblaðið Gramophone
kaus Gardiner listamann ársins og
réð þar mestu útgáfa hans á sinfó-
níum Beethovens.
Hæst ber þó samstarf hans við
hljómsveitirnar English Baroque
Soloists og Orchestra Révolutionna-
ire et Romantique, að ógleymdum
Monteverdi-kórnum.
Gæöavara,
mikiö úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
Einn allra besti bíllinn
í sínum verðjlokki
„Ekkert er svo gott að það geti ekki orðið betra“
höfðu hönnuðir Renault að leiðarljósi þegar ákveðið var að bæta enn
við kosti Renault Clio, þessa margverðlaunaða afbragðs bíls, sem nú er
kominn á markað betri en áður, þótt hann sé að grunni til sami bíllinn.
Það er sama hvar borið er niður, aðrar bíltegundir í þessum verðflokki
hafa ekkert fram yfir Renault Clio í samspili verðs og gæða.
VERÐ FRÁ KR. 1.049.000,-
M/RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU
Reynsluaktu Renault! Þú gerir ekki betri bílakaup.
RENAULT
RENNUR ÚT!
Bifreiða
& Landbúnaðarvélar
¥
r