Morgunblaðið - 27.04.1995, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 35
I
I
I
I
I
(
(
(
(
(
<
<
(
<
MINNINGAR
amma fór að búa ein tók hún sér
ýmislegt fyrir hendur. Hún keypti
og seldi ýmsa hluti svo sem hús-
gögn og málverk. Hún átti gott
safn af málverkum sem gaman var
að skoða og iá við að eitthvað nýtt
væri á veggjunum í hvert sinn sem
við komum í heimsókn.
Amma var ekki orðin mjög full-
orðin þegar sjónin fór að bila. Hún
fór í erfiða augnaðgerð 1967 og
fékk einhvern bata og lét ekki sjón-
depruna stöðva sig lengi vel.
Loks kom þó að því að heilsan
og minnið fóru að gefa sig og hún
flutti til Bíbíar dóttur sinnar og
síðar á Hrafnistu þar sem hún
andaðist laugardaginn 15. apríl sl.
Það var líka gott að heimsækja
ömmu eftir að minnið fór að þila.
Hún hlustaði mikið á fréttirnar í
útvarpinu og reyndi að fylgjast með
hvað var að gerast. Það var nota-
legt að sitja og halda í höndina á
henni og tala við hana, kannski
riija upp gamla daga. Oft þurfti
ekki nema örfá stikkorð til þess
að hún myndi nóg til að hafa gam-
an af að spjalla. ■
Elsku amma. Við viljum þakka
þér fyrir allt sem þú hefur gefíð
okkur. Þú munt alltaf eiga stórt
pláss í hjarta okkar.
Hlíf og Sigrún Arndal.
Amma mín, Oktavía Jóhannes-
dóttir Arndal, eða Fía amma eins
og ég var vön að kalla hana, er
horfín yfir móðuna miklu. Fram í
huga minn streyma minningar um
sérstæða og skemmtilega konu,
konu sem fór sínar eigin leiðir og
var að mörgu leyti á undan sinni
samtíð. Margar af bestu minningum
bernsku minnar tengjast henni á
einhvem hátt og það var ætíð mik-
ið tilhlökkunarefni þegar von var á
ömmu og afa austur að Irafossi í
heimsókn.
í sumarheimsóknunum var
gjarnan farið að veiða í Soginu eða
Þingvallavatni og oft á tíðum var
amma með einhvern nýstárlegan
veiðibúnað, nýja tegund af beitu eða
annað það sem átti að auðvelda
okkur að krækja í þann stóra. Sá
stóri reyndist nú sjaldnast tilkippi-
legur, oftast var veiðin fáeinar
smábleikjur en það spillti ekki hið
minnsta ánægjunni af veiðiferðinni.
A jólum dvöldu þau oftast hjá okk-
ur fyrir austan, afí og amma. Oft
fannst mér biðin löng við stofu-
gluggann á aðfangadag, biðin eftir
bílljósum, rétta bílnum, Skódanum
eina sanna. Ferðin frá Reykajvík
og austur að írafossi tók jú sinn
tíma þótt ekki væri leiðin ýkja löng.
Afí var ekki mikið fyrir hraðakstur
gefinn og alltaf var stoppað á
Kambabrún og drukkið kaffi úr
brúsa. Jólin byijuðu ekki fyrr en
þau hjónin voru komin inn úr dyrun-
um. Það var nefnilega svo skrítið
með Fíu ömmu að hún hafði alltaf
nægan tíma fyrir okkur krakkana,
hvort sem var í leik eða starfí. Hún
kom fram við okkur eins og jafn-
ingja og gat verið barn með börn-
um. Oft var vandséð hver hafði
mesta ánægjuna af lestri, leik og
ýmsum uppákomum, við krakkarnir
eða amma.
Amma var ágætlega gerð til
munns og handa, vel að sér um
náttúru íslands og hafði mikið yndi
af því að ferðast. Ekki spillti fyrir
í þessum ferðum ef hægt var að
renna fyrir silung og safna ýmsum
jurtum og grösum sér til heilsubót-
ar.
Að mínu viti var amma dæmi-
gert borgarbam. Hún var fædd og
uppalin á mölinni í Keflavík en flutti
ung til Reykjavíkur og vildi ekki
annars staðar búa. Amma kunni
best við sig í miðri hringiðu mann-
lífsins, því vildi hún helst búa í
námunda við miðbæinn og á meðan
hún hafði heilsu til brá hún sér
daglega fótgangandi niður á
Laugaveg.
Amma hafði alla tíð áhuga á
yfirskilvitlegum hlutum, ekki síst
þeim sem á einhvem hátt tengdust
sögu landsins, þjóðtrú og náttúru.
Þær voru og ófáar sögurnar sem
amma sagði mér um álfa og huldu-
fólk, nykra og urðarketti, skottur,
móra og önnur furðufyrirbæri. Ekki
veit ég hversu vel hún trúði þessum
sögnum, sjálf eyddi ég löngum tíma
í að leita að hófförum nykursins á
bökkum Sogsins og hefði ekki orðið
vitund hissa ef nykurinn sjálfur
hefði öslað þar á land í húminu eitt-
hvert kvöldið.
Annað áhugamál ömmu var
kaupskapur ýmiss konar. Á sínum
yngri ámm vann hún við verslunar-
störf en helgaði sig heimilisstörfum
og barnauppeldi eftir að hún giftist
afa. Þegar börnin tóku að stálpast
setti amma á fót saumastofuna
Nálina sem hún rak í félagi við
aðra konu í mörg ár. Reksturinn
gekk vel þó ekki væri hann stór í
sniðum, enda amma hugvitssöm
með afbrigðum og tókst oft að gera
mikið úr litlu. Síðar rak amma
sælgætis- og kaffísölu á Vesturgöt-
unni ásamt Hlíf Matthíasdóttur og
fórst þeim stöllum það vel úr hendi.
Allar götur síðan var hún viðloð-
andi viðskipti af einhverju tagi þó
í smærri stíl væri. Síðari hluta
ævinnar stundaði af áhuga kaup
og sölu á málverkum og hafði hún
mikla ánægju af þeim viðskiptum
öllum. Ekki auðgaðist nú amma á
þessu brasi en hún var samt alltaf
aflögufær og gaukaði gjarnan ein-
hveiju að þeim sem hún hélt að á
þyrftu að halda.
Fía amma var alla tíð létt á fæti
og létt í lund. Hún var skjót til
verka og skjót til svars, orðheppin
og oft meinfyndin. Amma kveið
aldrei morgundeginum. Hún var
sjálfstæð kona, hafði trú á sjálfri
sér og efaðist aldrei um getu sína
til að leysa vandamál og gera hið
besta úr hlutunum. Ég kveð ömmu
með þakklæti.
Oktavía Jóhannesdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða töivu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Móðir okkar,
KLARA ÓLAFSDÓTTIR,
Rauðalæk 27,
Reykjavík,
áður Franskamel,
Neskaupstað,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 28. apríl kl. 13.30
Jón ísfeld Karlsson, Eileen E. Karlsson,
Steinunn ísfeld Karlsdóttir, Árni Ferdinandsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR VIGFÚSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju á morg-
un, föstudaginn 28. apríl, kl. 13.30.
Steinunn Jóhannsdóttir,
Kristinn Hauksson, Helga Friðriksdóttir,
Sigurlaug Hauksdóttir, Sigurjón Kristófersson,
Vigfús Hauksson, Helga Valdimarsdóttir,
Anna Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar,
ÞURÍÐAR SKEGGJADÓTTUR,
Geitagerði
■ Fljótsdal.
Guttormur V. Þormar,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við and-
lát og útför föður míns, tengdaföðar,
bróður og afa,
GUÐJÓNS
KRISTÓFERSSONAR
frá Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir eru færðar læknum
og starfsfólki á Vífilsstaðaspítala.
Helga Rósa Guðjónsdóttir, Reynir Kárason
Guðlaugur Kristófersson, Freyja Kristófersdóttir,
Guðrún Kristófersdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur vinarhug og veittu
styrk við fráfall eiginkonu minnar, móð-
ur, tengdamóður, ömmu og langömmu,
BERGÞÓRU JÓELSDÓTTUR,
fædd 29. október 1913 -
dáin 25. mars 1995,
og heiðruðu minningu hennar á ein-
hvern hátt.
Guð blessi ykkur.
Arngrímur Ingimundarson,
Ingileif Arngrimsdóttir, Sigmar Ægir Björgvinsson,
Jóhanna Arngrfmsdóttir, Snorri B. Ingason,
Sigriður Arngrímsdóttir, Grettir Jóhannesson,
Gislunn Arngrímsdóttir, Gunnlaugur S. Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Sandfelli,
Vestmannaeyjum.
Ingveldur Þórðardóttir, Rútur Snorrason,
Hallgrimur Þórðarson, Guðbjörg Einarsdóttir,
Ellý Þórðardóttir, Hreinn Svavarsson,
Kristín Þórðardóttir, Einar Norðfjörð,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir til ykkar allra, sem með
virðingu, hlýjum kveðjum og nærveru
sýnduð okkur við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GÍSLÍNU KRISTÍNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Miðgörðum,
Grenivík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og heim-
ilisfólks hjúkrunarheimilisins Sels á Akureyri.
Gisli Friðrik Jóhannsson, Borghildur Ásta ísaksdóttir,
Margrét Sigrfður Jóhannsdóttir, Oddgeir ísaksson,
Stefán Jóhannsson, Þórey Aðalsteinsdóttir,
Nanna Kristín Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR E.E.
INDRIÐADÓTTUR
frá Eyjarhólum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Ljósheima, Selfossi.
Anna M. Þorláksdóttir, Páll Auðunsson,
Rósa Haraldsdóttir,
Indriði H. Þorláksson, Rakel Jónsdóttir,
Guðrún S. Þorláksdóttir,
Ingólfur H. Þoriáksson, Guðrún Ingólfsdóttir,
Nanna Þorláksdóttir, Sæmundur Örn Sigurjónsson,
Þórarinn Þorláksson, Kristín Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ELÍSABETAR JÓNSDÓTTUR,
Heiðarbæ 9,
Reykjavík.
Hinrik Jón Þórisson,
Kristfn Þórisdóttir, Vincent Newman,
Sólveig Sveinsdóttir, Benedikt Þ. Ólafsson,
Valdemar Sveinsson, Ingunn Björnsdóttir,
Ingi Geir Sveinsson, Særún Ragnarsdóttir,
Berglind Sveinsdóttir,
Haukur Sveinsson
og barnabörn.