Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 14

Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Þorkell DAVÍÐ Oddsson forsætísráðherra ræðir við Magiiús Gunnarsson, fráfarandi formann VSÍ, og Arnar Sigurmundsson, formann Samtaka fiskvinnslustöðva, á aðalfundi VSÍ í gær. Magnús Gunnarsson fráfarandi formaður VSÍ segir blikur á lofti þrátt fyrir lága verðbólgu Lausatök ífjármál- um hins opinbera ógna stöðugleika MAGNÚS Gunnarssón, fráfarandi formaður Vinnuveitendasambands Íslands, fjallaði í setningarræðu sinni á aðalfundi VSÍ í gær um þann efnahagslega stöðugleika sem náðst hefur og sagði að verðbólga af völdum kjarasamninganna í vet- ur hefði orðið snöggtum minni en ætlað var og að tekist hafí að sneiða hjá verulegum vaxtahækkunum, en þrátt fyrir það væru nú blikur á lofti. „Hallarekstur ríkissjóðs er mikið áhyggjuefni og raunar tel ég ekk- ert eitt ógna brotgjörnum stöð- ugleika jafn mikið og lausatök í fjármálum ríkis- og sveitarfélaga. Þegar fjárfestingar í atvinnurekstri komast á skrið er óhjákvæmilegt að snúa hallarekstri ríkissjóðs í afgang ef ríkisfjármálin eiga ekki beinlínis að verða uppspretta verð- bólgu og vaxtahækkana,“ sagði hann. Magnús vék einnig að þeim vafa- málum sem upp hafa komið um hvort reglur Evrópusambandsins um vinnutíma og vinnu barna og unglinga giltu á EES-svæðinu. Magnús sagði að málið væri alvar- legt og brýnt að finna á því lausn. „Fyrir liggur sú afstaða ESB að þessar reglur eigi að gilda á Evr- ópska efnahagssvæðinu. Vilji ís- land hafna því geti það kallað á óheppileg viðbrögð gagnvart EFTA-hlutanum, íslandi og Nor- egi. Norskum félögum okkar stend- ur stuggur af þeirri tilhugsun að neitun Islands á gildi vinnutíma- reglna, hliðstæðra þeim sem Norð- menn búa við, gæti teflt framtíð EES-samningsins í tvísýnu. Málið er því alvarlegt og brýnt að finna lausn. Ég kalla því eftir viðræðum við ASÍ, í góðu samstarfí við félags- málaráðherra, um að fundið verði form á reglum ESB sem geri okkur fært að standa að fullgildingu þeirra,“ sagði Magnús. í ræðu sinni sagði Magnús einn- ig að kröfur sjómanna, um að út- gerðum verði ekki lengur heimilt að ráðstafa afla að eigin vali held- ur skuli hann allur seldur á mark- aði eða verð á markaði látið gilda í öðrum viðskiptum, snerust m.a. um hvort hér verði áframhaldandi þróun í átt til frekari fullvinnslu sjávarafla. Kröfur sjómanna ógna búsetumynstri „Og krafan snýst um búsetu- mynstur í landinu, því ef hún næði fram að ganga rofnuðu hefðbundin tengsl fiskiskipa við frystihús á smærri stöðum,“ sagði Magnús. „Nái þessi krafa sjómanna ekki fram að ganga hafa sumir þeirra lýst því yfir að þá verði að snúa klukkunni til baka og taka upp miðstýrðar verðákvarðanir á fiski í Verðlagsráði sjávarútvegsins. Það er með ólíkindum að slíkar raddir skuli enn heyrast, því verðlagsráðs- kerfíð tilheyrði þjóðfélagi hafta og miðstýringar sem skilaði okkur fyrst og fremst óhagkvæmni og verðbólgu,“ sagði hann ennfremur. Verja launastefnu ASI gegn árásum hálaunahópa Magnús vék einnig að kjara- samningunum sem gerðir voru við landssambönd ASÍ í febrúar og sagði að viðsemjendur vinnuveit- enda hefðu fullyrt að samstaða væri um markmið og leiðir. „Við hefðum því að óreyndu mátt ætla að viðsemjendur okkar og heildar- samtök þeirra ljæðu okkur að minnsta kosti hlutleysi í þeim átök- um sem á eftir hafa fylgt. Þar höfum við verið í því vanþakkláta hlutverki að verja launastefnu Al- þýðusambandsins gegn árásum ýmissa hálaunahópa og þó samtím- is mátt þola árásir og illmælgi fyr- ir, eins og fram kom í kjaradeilum við flugfreyjur," sagði hann. Endurtekið vegna mikillar eftirspumar: Námskeið: Inngangur að skjalastjórnun 22. og 23. maí (mánudag og þriðjudag kl. 13.00 - 16.30 báða dagana). Hótel Lind, litli salur, Rauðarárstíg 18. Námskeiðið er almenn kynning á skjalastjómun. Meðal ejhis: ■Skjalavandi íslenskra vinnustaða -Helstu hugtök skjalastjómunar -Tölvur og skjalastjómun -Stjórnun trúnaðarskjala Skráning á námskeiðið fer fram í síma: 564-4688 (fax: 564-4689) og þarf að skrá sig fyrir kl. 12.00 föstudaginn 19. maí Félag um skjalas.jörn -SkÍPU,"9 °9 sk/«' - skjala.Htjórnun fyrirtækja og ttofnana Hamraborg 1, 200 Kópavogi Davíð Oddsson forsætisráðherra Nefnd geri tillögur um hagvaxtarstefnu DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra greindi frá því í ræðu á aðalfundi VSÍ í gær að skipuð hefði verið nefnd með þátttöku atvinnulífsins til að gera tillögur um hagvaxtar- stefnu sem miðuðu að því að skapa sem best vaxtarskilyrði fyrir þjóðar- búskapinn til lengri tíma litið. Davíð sagði að ástand og horfur I efnahagsmálum væru um margt uppörvandi og afkoma íslenskra fyrirtækja væri líkari því en áður sem algengast væri í helstu sam- keppnislöndum. Forsætisráðherra sagði að meg- inverkefnið í efnahagsmálum á næstunni væri að tryggja að vaxt- arskeiðið sem hófst í fyrra vari sem lengst. Sagði hann brýnt að koma opinberum fjármálum í viðunandi horf. „Ég fullyrði að nú sé komið besta tækifæri sem íslendingar hafa fengið um langt skeið til að hefja varanlega sókn til bættra lífs- kjara,“ sagði hann. Nauðsynlegt að endurskoða vinnulöggjöfina Davíð vék einnig að samskiptum aðila vinnumarkaðarins sem hann sagði að hefðu í vaxandi mæli byggst á gagnkvæmum skilningi á heildarhagsmunum þjóðarbúsins. Þá sagði hann ástæðu til að endur- skoða vinnulöggjöfina í ljösi breyttra aðstæðna. „Markmiðið með þeirri endurskoðun er að stuðla að stöðugleika og ábyrgð samnings- aðila í hvívetna, og auka áhrif ein- stakra félagsmanna í stéttarfélög- um,“ sagði hann. í ályktun aðalfundar VSÍ sem samþykkt var í gær er tekið undir nauðsyn breytinga á vinnulöggjöf- inni. „Stöðugleiki á vinnumarkaði og varnir gegn ofríki lítilla sérhags- munahópa eru einnig forsenda stöð- ugleika og uppbyggingar. Því styð- ur VSÍ eindregið þau áform nýrrar ríkisstjórnar að færa nær 60 ára gamla vinnulöggjöf til samræmis við kröfur tímans," segir í ályktun VSÍ. í ályktuninni er hallarekstur rík- issjóðs sérstaklega gagnrýndur og ekki sagður réttlætanlegur við þær aðstæður sem uppi eru í dag í efna- hagsmálum. ÓlafurB. Ólafsson kjörinn formaður VSÍ ÓLAFUR B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Mið- ness hf. í Sandgerði, var kjörinn formaður Vinnuveitendasam- bands íslands til næstu tveggja ára, í stað Magnúsar Gunnarsson- ar, sem ekki gaf kost á sér til áframhaldandi formennsku, á aðal- fundi samtakanna í gær. Þriggja manna kjör- nefnd sem skipuð var Páli Siguijónssyni, Har- aldi Sumarliðasyni og Kristjáni Ragnarssyni komst að samkomuiagi um að tilnefna Ólaf og kom ekkert mótframboð fram. Var Ólafur því kjörinn næsti formaður VSÍ með lófataki á aðalfundinum. ÓLAFUR B. Ólafs- son, formaður Vinnuveitenda- sambands íslands. Kjömefnd gerði einn- ig tillögu um skipan 20 manna framkvæmda- stjórnar og urðu þær breytingar að Ólafur B. Ólafsson, Örn Kjær- nested og Ævar Guð- mundsson hverfa úr stjórninni en í þeirra stað voru kjömir Brynj- ólfur Bjarnason, Friðrik Andrésson og Stefán Friðfinnsson. Þá samþykkti aðal- fundurinn stefnumótun samtakanna á sviði menntamála, umhverf- ismála og ábyrgðar, samkeppni og siðferðis í viðskiptum en sérstakir starfshópar unnu tillögur á þessum þremur svið- um sem kynntar voru á aðalfundin- um í gær. Könnun meðal evrópskra fyrirtækja Framleiðni og arð- semi lakari á Islandi ÞRÓUN framleiðni og arðsemi fyr- irtækja var lakari á íslandi egjneð- al keppinauta þeirra í Evrópu á tímabilinu 1988-1993. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar á vegum samtaka evrópskra atvinnu- rekenda (UNICE) sem gerð var meðal æðstu stjórnenda fyrirtækja í Evrópu fyrir réttu ári. Stjórnendur 67 íslenskra fyrir- tækja tóku þátt í könnuninni. Magnús Gunnarsson, fráfarandi formaður VSÍ, greindi frá nokkrum helstu niðurstöðum á aðalfundi VSI í gær. Könnunin leiddi m.a. í ljós að íslensk fyrirtæki virðast ekki njóta heimamarkaðar I sama mæli og keppninautamir og telja sig standa í mun meiri samkeppni á þeim markaði en keppinautar þeirra í Evrópu. Fyrirtækí í vexti leggja rækt við ímynd sína í ljós kom að fyrirtæki í örum vexti með mikinn hagnað, leggja meiri rækt við ímynd sína en þeim sem verr gengur. íslenskir stjórnendur virðast skv. könnuninni vera óánægðari al- mennt með frammistöðu fyrirtækja sinna en stjórnendur í Evrópu og telja að fyrirtækin hafi verulegt svigrúm til að bæta frammistöðu sína. Könnunin leiddi í ljós að lítil og meðalstór fyrirtæki eru líklegri til að skapa störf en stærri fyrirtæki. Jafnframt kom í ljós að störfum fjölgar meira þar sem fyrirtæki telja að vinnumarkaðslöggjöf takmarki ekki nauðsynlegt svigrúm þeirra. Islenskir stjómendur hafa áhyggjur af launakostnaði ogslakri gæðastjórn en telja styrkleika felast í sveigjanlegu vinnuafli og litlum kostnaði vegna umhverfisverndar. íslenskir stjórnendur telja gæði rannsóknar- og þróunarstarfs lítil og vilja að hið opinbera veiti öflug- an stuðning við markaðsöflun er- lendis. íslenskir fyrirtækjastjórnendur telja lítinn heimamarkað og litla arðsemi vera helstu hindranir fyrir vexti fyrirtækjanna og- hafa mun meiri áhyggjur af þessum þáttum en keppinautar þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.