Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter.
Grænir bimir
ERLENT
Nýjar upplýsingar um færeysku bankakreppuna
Danska stjórnin vissi
snemma um milliarðatap
Kaupmannahöfn. Morgunblaöið.
GRÆNFRIÐUN G AR efndu til
aðgerða í Strassborg í gær til
að reyna að hafa áhrif á Evrópu-
þingmenn, sem um þessar mund-
ir eru að taka ákvarðanir um
samevrópskt vegakerfi. Hafa
Norðmenn halda því fram að Svíar
séu að reyna að vemda eigin sjávar-
útveg með því að neita að staðfesta
samninginn. Hann kveður á um að
Norðmenn megi flytja út til Finn-
lands, Svíþjóðar og Austurríkis jafn-
mikið af físki og að meðaltali árin
1992-1994, án þess að greiða tolla.
Sænski markaðurinn er afar mikil-
vægur fyrir t.d. síldar- og rækjufram-
leiðendur í Noregi.
Deilt um útflutningstölur
Svíar saka Norðmenn um að hafa
lagt of háar tölur um fískútflutning
sinn til Evrópusambandsins til grund-
vallar í samningunum. Þetta var haft
eftir sænska landbúnaðarfulltrúanum
5 Brussel, Jerzy Glucksman.
Grete Knudsen, viðskiptaráðherra
Norðmanna, vísar þessu hins vegar
algerlega á bug og segir að einu töl-
umar, sem voru notaðar, hafí verið
frá Evrópusambandinu sjálfu komnar.
Ráðherrann segist telja að vandinn,
sem upp sé kominn, sé fyrst og fremst
vegna misskiinings af hálfu Svía, sem
hún vonar að hafí verið leiðréttur.
Sænski landbúnaðarráðherrann,
Margareta Winberg, sem einnig fer
með sjávarútvegsmál, bendir á að
Danmörk hafí einnig lagzt gegn sam-
komulaginu, eins og það komi frá
framkvæmdastjóminni. „Við erum
umhverfissamtök áhyggjur af
áhrifum fyrirhugaðrar vega-
gerðar í frönsku Pyreneafjöllun-
um á dýralíf þar. Hér má sjá
grænfriðung í bjarnarlíki ræða
við starfsmann Evrópuþingsins.
ekki ánægð með að í Noregi hafí
menn lýst því yfír opinberlega að Sví-
þjóð sé eina landið [sem leggst gegn
samningnum]. Þetta vita norsk stjóm-
völd mætavel," segir Winberg í sam-
tali við Arbeiderbladet.
Norskir fískútflytjendur segjast ger-
samlega forviða á ákvörðun Svía. Dag
Eivind Opstad, framkvæmdastjóri út-
flutningsnefndar norska sjávarútvegs-
ins, segir í samtali við Aftenposten
að útflytjendur séu mest hissa á að
Svíar geri svo stórt mál úr samningi,
sem skipti litlu máli fyrir Svía en mun
meiru fyrir norskan sjávarútveg.
Útflutningsnefndin kvartar jafn-
framt undan viðskiptahömlum á landa-
mærum Noregs og Svíþjóðar, þar sem
norskur ferskfískur þarf að bíða í allt
að hálfan sólarhring eftir heilbrigðis-
skoðun. Opstad sakar Svía um að
þekiq'a ekki reglur Evrópusambands-
ins og að landamæragæzlan sé bæði
vanhæf og undirmönnuð.
íslendingar fylgjast með
Enn hefur ekki verið boðaður nýr
fundur í viðræðum íslands og ESB
um hliðstæðan tollasamning og þann,
sem Norðmenn hafa gert. I utanríkis-
ráðuneytinu fengust þær upplýsingar
að menn fylgdust nú náið með fram-
vindu mála varðandi norska samning-
inn.
BÆÐI ráðherrar í hægristjórn
Poul Schlúters og í stjórn Poul Nyrup
Rasmussens vissu mun fyrr en hing-
að til hefur verið látið uppi um millj-
arða tap í Sjóvinnubankanum í Fær-
eyjum að því er fram kom í fréttum
danska blaðsins Jyllands-Posten um
helgina. Nyrup Rasmussen forsætis-
ráðherra hefur ekki viljað tjá sig um
þessar nýju upplýsingar en Uffe Elle-
mann-Jensen, leiðtogi Venstre, segir
að ráðherrann eigi ýmislegt eftir
óskýrt og Færeyingar eigi kröfu til,
að bankamálið- verði upplýst til fulls.
Samkvæmt upplýsingum Jyllands-
Posten sögðu embættismenn í fjórum
ráðuneytum, í Fjármálaeftirlitinu og
danska seðlabankanum frá því í
skýrslu þegar í byijun október 1992
að stefndi [ stórfellt tap færeysku
bankanna. Álitu þeir, að bankarnir
þyrftu neyðarhjálp upp á sem sam-
svarar 15 milljörðum íslenskra
króna. Einnig sögðu þeir, að ákvæði
danska stjórnin að styðja við bakið
á Sjóvinnubankanum, sem var á
barmi gjaldþrots, myndi Den Danske
Bank krefjast aðstoðar fyrir Fær-
eyjabanka, sem var dótturbanki
danska bankans.
Danska skýrslan var skrifuð eftir
að Fjármálaeftirlitið hafði gert úttekt
á færeysku bönkunum tveimur, sem
þá'höfðu báir tapað milljörðum og
þurftu á nýju eigin fé að halda.
Vandi Sjóvinnubankans var meiri
þar sem hann átti sér engan bak-
hjarl líkt og Færeyjabanki. Embætt-
ismennirnir ályktúðu sem svo að rétti
ríkið Sjóvinnubankanum hjálparhönd
væri það af samkeppnis- og siðferð-
isástæðum skylt að hjálpa Færeyja-
banka líka.
Embættismennirnir töldu gjald-
þrot Færeyjabanka einu leiðina fyrir
danska ríkið til að sleppa við millj-
arðaútgjöld og láta þá Den Danske
Bank einan um að bera tapið.
Ráðið sem síðan var brugðið á
var að láta færeysku landsstjórnina
yfirtaka Færeyjabanka í mars 1993
en þá var stjórn Poul Nyrup Ras-
mussens nýkomin til valda. Tap
bankans á því ári nam síðan um
fimmtán milljörðum íslenskra króna,
sem landsstjórnin segir hafa komið
gjörsamlega á óvart því hvorki Den
Danske Bank né danska stjórnin
hafi upplýst í hvað stefndi. Af hálfu
stjórnarinnar hefur því jafnan verið
haldið fram að tapið hafi verið ófyr-
irsjáanlegt,. Upplýsingar Jyllands-
Posten benda hins vegar í aðra átt
og ýmsir þingmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna, að íhaldsmönnum
undanskildum, ýja nú að því að þing-
ið hafi verið blekkt. Forsætisráð-
herrann vildi í gær ekkert segja um
málið.
Ferjuslys á
Filipseyjum
Ovíst um
fjölda
farþega
Lucena á Filippseyjum. Reuter.
VITAÐ var með vissu að 42 fórust
en margra var enn saknað síðdegis
í gær eftir að eldur kviknaði í feiju
er síðar sökk skömmu áður en skipið
átti að koma í höfn í bænum Lucena
á Filippseyjum. Að sögn lögreglu
voru um 150 manns um borð sam-
kvæmt skýrslum en vitað að þeir
voru mun fleiri, sumir farþegar töldu
að þeir hefðu verið 300.
Nær 140 manns komust lífs af en
gott veður var á staðnum og stafa-
logn er slysið varð. Sjónarvottur
sagði að skyndilega hefðu eldsúlur
„eins og úr eldfjalli" staðið upp úr
stafni feijunnar Viva Antipolo Six
sem var tréskip.
Skelfing greip um sig og margir
stukku fyrir borð án þess að setja á
sig björgunarbelti. Lögregluyfirvöld
sögðu að 23 væri enn saknað en vel
gæti verið að um fleiri væri að ræða.
Fidel Ramos Filippseyjaforseti
hefur skipað fyrir um rannsókn á
slysinu, ennfremur bannaði hann
frekari siglingar skipa útgerðar Viva
Antiplo Six þar til ástand þeirra hefði
verið kannað. Filippseyjar er ríki um
7.000 eyja og eru ferjur, sem oft eru
í slæmu ásigkomulagi, mikið notað
samgöngutæki.
Nýr flokkur á Evrópuþingi
• NÝR og öflugur þingflokkur er
að verða til á Evrópuþinginu. Til
stendur að sameina Forza Europa,
sem eru Evrópuþingmenn Forza It-
alia, og Evrópska lýðræðisbanda-
lagið, sem er samtök Evrópuþing-
manna franskra Gaullista og Fianna
Fail á írlandi. Nýi flokkurinn myndi
hafa samanlagt 55 Evrópuþing-
menn og verða þriðji stærsti þing-
flokkurinn, á eftir hægrimönnum
og sósíalistum. „Þetta mun binda
enda á hið þægilega samband hægri
og vinstri, þar sem Evrópski alþýðu-
flokkurinn (hægrimenn) og sósíal-
istar skipta öllum æðstu stöðunum
á mili sín,“ segir írski Evrópuþing-
maðurinn Mark Killilea.
• MATS Hellström, utanríkisvið-
skiptaráðherra Svía, sagði í þing-
ræðu á mánudag að Svíar, sem
tækju til máls í ráðherraráði ESB
og á Evrópuþinginu ættu ekki að
hika við að nota rétt sinn til að tala
á sænsku. Hann sagði að með ESB-
aðild hefði staða sænskunnar á al-
þjóðavettvangi styrkzt mikið.
• SVÍAR beijast nú fyrir því að
fá að reikna styrki frá ESB sem
tekjur sænska ríkissjóðsins. Slík
skilgreining myndi þýða að Svíar
væru nær því að uppfylla skilyrði
fyrir þátttöku í Efnahags- og mynt-
bandalagi ESB-ríkja.
• ESB og Marokkó héldu áfram
viðræðum um endurnýjun fiskveiði-
samnings í Brussel í gær. Að sögn
talsmanns framkvæmdastjómar
ESB höfðu samninganefndimar þá
enn ekki byijað að takast á við erfið-
ustu málin, til dæmis niðurskurð á
kvóta ESB í marokkóskri lögsögu.
Hillary gerir Bill
„forsetalegri“
Washington. The Daily Telegraph.
HILLARY Clinton, eiginkona
Bills Clintons Bandaríkjaforseta,
hefur tekið af skarið í undirbún-
ingi eiginmannsins fyrir forseta-
kosningarnar sem fram fara á
næsta ári. Vinnur hún nú hörð-
um höndum að því að gera hann
„forsetalegri" að sögn aðstoðar-
manna hans.
Meðal þess sem hefur áunnist
et' að Clinton hleypur ekki leng-
ur í þröngum stuttbuxum, sem
skopteiknarar gerðu sér svo
mikið mat úr. Nú eru hlaupabux-
urnar með síðum skálmum. Þá
gengur forsetinn nú í reimuðum
skóm í stað mokkasía sem eru
honum svo kærar.
Þegar forsetinn er myndaður
er hann hættur að svara hverri
einustu spurningum sem menn
hrópa til hans. Hann veifar ekki
lengur spenntur til mannljölda
og við opinberar athafnir heldur
hann sig við stífar og formlegar
kveðjuhreyfingar auk þess sem
hann leggur hægi'i hönd á
hjartastað er þjóðsöngurinn er
leikinn.
Heimildarmenn sem vinna að
kosningabaráttu forsetans segja
þessar breytingar greinilega
verk Hillary. Talið er fullvíst að
hún hafi hvatt Clinton til að
leggja áherslu á hversu mörg
börn fórust í sprengingunni í
Oklahoma í síðasta mánuði. Þá
hefur forsetafrúin tekið sjálfri
sér tak og leggur nú aukna
áhersiu á að sýna mannlega hlið
sína, ekki síst með því að faðma
börn að sér er færi gefst.
Stjórnvöld í Kinshasa reyna að hindra útbreiðslu ebólu
Fimm manns á batavegi
Genf, Kinshasa. Reuter.
TALSMAÐUR Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
skýrði frá því í gær að fimm Zairebúar væru að ná sér
eftir að hafa fengið veirusjúkdóminn ebólu en staðfest
hefur verið að 77 manns hafa orðið sjúkdómnum að
bráð undanfarna daga í landinu. Ekki er til neitt þekkt
lyf eða meðhöndlun sem dugar gegn veikinni er veldur
miklum blæðingum. Þegar hún heijaði í Zaire á áttunda
áratugnum var dánartíðnin 80-90%. Mörg lönd hafa
gripið til varúðarráðstafana til að hindra að ebóla berist
þangað.
Stjórnvöld í Angóla hafa að nokkru leyti lokað landa-
mærum olíuhéraðsins Cabinda og Zaire. Ennfremur hafa
stjórnir Egyptalands, Súdans og Belgíu, sem forðum réð
yfir Zaire, ákveðið að kanna heilsufar sumra farþega
og er þá vafalaust átt við fólk sem kemur frá Zaire eða
grannlöndum þess. Einnig hefur verið gripið til svipaðra
ráðstafana í fjarlægari Iöndum á borð við Jemen og
Filippseyjar.
Veikin hefur heijað í héraðinu Bandundu í Zaire og
var fyrsta tilfellið greint í apríl í bænum Kikwit sem er
um 500 km frá höfuðborginni Kinshasa. Sérstök nefnd
er annast baráttuna gegn útbreiðslu ebólu, hefur mælt
með því að fólk, sem komi frá Bandundu þrátt fyrir
strangt ferðaíann, verði sett í þriggja vikna sóttkví.
Stjórnvöld hafa komið upp vegatálmum og upplýsinga-
spjöldum á heistu vegum er liggja til Kinshasa þar sem
fólki á hættusvæðinu er ráðlagt að snerta ekki lík eða
opin sár.
Strauk úr sóttkví
Tvær til þijár vikur iíða frá smitun þar til einkenni
koma í ljós. Ekki er vitað um nein tilfelli í Kinshasa enn
þá en tveir Zairebúar voru settir þar í sóttkví. Annar
þeirra, ung kona, sem unnið hafði sem hjúkrunarfræðing-
ur í Bandundu, strauk úr sóttkvínni. Hún var ófundin í
gær en í borginni búa um fimm milljónir manna.
Sóttvarnanefndin í Zaire krafðist þess sl. sunnudag
að hópur erlendra fréttamanna, sem verið hafði í Band-
undu-héraði og heimsótt spítala þar, yrði gert að hlíta
sömu reglum og innfæddir, þ.e. fara í sóttkví við kom-
una til Kinshasa. Hermenn umkringdu hópinn á flugvell-
inum en fyrir milligöngu vestrænna sendiherra og yfir-
valda í Kinshasa fengu fréttamennírnir að lokum að fara
á hótel sín.
Svíar á móti tollasamningi við Noreg
Asakanir ganga
á víxl yfir Kjöl
SÆNSK stjórnvöld hafa neitað að samþykkja samning þann um tollfijálsan
innflutningskvóta fyrir sjávarafurðir, sem framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins gerði við Noreg fyrir skömmu. Ákvörðun EFTA-nefndar ESB um
staðfestingu samningsins var frestað í fyrradag. Það er nú undir tvíhliða
viðræðum Noregs, Svíþjóðar og annarra ríkja, sem málið varðar, að leysa
það. Norðm nn eru afar sárir og ganga ásakanir á víxl yfir Kjöl.