Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
r
>v
TOPPTILBOÐ
§
8
Vestur-þýskirgæðaskórfrá PETER KAISER
Teg: VIALE og VIOLA
Litir: Rautt og hvítt
Hælahæð 7,5 sm.
Póstsendum samdœgurs
V
Ioppskórinn
VEITUSUNDI ■ SÍMI: 21212
VIÐ INGÓLFSTORG
olir öermudas
ÍDAG
(2.805) hafði svart og átti
leik. Hvítur lék síðast 26.
Hg3—d3, en eins og sjá má
hefur hann verið yfirspilaður
eftir kúnstarinnar reglum í
Sikileyjarvörn. Kasparov
lauk skákinni lag-
lega: 26. — Ra3+!
27. bxa3 - Bxd3
28. cxd3 - Hxd3
og Topalov gafst
upp, því eftir 29.
Dxa4 — Hxh3 hef-
ur hann tapað
skiptamun og stað-
an rústir einar.
Pjórir skákmenn
tefla tvöfalda um-
ferð í Amsterdam.
Staðan að mótinu
hálfnuðu: 1. Ka-
sparov 2!6 v. 2.
Lautier, Frakklandi
2 v. 3. Topalov Vh
v. 4. Piket, Hollandi 0 v.
Lautier sótti fast gegn Ka-
sparov í fyrstu umferð, en
skákinni lauk með jafntefli.
Það er ekki við því að búast
að þessir þrír ungu stórmeist-
arar nái að veita PCA-heims-
meistaranum verulega
keppni.
SKÁK
Um.sjón Margelr
Pétursson
• b c d • l
SVARTUR leikur og vinn-
ur
Staðan kom upp á VSB
minningarmótinu um Max
Euwe í Amsterdam, sem nú
stendur yfir. Ungi búlgarski
stórmeistarinn Veselin Top-
alov (2.630) var með hvítt,
en sjálfur PCA-heimsmeist-
arinn Gary Kasparov
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Týnt hjól
SPLUNKNÝTT svart
18 gíra fjallahjól, Pro
Style, hvarf fyrir utan
Háaleitsbraut 28 mánu-
dagskvöldið 8. maí. Þeir
sem geta gefið upplýs-
ingar eru vinsamlega
beðnir að hringja í síma
685317.
Peningar
töpuðust
PENINGASEÐLAR
hrukku upp úr vaxa eig-
andans fyrir utan Ing-
var Helgason hf. sl.
mánudagsmorgun.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
17177. Góð fundarlaun.
Armband tapaðist
GULLARMBAND með
múrsteinsmunstri tap-
aðist sl. föstudag.
Mögulegir staðir eru á
augndeild Landakots,
apótekið við Landakot
eða á Snorrabraut 29.
Hafi einhver fundið
armbandið er hann vin-
samiega beðinn að
hringja í síma
5535827.
Með morgunkaffinu
ÞETTA er frá skatt-
rannsóknarstjóra. Ég
þori ekki að opna það.
ÞAÐ fer ekki milli mála
að þú ert með hita.
HVERNIG líst þér á nýja vasaljósið mitt?
COSPER
rx
] $
LEIÐRÉTT
Ekki yfirkennari
Ranghermt var í frétt
á bls. 6 í Morgunblaðinu
síðastliðinn laugardag að
Snorri Þ. Jóhannesson
væri yfirkennari við Hér-
aðsskólann í Reykholti.
Snorri er kennari við skól-
ann en var yfirkennari á
árum áður. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Berslusconi en ekki
Murdoch
I fyrirsögn fréttar sem
birtist í Morgunblaðinu í
gær um þjóðaratkvæða-
greiðslu um ljósvakamiðla
á Ítalíu var sagt að Ru-
pert Murdoch væri með
hræðsluáróður vegna at-
kvæðagreiðslunnar. Eins
og sjá má við lestur frétt-
arinnar er það Silvio Be
lusconi sem er sakaður um
hræðsluáróðurinn. Beðist
er velvirðingar á mistök-
unum.
Pennavinir
FRÁ Ghana skrifar 24
ára hjúkrunarkona með
áhuga á ljósmyndun og
tónlist:
Tanya Riverson,
P.O. Box 124,
Cape Coast,
Ghana.
ÞRJÁTÍU og tveggja ára
einhleyp þeldökk banda-
rísk kona með áhuga á
ferðalögum, tónlist, skoð-
unarferðum, stjórnmálum
o.fl.:
Julie Mwewa,
98-30 57th Ave. 17F,
Corona,
N.Y. 11368,
U.S.A.
ÞÝSKUR 39 ára karlmað-
ur með áhuga á bók-
menntum, tónlist, leikhúsi
og ferðalögum:
Klaus Bechstein,
PSF 97,
13062 Berlin,
Germany.
SUÐUR-afrísk kona,
póstkortasafnari sem get-
ur ekki um aldur en vilL
komast í samband við
safnara:
M.P. Smith,
6 Retief Place,
Carrington Heiglits,
Durban 4001,
South Africa.
FINNSK 27 ára stúika
með margvísleg áhuga-
mál, vill skrifast á við
25-30 ára karlmenn:
Maarit Paavola,
Pla 270 E,
07960 Ahvenkoski,
Finland.
Víkveiji skrifar...
FYRIR skömmu flaug Víkverji
vestur um haf, með Flugleið-
um, nánar tiltekið til Baltimore.
Skemmst er frá því að segja, að
Víkveiji var afar ánægður með
flugförina vestur, viðurgerning
allan, þjónustu og viðmót starfs-
manna Flugleiða. Víkveiji hefur
ekkert sparað tækifærin í gegnum
árin, til þess að reka hornin í Flug-
leiðamenn, hafí hann ekki verið
alls kostar ánægður með þá þjón-
ustu sem keypt var hveiju sinni.
Því finnst Víkveija rétt að greina
sérstaklega frá ánægju sinni í
sama dálki, þegar færi gefst til.
Hér á árum áður var það næstum
hending ef flugferðir þær sem
Víkveiji fór í með Flugleiðum voru
á tímaáætlun, en nú er alls ekki
hægt að saka félagið um óstund-
vísi, nema í örfáum undantekning-
artilvikum, þar sem iðulega er
ekki hægt að saka félagið sjálft
um óstundvísi, heldur óviðráðan-
legar og utanaðkomandi ástæður.
xxx
RAUNAR var það svo, þegar
Víkveiji flaug aftur heim frá
Baltimore, í síðustu viku, að hann
var að koma frá annarri borg í
Bandaríkjunum með US Airlines.
Á því flugi hafði orðið hálfrar
annarrar stundar seinkun, þannig
að Víkveiji var orðinn uggandi um
að hann missti af Flugleiðavélinni
heim. Hann hafði einungis hálfa
klukkustund til þess að koma sér
á milli véla, og náði því með herkj-
um, því það er talsvert ferðalag
að fara á milli flugstöðvarhluta.
Víkveiji var nokkuð sannfærður
um að töskur hans næðu ekki að
fylgja honum vegna þess hversu
skammur tími var á milli lendingar
í innanlandsflugi í Bandaríkjunum
og brottför íslensku vélarinnar.
Við heimkomuna kom á daginn
að áhyggjur Víkveija voru óþarfar
með öllu og báðar ferðatöskurnar
höfðu verið með í för.
xxx
F GEFNU tilefni langar Vík-
veija til þess að koma á fram-
færi upplýsingum um vinnubrögð
ritstjórnar Morgunblaðsins á
ákveðnum sviðum. Það gerist allt-
af öðru hvoru að einstaklingar,
sem vilja koma sér og sínum við-
fangsefnum á framfæri í Morgun-
blaðinu, taki það upp hjá sjálfum
sér að senda inn á ritstjórn unnin
viðtöl við sjálfa sig, með ósk um
birtingu, eins og um efni unnið
af ritstjórn væri að ræða. Undan-
tekningarlaust er slíku hafnað, en
samt sem áður endurtekur þetta
sig, með reglulegu millibili. Auð-
vitað sér Morgunblaðið um að«
koma á framfæri fréttum af við-
burðum, sýningum, samkomum
o.þ.h. en þær fréttir eru unnar á
Morgunblaðinu, ekki úti í bæ, og
sé um viðtöl að ræða, gildir hið
sama, því það er ritstjórnarleg
ákvörðun að taka viðtal, þegar
ritstjórn telur tilefni til.
xxx
SÖMULEIÐIS er ástæða til þess
að árétta tilmæli til þeirra, sem
senda Morgunblaðinu fréttatil-
kynningar eða upplýsingar um við-
burði, að láta sér nægja að senda
eina slíka tilkynningu og á aðeins
eina deild ritstjórnar. Það vill oft
brenna við að sama tilkynning sé
send til margra deilda ritstjórnar.