Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 50

Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 50
5^0 MIÐVJK\>DAGjUR: ;7.j MAÍ '19i95 MOKGUNBLA'ÐIÐ > Háskólabíó DAUÐATAFLIÐ HASKOLABIO SÍMI 552 2140 / . * m! i ' - 'í í j $ « Ein stórkostlega geimævintýramynd allra tíma sem hefur slegið öll aðsóknarmet i Bandaríkjunum og fengið afbragðs aðsókn um allan heim. Stórhaettulegur vísindamaður hyggst ná yfirráðum yfir nýju gereyðingarvopni sem eytt getur heilu stjarnkerfi og aetlar sér að nota það! Áhöfnin á geim- skipinu Enterprise eru þau einu sem geta stöðvað hann. Frábær spennumynd með stórkostlegum tæknibrellum. Aðalhlutverk: William Shatner, Patrick Stewart, Malcolm McDowell og Whoopi Goldberg. Sýnd kl. 5.30, 9 og 11.15 „Fyndin og kraftmikil mynd...dálítið djörf... heit og slimug eins og nýfætt barn" ÓHT. Rás 2 ★ ★★★ X-lfk % D.v<róR FJðfcSKYLDA Sýnd kl. 11.10. Allra síðustu sýningar. CHLESL Sýnd kl. 5 STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. 6 Óskarsverðlaun Tom Hanks er EORREST # Sýnd kl. 6.30 og 9.15. Allra síðustu svninaar NELL SKELLTU ÞER A NÆSTU MYNDBANDALEIGU OG FÁÐU ÓKEYPIS KYNNINGARMYND UM UNDRAVERÖLD STAR TREK Sýnd kl. 9. Sýnd kl. 11. b.i. 16. Allra síðustu sýningar Allra síðustu sýningar http://www.qlan.is/startrek Skoðaðu vefinn og skrifaðu í gesta bókina. Þú gætir fengið vinning! I NT©R N ET AUGLYSINGASTOFA ARQUETTE og Johnny Depp í hlutverkum sínum Ed Wood. PATRICIA Arquette er rísandi stjarna í Hollywood, — Ed Wood góður að upplagi PATRICIA Arquette er ekki í föstu sambandi og eini karl- maðurinn í lífi hennar er fimm ára sonur hennar Enzo sem skírður er eftir persónu í myndinni Guðföðumum. Hún fer með aukahlutverk í nýjustu mynd Tims Burtons um „versta leikstjóra allra tíma“ Ed Wood, sem leikinn er af Johnny Depp og ábyrg- ur var fyrir gerð mynda á borð við „Áætlun 9 úr geimn- um“ og „Glen eða Glenda". í myndinni leikur Arquette Kathy O’Hara, ekkju Woods. Þegar hún fékk tækifæri til að hitta O’Hara í eigin per- sónu spurði hún hana: „Hvernig varð þér við þegar hann sagði þér að hann væri klæðskiptingur?" O’Hara svaraði: „Ég þekkti hann út í gegn. Hann var góður mað- ur að upplagi og ef þetta var það versta sem ég þyrfti að þoia gat ég vel tekið því. Stundum vildi hann ganga í kjólum og það var allt í lagi.“ Damme aftur með LaPier ►HLUTIRNIR eru fljótir að breytast í Hollywood. I lok síð- asta árs sótti Van Damme um skilnað frá fjórðu eiginkonu sinni Darcy LaPier og báru þau hvoru öðru ekki vel söguna. Meðal ann- ars sagði Van Damme að LaPier hefði ekki getað lifað með því að hann ætti börn úr öðru hjóna- bandi og hann hefði því valið bömin fram yfir hana. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. Þau hafa tekið saman aftur og allt er í lukkunnar vel standi og rúmlega það. LaPier er nefnilega orðin ófrísk. Þá er einskis annars að bíða en að sjá hvort sambandið endist lengur að þessu sinni. FOLK Roth óttast atvinnu- leysi ►LEIKARINN Tim Roth segir frá því í nýlegu viðtali að hann óttist það mest eins og flestir leikarar að verða atvinnulaus. „Hræðslan við atvinnuleysi,” segir hann, „er alltaf til staðar. Einu sinni var ég á bótum í tvö ár samfleytt. Þegar ég hef ekk- ert að gera geng ég af göflun- um. Það eina sem ég hefst að er að fara á fyllirí, leika ball- skák, lesa bækur, reykja tutt- ugu pakka af sígarettum, hrópa á umboðsmanninn minn og gera alla vitlausa. Eftir tvær vikur lægir öldurnar. Þá hugsar mað- ur með sjálfum sér: ÖUum er sama um mig, enginn sýnir mér áhuga. Maður leggst því í vol- æði og á endanum segir maður Tim Roth sigri hrósandi: Ég sagði alltaf að ég væri einskis virði.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.