Morgunblaðið - 24.05.1995, Page 2

Morgunblaðið - 24.05.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bankamenn felldu kjarasamningana Þátttaka 90% í kosningunum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Humarlöndun í V estmannaeyjum Vestmannaeyjum, Morgunblaðið. BANKAMENN felldu kjarasamn- ing, sem undirritaður var 5. maí, í skriflegri atkvæðagreiðslu sem fram fór um miðja síðustu viku. Talningu atkvæða lauk í gær og reyndust 67% þeirra sem atkvæði greiddu vera á móti samningnum og 33% meðmælt. Félagsmenn eru rösklega 3.000 og var kosninga- þátttaka 90%. Samningaumleitanir höfðu staðið yfir frá áramótum og var það mat samningamanna að ekki yrði lengra komist án þess að boða til verkfalls að sögn Vilhelms G. Kristinssonar framkvæmdastjóra Sambands ís- lenskra bankamanna. Launakerfi þarfnast róttækra endurbóta Að hans sögn réðu þijú atriði úrslit- um í atkvæðagreiðslu um samning- inn. í fyrsta lagi telji félagsmenn að hagræðing og spamaður sem orðið hafí í bankakerfínu á síðustu árum hafí ekki skilað sér til starfs- manna. Bent sé á að á síðustu fímm árum hafí starfsmönnum í bönkum og sparisjóðum fækkað um 20% og hafi starfsmenn tekið þátt í niður- skurði í þeirri von að þeim yrði umbunað með batnandi hag. Á ALMENNUM borgarafundi í Súðavík í gær kom það fram hjá Jónasi Þórissyni, talsmanni söfnunarinnar Samstaða í verki, að 90 umsóknir hafí borist frá íbúum Súðavíkur um fjárframlög úr sjóðnum og að úthlutað hafi verið til þeirra 188.708.447 krón- um. Þá er óráðstafað 74 milljón- um, en það kom einnig fram, að sveitarstjórnin í Súðavík hefur far- ið fram á að fá féð til ráðstöfunar til greiðslu á væntanlegum gatna- gerðargjöldum þeirra sem byggja aftur í Súðavík. Gatnagerðarframkvæmdir sem áætlað er að kosti um 130 milljón- ir hafa verið boðnar út og á að „Álagið hefur aukist sem og ábyrgðin án þess að sanngjamar launabætur hafí komið á móti. Á sama tíma hefur yfírvinna verið lögð af og möguleikar til tekjuaukn- ingar því engir. Einnig er það út- breidd skoðun að launakerfið þarfn- ist róttækra endurbóta og að efstu flokkamir endurspegli ekki þau laun sem greidd em. Loks má nefna óánægju varðandi samkomulag um lokun banka á aðfangadag sem þýddi vissa tilslökun á orlofsrétti," segir Vilhelm. Heimild endurnýjuð Haldinn verður fundur stjómar samninganefndar og formanna að- ildarfélaga sambandsins í dag og býst Vilhelm við þvi að heimild til verkfallsboðunar verði endumýjuð. „Hins vegar er það svo að verkföll bankamanna ber að boða með 15 daga fyrirvara og fímm dögum áður en verkfall hefst ber sáttasemjara að leggja fram sáttatillögu. Farið er með tillöguna í allsheijarat- kvæðagreiðslu og þegar hún hefur verið lögð fram getur sáttasemjari frestað í 15 sólarhringa, þannig að hámarksaðdragandi verkfalls er 30 dagar,“ segir Vilhelm að iokum. opna tilboð í dag. Engir peningar liggja enn fýrir til greiðslu fyrir þennan verkþátt, sem áætlað er að heija framkvæmdir við á næstu vikum. Nokkur órói vegna tafa Nokkurs óróa gætti meðal fund- armanna um að ef frekari tafir yrðu á framkvæmdum mundi þeim fækka sem myndu byggja. Töluverðar ádeilur komu fram á sveitarstjómina með hreinsun braksins úr húsunum sem fóru í snjóflóðinu, en ýmsir persónulegir munir, svo sem leikföng, fatnaður og bækur liggja eins og hráviði í haugunum eftir því sem snjórinn hlánar. Humarvertíðm er hafin og fyrsti humarinn barst á land í Eyjum í gær en þá Iönduðu Skúli fógeti, Aðalbjörg Þorkels- dóttir og Álsey afla sínum. Bátarnir hófu veiðarnar 20. maí og voru í Háadýpinu rétt austur af Heimaey. Veiði var þokka- leg, svipuð og í upphafi vertíðar í fyrra, og ágæt stærð á humr- inum. Álsey landaði 1900 kíló- um af slitnum humri, Skúli fóg- eti 700 kílóum og Aðalbjörg 250 kilóum en auk þess voru bátam- ir með eitthvert magn af fiski. Humarvertíð hefur hins vegar byijað afar illa á Höfn í Horna- firði. Á myndinni er Ómar Krist- mannsson, skipstjóri á Skúla fógeta, að handfjatla humar í fyrstu löndun sumarsins. ■ Hefur aldrei verið/Bl Frumvarp fluttum dómara- fulltrúa ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráð- herra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Frumvarpið felur í sér að dómarafulltrúar verða skipaðir og settir með sama hætti og dómarar, en það þýðir að þeim verður ekki vikið úr embætti nema með dómi. Frumvarpið er fiutt í kjölfar hæsta- réttardóms, sem fól í sér að dómara- fulltrúum var gert ómögulegt að dæma í málum. Þorsteinn sagði að frumvarpið fæli í sér bráðabirgðalausn. í byijun næsta árs myndi réttarsfarsnefnd skila af sér nýju frumvarpi til dóms- stólalaga, en með því væri stefnt að því að leggja grunn að framtíðar- skipulagi dómstólaskipunar í land- inu. Staða dómarafulltrúa væri eitt þeirra atriða sem nefndin myndi taka til athugunar. ----» ♦ ♦--- Urskurð- aður hæfur ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Al- þingis, úrskurðaði á þingfundi í gær að Vilhjálmur Egilsson væri hæfur til að stýra efnahags- og viðskipta- nefnd þegar frumvarp um breytingar á áfengislögum kemurtil umfjöllunar nefndarinnar. Þingmenn sem efuðust um hæfí Vilhjálms sögðust sætta sig við úrskurð forseta, en hvöttu jafn- framt til þess að settar yrðu almenn- ar vanhæfisreglur um störf þing- manna. Vilhjálmur lýsti því í útvarps- samtali í gærkvöldi, að hann myndi ekki víkja í málinu. Ólafur G. Einarsson sagði að eng- ar vanhæfisreglur væru til um lög- gjafarvaldið líkt og giltu um dóm- stóla og stjómsýsluna, ef undanskilin væri sú lagaregla að þingmaður mætti ekki greiða atkvæði með fjár- veitingu til sjálfs síns. „Alþingismenn eru í störfum sín- um eingöngu bundnir við sannfær- ingu sína og standa aðeins kjósend- um reiknisskil gerða sinna. Þeir eru ekki bundnir af hæfísreglum í störf- um sínum og geta því tekið þátt í meðferð og afgreiðslu allra mála á þinginu. Það er einmitt ein af grundvallar- reglum í stjórnmálum lýðræðisríkja að þingmenn taki ákvarðanir um hvaða hagsmuni á að taka fram yfír aðra. Séu þeir tengdir þeim með mjög persónulegum hætti er þeim auðvita í sjálfsvald sett af siðrænum ástæðum að segja sig frá máli. Það er þeirra ákvörðun og á þeirra ábyrgð. Forseti lítur svo á að afskipti háttvirts þingmanns, Vilhjálms Eg- ilssonar, af málefni áfengiseinkasöl- unnar utan þings geti á engan hátt haft áhrif á hæfí hans til að fjalla um umrætt mál í efnahags- og við- skiptanefnd, en telur að öðru leyti eðlilegt að formleg ákvörðun um það hvort háttvirtur þingmaður, Vil- hjálmur Egilsson, stýrir fundum nefndarinnar þegar málið er þar til umfjöllunar sé í höndum nefndarinn- ar sjálfrar.“ ----»-♦-♦--- Eldur í Mögnu- leikhúsi LEIKARAR Möguleikhússins við Laugaveg 105 voru á miðri æfingu Leyndra drauma þegar þeir urðu varir við talsverðan reyk rétt fýfir miðnætti í fyrrakvöld. I ljós kom að æfingagalli, sem hengdur hafði verið upp á nagla í þurrkherbergi, hafði dottið niður af naglanum og ofan á Ijóskastara. Við það kviknaði í gallanum. Heilbrigðisráðherra segir að ófremdarástand muni ekki skapast á spítölum í sumar Sumarlokanir á geðdeild- um hafi sem minnst áhrif INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra segir að lokanir á deildum sjúkra- húsanna verði svipaðar í sumar og undanfarin sumur. Ófremdarástand muni ekki skapast af þeim sökum. Hún segist hafa sérstakar áhyggj- ur af því að biðlistar eftir mikilvægum aðgerð- um séu að Iengjast. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingis- maður Þjóðvaka, átti frumkvæði að umræðu á Alþingi um sumarlokanir sjúkrahúsanna. Þing- flokkur Þjóðvaka sendi í gær stjórnum stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík bréf þar sem óskað er eftir mati þeirra á áhrifum sumarlokana, raunsparnaði og öryggi sjúklinga. Ásta Ragnheiður sagði ljóst að ekki yrði gengið lengra í niðurskurði á sjúkrahúsunum. Langvarandi niðurskurður á fjármagni til sjúkrahúsanna hefði aukið álag á starfsfólk og nú væri svo komið að menn hefðu áhyggjur af því hvort þjónusta við sjúklinga væri réttu megin við öryggismörk. Hún benti á að sam- kvæmt upplýsingum frá landlækni hefðu bið- listar eftir aðgerðum iengst um 10% frá miðju ári 1994 til 15. janúar sl. Um 2.000 manns biðu eftir aðgerðum á Borgarspítala. 220 miiljóna sparnaður áformaður Heilbrigðisráðherra sagði að áformað hefði verið að spara á sjúkrahúsunum um 220 milljónir á þessu ári. Ákvörðun hefði verið tek- in um það í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar að falla frá þessum sparnaði að hluta og nú væri tryggt að sumarlokanir yrðu svipaðar í ár og verið hefðu undanfarin ár. Margir þingmenn vísuðu til fréttar í Morgun- blaðinu um að til stæði að loka 4 af 8 geðdeild- um á Landspítala. „Ég mun sem ráðherra beita mér fyrir því að sumarlokanir á geðdeildum komi sem allra minnst niður á nauðsynlegri þjónustu og eftir- meðferð við sjúklinga enda tel ég mig nú þeg- ar hafa fengið fullnægjandi tryggingar fyrir því frá forsvarsmönnum Ríkisspítalanna að svo muni ekki verða,“ sagði Ingibjörg. Hún benti á að engar lokanir yrðu á geðdeild á Borgar- spítala í sumar. Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalist- ans, hvatti ráðherra til að tryggja að geðsjúk- ir fengju áfram mannsæmandi þjónustu í sum- ar. Hún sagði að hlé á meðferð geðsjúkra gæti valdið óbætanlegu tjóni. Súðvíkingar hafa fengið 189 milljónir 74 milljónum króna enn óráðstafað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.