Morgunblaðið - 24.05.1995, Síða 20

Morgunblaðið - 24.05.1995, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Upphaf og þró- un bandaríska söngleiksins Bandaríska sópransöngkonan Ellen Lang mun koma fram á tónleikum í Gerðubergi í kvöld en á efnisskránni eru vinsæl lög úr Broadway - söngleikjum. Orri Páll Ormarsson ræddi við söngkonuna sem hefur meðal annars sungið með Sinfóníu- hljómsveit íslands. Morgunblaðið/Kristinn ELLEN Lang og Nicholas Mastripolito leika og syngja á tónleikum í Gerðubergi í kvöld og efna til námskeiðs á sama stað um næstu helgi. „ÉG ÓLST upp við að hlusta á dægurlög í útvarpi og heyrði ekki klassíska tónlist fyrr en í háskóla. South Pacifíc heillaði mig upp úr skónum þegar ég var bam að aldri og hafa söngleikir æ síðan verið snar þáttur í lífí mínu,“ segir bandaríska sópran- söngkonan Ellen Lang sem mun ásamt píanóleikaranum Nicholas Mastripolito kynna íslendingum upphaf og þróun bandaríska söngleiksins í tali og tónum í Gerðubergi í kvöld. Sérstakur gestur á tónleikunum verður Bergþór Pálsson söngvari og mun hann taka lagið með söng- konunni. Lang er búsett í New York og kennir söng við Westminster Choir College í Princeton, New Jersey. Það orð fer af henni að. hún sé afar §ölhæf söngkona - jafnvíg á óperu, kammertónlist, ljóð og söngleiki. Söngkonan er íslendingum reyndar að góðu kunn en hún kom fram með Sinfóníuhljóm- sveit íslands á tónleikum í Há- skólabíói vorið 1986. Hún kveðst hafa skemmt sér konunglega þá og sakir þess hafi hana langað að koma aftur. „Reykjavík hefur stækkað mikið á þessum níu árum. Það er kominn alþjóðlegri blær á borgina; hún er farin að minna á New York.“ Lang gerir stutt hlé á máli sínu. „Nei, það eru sennilega ýkjur.“ Ferðast víða um heim Samstarf Langs og Mastri- politos hófst fyrir tilviljun þegar þau voru beðin að flytja nokkur vinsæl lög og slá þannig botninn í einleikaratónleika fyrir nokkr- um árum. Listamennimir þekkt- ust ekki og fengu því nokkrar mínútur til að bera saman bækur sínar. Að því búnu stigu þeir á svið og uppgötvuðu að þeim var í lófa lagið að skapa Broadway- stemmningu af bestu gerð. Dúett var settur á laggimar og síðan hafa þau Lang og Mastripolito ferðast víða um heim með lög úr söngleikjum í far- teskinu. Á efnisskránni í kvöld em vinsæl lög úr söngleikjum eftir Herbert, Romberg, Kem, Rodgers, Gershwin, Berlin, Porter og fleiri nafntoguð tónskáld. Lang segir að allir þessir menn hafa lagt sitt af mörkum til að festa söngleik- inn í sessi á fyrri hluta aldarinnar. Margir þeirra hafí verið innflytjendur sem hafí flutt inn nýjar víddir í tónlist sem síðar hafí þró- ast yfír í listform sem Bandaríkja- menn líti stoltir á sem sitt framlag til tónlistarsögu heimsins ásamt jazzinum. „Öll lögin á efnis- skránni em í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Lang. „Þau gera miklar kröfur til manns enda em þau samin með ákveðnar persónur í söngleikjunum í huga. Það er því síður en svo hlaupið að því að slíta þau úr samhengi. Það mgla margir dægurtónlist og söng- leikjum saman. Á þessu er hins vegar mikill munur; ég myndi til dæmis aldrei flytja lag úr söng- leik í næturklúbbi. Það er einfald- lega ekki við hæfí.“ Lang segir að laglínan sé ekki það eina sem geri þessa tónlist sérstaka; textamir beri snilligáfu höfundanna einnig vitni. Áheyr- endur sem hafí gott vald á enskri tungu ættu því að leggja vel við hlustir. „Textamir em oft hnyttnir og skeleggir enda hafa höfundamir svo gott vald á mál- inu að þeir koma manni sífellt á óvart. Sumir em þó snjallari en aðrir.“ Mikill áhugi á söngleikjum Áhugi á söngleikjum hefur færst í vöxt hér á landi að undanförnu. Til marks um það má nefna fjöl- margar uppfærslur á slíkum verkum sem era ýmist að baki eða standa fyrir dymm. Ruth Magnússon tónlistarkennari sá sér því leik á borði og bað Lang og Mastripolito um að efna til námskeiðs um bandaríska söng- leiki meðan á dvöl þeirra hér á landi stendur. Hugnaðist lista- fólkinu hugmyndin. „Við verðum að nýta okkur krafta þessa fólks fyrst við höf- um tækifæri til,“ segir Ruth og bætir við að mikill áhugi sé fyrir námskeiðinu sem verður haldið í tvígang í Gerðubergi, föstudag- inn 26. maí og laugardaginn 27. maí. Námskeiðið er ætlað söngv- umm, píanóleikumm og öllu áhugafólki um söngleiki en við- fangsefnið er Broadway-söng- leikir og önnur vinsæl verk eftir Andrew Lloyd Webber og Claude Michel Schönberg. Heimsókn Langs og Mastri- politos er liður í menningarsam- skiptum íslands og Bandaríkj- anna. Næsti liðurinn í þeim sam- skiptum em tónleikar Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Jónasar Ingi- mundarsonar með íslenskum lög- um í sumarskóla Westminster Choir College í júlí næstkomandi. Norður og niður Lífiðí leikhúsinu Snæfellinga- kórinn í Laug- arneskirkju SNÆFELLINGAKÓRINN í Reykjavík heldur sína árlegu vor- tónleika í Laugaraeskirkju á fimmtudag 25. maí kl. 17. Á efnisskránni eru íslensk lög og erlend. Helgina eftir heldur kórinn vestur á Snæfelisnes og syngur í Stykkishólmskirkju á laugardag kl. 14 og í kirkjunni á Staðarstað kl. 17 sama dag. Stjóraandi kórsins er Friðrik Kristinsson. VINKLAR A TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI riMVAi í iji oAn £8 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 KVIKMYNPIR Rcgnboginn NORÐUR(NORTH) ★ Leikstjóri Rob Reiner. Aðalleikendur Elijah Wood, Bmce Willis, Dan Aykroyd, Jon Lovitz, Kathy Bates, Graham Greene, Alan Arkin, John Ritter, Reba McEntyre. Bandarísk. Castle Rock 1994. AF myndavalinu undanfarnar vikur mætti ætla að í Regnbogan- um stæði yfír kvikmynda-„hátíðin Axarsköft úrvalsleikstjóra. Þau eru Pret-A- Porter eftir Robert Altman, Leiðin til Wellville eftir Alan Parker og nú birtast á tjald- inu enn ein afglöpin þar sem allt stefnir norður og niður, North, nýjasta afurð Robs Reiners. Hún er, einsog hinar tvær, byggð á tómum glappaskotum. Reiner er þó enginn aukvisi frekar en þeir Altman og Parker. Mistök era ekki ný bóla á fallvöltum ferli Altmans, öðra máli gegnir með Parker og Reiner hefur átt hverja metaðsókn- armyndina á fætur annarri. Skemmst að minnast Svefnvana í Seattle. Það eina skondna við þessar myndir er að þær skuli allar stinga upp kollinum í beðju í sama kvik- myndahúsinu hér norður í Dumbs- hafí. Þetta væri álitinn kvikmynda- legur heimsviðburður ef næsta mynd bíósins væri Exit to Edenl Ein ástæðan er öragglega sú að nú standa yfír gagngerar breyting- ar á kvikmyndahúsinu og verið að moka flórinn. Af North er það helst að segja að hún er vond mis- tök. Hundleiðiniegur samsetningur um strák (Wood) sem býr við slíkt eftirtektarleysi heima fyrir að hann lögsækir foreldra sína og fær að leita nýrra. Ferðast vítt og breitt og endar svo vitaskuld á upphafs- reit. Það er því miður ekki hægt að sjá ljósan punkt þrátt fyrir mann- val framan sem aftan við tökuvél- arnar. Handritið er gjörsneytt allri kímnigáfu svo þokkalegur leikhóp- ur hefur ekkert bitastætt að segja. Því fer sem fer. Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNPIR Rcgnboginn KÚLNAHRÍÐ ÁBROAD- WAY „BULLETS OVER BROADWAY" ★ ★ ★ V4 Leikstjóri: Woody Allen. Handrit: Allen og Douglas McGrath. Aðal- hlutverk: Jim Broadbent, John Cusack, Harvey Fierstein, Chazz Palimenteri, Mary-Louise Parker, Jennifer Tilly, Tracy Ullman, Jack Warden og Diane Wiest. Miramax Films. 1994. NÝJASTA mynd Woody Allens, Kúlnahríð á Broadway eða „Bullets Over Broadway“, er sprenghlægi- legur farsi úr leikhúslífinu á Broad- way á þriðja áratugnum. Hann not- ar það fyrir baksvið í kaldhæðnis- legri úttekt á náttúmlegum hæfi- leikum til listsköpunar og náttúm- leysi þeirra sem hafa litla hæfíleika, þurfa sífellt að rembast eins og rjúp- an við staurinn og skapa samt að- eins eitthvað miðlungsgott. Myndin er um málamiðlanirnar sem listasp- íran er sífellt tilbúin að gera og málamiðlanirnar sem sannir lista- menn geta aldrei samþykkt. Þetta er fyndnasta og frískleg- asta mynd Woodys Allens í árarað- ir. Hér smellur allt saman sem ein- kennir bestu myndir hans. Hann hefur tekið sköpunargleði sína á ný og vefur saman ekta fínan leikhús- húmor við alvarlegri og áleitnari spumingar um listina og listsköpun- ina í næstum flekklausri framsetn- ingu. „Kúlnahríðin" er alfarið laus við Bergmansdrungann, sem ein- kennt hafa tilraunir hans til að skapa „alvarlega“ list, en í staðinn er komin áhersla á líflega og spaugi- lega persónusköpun og brandara og gamanmál, sem fær mann til að skella uppúr af hjartans lyst. Þetta er sannarlega besta gamanmyndin í bænum. Snjallt handritið eftir þá Allen og Douglas McGrath kynnir til sögu margar erkitýpur leikhússins, sem fá eftirminnilega meðferð hjá kræsi- legum -leikhópi. John Cusack er unga upprennandi skáldið, sem er sífellt að fallast á málamiðlanir í leit að viðurkenningu. Diane Wiest er frábær prímadonna sem má muna fífíl sinn fegri, þolir ekki ást- atjátningar en kann enn að snúa ístöðulausum, ungum höfundum á sitt band. Jim Broadbent stelur sen- unni í hvert skipti sem hann birtist í hlutverki aðalleikarans, sem tútnar út í óstöðvandi matargræðgi þegar fmmsýningarskjálftinn fer að segja til sín. Jennifer Tilly er hæfileika- leysið uppmálað sem mafíudúkka er getur ekki leikið frekar en feiti mafíósinn hennar, sem dekrar við hana með því að borga uppfærsl- una. Jack Wamer er framleiðandinn og Chazz Palimenteri er leigumorð- ingi og lífvörður mafíósans, sem á að gæta þess að enginn fækki setn- ingum dúkkunnar í stykkinu og vill svo til að skynjar dramatík betur en nokkur annar og er reyndar fæddur til að skrifa leikrit. Allen teflir snillinni gegn meðal- mennskunni og með myndinni er hann kannski að segja að sköpun- argáfuna sé aldrei hægt að sjá fyr- ir og hana sé að fínna á ólíklegustu stöðum og ef þú ert sannur lista- maður gerir þú hvað sem er til bjargar sköpunarverkinu. Fáir gætu sett það fram á eins skemmtilegan máta. Allen hefur enn einu sinni sýnt að það er enginn skortur á sköpunargáfu þegar hann er annars vegar. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.