Morgunblaðið - 24.05.1995, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995
VINDAR FORTIÐAR
LITLAR KONUR
Gerð eftir sögu Louise May Alcott „Yngismeyjar" sem
hefur komið út á íslensku. Winona Ryder, Susan
Sarandon, Kristen Dunst, Samantha Mathis, Trini
Alvarado, Claire Danes fara með aðalhlutverkin í þessari
ógleymanlegu kvikmynd um tíma sem breytast og
tilfinningar sem gera það ekki.
Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna.
Winona Ryder hlaut tilnefningu fyrir bestan
leik i aðalhlutverki.
Framleiðandi: Denise Di Novi (Batman, Ed Wood).
Leikstjóri: Gillian Armstrong (My Brilliant Career.)
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.15.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
Kvikmyndagetraun. Verðlaun: Bíómiðar og regnhlifar
Verð 39.90 mínútan.Sími 991065.
BARDAGAMAÐURINN
Sýnd kl. 5. B.i. 16 ára.
ODAUÐLEG AST
AÐALHLUTVERK:
BRAD PITT
ANTHONY HOPKINS
OG AIDAN QUINN
★★★ A. I. Mbl.
Sýnd kl 11.15.
IMMoKjaL
• BeLoVeD •
AÐALHLUTVERK: Gary Oldman, Isabella
Rossellini, Jeroen Krabbé, Valeria Golino
og Johanna Ter Steege.
Sýnd kl. 6.45 og 9. B.i. 12.
Kvikmynd um
Dylan Thomas
► KVIKMYNDA-
FYRIRTÆKI rokk-
arans Micks Jaggers
sem nefnist Jagged
Films hefur gengið
frá samningi við
Christopher Monger
um að framleiða
kvikmynd eftir hand-
riti og undir leik-
stjórn Mongers um
skáldið Dylan Thom-
as og eiginkonu hans
Caitlin.
Monger mun vinna
handritið upp úr bók-
ínni „Caitlin: Líf með
Dylan Thomas“, sem
rituð var af henni
sjálfri. „Ef þú elst
upp í Wales lifir þú í
skugga hans,“ segir
Monger. „Hið ein-
staka og tilfinninga-
þrungna samband
hans við Caitlin og
skáldskapur er
hjarta sögunnar."
Jagger segir í sam-
tali við Variety. „Samband Dylans Thomas og Caitlin var svo eldfimt
og magnað að ég vissi um leið og ég lauk við bókina að þetta yrði
frábær kvikmynd." Monger leikstýrði og skrifaði handrit myndarinn-
ar „The Englishman that Went Up a Hill But Came Down a Mounta-
^in“, sem var með Hugh Grant i aðalhlutverki.
Nú leitum við eftir
hæfileikafólki í
söngleikinn Rocky
Horror
við leitum að körluin og konum
á aldrinum 16 - 35 ára
við leitum jafnt að
atvinnumönnum sem og djörfu
hæfileikafólki sem ekki hefur
verið uppgötvað enn
Flugfélagið LOFTUR setti upp Hárið sumarið 1994
Sunnudaginn
28. maí verður
haldin söng- og
dansprufa í
Héðinshúsinu
við Vesturgötu
ætiunin er að frumsýna verkið í júlí 1995
m
mf ílf
bókanir í síma 626799,
miðvikudaginn 24. maí &
fimnttudaginn 25. mai
æskilegt er að
fólk syngi lag úr
Rocky Horror eða
eitthvað annað
Djörf
myndum
Katrínu
miklu
UTGEFANDI Penthouse,
Bob Guccione, framleiddi
hina umdeildu kvikmyn
„Caligula" árið 1979, en
hún varð fræg að endemum
fyrir opinská kynlífsatriði
sem í henni voru. Hann
hyggst nú gera aðra sögu-
lega kvikmynd um persónu
sem var fræg fyrir öfgar á
því sviði, nánar tiltekið rúss-
nesku keisaraynjuna Katr-
ínu miklu. Áætlað er að
kvikmyndin kosti rúma tvo
milljarða króna í framleiðslu
og tökur hefjist seint í sept-
ember. Handritshöfundur
myndarinnar er Nicolas
Roeg.
Roberts
leggur sitt
af mörkum
► JULIA Roberts mun tala inn
nýja heimildarmynd CBS
„Leyndarmál Angelie", sem
fjallar um ungt fórnarlamb
alnæmis. Um er að ræða sögu
ellefu ára smábæjarstúlku í
Bandaríkjunum, sem
fæddist með sjúkdóm-
inn. Roberts sam-
þykkti að taka að sér
hlutverk sögumanns
eftir að hafa séð
þessa tveggja tíma
heimildarmynd á
frumstigi.
„Roberts gerði þetta
vegna þess að hún hefur
virkilegan áhuga á því
að vekja fólk til meðvit-
undar um sjúkdóminn,"
sagði innanbúðarmaður
CBS. „Við höfum öll heyrt
sögur af því hvað hún sé ósam-
vinnuþýð, en hún hefði ekki
getað verið hjálplegri."
SHERILYN Fenn fer með hlutverk Elizabet Tayl- COREY Parker í hlutverki Eddies Fishers fyrr-
or í myndaröðinni „Liz: Saga Elizabeth Taylor". verandi eiginmanns Taylor.
Taylor undirbýr málssókn
ELIZABETH Taylor horfði ekki á
fyrsta hluta myndaraðar sem gerð
hefur verið eftir ævi hennar og var
frumsýndur 20. maí á sjónvarps-
stöðinni CBS í Bandaríkjunum.
„Ég horfði á Barbra Streisand,"
segir Taylor.
Neil Papiano lögfræðingur
hennar horfði hins vegar á fyrsta
þáttinn og búist er við að það taki
hann aðeins viku að undirbúa máls-
sókn á hendur sjónvarpsstöðinni.
Taylor reyndi að stöðva gerð
myndaraðarinnar í fyrra, en tapaði
málinu.
Rökin voru þau að fyrst þyrfti
að sýna myndaröðina áður en
hægt yrði að úrskurða hvort hún
væri meiðandi fyrir Taylor. Nú er
aftur á móti ekkert því til fyrir-
stöðu að hún krefjist skaðabóta,
ef sýnt þykir að dregin hafí verið
upp villandi mynd af henni.
Annars er það af Taylor að
frétta að hún mun líklega fara
með „skapgerðarhlutverk" í Eng-
landi á móti John Gielgud. Eigin-
maður hennar Larry Fortensky er
kominn með skegg í þökk hennar
og hún er alltaf jafnslæm í bakinu.
Mjöðmin er hins vegar skárri. „Ég
hef getað gengið á háum hælum
í mánuð,“ segir Taylor.