Morgunblaðið - 23.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.06.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C 139. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Afsögn Majors kaldrifjuð flétta London. Daily Telegraph. JOHN Major forsætisráðherra Breta tók í gær mestu áhættu á stjórnmálaferli sínum með því að segja af sér hlutverki leiðtoga íhaldsflokksins og skora á and- stæðinga sína að fara fram gegn sér í nýju leiðtogakjöri sem fram fer þriðjudaginn 4. júlí. Líklegasti mótframbjóðandi hans er sagður Norman Lamont fyrrverandi fjár- málaráðherra. Ráðherrar í stjórn- inni lýstu allir stuðningi við Major og búist er við að mikill meiri- hluti þingflokksins styðji hann í leiðtogakjörinu. Andstæðingar náinnar sam- vinnu Evrópusambandsríkjanna freistuðu þess þegar í gær að finna frambjóðanda gegn Major. Einn þeirra, Teresa Gorman, sagðist vonast til að menn sæju í gegnum leikfléttu Majors og ein- hver færi gegn honum. Frestur til að tilkynna mótframboð rennur út næstkomandi fimmtudag. Breskur þingheimur varð agn- dofa er Major kynnti ákvörðun sína. Hún þykir til marks um hugrekki og pólitíska útsjónar- semi. Fæstir áttu von á jafn af- dráttarlausri áskorun af hans hálfu á hendur andstæðingum sínum. Ákvörðunin olli uppnámi í röðum andstæðinga hans, og með henni tókst honum að hrifsa til sín frumkvæðið í leiðtogaslagn- um. Á píslarbekk Er hann kynnti ákvörðun sína í garði emþættisbústaðarins í Downingstræti 10 sagðist forsæt- isráðherrann hafa fengið sig fullsaddan af stöðugum vanga- veltum um hugsanlegt leiðtoga- kjör fjórða árið í röð og þær græfu bæði undan íhaldsflokknum og stjórninni. „Eg sætti mig ekki við að flokkurinn, sem er mér svo kær, sé kvalinn á píslarbekk öllu lengur,“ sagði Major. Hann sagðist hafa afhent Sir Marcus Fox, formanni 1922- nefndarinnar, afsagnarbeiðni sína og óskað eftir því að nýtt leiðtoga- kjör yrði undirbúið. Færi hann með sigur af hólmi sæti hann áfram sem forsætisráðherra og leiddi flokkinn fram yfir næstu þingkosningar. Skaðleg gagnrýni Major játaði að gagnrýni and- stæðinga úr röðum flokksins hefði valdið skaða. Fyrr um daginn hafði Tony Blair, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagt á þingi, að innanbúðardeilur í íhaldsflokkn- um sköðuðu hagsmuni bresku þjóðarinnar og flokkurinn væri ófær um að stjórna landinu. Major sagðist hafa sest niður um síðustu helgi og ígrundað framtíð sína. Ákvörðun um af- sögn hefði hann tekið í fyrra- kvöld. Lét hann Sir Marcus fyrst- an vita af henni árla dags en minntist ekki á hana á ríkisstjórn- arfundi í gærmorgun. Ráðherrar fengu ekki að vita um hana fyrr en á hádegi og hafði Major sjálfur samband við þá flesta. Öll 18 manna stjórn 1922-nefndarinnar skrifaði í gær undir tillögu um að Major yrði endurkjörinn. ■ Ráðherrar segja afsögn/18 Reuter JOHN Major kemur ákveðinn í fasi til fundar við fréttamenn í garði Downingstrætis 10 þar sem hann tilkynnti afsögn sína sem leiðtogi íhaldsflokksins. Ákvörðunin kom sem þruma úr heiðskíru lofti en með henni er Major sagður ná pólitísku frumkvæði. Gummer hellir sér yfir Dani Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Á FUNDI umhverfisráðherra Evrópusambandsins í Lúxemborg í gær jós John Gummer umhverf- isráðherra Breta úr skálum reiði sinnar yfir Dani vegna andstöðu þeirra gegn því að Brent Spar, olíuborpalli Shell, yrði sökkt. Gummer sagði Dani ekki geta sagt mikið um mengunarmál, því þeir væru mestir mengunarvald- ar allra þjóða í Evrópu. Svend Auken umhverfisráð- herra Dana varð orðfall yfir um- mælum Gummers, en sagði bresku stjórnina í vanda vegna málsins og betra væri að láta vera að munnhöggvast um það. Gummer sagðist harma að Shéll hefði neyðst til að hætta við að sökkva olíuborpallinum, því það hefði verið vistvænasta lausnin. Bretar væru mjög með- vitaðir um umhverfismál, en Danir væru „drullusokkur Evr- ópu“. Kattegat væri í andaslitrunum vegna mengunar frá Danmörku og hundur dytti dauður niður inn- an 10 mínútna af að drekka úr dönskum lækjum. Austurrískur kaupsýslumaður bauðst í gær til þess að yfirtaka borpallinn og gera hann að fljót- andi diskóteki og spilavíti. Serbar vara Bildt við að hunsa sig Sarajevo, Pale. Reuter. Reuter RÚSSNESKIR hermeim aka brynvagni sínum frá Grosní í Tsjetsjníju í gær. Uppreisnarmenn í héraðinu samþykktu í gær að leggja niður vopn. Tsjetsjenar gefa eftir Grosní, Moskvu. Reuter. TVEIR létust og þrír slösuðust þegar fallbyssukúla sprakk á götu í Sarajevo í gær þar sem fólk beið eftir vatni. Hafa margir borg- arbúar beðið bana við sömu að- stæður en Serbar hafa lokað fyrir vatn til borgarinnar. Bosníu-Ser- bar segja, að tilraunir til að koma á friði í landinu verði árangurs- lausar, hunsi Carl Bildt, nýskipað- ur sáttasemjari Evrópusambands- ins, leiðtoga þeirra. Bildt átti í gær viðræður við Slobodan Milosevic, forseta Serb- íu, og hafði áður ‘rætt við Króata og múslima, en ekki Bosníu- Serba. Þeir, sem létust í árásinni í gær, voru stúlkubarn ogfullorðinn karlmaður en sumir telja, að ein- hverjir uppljóstrarar Serba í borg- inni láti þá vita hvenær vatni sé miðlað til fólks. Þá hefji Serbar skothríðina í von um að valda sem mestum usla meðal óbreyttra borgara. TSJETSJENAR slökuðu talsvert á kröfum sínum er þeir náðu samkomulagi við Rússa um leiðir til að stuðla að friðsamlegri lausn deilunnar um Tsjetsjníju. Efa- semdir eru þó uppi um að samn- ingar takist í bráð. Tsjetsjenar féllust meðal ann- ars á að afvopnast gegn því að Rússar drægju hluta hersveita sinna frá landinu. Höfðu þeir sett það sem skilyrði fyrir af- vopnun, að Rússar kölluðu allar sveitir sínar burt. Samkomulag náðist um fanga- skipti og afmörkun vopnahlés- beltis en hvorugt verður að veru- leika nema einnig takist samn- ingar um efnahagsleg og pólitísk efni í dag, föstudag. Bæði Rússar og Tsjetsjenar lýstu sigri í gær og sögðu að hægt yrði að leysa deihina um framtíð Tsjetsjníju friðsamlega. Það gæti þó reynst tafsamt þar sem Rússar líta á svæðið sem órjúfanlega hluta af Rússlandi en Tsjetsjenar segja að ekkert annað en sjálfstæði komi til greina. Gagnkvæmar ásakanir um vopnahlésbrot voru settar fram í gær. Skothvellir heyrðust í Grosní í gær og sakaði talsmaður Borís Jeltsins forseta Tsjetsjena um að liafa rofið grið þar. Tsjetsjenar sökuðu Rússa hins vegar um að hafa hafið skothríð í borginni Vedeno í suðaustur- hluta Tsjetsjnjju. Foster hafnað Washington. Reuter. HVERFANDI líkur eru á að tilnefning Henry Fosters í starf landlæknis Bandaríkj- anna nái fram að ganga þar sem öldungadeild þingsins felldi öðru sinni í gær tillögu um að stöðva málþóf um til- nefninguna. Bill Clinton Bandaríkjafor- seti tilnefndi Foster í starf landlæknis. Hann er 61 árs þeldökkur kvensjúk- dómalæknir frá Nashville í Tennessee. Andstæðing- ar fóstureyð- inga hafa lagst gegn því að hann hljóti starfið og Phil Gramm öldungadeildarmaður hclt því fram að skoðanir Fosters væru róttækar og samrýmdust ekki afstöðu meirihluta þjóðarinn- ar. Tillaga um að stöðva mál- þófiö var samþykkt með 57 atkvæðum gegn 43 en skorti þrjú atkvæði til þess að ná fram að ganga. Sama niður- staða varð er samskonar til- laga var borin upp í fyrradag. Þetta þýðir að málið er nán- ast úr sögunni. Tilnefningin sjálf hefði aðeins þurft 51 atkvæði til þess að öðlast samþykki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.