Morgunblaðið - 23.06.1995, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
- —, Ný lög um þingfararkaup
30 millj. kostnaðarauki
Sé þessari upphæð deilt niður á 63 þingmenn landsins koma um
444.000 krónur i hlut hvers og eins
eða um 37.000 krónur á mánuði.
q3-
i G-/^u I^JO ——- -
Menn áttu von á öllu öðru en að þingmenn enduðu sumarþingið með þjóðarsáttina á hælunum
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
BLÁI turninn í miðju byggingarinnar setur mikinn svip á hana.
Nýja fangelsisbyggingin
á Litla-Hrauni tilbúin
til notkunar í ágúst
Selfossi. Morgunblaðið.
Nýja afplánunarfangelsisbygging-
in á Litla-Hrauni verður tilbúin til
notkunar í lok ágúst, rúmu ári eft-
ir að fyrsta skóflustungan var tek-
in. Gert er ráð fyrir að fangelsis-
byggingin verði tekin í notkun með
haustinu og starfsemi í henni verði
komin í fullan gang snemma árs
1996.
Boðin hefur verið út bygging
vinnu- og íþróttaskála og munu
framkvæmdir við hann hefjast á
þessu ári. Samþykkt hefur verið að
taka lægsta tilboði í bygginguna frá
JÁ-verktökum á Selfossi að upphæð
kr 19,9 milljónir króna sem er
89,1% af kostnaðaráætlun. Þá er
gert ráð fyrir að framkvæmdum við
öryggismál fangelsisins verði að
fullu lokið 1997. Ennfremur er unn-
ið að tillögum um breytta nýtingu
eldra húsnæðis á staðnum fyrir
ýmsa stoðþjónustu við fangelsið.
Heildarkostnaður 350 milljónir
Auk byggingarframkvæmda á
Litla-Hrauni hefur verið unnið að
breytingum á yfirstjórn fangelsisins
og störfum annarra starfsmanna,
en hönnun hinnar nýju byggingar
gerir ráð fyrir breyttum starfshátt-
um í fangelsinu. Gert er ráð fyrir
að heildarkostnaður vegna fram-
kvæmda á Litla-Hrauni nemi um
350 milljónum króna, en fangarými
á staðnum eykst um 70%.
Stefnt er að því að undirbúningur
geti hafist á þessu ári vegna bygg-
ingar nýs afplánunar- og gæslu-
varðhaldsfangelsis í Reykjavík.
Bráðabirgðaáætlanir gera ráð fyrir
að þeim framkvæmdum megi ljúka
árið 2000. í skýrslu Fangelsismála-
stofnunar fyrir 1994 kemur meðal
annars fram að breytingar eru fyrir-
sjáanlegar á starfsháttum fanga-
varða sem þegar hefur verið hafist
handa við að undirbúa í samvinnu
við Fangavarðafélag íslands. Þetta
er gert vegna nýrra krafna og
breyttra áherslna í fangelsisrekstri
hér á landi. Þá hafa öryggismál
fangelsanna sætt heildarendur-
skoðun og er enn unnið að breyting-
um í þeim efnum hvað varðar
tæknilega hlið mála, starfshætti og
fyrirkomulag fangavistar almennt.
Rithandarsérfræðingar
Rithönd sem
rannsóknar efni
H araldur Árnason
EINI íslendingurinn,
sem er í fullu starfi
sem rithandarsér-
fræðingur, er Haraldur Árna-
son hjá tæknideild Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Hann
hafði veg og vanda af skipu-
lagningu ráðstefnu norrænna
rithandarsérfræðinga sem
fram fór í Reykjavík dagana
14. til 16. júní sl.
- / hverju felst starf rít-
handarsérfræðings?
Starf rithandarsérfræð-
ings hjá rannsóknarlögregl-
unni er margbrotið. Það felst
í hvers kyns skjalarannsókn-
um. Þær skiptast almennt í
tvennt: Annars vegar rit-
handarrannsóknir (á ensku
handwriting) og hins vegar
eiginlegar skjalarannsóknir
(document research). Ég starfa
að hvoru tveggja.
-Hvaða tæki notast ríthandar-
sérfræðingur við í sínum rann-
sókum?
Smásjá og stækkunargler af
ýmsum gerðum eru helztu hjálp-
artækin við sjálfar rithandar-
rannsóknirnar.
Mikið er um að skera þurfi
úr um hvort undirskriftir á t.d.
verðbréfum, ávísunum og jafnvel
erfðaskrám séu falsáðar eða
ekki. En vitaskuld eingöngu í
málum sem kærð eru til RLR.
Við rannsóknir á skjölum að
öðru leyti kemur ýmis önnur
tækni til skjalanna. Undir eigin-
legar skjalarannsóknir falla t.d.
rannsóknir á skilríkjum, hvort
þau séu fölsuð eða þeim hafi
verið breytt.
- Hve lengi hefur þú starfað
á þessu sviði?
Ég byrjaði að fást við verk-
efni sem falla nú undir störf rit-
handarsérfræðings þegar ég
hafði hafið störf hjá tæknideild
RLR, en á árinu 1990 fór ég
síðan í sérþjálfun í þessum fræð-
um hjá skjalarannsóknardeild
brezka innanríkisráðuneytisins í
Birmingham.
- Er samstarf norrænna rit-
handarséifræðinga umfangs-
mikið?
Við sem störfum við þetta á
Norðurlöndunum höldum ráð-
stefnu annað hvert ár. Þessar
ráðstefnur eru vinnufundir þar
sem við berum saman bækur
okkar. Við komum með raunhæf
verkefni til umföllunar. Stundum
eru það verkefni sem við teljum
áhugaverð fyrir einhverra hluta
sakir; stundum eru það verkefni
sem eru á borðinu í það og það
skiptið. Einnig getur
verið gott að geta borið
þau mál sem menn eru
að fást við undir álit
kolleganna, sérstak-
lega í málum þar sem
einhver vafaatriði koma upp.
Auk þess fáum við oft fyrirles-
ara, t.d. úr dómskerfinu til að
segja frá afstöðu þeirra til þess-
ara mála.
- Geturðu sagt frá einhverju
forvitnilegu máli sem tekið var
fyrir á ráðstefnunni?
Á ráðstefnunni voru tekin fyr-
ir tólf mál sem hvert um sig var
áhugavert. Ég minnist til dæmis
máls sem Svíar komu með. Þar
var um að ræða mál þar sem
einhver hafði gert sér leik að því
að senda inn pantanir á alls kon-
ar varningi með útfylltum pönt-
unarseðlum á nafni ákveðins
manns. Tiltekinn maður var
grunaður um verknaðinn en
►Haraldur Árnason er fædd-
ur árið 1941 í Reykjavík. Hann
hóf störf hjá lögreglunni í
Reykjavík árið 1963 og hjá
Rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík 1974. Hann hefur
starfað hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins síðan hún var
stofnuð árið 1977.
Haraldur hefur fengizt nær
eingöngu við skjala- og rit-
handarrannsóknir síðan 1989.
Haustið 1990 aflaði hann sér
sérfræðiþekkingar á því sviði
hjá skjalarannsóknardeild
brezka innanríkisráðuneytis-
ins i Birmingham (Home Office
Forensic Science Laboratory).
Kona Haraldar er Jóna
Gunnhildur Hermannsdóttir.
hann neitaði öllum sakargiftum.
- Hver var niðurstaðan í
málinu?
Við sem skoðuðum gögn máls-
ins á ráðstefnunni vorum sann-
færð um að sakborningurinn
væri ekki sá seki.
- Hafa rithandarrannsóknir
haft mikið að segja fyrir dómsúr-
skurði hér á landi?
Þetta er spurning sem betur
væri beint til dómara, en ég veit
að niðurstöður rithandarrann-
sókna hafa visst vægi í mati
þeirra á dómsmálum þar sem
þær koma við sögu.
- Sumir trúa því að hægt sé
að lesa ýmislegt um persónu
manna út úr rithönd þeirra. Er
eitthvað hæft í því?
Ég tel þau vísindi ekki vera
áreiðanlegri en stjörnuspár og
því um líkt. Að minnsta kosti
kemur slíkt starfi rithandarsér-
fræðinga sem fást við
lögreglurannsóknir
ekkert við. Okkar
rannsóknir snúast um
að skera úr um hvort
skjöl og undirskriftir
séu falsaðar eða ekki, sem gerist
með samanburði og öðrum full-
komlega jarðbundnum aðferð-
um. Við fáumst ekki við spá-
dóma.
- En ef þú ert eini sérfræð-
ingurínn á þessu sviði er þá eng-
inn annar sem getur gengið íþín
störf?
Þetta er visst vandamál. Mín
bíða verkefni til þriggja mánaða
núna. En slíkt er ekkert eins-
dæmi. Ég verð bara að vona að
einhveijum öðrum gefist tæki-
færi til að afla sér þessarar sér-
þekkingar, því að þessi þekking
verður að haldast hjá RLR þegar
að því kemur að ég hætti störf-
um.
Hafa visst
vægi í mati á
dómsmálum