Morgunblaðið - 23.06.1995, Síða 14

Morgunblaðið - 23.06.1995, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Fjárfestingar Eimskips í Sundahafnarsvæðinu um 500 milljónir króna á yfirstandandi ári Ný þjónustu- miðstöð kom- in ígagnið VIÐSKIPTAÞJONUSTA Eimskips, útibú Landsbankans og Tollsins hafa verið flutt úr svokallaðri stjómstöð á suðurhluta Sundahafnarsvæðisins í endurnýjað húsnæði við Komgarða í norðurenda svæðisins. Þangað flyt- ur einnig rekstrarsvið Eimskips sem hingað til hefur verið með skrifstof- ur í Vatnagörðum 18. Húsið var upphaflega í eigu steypustöðvarinnar BM-Vallár en komst síðan í eigu Eimskips og hefur verið notað sem vörugeymsla undanfarin ár. Það hefur hlotið heitið Sundaklettur og verður öll aðstaða fyrir viðskiptavini mun betri en áður. Samhliða framkvæmdum við húsið hefur verið unnið að endur- skoðun á aðkomu viðskiptavina og annarra sem erindi eiga í Sunda- höfn. Svæðinu verður skipt í þjón- ustusvæði og athafnasvæði til að bæta þjónustu og auka öryggi. Aðkomu að svæðinu verður stýrt um þrjú hlið. Hlið 1 syðst á svæð- inu verður eingöngu fyrir gámabíla og innflutningsbíla. Hlið 2 á norður- enda svæðisins framan við Sunda- klett verður eingöngu ------------ ætlað viðskiptavinum sem eru að koma með eða sækja stykkjavöru vegna inn- og útflutnings. Hlið ________ 3 við Sundabakka er hins vegar ætlað þjónustuaðilum og starfsmönnum. Allar merkingar verða bættar verulega auk þess sem hliðhús og tengdur búnaður verður endurnýjaður. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar verði komnar til framkvæmda fyrir lok þessa árs. Flutningsráðgjöf veitt í Sundakletti Viðskiptaþjónusta Eimskips í Sundahöfn var fyrst opnuð í maí 1990 og síðan hefur verið hægt að afgreiða öll flutningsskjöl í einni ferð á einum stað vegna inn- og l\lý f rysti- geymsla í notkun í júlí útflutnings. Nú fer um helmingur allra afgreiðslna flutningsskjala fram í viðskiptaþjónustunni í Sundahöfn en afgreiðslum hefur fækkað jafnt og þétt í aðalskrifstof- unni í Pósthússtræti á undanförnum fimm árum. Hlutverk viðskiptaþjónustunnar í Sundahöfn breytist við flutninga í nýja húsið því við bætist flutn- ingsráðgjöf og sala á flutningum, flutningsmiðlum og annarri tengdri þjónustu. Einnig verður veitt sérstök þjónusta vegna bú- slóðaflutninga, hraðpakkasend- inga og srpápakkasendinga, ásamt almennri flutningatæknilegri ráð- gjöf. Meðal annarra framkvæmda Eimskips í Sundahöfn sem nú standa yfir er bygging nýrrar þjón- ustumiðstöðvar frystivöru sem tek- in verður í notkun um miðjan næsta mánuð. Geymslan verður samtals um 1.900 fermetrar að stærð með færanlegum hillukerfum og geymslurými fyrir um þtjú þúsund bretti af frysti- og kælivöru. I þjón- ustumiðstöðinni verður einnig 900 fermetra forrými þar sem unnið verður við hleðslu vöru í gáma og ýmiskonar meðhöndlun á vörunni. Auk þess verður um 450 fermetra stoðrými þar sem m.a. verður skrifstofu- og skoðunaraðstaða fyrir viðskiptavini. Þar verður hægt að þíða frystivöru og taka úr henni sýni. Kostnaður við breytingarnar á Sundakletti er alls um 70 milljónir króna. Fjárfestingin í frystigeymsl- unni Sundafrosti nemur alls um 300 milljónum en þar að auki eru lagð- ar um 100-150 milljónir í stækkun bílasvæðis, breytingar á aðkomu, girðingar o.fl. Samtals nemur því kostnaður við framkvæmdir í Sundahöfn um 500 milljónum króna. Fimleikasamband íslands Fimleikar fyrir alla Föstudas 23. iúní kl. 20.00 ]ónsmessugleði í Laugardalshöll Glæsilegar fimleikasýningar og danssýningar börn - unglingar - fullorðnir - eldri borgarar Aðgangseyrir: Fuilorðnir ...kr. 300 Börn....................kr. 100 Fimleikar fyrir alla Kl. 09.00 Vatnaieikfimi í Laugardalssundlaug Stjórn: Margrét Jónsdóttir Kl. 10.30 Leikfimi fyrireldri f Laugardalshöll Stjórn: Jenný ÓJafsdóttir Kl. 11.30 Fyriríestrar, íþróttamiðstöðinni Laugardai Dr.lngimarJ0nssono.fi. •Kl. 13.30 Þolfimi fyriralla í Laugardalshöll Stjórn: Magnús Scheving Kl. 14.30 Dans fyriralla í LaugardaJshöll Stjórn: Jón Pétur og Kara Frítt fyrir alla íÞRÓnifl fvrír illh Upplýsingar á skrifstofu FSÍ sími 581 3101 STARFSFÓLK Eimskips fyrir framan nýju þjónustumiðstöðina, Sundaklett, sem tekin var formlega í notkun í gær. Eimskip býður út 300 milljóna skuldabréf Fyrsti lánaskiptasamningurinn á innlendum flármagnsmarkaði EIMSKIP hefur falið Skandia hf. og íslandsbanka hf. að annast lokað skuldabréfaútboð félagsins að fjár- hæð 300 milljónir króna. Félagið óskaði eftir tilboðum frá verðbréfa- fyrirtækjunum í sölu bréfa til 8 ára bæði í íslenskum krónum og evr- ópsku mynteiningunni ECU og bár- ust fjögur tilboð. Sameiginlegt tilboð íslandsbanka og Skandia í ECU var talið hagstæð- ast en kjörin miðast við þriggja mánaða millibankavexti (LIBOR) auk ákveðins vaxtaálags. Þetta álag reyndist fyllilega samkeppnisfært við lánakjör Eimskips á erlendum lánamörkuðum. Útboðið felur í sér töluverða nýj- ung á íjármagnsmarkaðnum. Skandia mun selja skuldabréf Eim- skips í íslenskum krónum á innlend- um markaði en bréfin bera 6,1% vexti. íslandsbanki mun á sama tíma taka erlent lán á millibankamarkaði. í framhaldi af því mun Eimskip gera lánaskiptasamning við íslandsbanka þannig að lánakjör félagsins miðist við erlenda lántöku bankans. Kjör Kók til Svíþjóðar VÍFILFELL hf. hefur gert samning við Eimskip um flutning á um eitt hundrað fjörutíu feta gámum af hálfs lítra kóki frá íslandi til Sví- þjóðar í sumar. Að sögn Erlu Pétursdótt- ur, upplýsingafulltrúa Vífil- fells hf. er þetta ekki í fyrsta skipti sem fyrirtækið flytur út kók til Svíþjóðar. Síðasta sumar hafi verið fluttir út yfir eitt hundrað gámar til Svíþjóðar og Finnlands. Enn sem komið er sé þó um held- ur minna magn að ræða nú. „Nú þegar höfum við gengið frá sölu á um sjötíu gámum en það skýrist síðar í sumar hversu mikið til viðbótar við flyljum út á þessu ári.“ íslandsbanka munu hins vegar mið- ast við kjör Eimskips í innlendu skuldabréfaútgáfunni. A hveijum gjalddaga mun fara fram uppgjör þar sem aðilar gera upp áfallinn gengis- og vaxtamun á milli gjalddaga. Hagkvæmni samningsins fyrir samningsaðila felst í því að íslands- banki og Eimskip njóta svipaðra vaxtakjara á innlendum fjármagns- markaði, en hagstæð kjör bjóðast Islandsbanka nú á erlendum milli- bankamarkaði. Með lánaskiptasam- ingi deila samningsaðilar með sér því hagræði sem hlýst af lántöku bankans erlendis. Útboð bréfanna meðal stofnanaíjárfesta' hófst á mánudag og miðar sölu þeirra vel áfram. Skiptasamningar, þar sem stuðst er við íslenska krónu á móti erlend- um myntum, voru fyrst leyfðir í bytjun þessa árs. Frá þeim tíma hefur Islandsbanki gert nokkra gjaldmiðlasamninga en hér er um að ræða fyrsta lánaskiptasamning sem gerður er á innlendum fjár- magnsmarkaði. Olíufélagið vildi meirihluta í stiórn Olíudreifingar hf. Falhst var á kröfu OIís um jafnræði félaganna STJÓRN hins nýja dreifingarfyrir- tækis Olís og Ölíufélagsins, Ölíu- dreifingar hf. verður skipuð tveimur mönnum frá hvoru félagi. Stjórnar- formaður er Geir Magnússon, for- stjóri Olíufélágsins en aðrir eru þeir Bjarni Bjarnason, fulltrúi for- stjóra Olíufélagsins hf, Einar Bene- diktsson, forstjóri Olís og Tómas Möller, framkvæmdastjóri mark- aðssviðs Olís. Að sögn Geirs . Magnússonar stefndi Olíufélagið að meirihluta í stjórn Olíudreifingar, enda væri eignarhlutur þeirra 60% á móti 40% Olís hf. „Það liggur í hlutarinns eðli að við sóttumst eftir meirihluta í stjórn." Niðurstaðan hafi hins veg- ar orðið þessi. Að sögn Einars Benediktssonar forstjóra Olís var það frumskilyrði af hálfu félagsins að jafnræði myndi ríkja á milli olíufélaganna tveggja í stjórninni og hafi niður- staðan orðið sú í viðræðum á milli félaganna um skipan þessara mála. „Einfaldur meirihluti atkvæða ræður auk þess sem sérstaklega er tekið fram í samkomulaginu að allar helstu ákvarðanir skuli teknar í stjórn 01íudreifingar“ sagði Ein- ar. Ekki um óeðlileg tengsl að ræða. Eins og fram kom í fréttum Morg- unblaðsins á miðvikudag voru þeir Kristinn Hallgrímsson, lögmaður hjá Lögvísi sf. og Ólafur Olafsson studdir inn í stjórn Olís af Olíufélag- inu á hluthafafundi síðastliðinn jiriðjudag, þrátt fyrir yfirlýsingar forráðamanna olíufélaganna tveggja um að varamenn myndu taka sæti fulltrúa Sunda hf. Um ástæður þessa segir Geir: „Það kom einfaldlega í ljós að það fóru þrír fulltrúar út og því hefði vantað varamenn í stjórn ef einhver hefði forfallast. Því var ákveðið að hafa fullskipaða stjórn." Að sögn Geirs mun þessi skipan stjómar ekki leiða til óeðlilegra tengsla á milli fyrir- tækjanna tveggja þar sem hér sé ekki um starfsmenn Olíufélagsins að ræða. Einar Benediktsson hjá Olís tók í sama streng og sagði jafnframt: „Þessir menn eru alveg ótengdir Olíufélaginu í sínum daglegu störf- um jafnframt því sem landslög kveða á um trúnað manna sem taka að sér stjórnarsetu í félögum."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.