Morgunblaðið - 23.06.1995, Page 52
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181.
PÓSTUÓLF 3040, NETFANG MBL^CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTKÆTI 85
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rússar sagðir vanvirða siglingareglur á úthafskarfamiðum
Stórtjón á veiðarfær-
um íslenskra skipa
Utiræktun
Kínakál á
markað
STRAX eftir helgina er von á
íslensku kínakáli í verslanir og
er það fyrsta útiræktaða
grænmetið sem kemur á
markaðinn í sumar. Það kemur
frá þeim .feðgum Jóhannesi
Helgasyni í Hvammi og Helga
Jóhannessyni í Garði í Hruna-
mannahreppi, en þeir rækta
kínakálið í heitum görðum og
eru því oft á undan öðrum.
Tíðarfarið sunnanlands hef-
ur verið mjög hagstætt fyrir
fljótsprottið grænmeti upp á
síðkastið, en kuldi í vor gerir
það hins vegar að verkum að
hefðbundin ræktun verður lík-
lega eitthvað síðar á ferðinni
en í meðalári.
Að sögn Kolbeins Ágústs-
sonar, sölustjóra hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna, er von á
fljótsprottnum rófum og hvít-
káli á markaðinn um miðjan
júlí, en blómkál gæti orðið á
ferðinni eitthvað fyrr.
RÚSSNESKIR togarar virða sigl-
ingareglur að vettugi og draga
þvert á slóð annarra togara á þröng-
um bletti á úthafskarfamiðunum á
Reykjaneshrygg, um 570 sjómílur
suðvestur af landinu, að sögn ís-
lenskra skipstjóra á miðunum.
Veiðarfæri slitnuðu aftan úr tog-
aranum Ými og telur Hafsteinn
Stefánsson skipstjóri tjónið nema
tugum milljóna en hann vill ekki
fullyrða að það hafi verið sök rúss-
neskra togara. Þá rifu rússneskir
togarar tvö troll Höfrungs III og
metur Sturlaugur Gíslason skip-
stjóri tjónið á allt að 10 milljónir
kr. Skipin eru bæði á heimleið.
Lítil veiði hefur verið á miðunum
allt frá því sjómannaverkfallið
leystist en 14 íslensk skip voru á
miðunum. Aflaverðmæti Höfrungs
III var um 7 milljónir króna að lok-
inni fimm daga veiði.
Færeyskur togari missti sitt troll
eftir að japanskt skip togaði í slóð
hans og auk þess hafa rússneskir
togarar skemmt veiðarfæri hver
annars. Sturlaugur segir að svo
virðist sem Rússarnir hirði ekki um
viðvaranir og hagi sér með alversta
móti núna.
Hafsteinn sagði að einhverra
hluta vegna hefðu togvírarnir slitn-
að á Ými og trollið farið í sjóinn.
„Skemmd gæti hafa komið í vírana
þegar einhver rak hlerana í þá en
við áttum okkur ekki alveg á því,“
sagði Hafsteinn.
Vilja gæsluskip
á svæðið
Hann sagði að Rússarnir væru
mjög erfiðir í samvinnu og virtust
ekki skilja hvernig þetta gengi fyr-
ir sig, sérstaklega þegar einhver
vindur væri og straumur. Hann
sagði að æskilegt væri að gera
Rússana ábyrga fyrir því tjóni sem
þeir valda en þeir fáist ekki til að
viðurkenna sök sína. „Tjónið hjá
okkur skiptir einhverjum tugum
milljóna króna,“ sagði Hafsteinn.
Ægir Fransson, skipstjóri á
Snorra Sturlusyni, og Sturlaugur
segja stríðsástand ríkja á miðunum
og barist sé um fiskinn á þröngum
blettum. Þeir vilja að skip Land-
helgisgæslunnar verði send á
svæðið.
„Það litla sem er veiðanlegt er
á þröngum bletti og menn berjast
um það. Það má segja að þeir dragi
þvers og kruss og fari ekki eftir
þeim vinnureglum sem við höfum
tamið okkur,“ sagði Ægir.
Á milli 70-100 togarar voru á
þröngu svæði að veiðum, þar af fjöl-
mörg rússnesk, tvö japönsk og
nokkur færeysk skip.
Skagamenn
með fullt
hús stiga
SKAGAMENN sigruðu KR með
tveimur mörkum gegn engu á
heimavelli sínum í gærkvöldi, í
fimmtu umferð fyrstu deildar
karla í knattspyrnu. Fyrra
markið gerði Haraldur Ingólfs-
son úr vítaspyrnu og á mynd-
inni sjást samherjar hans fagna
honum og markinu. Síðara
markið gerði Ólafur Þórðarson.
Eftir fimm umferðir eru
Skagamenn langefstir, með
fullt hús stiga og sex stigum á
undan næsta liði sem er KR.
Keflvíkingar eru í þriðja sæti
með átta stig og í fjórða sæti
eru Eyjamenn sem sigruðu FH
með sex mörkum gegn þremur
í gærkvöldi.
Grindavík fékk Fram í heim-
sókn og lauk leiknum með jafn-
tefli 2:2. Þá sigraði Leiftur Val
á heimavelli þeirra síðarnefndu
með tveimur mörkum gegn
einu. Valur og Grindavík verma
botnsæti deildarinnar.
Kjaradeilan í álverinu í Straumsvík
Árangfurslaus
sáttafundur
BÚIST var við að sáttafundi í kjara-
deilu starfsmanna álversins og við-
semjenda þeirra hjá ríkissáttasemjara
yrði haldið áfram eitthvað fram eftir
nóttu þegar Morgunblaðið fór í prent-
un um miðnætti en enginn árangur
hafði þá náðst á samningafundum
-•*i^n hófust kl. 15 í gær. Framleiðsla
i álverinu stöðvast á miðnætti í kvöld,
hafi samningar ekki tekist fyrir þann
tíma.
Aðspurður hvort stjórnvöld myndu
grípa inn í og stöðva verkfallið með
bráðabirgðalögum til að koma í veg
Snjóalög í Þorskafirði
Yta ruddi
heimreiðina
fyrir lokun álversins sagði Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra að laga-
setning leysti ekki deiluna. Hún snér-
ist ekki eingöngu um krónur og aura,
heldur einnig skipuiagsmál.
Opinskáar umræður
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði þungt undir fæti í viðræðun-
um. Umræður hefðu verið opinskáar
í gær og deiluaðilar hefðu togast á
um ýmsar útfærsiur eldri hug-
mynda. 25 manna trúnaðarráð
starfsmanna kom til fundarins
ásamt samninganefnd verkalýðsfé-
laganna'eftir kvöldmatarhlé kl. 21
í gærkvöldi.
Síðdegis í gær fjölmenntu starfs-
menn álversins1 við húsnæði ríkis-
sáttasemjara og samþykktu ályktun
þar sem skorað er á samninganefnd
verkalýðsfélaganna að halda fast á
kröfum starfsmanna.
Miðhúsum. Morgunblaðið.
MÚLI í Þorskafirði er nú í eyði yfir
vetrarmánuðina en bóndinn þar dvel-
ur á Akranesi um vetrartímann. Um
síðustu helgi kom hann heim og fékk
ýtu tii þess að ryðja heimreiðina og
reyndust göngin um 5 metrar á dýpt.
Til þess að koma rafstöðinni í
gang þurfti hann að skrúfa frá olíu-
tanki og þurfti bóndinn að _ moka
þijá metra ofan á kranann. í sam-
tali við fréttaritara sagði Páll
Andrésson í Múla að bærinn væri
ekki nema í 20 metra hæð yfir sjáv-
armáli.
Bændur eru farnir að sleppa fé
ðíriu en bæði er gróður lítill og víða
snjór inn til dala. Eitthvað ber á
kali en sums staðar eru tún ekki öll
komin undan snjó.
Æðarvarp virðist vera í meðallagi
en þó er hætt við því að um einhverj-
ar tilfærslur sé að ræða. Gæs fjölg-
ar. Útbreiðsla á jaðrakan hefur auk-
ist en það munu vera' um 30 ár frá
því hann hóf varp hér um slóðir.
Vinnuafl,
apríl 1993 til apríl 1995
150 þús.
Vinnuafl
2oA
148.900
145.800
145 144.200
Atvinnulausir
140
8.700
140.200
135 136.300
137.200 Starfandi
Atvinnuþátttaka eykst samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu íslands
■ Áskorun/4
Morgunblaðið/Golli
Fjölgun um 3.000 á ári
ATVINNUÞÁTTTAKA hefur aukist
umtalsvert að undanförnu eftir
stöðnun undanfarinna ára þrátt fyrir
nánast óbreytt atvinnuleysi, skv.
vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar
og er áætlað að starfandi fólki á
vinnumarkaði hafi fjölgað úr um
137.200 í apríl á seinasta ári, í um
138.700 í nóvember 1994 og í
140.200 í apríl á þessu ári eða um
sem svarar 3.000 manns á einu ári,
skv. niðurstöðum könnunarinnar.
Þessi aukning er umfram fjölgun
þeirra sem bætast í hóp fólks á vinnu-
aldri á hveiju ári.
Að sögn Ómars Harðarsonar hjá
Hagstofunni er hér um marktæka
aukningu starfandi fólks að ræða en
skýringar á henni komi ekki fram í
könnuninni. Að sögn Ómars varð
vart við aukna atvinnuþátttöku í
seinustu könnun Hagstofunnar í nóv-
ember á seinasta ári og hún hefur
haldið áfram skv. könnuninni sem
gerð var í apríl. Hann taldi ósenni-
legt að skýringin fælist í áhrifum
kennaraverkfallsins en þá leituðu
skólanemar í einhveijum mæli út á
vinnumarkaðinn.
Skv. upplýsingum Gunnars Sig-
urðssonar forstöðumanns Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins, er ástæðu þessarar aukningar
ekki að leita í fjölgun útlendinga á
vinnumarkaði því engin teljandi
aukning útlendinga í störfum hér á
landi hafi átt sér stað frá gildistöku
EES-samningsins 1. janúar 1994.
Vinnumarkaðskönnun Hagstof-
unnar var gerð í apríl og leiðir í ljós
að hlutfall fólks á vinnumarkaði af
öllum svarendum í könnuninni er
82,6% sem jafngildir um 148.900
manns, og er það rúmlega einu pró-
sentustigi meiri atvinnuþátttaka en
í seinustu þremur könnunum Hag-
stofunnar í nóvember 1993 og í apríl
og nóvember 1994.