Morgunblaðið - 25.06.1995, Page 20

Morgunblaðið - 25.06.1995, Page 20
20 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ -4 y VIDSKDTIAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ► Guðni Tómasson er fæddur árið 1953 í Reykjavík. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi úr Menntaskólanum við Tjörnina, fór hann í Garðyrkjuskóla ríkisins og útskrifaðist þaðan árið 1980. Hann stundaði síðan nám í garðyrkjutækni við Vilvorde garðyrkjuskólann í Danmörku og lauk þaðan prófi árið 1982. Eftir að námi lauk vann hann við Garðyrkjuskólann eða allt þar til hann stofnaði eigið fyrirtæki. ► Björn Ágústsson er fæddur árið 1954 í Reykjavík. Eftir gagnfræðanám við Vogaskóla stundaði hann nám við Iðnskól- ann í Reykjavík. Hann fór síðan í Garðyrkjuskóla ríkisins og lauk þaðan prófi árið 1980. Eftir nám starfaði hann fyrst sem verkstjóri í garðyrkju iyá Reykjavíkurborg en hélt síðan utan til Norgs þar sem hann vann við skrúðgarðyrkju í Osló í tvö ár. Hann hafði verið með sjálfstæðan atvinnurekstur í eitt ár áður en hann stofnaði fyrirtækið Björn & Guðni sf. eftir Kristínu Marju Baldursdóttur Ú VAR öldin að íslending- ar byggðu vönduð hús og íburðarmikil en höfðu litl- ar áhyggjur af umhverf- inu í kringum þau. Stétt var hrófl- að niður þar sem umgangur var mestur, lóðin tyrfð til að halda mesta moldrykinu frá og gott þótti ef stöku tré var stungið niður. Fyrirtæki og stofnanir höfðu svip- aða stefnu í umhverfísmálum og létu oft mölina duga þegar að lóð- arfrágangi kom. En með tíðari ferðum íslendinga til útlanda breyttist viðhorf þeirra til umhverfisins, auk þess sem ungir menn komu að utan frá námi og störfum með nýjar hug- myndir og kunnáttu í skrúðgarð- yrkju. Tveir þeirra, Bjöm Ágústsson og Guðni Tómasson, stofnuðu fyrirtæki sitt Bjöm & Guðni fyrir tíu áram og má nú sjá handbragð þeirra í miðbæ Reykjavíkur og víðar. Gott handverk Bjöm og Guðni sjá um garð- yrkjustörf bæði fyrir einstaklinga og stofnanir og sjá um lóðarfram- kvæmdir og umhirðu á lóðum. Þeir leggja hellur, hlaða og reisa gijótgarða, girða og planta. Verk- þekking og hefðbundið handbragð hefur einkennt vinnu þeirra og það er eflaust ástæðan fyrir því að þeim hafa verið falin verkefni sem eiga að standast tímans tönn og vera sem flestum til augnayndis. „Við eigum nú orðið þó nokkuð í miðbænum," segir Bjöm, og það era orð að sönnu því að þeir félag- ar sáu um meðal annars um frá- gang á umhverfi Ráðhússins í Reykjavík og Tjamarbakkanna, Ingólfstorgi og gerðu endurbætur á umhverfi Hljómskálagarðsins. Handbragð þeirra má einnig sjá í Húsdýragarðinum þar sem þeir sáu um hleðslur, lagnir og lóð- arfrágang, og í Viðey, þar sem þeir fegraðu umhverfíð í kringum Viðeyjarstofu. En þeir hafa komið víðar við en í Reykjavík, og til dæmis hellulögðu þeir alla Strand- götuna í Hafnarfirði. Ein nýjasta skrautfjöðrin er Fornilundur, sýningarsvæði BM Vallá, þar sem handbragð þeirra í hellulögn og steinsmíði nýtur sín einkar vel. - Getur verið að listrænir hæfí- leikar hafi átt einhvem þátt í því að þið fenguð þessi stóra verkefni? „Við höfum nú ekkert verið að flíka þeim!“ segja þeir félagar, hvor öðram rólegri. „Verkin hafa öll verið unnin í útboðum, og við höfum fengið mesta auglýsingu út á handverkið og góðar lausnir. Við leggjum mikið upp úr góðu handverki og eyðum tíma í frá- gang og smáatriði, þótt sú vinna skili sér nú kannski ekki alltaf í budduna. En við vonum að verkin tali.“ Þótt þeir láti ekki mikið yfir list- inni hefur hún þó aðeins komið við sögu, því að Norræna mynd- listarbandalagið leitaði til þeirra og bað þá um að sjá um fram- kvæmdir við torflistaverkið „Hola á himinbotni“ eftir Gunilla Bandol- in, sem nú stendur við Norræna húsið. Innblástur frá útlöndum Fyrstu níu árin var fyrirtækið með starfsemi sína í húsnæði við Kaplahraun í Hafnarfírði. „Hús- næðið þar var orðið of lítið og þegar okkur bauðst lóðin hér við Hestháls í Reykjavík, sem okkur leist mjög vel á, fluttum við starf- semi okkar hingað. Við erum núna í 320 fermetra iðnaðarhúsnæði, sem við erum raunar enn að byggja upp.“ I húsnæðinu við Hestháls eru nú vélageymsla, vélaverkstæði og skrifstofa. Vinnan er árstíðabund- in og því vinna um 10 manns hjá fyrirtækinu allt árið um kring, en um 30 manns yfír sumartímann. Tveir garðyrkjumenn er starfandi hjá Birni & Guðna og þrír lærling- ar, auk fagmanna á verkstæði og annarra starfsmanna. Samtals hafa tólf lærlingar verið í verkn- ámi hjá þeim og lokið prófí. „Það er ekki síst góðum starfsmönnum að þakka að reksturinn gengur vel,“ segja þeir. - En hvert er upphafið að sam- vinnu ykkar? „Við kynntumst á Garðyrkju- skólanum og byrjuðum þar að spjalla saman um framtíðina. Við strákamir ætluðum jú allir að verða stórir í faginu og stofna fyrirtæki!" segir Guðni. „Við komum síðan með inn- blástur frá útlöndum og ákváðum að stofna fyrirtækið Björn & Guðni. Það má nú kannski segja að nafn fyrirtækisins sé ekki mjög framlegt og að það auglýsi starf- semina ekki mikið. Við voram lengi að þreifa fyrir okkur með nafn sem hefði í sér orðið garð eða lóð, og bróðir minn sem reyndi að vera mjög hugmyndaríkur kom með nafnið lóðarí. Við vorum nú kannski ekki alveg nógu ánægðir með það.“ „Nei, það hefði verið dálítið neyðarlegt að borga reikninga fyr- irtækis á því nafni,“ segir Bjöm, „svo við enduðum með þetta ágæt- is nafn, Björn & Guðni.“ „Það vilja nú oft verða árekstr- ar þegar margir eru að stjórna, en samvinna okkar hefur verið með miklum ágætum og rekstur- j inn verið auðveldari af því að við I erum tveir með hann,“ segir Guðni. „Við fóram rólega af stað í byijun, en keyptum vélar strax og það gerði gæfumuninn. Áður vora hjólbörur að mestu við skrúð- garðyrkju en nú, era komnar smá- vélar sem auðvelda mönnum fram- kvæmdir. Við gátum því fljótlega i tekið að okkur þessi stærri verk- efni.“ Björn segir að upphaflega hafi *| starfsmenn verið þrír til fjórir. „En þótt okkur hafi fjölgað eins og raun ber vitni, höfum við Guðni alltaf verið einir af vinnumönnun- um.“ Steinsmíði á veturna „Við byijuðum á að vinna við frágang á einbýlishúsalóðum og höfum unnið margar erfiðar og í flóknar lóðir,“ segja þeir Björn og i Guðni. „Síðan höfum við tekið ' jöfnum höndum verk fyrir ein-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.