Morgunblaðið - 30.06.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995 21
Daufir tónleikar
TÓNLIST
Lislasafn Sigurjðns
DÖNSK OG RÚSSNESK
TÓNLIST
Gestir: Nanna Kagan og Sigrún Vibe
Skovmand, með aðstoð Hlifar Sigur-
jónsdóttur, fluttu danska og rússn-
eska tónlist i Listasafni Sigurjóns
Olafssonar, þriðjudaginn 17. júní,
1995.
í EINA tíð var dönsk tónlist í
miklum metum hér á landi og tón-
skáld eins Kuhlau, aðallega kunnur
fyrir píanósónötur og ieikhústónlist,
og Bergreen, fyrir sálma og alþýð-
leg sönglög. Minna fór fyrir því að
leikin væru stærri verk eftir þessa
mætu menn en t.d. Kuhlau samdi
kammerverk og konserta er á sinni
tíð nutu vinsælda og nú er aftur
farið að flytja á tónleikum. Tónleik-
arnir hófust á tríói, fyrir flautu,
fiðlu og píanó, op 119, eftir Ku-
hlau. Þetta verk er í sama stíl og
píanósónötur hans, stílhreint og
leikandi liðugt og var að mörgu
leyti ágætlega flutt þrátt fyrir smá
slys í píanóinu. Einhvern veginn
fannst að Hlíf átti ekki beint sam-
leið með gestunum, sem eru rétt
svona þokkalegir hljóðfæraleikarar.
Flautuleikarinn, Nanna Kagan,
ásamt píanóleikaranum Sigrun
Vibe Skovmand fluttu síðan tvö
verk fyrir flautu og píanó, Fantasíu
um norskt þjóðlag eftir Bergreen
og Sónötu eftir Johannes Frederik
Fröhlich (1806-1960). Bergreen
þarf ekki að kynna. Fröhlick var
af þýskum ættum kominn, eins og
Kuhlau, en starfaði mikið við leik-
hús í Kaupmannhöfn. Hann stund-
aði tónsmíðanám hjá Spohr og
dvaldi einnig í París og Róm. Flest
stærri hljóðfæraverkin mun hann
hafa samið á þessum árum og er
sónatan t.d. samin 1829.
Bæði þessu verk voru þokkalega
leikin en hvorugt verkanna gefur
tilefni til mikilla átaka. Tónleikun-
um lauk með nokkrum smáverkum
fyrir fiðlu, flautu og píanó, eftir
César Cui, sem eins og fyrri verk
voru þokkalega leikin, en aftur var
Hlíf í öðrum flokki en gestirnir. Það
verður að segjast eins og er, að
hvorugur gestanna á þessum tón-
leikum getur talist í flokki einleik-
ara og trúlega eru þetta einhveijir
daufustu tónleikar, bæði er varðar
viðfangsefni og flutning, sem
haldnir hafa verið á vegum Lista-
safns Siguijóns Ólafssonar, þó að
allt hafi verið vel æft og snyrtilega
framfært. Jón Ásgeirsson
LISTIR
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
UNGLINGASTÓRSVEIT frá Færeyjum, Tórshavner Stórband, setur Jasshátíðina á Egilsstöðum.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Jasshátíð á Egilsstöðum er haf-
in í áttunda sinn. Unglingastór-
sveit frá Færeyjum, Tórshavner
Stórband, spilaði við opnun og
stjórnandi hennar er Eiríkur
Skala. Ennfremur söng Arnís
jasskórinn við opnunina en Árni
Isleifs jazzkóngur er stjórnandi
hans. Á föstudag mun finnski
fiðlusnillingurinn Finn Ziegler
koma fram ásamt íslenskum
Jasshátíð á
Egilsstöðum
um helgina
undirleikurum og Ragnar
Bjarnason og Ellý Vilhjálms
munu syngja með Stórsveit
Reykjavíkur á laugardag. Á
sunnudag munu Dixieland-
hljómsveit Björns R. Einarsson-
ar og Djassband Hornafjarðar
ásamt Ragnheiði Sigjónsdóttur
söngkonu koma fram. Hátíðinni
er slitið á sunnudagskvöldi.
Kynnir Jasshátíðarinnar á Eg-
ilsstöðum er Vernharður Lin-
net. .
Morgunblaðið/Golli
KAMMERKÓR Langholtskirkju heldur tónleika í kirkjunni á
sunnudagskvöld
Kammerkór Langholts-
kirkju fer til Riga
Léttleiki
BÓKMENNTIR
Ljóð
HVÍTUR HIMINN
ÚRGLUGGA
eftir Ara Gísla Bragason. Bóka-
varðan 1995. Verð 1.890 krónur.
LJÓÐABÆKUR Ara
Gísla eru ekki miklar
að vöxtum hveiju sinni.
En þeir sem þekkja vel
ljóðin hans bíða þeirra
alltaf með nokkurri for-
vitni.
Þau lýsa hljóðlega í
myrka kima mannlífs
um leið og ekki slokkn-
ar á því sem rafmagnar
atburði daganna. Oft
er stutt í léttleikann,
þótt satíran sé á næstu
grösum. Hins vegar eru
sum ljóð Ara Gísla svo
hárfínt ofin að glögg
er náin snerting við það
er fegurst leynist í
mannlífinu.
Manstu
Manstu þegar við sátum þú og ég
ástin á ströndinni þú last
og satíra
ljóðaljóðin og ég lá í örmum þínum
það runnu tár niður
kinnar okkar
Lengsta ljóðið í þessari bók er:
Frambjóðandi á ferð og flugi. Þar
er skáldið ekki í essinu sínu og virð-
ist tæplega hafa lagt neina rækt
við að fága ljóðið.
Nokkur eldri ljóð eru í bókinni
og hjálpa þau til að staðfæra færni
skáldsins í túlkun.
Ljóst ei' að enn njóta
hæfileikar skáldsins
sín ekki til fulls. Af
hveiju hleypir það
ekki af stokkum á
skáldfáknum?
Við
Dagarnir líða
og við bömin
á róluvellinum
erum alltaf
á leiðinni heim.
Hvað sem öðru líður
er alltaf fengur í nýj-
um ljóðum Ara Gísla
og ástæða til að hvetja
hann rösklega.
Bókin er fallega útgefin - en því
miður setur prentviilupúkinn þijú
„strik í reikninginn".
Jenna Jensdóttir
KAMMERKÓR Langholtskirkju
undir stjórn Jóns Stefánssonar tek-
ur þátt í kóramóti í Riga í Lett-
landi dagana 12-16 júlí næstkom-
andi. Mót þetta kallast „Nordisk-
Baltisk KörfestivaT' og taka þátt í
því kórar frá öllum Norðurlöndun-
um auk kóra frá Eistlandi, Lett-
landi og Litháen, samtals um 6.700
manns. Einn kór frá hveiju landi
verður sérstakur gestur mótsins.
Kammerkór Langholtskirkju
vei'ður fulltrúi íslands og mun
syngja á opnunarhátíðinni, koma
I fram á tvennum tónleikum og taka
þátt í lokatónleikunum þar sem all-
ir þátttökukórar syngja á stórum
íþróttaleikvangi við undirleik sex
lúðrasveita. Auk þess verður Jón
Stefánsson með fyrirlestur um ís-
lenska kórtónlist, þar sem kórinn
flytur tóndæmi.
Tónleikar á
sunnudagskvöld
Kórinn mun halda tónleika í
Langholtskirkju næstkomandi
sunnudagskvöld kl. 21 og flytja
hluta af efnisskrá sinni. Aðgangur
er ókeypis.
Þjóðlög o g
vísur í Nor-
ræna húsinu
DANSKI KÓRINN Vocalerne heldur
tónleika í Norræna húsinu á sunnu-
dag kl. 19. Á efnisskránni verða þjóð-
lög og vísur frá Norðurlöndunum.
Kórstjórinn Mogens Helmer Petersen
hefur meðal annars sérstaklega úsett
„Á sprengisandi" og „Vísur Vatns-
enda-Rósu“ í tilefni Islandsferðar
þeirra.
Vocalerne er 16 manna kór og var
stofnaður 1988. Kórinn hefur tekist
á við verkefni af ýmsum toga og
hefur lagt áherslu á fjölbreytta efnis-
skrá.
Kórinn mun m.a. halda tónleika í
Glerárkirkju á Akureyri í dag, föstu-
dag kl. 20.30, og í Hallgrímskirkju
á þriðjudag kl. 20.30.
Tónleikarnir í Norræna húsinu eru
öllum opnir og aðgangur er ókeypis.
------------*■-+—*-----
• SÝNINGU Þorra Hringssonar í
Gallerí Greip lýkur nú á sunnu-
dag. Á sýningunni eru málverk
og teikningar frá árunum 1990-
1995.
Gallerí Greip er til húsa að
Hverfisgötu 82, Vitastígsmegin,
og er opið daglega frá ki. 14-18,
nema mánudaga.
Aðgangur er ókeypis.
Kraftaverk í Vín
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn
JÓNSMESSUNÓTT (BE-
FORE SUNRISE) ★ ★ ★
Leikstjóri Richard Linklater.
Handritshöfundar Kim Krizan og
Richard Linklater. Aðalleikendur
Ethan Hawke, Julie Delpy. Banda-
rísk. Castle Rock 1995.
EFTIR heldur dapurt kvikmynda-
sumar (með heiðarlegum undan-
tekningum) stingur óvænt upp
kollinum lítil perla, smámynd sem
gengur í flesta staði óvenju vel upp
og hittir mann beint í hjartað.
Persónurnar eru aðeins tvær. Ung-
ur Bandaríkjamaður, Jesse (Ethan
Hawke), sem kynnist Celine (Julie
Delphy) fagurri, franskri stúlku,
af tilviljun á lestarferðalagi. Þau
hrífast hvort af öðru og það verður
úr að hún deilir síðustu nótt Jesse
í Evrópu með honurn í Vínarborg
í stað þess að halda áfram til París-
ar. Óg ástin og rómantíkin
blómstra.
Þetta er semsagt mynd um æsk-
una og ástina. Hvað það er gaman
að vera ungur og ástfanginn og
Richard Linklater (Dazed and Con-
fused) nær að fanga sitthvað af
þessum töfrum á filmuna og það
er hreint ekki svo lítið afrek. Til
fulltingis nýtur hann góðra leikara
í óvenju krefjandi hlutverkum þar
sem þau eru í mynd frá upphafi
til enda þar sem aðrar rullur eru
rétt til uppfyllingar. Delpy, hin
fagra og hæfileikaríka, franska
leikkona sem var svo minnistæð í
Hvítum og gerði það sem hún gat
fyrir Voyager, hina mislukkuðu
mynd Schlöndorffs, er ómótstæði-
Ieg í hlutverki Parísarstúlkunnar
og Ethan Hawke hefur ekki gert
betur síðan í Bekkjarfélaginu. Þau
eru bæði trúverðug og heillandi
og gera gæfumuninn. Handritið
er af óvenju góðum toga, skynsam-
legt, skemmtilegt, hér koma upp
margir fletir á fyrstu kynnum og
hrifningu tveggja persóna, við-
kvæmu og vandmeðförnu efni sem
oftar en ekki vei'ður að einhverju
leyti væmninni að bráð. Svo er
ekki hér. Jónsmessunótt er vissu-
lega hæggeng á köflum og fjári
málglöð en Richard Linklater og
allt hans ágæta fólk hafa gert
smávegis kraftaverk í Vín og náð
að endurspegla kærustu stundir
mannlífsins. Þetta er mynd sem í
einlægni sinni og lágstemmdri feg-
urð á erindi til allra aldursflokka.
Ekki aldeiíis ónýt þeim sem eru
blessunarlega ungir og ástfangnir,
eða þeim eldri til upprifjunnar
þessara töfratíma þegar „eldur
logaði á hverjum fingri".
Sæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Fjórir sembalar í Skálholti
Selfossi. Morgunblaðið.
Á 20 ára afmælishátíð sumar-
tónleikanna í Skálholti á langar-
dag mun Bachsveitin leika á
fj’óra sembala sem komið hefur
verið fyrir i kirkjunni. Myndin
var tekin á æfingu sveitarinnar
á þriðjudag en þá lék sveitin
fyrir Iióp norrænna ferðamanna
sem. áttu leið um Skálholtshlöð-
in. Á myndinni eru þær Málfríð-
ur Konráðsdóttir, EIín Guð-
mundsdóttir, Guðrún Óskars-
dóttir og Helga Ingólfsdóttir
semballeikarar.