Morgunblaðið - 22.07.1995, Blaðsíða 27
26 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995 27
+
jMtanpmÞIafeifr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AÐ FYRIRBYGGJA
GREIÐSLUVANDA
SAMRÁÐSNEFND félagsmálaráðuneytisins um greiðslu-
vanda heimilanna hefur nú skilað áfangaskýrslu með
tillögum til úrbóta. Af skýrslunni er ljóst að vandinn er
umtalsverður. í byijun ársins voru á átjánda þúsund lántak-
enda í húsnæðiskerfinu í vanskilum með rúmlega tvo millj-
arða króna.
Það er að sjálfsögðu brýnt að taka á vanda þessa hóps
og eru tillögur nefndarinnar um greiðsluaðlögun allrar at-
hygli verðar. Sú aðferð er án efa bezt til þess fallin að lána-
stofnanir fái sitt og skuldarar geti jafnframt komizt á réttan
kjöl. En fólk verður að sjálfsögðu að taka afleiðingum gerða
sinna í eigin fjármálum. Brýnt er þó að úrræðin, sem hægt
er að grípa til, séu sveigjanleg þannig að hægt sé að aðstoða
fólk að bregðast við óviðráðanlegum tekjubresti, til dæmis
vegna veikinda eða atvinnumissis.
Það verður að ráðast að rótum greiðsluvandans, þannig
að hægt sé að fyrirbyggja að húsnæðiskaupendur lendi í
vanskilum. Til lengri tíma litið hljóta almennar kjarabætur
og bætt atvinnuástand auðvitað að vera markmiðið. Hins
vegar er það ekki einvörðungu láglaunafólk eða atvinnu-
laust, sem lendir í greiðsluerfiðleikum. Fjölmörg dæmi sýna
að fólk með meðal- eða háar tekjur á í erfiðleikum með að
greiða af lánum vegna húsnæðiskaupa.
í mörgum tilfellum er hluti skýringarinnar að skattkerfis-
breytingar undanfarinna ára hafa komið illa niður á millitekju-
fólki og kollvarpað áætlunum þess, sem lágu til grundvallar
húsnæðiskaupum. Hækkun ýmissa skatta og tekjutenging
barna- og vaxtabóta og námslánagreiðslna veldur því að
ungar, barnmargar fjöiskyldur eiga erfitt með að vinna sig
út úr skuldavandanum. Jaðarskatturinn á aukatekjur er orð-
inn alltof hár — hið almenna skatthlutfall er nógu hátt.
Skattkerfisbreyting er því sjálfsagður hluti af aðgerðum
til að greiða úr erfiðleikum húsnæðiskaupenda og mætti hún
gjarnan eiga sér stað mun fyrr en kveðið er á um í málefna-
samningi ríkisstjórnarflokkanna.
Tillögur nefndar félagsmálaráðuneytisins um fyrirbyggj-
andi aðgerðir í formi aukinnar fræðslu og upplýsingagjafar
um fjármál eru mikilvægt framlag til lausnar á vandanum.
Stuðla þarf að aukinni ábyrgðartilfinningu þeirra, sem tak-
ast fjárskuldbindingar á herðar, og gera fólki grein fyrir
afleiðingum þess, ef eitthvað fer úrskeiðis.
VANTAR KJÖLFESTU
HJÁ LYFJAVERZLUN?
NOKKRIR stórir fjárfestar hafa sýnt áhuga á að káupa
hlutabréf í Lyfjaverzlun ríkisins, sem nýlega var seld
úr ríkiseigu til um 1.600 hluthafa. Fyrir hönd þessara fjár-
festa hafa Landsbréf hf. gert hluthöfum tilboð í bréf þeirra
á genginu 1,65.
Það er að sjálfsögðu ekkert athugavert við að fjárfestar
sækist eftir hlut í arðvænlegu fyrirtæki og að þeir, sem keyptu
bréf er fyrirtækið var einkavætt, hagnist á sölu þeirra nú.
Hins vegar má deila um röksemdafærsluna fyrir því að hinir
stóru fjárfestar segjast vilja hlut í fyrirtækinu. Af hálfu
Landsbréfa hefur komið fram að fjárfestarnir vilji ljá Lyfja-
verzlun Islands „kjölfestu" og stefnu.
Eins og málið hefur verið sett fram, er eins og Landsbréf
og skjólstæðingar fyrirtækisins telji að vegna hinnar dreifðu
eignaraðildar skorti kjölfestu og stefnu í rekstri Lyfjaverzlun-
arinnar. Þannig þarf hins vegar ekki að hátta til í almennings-
hlutafélögum. Þau kjósa sér að sjálfsögðu stjórnendur, sem
bera ábyrgð gagnvart hluthöfunum. Á aðalfundi Lyfjaverzlun-
arinnar urðu átök um stjórnarkjör og meirihluti myndaðist,
sem veitti núverandi stjórnarmönnum brautargengi. Aðal-
fundurinn sýndi jafnframt að hluthöfunum er mikið í mun
að vel sé haldið á fé þeirra við stjórn fyrirtækisins og stjórn-
endurnir hafa þar af leiðandi aðhald. Er það ekki nægileg
kjölfesta fyrir fyrirtækið?
Er ráðizt var í einkavæðingu Lyfjaverzlunar ríkisins var
markmiðið það að dreifa eignaraðildinni. Reynslan frá öðrum
ríkjum hefur sýnt að það hefur haft góð áhrif á ungan hluta-
bréfamarkað að hafa þennan háttinn á — að gera sem flesta
að hluthöfum í fyrirtækjum. Dreifð eignaraðild hefur víðast
gefizt vel, þótt oft hafi verið talið til bóta að nokkrir aðilar
ættu stærri-hlut.
'Aðalatriðið í þessu samhengi er það að sú aðferð, að dreifa
eignaraðild við einkavæðingu ríkisfyrirtækja, fái að sanna
sig, án þess að stórir fjárfestar gleypi fyrirtækin til að veita
þeim „kjölfestu".
ÖRYGGIS- OG VARIMARMÁL
_ 3j ÍBIDDO
ORION kafbátaeftirlitsflugvél sem getur borið kjarnorkuvopn. Starfsmenn Center for Defence Information í Bandaríkjunum töldu árið 1980
að tilvist þessara flugvéla í Keflavíkurstöðinni benti til þess að kjarnorkuvopn kynnu að vera á Islandi.
Deilumar um
kjarnavopn á Islandi
ÓLAFUR Jóhannesson utanríkisráðherra kynnir yfirlýsingu Bandaríkjastjórnar, um að kjarnorkuvopn
verði ekki flutt til íslands nema með samþykki íslendinga, á fréttamannafundi 11. ágúst árið 1980.
Margsinnis hefur komið
til umræðna og deilna á
íslandi á undanförnum
áratugum um það, hvort
kjarnorkuvopn hafí verið
geymd í Keflavíkurstöð-
— —
inni. I samantekt Omars
Friðrikssonar kemur
fram að íslenskir utan-
ríkisráðherrar hafa hver
á fætur öðrum lýst þeirri
stefnu stjórnvalda á
hveijum tíma að óheimilt
sé að flytja kjarnavopn
til landsins.
UMRÆÐA um hvort brotið
hafi verið gegn yfirlýs-
ingum íslenskra og
bandarískra stjórnvalda
um að kjarnorkuvopn sé ekki að
finna í herstöðinni á Keflavíkurflug-
velli hafa enn á ný komið upp hér á
landi í kjölfar upplýsinga um að
Bandaríkjamenn hafi geymt kjarna-
vopn í herstöðinni í Thule á Græn-
landi. Það hefur verið skýr stefna
allra íslensku stjórnmálaflokkanna á
undanförnum rúmlega 40 árum að
hér á landi skuli ekki vera kjarnorku-
vopn. Það hefur jafnframt verið
skoðun stjórnvalda á undanförnum
áratugum að túlka bæri 3. grein
varnarsamnings íslands og Banda-
ríkjanna á þann hátt, að ekki mætti
geyma kjarnorkuvopn á íslandi án
heimildar íslenskra stjórnvalda.
Greinin er svohljóðandi: „Það skal
vera háð samþykki íslands, hverrar
þjóðar menn eru í varnarliðinu, svo
og með hveijum hætti það tekur við
og hagnýtir þá aðstöðu á íslandi, sem
veitt er með samningi þessum.“
í ritinu ísland, Atlantshafsbanda-
lagið og Keflavíkurstöðin, sem Ör-
yggismálanefnd gaf út 1989, eftir
Albert Jónsson, deildarstjóra í for-
sætisráðuneytinu, en hann var þá
starfsmaður nefndarinnar, er m.a.
Ijallað um hugsanlega staðsetningu
kjarnorkuvopna á íslandi. „Banda-
ríkjamenn vilja samkvæmt grund-
vallarreglu sem á við öll kjarnorku-
vopn Bandaríkjaflota (og breska og
franska flotans) hvorki játa né neita
hvort þeir mundu vilja hafa kjarn-
orkudjúpsprengjur fyrir gagnkaf-
bátavélar í Keflavíkurstöðinni á
hættutíma. Þeir hafa hins vegar lýst
yfir að varnarsamningurinn eigi við
kjarnorkuvopn eins og önnur vopn
og að samkvæmt því yrðu kjarnorku-
vopn ekki send tíl íslands nema að
fengnu samþykki íslenskra stjóm-
valda,“ segir í riti Albeits (bls. 88).
Bréfaskipti Hermanns
Jónassonar og Bulganins
í svörum Bandaríkjastjórnar hefur
einnig verið vísað til þess, að stefna
Bandaríkjanna sé í samræmi við
ákvörðun, sem tekin var á leiðtoga-
fundi Atlantshafsbandalagsins í Par-
ís í desember 1957, þess efnis að
kjarnorkuvopnum verði ekki komið
fyrir í neinu Evrópuríki, nema með
samþykki þeirra ríkja sem hlut eiga
að máli. Hermann Jónasson, þáver-
andi forsætisráðherra, sótti þennan
fund Atlantshafsbandalagsríkjanna.
í byrjun janúar 1958 sendi Bulg-
anin, þáverandi forsætisráðherra
Sovétríkjanna, leiðtogum Atlants-
hafsbandalagsríkjanna bréf, þar sem
hann óskaði eftir ríkjaráðstefnu til
að draga úr viðsjám á alþjóðavett-
vangi. I bréfi sínu til Hermanns Jón-
assonar sagði Bulganin að stjórnvöld
Sovétríkjanna væru tilbúin að styðja
tillögur um að veita íslandi öryggi í
formi „tryggðs hlutleysis". Varaði
Bulganin við þeirri miklu hættu sem
væri samfara því að komið verði upp
birgðum kjarnavopna í NATO-ríkj-
um og sagði að sá möguleiki að stað-
sett yrðu kjarnorkuvopn í herstöðinni
á íslandi væri alls ekki útilokaður.
„Enda þótt íslenska ríkisstjórnin
hafi ekki gefið neina skýra yfirlýs-
ingu í þessu efni, þá er þess að
gæta að yfirlýsingar hafa heldur
ekki verið gefnar um það, að ísland
muni hafna staðsetningu erlendra
kjarnvopna og eldflauga," sagði í
bréfi Bulganins.
í svarbréfi sínu sagði Hermann
Jónasson að öi’yggi íslands væri best
tryggt með þátttöku í samstarfí
NATO-ríkjanna. Um staðsetningu
kjarnavopna sagði í svari Hermanns
að það væri óbreytt stefna Islands
að hér verði ekki leyfðar stöðvar
fyrir önnur vopn en þau, sem íslend-
ingar telji nauðsynleg landi sínu til
varnar. „Um kjarnorku- eða eld-
flaugastöðvar á íslandi hefur aldrei
verið rætt og engin ósk komið fram
um slíkt,“ sagði í svari Hermanns
Jónassonar.
í október árið 1962 ítrekaði þáver-
andi utanríkisráðherra, Guðmundur
í. Guðmundsson, að kjarnorkuvopn
yrðu ekki leyfð á íslandi, en tilefni
ummælanna voru umræður á Alþingi
vegna komu orrustuþotna af gerð-
inni F-102A, sem gátu borið kjarn-
orkuvopn, til Keflavíkurflugvallar.
B-52 sprengjuflugvél hrapar
með kjarnavopn við Thule
Talsverðar umræður urðu í byijun
árs 1968 um kjarnorkuvopn á ís-
landi í tilefni af því að 21. janúar
það ár fórst bandarísk sprengjuflug-
vél af gerðinni B-52 með kjarnorku-
vopn innanborðs á ísnum í North
Star-flóa, um 11 km frá Thule á
Grænlandi. Af því tilefni átti Morg-
unblaðiö viðtal við Stone aðmírál,
yfirmann varnarliðsins í Keflavík,
sem tók fram að samkvæmt samn-
ingi Bandaríkjanna og íslands væru
engin kjarnorkuvopn hér á landi og
flugvélar búnar slíkum vopnum
hefðu ekki heimild til að athafna sig
hér.
23. janúar kvaddi Magnús Kjart-
ansson, þingmaður Alþýðubanda-
lags, sér hljóðs utan dagskrár á Al-
þingi vegna atburðarins í Græn-
landi. Vakti hann athygli á því að
samkomulag hefði verið milli Dana
og Bandaríkjamanna að þeir síðar-
nefndu hefðu ekki heimild til að
fljúga yfir danskt yfirráðasvæði með
kjarnorkuvopn, en eigi að síður kæmi
það nú berlega fram, að þetta sam-
komulag hefði verið rofið. Sagði
Magnús nauðsynlegt fyrir Islendinga
að vera vel á verði og ítreka samn-
ingsákvæði við Bandaríkjamenn og
sjá um að þeir stæðu við skuldbind-
ingar sínar um bann við flugi með
kjarnorkuvopn yfir Islandi. I sama
steng tók Þórarinn Þórarinsson,
Framsóknarflokki, sem sagði að allt
benti til að þessi atburður hefði eins
getað gerst hérlendis.
Emil Jónsson, þáverandi utanrík-
isráðherra, upplýsti við umræðurnar,
að milli íslendinga og Bandaríkja-
manna væri fullt samkomulag um
að hérlendis yrðu ekki staðsett kjarn-
orkuvopn og flugvélar fermdar
kjarnorkusprengjum fengju ekki að
fljúga yfir landinu né lenda hér.
Hann sagði enga ástæðu til að ætla
að þetta samkomulag hefði verið
rofið, en atvikið í Grænlandi gæfi
tilefni til að ítreka það við Banda-
ríkjamenn að samningurinn verði
fullkomlega haldinn.
„Flugvélar búnar djúp-
sprengjum með kjarnaoddi"
í febrúar árið 1975 birtist grein
í ritinu The Defense Monitor eftir
mann að nafni Barry Schneider,
starfsmann stofnunarinnar Center
for Defence Information í Washing-
ton, þar sem þvf var m.a. haldið fram
að flugvélar varnarliðsins í Keflavík
væru búnar djúpsprengjum með
kjarnaoddi, og í framhaldi af því
hófust frekari blaðaskrif erlendra
manna í sérfræðiritum um kjarn-
orkuvopn um málið. Vöktu þessar
greinar umræður og blaðaskrif á
Islandi og 27. janúar 1976 kom
málið upp á Alþingi þegar Gils Guð-
mundsson, Alþýðubandalagi, kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár og spurði
hvaða sannanir íslenskir ráðamenn
hefðu fyrir því, að hér væru ekki
geymd kjarnorkuvopn.
Vitnaði Gils m.a. í viðtal Dag-
blaðsins við Barry Sehneider, þar
sem haft var eftir honum að Lockhe-
ad Orion-vélar bandaríska flotans á
Keflavíkurflugvelli væru að öllum
líkindum búnar djúpsprengjum með
kjarnaoddi. Orðrétt hafi blaðið eftir
Schneider: „Upplýsingar mínar eru
byggðar á viðtölum við þingmenn á
bandaríska þinginu sem aðgang hafa
að leyniskjölum um þessi mál. Ég
vann að gerð þessarar greinar í 6
mánuði á árinu 1974, og viðmælend-
ur mínir höfðuðu til skjala er voru
ýmist eins eða tveggja ára gömul.
Þegar ég var búinn að gera kort
yfir þá staði í heiminum, er ég taldi
líklega geymslustaði, sýndi ég mönn-
um hér í Washington, sem ég veit
að vita hvar kjarnorkuvopn okkar
eru geymd, kortið, og enginn þeirra
hreyfði mótmælum við Islandi."
Éinar Ágústsson, þáverandi utan-
ríkisráðherra, taldi röksemdarfærslu
Barry Schneiders ósannfærandi,
„enda er utanríkisráðuneytinu kunn-
ugt um að hér hafa aldrei verið
geymd kjarnorkuvopn, hvorki fyrr
né síðar, og satt að segja virðist mér
liggja nær að þeir, sem að þessum
fullyrðingum standa, sanni mál sitt
betur áður en þeir draga í efa rétt-
mætar upplýsingar íslenskra stjórn-
valda,“ sagði utanríkisráðherra.
„Ég vil enn fremur segja það, að
samkvæmt upplýsingum, sem ég hef
aflað mér frá Washington, er engin
þingskýrsla til um hvar Bandaríkja-
menn geyma kjarnorkuvopn sín. Þær
upplýsingar, sem umræddur greinar-
höfundur telur sig hafa frá banda-
rískum þingmönnum, hljóta því að
orka tvímælis, svo ekki sé meira
sagt um það,“ sagði Einar ennfrem-
ur.
Aldrei verið óskað leyfis til að
flytja kjarnavopn til íslands
Á áttunda og níunda áratugnum
áttu sér stað miklar umræður um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd og
voru nokkrum sinnum fluttar þings-
ályktunartillögur á Alþingi um að
sett yrði löggjöf sem banni kjarn-
orkuvopn á íslensku yfirráðasvæði.
Fóru umræður af þessu tilefni fram
á Alþingi 6. mars 1979, en þar vitn-
aði Svava Jakobsdóttir, þingmaður
Alþýðubandalagsins, í blaðaskrif er-
lendra manna sem hefðu fullyrt að
flugvélar Bandaríkjahers á Islandi
væru búnar kjarnorkusprengjum.
Sagði hún að viðbrögð yfirmanna
hersins og talsmanna Bandaríkja-
stjórnar við fyrirspurnum um þessi
mál á undangengnum árum hefðu
verið ófullnægjandi. Benedikt Grön-
dal, sem þá gegndi embætti utanrík-
isráðherra, benti á að niðurstaða
umræðna um þessi mál á undanförn-
um áratugum hefði ávallt orðið sú,
að utanríkisráðherrar, hverjir sem
þeir hefðu verið, hefðu fullyrt að
skv. varnarsamningnum, eins og
hann væri skilinn, hefðu Bandaríkja-
menn ekki leyfi til að flytja hingað
kjarnorkuvopn, þeir hefðu aldrei far-
ið fram á slíkt leyfi, það hefði aldrei
verið veitt og ekki væri ástæða til
að ætla að slík vopn hefðu verið eða
væru í landinu.
William Arkin
veldur fjaðrafoki
Deilur um hugsanlega staðsetn-
ingu kjarnavopna á Islandi náðu
hámarki sínu í fjölmiðlum og á Al-
þingi árið 1980. Hinn 20. maí það
ár átti Ríkisútvarpið viðtal við Will-
iam Arkin, starfsmann fyrrnefndrar
stofnunar, Center for Defence In-
formation, sem taldi allar líkur á að
kjarnorkuvopn væru geymd á Is-
landi. Benti Arkin m.a. á að I opin-
berum gögnum um Keflavíkurstöð-
ina væri vísað til handbókar sjóhers-
ins um kjarnorkuöryggismál, sem
væri í notkun í Keflavíkurstöðinni.
Kom til snarpra orðaskipta við
utandagskrárumræðu um málið á
Alþingi 22. maí. Þar sagði Eiður
Guðnason, Alþýðuflokki, að það væri
orðinn árviss viðburður hér á landi
að íslenskir kommúnistar þyrluðu
upp moldviðri áróðurs og blekkinga
og héldu því fram að geymd væru
kjarnorkuvopn á íslandi.
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðu-
bandalagi, sagðist ekki draga I efa
yfirlýsingar íslenskra utanríkisráð-
herra um þessi mál en teldi í ljósi
sögunnar fyllstu ástæðu til að draga
í efa að bandarísk stjórnvöld hefðu
sagt allan sannleikann. Ólafur Ragn-
ar sagði að komið hefði skýrt fram
í útvarpsviðtalinu við William Arkin
að hann teldi að kjarnorkuvopn væru
staðsett á íslandi. Tók Ólafur Ragn-
ar málið upp í utanríkismálanefnd
og fór fram á að aflað yrði ýmissa
upglýsinga um málið.
Ólafur Jóhannesson, þáverandi
utanríkisráðherra, sagðist ekki telja
nein líkindi til þess, að kjarnorku-
vopn væru á íslandi en lofaði að
afla allra fáanlegra gagna um málið.
Utanríkisráðuneytið sendi frá sér
yfirlýsingu í tilefni þessara umræðna
þar sem greint er frá því að banda-
rísk stjórnvöld hefðu upplýst að í
umræddri handbók sjóhersins væri
um að ræða almennar leiðbeiningar
sem föst venja væri að senda öllum
mikilvægum stöðvum á vegum flot-
ans um allan heim, óháð því hvort
þar væru geymd kjarnorkuvopn eða
ekki.
31. maí 1980 sendi Center for
Defence Information frá sér yfirlýs-
ingu um kjarnorkuvopnamál og ís-
land, þar sem stofnunin skýrir hvern-
ig hún hafi komist að þeirri niður-
stöðu, að ýmislegt benti til þess að
kjarnorkuvopn hefðu verið staðsett
á íslandi. Eru tilgreind ýmis atriði
sem styðji þetta, m.a. tilvist P-3C
Orion kafbátavarnaflugvéla á ís-
landi, sem hafi venjulega kjarnorku-
vopn til taks til nota á stríðstímum
og F-4 Phantom orrustuvéla, sem
teknar voru í notkun í Keflavíkur-
stöðinni 1973, sem stofnunin segir
að eigi venjulega kost á því að geta
notað kjarnorkueldflaugar, sem unnt
sé að skjóta á skotmörk á flugi.
„Ofangreint bendir til þess_, að kjarn-
orkuvopn kunni að vera á Islandi eða
að þau kunni að verða flutt til ís-
lands á hættu- eða stríðstímum,“
segir í yfirlýsingu stofnunarinnar.
Játa hvorkl né neita
11. ágúst 1980 lagði Ólafur Jó-
hannesson utanríkisráðherra fram
skriflega yfirlýsingu sem borist hafði
frá sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi, Richard A. Ericson, um þessi
mál. Svar Bandaríkjamanna var þrí-
þætt; í fyrsta lagi er tekið fram að
það hafi lengi verið stefna Bandaríkj-
anna að játa hvorki né neita tilvist
kjarnavopna nokkurs staðar. í öðru
lagi sé staðsetning kjarnorkuvopna
háð samþykki þeirra ríkja sem bein-
an hlut eigi að máli í samræmi við
ákvörðun leiðtogafundar NATO frá
árinu 1957 og í þriðja lagi sé þetta
í samræmi við 3. grein varnarsamn-
ings íslands og Bandaríkjanna um
að það sé háð samþykki íslands með
hvaða hætti varnarliðið hagnýti sér
aðstöðuna á íslandi sem veitt er með
samningnum.
„Ég vona, að þetta nægi öllum
þeim, sem ekki eru fyrirfram ákveðn-
ir að hafa þá trú, að hér muni leyn-
ast kjarnorkuvopn. Yfirlýsingin úti-
lokar algjörlega staðsetningu kjarn-
orkuvopna hér á landi, svo vel sem
unnt er að útiloka nokkuð,“ sagði
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra á fréttamannafundi sama dag.
Grein Barry Schneiders
undirrót umræðunnar
Samhliða þessum yfirlýsingum var
lögð fram greinargerð sem Öryggis-
málanefnd hafði unnið vegna um-
ræðu og skrifa um kjarnorkuvopn á
íslandi og var niðurstaða hennar sú,
skv. frásögn Morgunblaðsins, að all-
ar yfirlýsingar erlendra aðila um
kjarnorkuvopn í tengslum við ísland
ættu rætur að rekja til greinarinnar
sem Barry Schneider, starfsmaður
CDI, birti árið 1975. Frá því að sú
grein birtist virtist ekki hafa verið
um neinar sjálfstæðar athuganir á
þessu að ræða.
Fram kom í greinargerð Öryggis-
málanefndar að Gene La Rocque,
forstjóri CDI og Bertram Gorwitz,
aðstoðarforstjóri stofnunarinnar og
fyrrverandi hershöfðingi, hefðu í
samtölum við starfsmann Öryggis-
málanefndar tekið mun ákveðnari
afstöðu til spurningarinnar um hvort
kjarnorkuvopn væru á íslandi en
fram kæmi í yfirlýsingu CDI 31.
maí og haldið því beinlínis fram að
á íslandi væru staðsett kjarnorku-
vopn. Var meginröksemdin sú, að
það væri föst regla hjá bandaríska
flotanum að staðsetja vopnin þar sem
áætlað væri að nota þau. „Að vísu
sagðist La Rocque ekki vera alveg
100% öruggur vegna þess að flotinn
gæti auðveldlega flutt vopnin burtu
á mjög skömmum tíma og kynni að
hafa gert það nú þegar,“ segir í
greinargerðinni.
Einnig voru fræðimenn á sviði
öryggismála hjá Brookings Institute
og Congressional Research Seiwice
spurðir álits á því hvort tilvist hand-
bókar fyrir landgönguliða um örygg-
isgæslu kjarnorkuvopna á Keflavík-
urflugvelli sannaði að hér væru stað-
sett slík vopn. Voru þessir aðilar á
einu máli um að sennilega væri gert
ráð fyrir flutningi kjarnorkuvopna
til íslands á hættu- eða ófriðartímum
en töldu ólíklegt að hér væru stað-
sett slík vopn.
Arkin kemur aftur
til sögunnar
Þætti Williams Arkins í umræðu
um kjarnavopn á Islandi var þó ekki
lokið, en í byrjun desember árið 1984
kom Arkin til íslands í boði félagsvís-
indastofnunar Háskóla íslands.
Hann kvaðst nú hafa haft rangt fyr-
ir sér árið 1980 þegar hann hélt því
fram að kjarnorkuvopn væru geymd
á íslandi en sagðist hins vegar hafa
aflað upplýsinga um að kjarnorku-
vopn yrðu flutt til íslands á ófriðar-
tímum. Arkin gekk á fund Geirs
Hallgrímssonar, þáverandi utanríkis-
ráðherra, og aflienti honum afrit,
sem hann sagði vera af bandarískum
skjölum og sýndu að Gerald Ford,
þáverandi forseti Bandaríkjanna,
hefði veitt heimild, fjárlagaárið
1975, fyrir flutningi 48 kjarnorku-
djúpsprengja til Keflavíkurstöðvar-
innar í ófriði og ekki væri gert ráð
fyrir að leitað yrði samþykkis ís-
lenskra stjórnvalda. Kvaðst hann
hafa aflað þessara upplýsinga hjá
ónefndum bandarískum embættis-
manni. Fékkst listinn aldrei birtur
opinberlega. Síðar viðurkenndi Arkin
að framkvæmd þessarar heimildar
væri háð samþykki íslenskra stjórn-
valda.
Geir Hallgrímsson lýsti yfir af
þessu tilefni að það væri óbreytt
stefna íslands að hér yrðu ekki stað-
sett kjarnorkuvopn, hvorki á friðar-
né stríðstímum. Geir kvaðst, við ut-
andagskrárumræðu, sem fram fór
um málið á Alþingi, hafa krafið yfir-
mann bandaríska sendiráðsins hér
skýringa á málinu, þegar Arkin hefði
fært sér ljósrit af meintum gögnum
um þetta efni, en nauðsynlegt væri
að kanna áreiðanleika þessa plaggs,
m.a. í ljósi þess að fyrri fullyrðingar
sama aðila um kjarnorkuvopn hér á
landi hafi reynst rangar.
Hjörleifur Guttormsson, Alþýðu-
bandalagi, sem tók málið upp á Al-
þingi, sagði Arkin hafa flutt váleg
tíðindi. Þetta hefði gerst án vitundar
íslenskra stjórnvalda og gengi þvert
á yfirlýsingar sjö íslenskra utanríkis-
ráðherra um að kjarnorkuvopn yrðu
aldrei leyfð á íslandi. Taldi Hjörleifur
ástæðu til að Alþingi tæki af öll tví-
mæli í lögum um bann við kjarnorku-
vopnum hér á landi.
„Aðeins að fengnu samþykki
íslensku ríkisstjórnarinnar“
19. desember barst utanríkisráðu-
neytinu svar frá bandaríska sendi-
ráðinu vegna málsins. „Sérhver
heimild til Bandaríkjajiers til þess
að flytja kjarnavopn til íslands mundi
aðeins vera veitt að fengnu sam-
þykki íslensku ríkisstjórnarinnar,“
segir I bréfinu. Þar var ítrekað að
Bandaríkin hefðu í einu og öllu farið
eftir og muni halda áfram að fara
eftir ákvæðum varnarsamningsins.
við ísland og samþykkt NATO varð:
andi staðsetningu kjarnorkuvopna. í
fréttatilkynningu sem íslenska utan-
ríkisráðuneytið sendi frá sér segir
að skv. bréfi bandaríska sendiráðsins
sé ljóst að heimild til geymslu-kjarna-
vopna á íslandi á ófriðartímum hafi
ekki verið veitt. Geir Hallgrímsson
og Steingrímur Hermannsson, þá-
verandi forsætisráðherra, töldu svar
Bandaríkjastjórnar fullnægjandi, en
nokkrir þingmenn stjórnarandstöð-
unnar voru á öðru máli við utandag-
skrárumræður sem fram fóru á Al-
þingi 20. desember og vildu þeir láta
knýja á um fyllri svör.
13. febrúar 1985 birti bandaríska
dagblaðið The New York Times frétt
á forsíðu um að bandarísk stjórnvöld
hefðu látið gera áætlun um flutning
kjarnorkuvopna til Islands, Kanada,
Bermúda og Puerto Rico, ef sérstak-
ar aðstæður sköpuðust. Blaðið sagði
að flutningur vopnanna væri hins
vegar háður samþykki viðkomandi
ríkisstjórna. Fyrir þessu bar blaðið
ónafngreinda embættismenn og vitn-
aði þar að auki í leyndarskjal, sem
það sagði William Arkin, sérfræðing
um vígbúnaðarmál, hafa komið á
framfæri.
Kjarnorkuvopn hvorki á landi
né í íslenskri lögsögu
16. apríl 1985 lýsti Geir Hall-
grímsson því yfir, í svari við fyrir-
spurn á Alþingi, að það væri skýr
stefna ríkisstjórnarinnar að kjarn-
orkuvopn skuli ekki geymd á ís-
landi. Þetta næði einnig til skipa í
íslenskri lögsögu. Ferðir herskipa,
sem bæru kjarnavopn, væru óheimil-
ar um lögsöguna sem og koma þeirra
til íslenskra hafna. Vöktu þessi um-
mæli heimsathygli, skv. fréttafrá-
sögnum frá þeim tíma.
Alþingi samþykkti ályktun um
afvopnunarmál 23. maí 1985, þar
sem segir að Alþingi árétti þá stefnu
að á Islandi verði ekki staðsett kjarn-
orkuvopn. Var tillagan lögð fram af
fulltrúum allra flokka.
í áðurnefndu riti Alberts Jónsson-
ar frá 1989 byggir höfundurinn nið-
urstöður sínar m.a. á viðtölum við
foringja í Keflavíkurstöðinni og Atl-
antshafsherstjórninni. „í viðtölum
við fulltrúa bandarísku Atlantshafs-
herstjórnarinnar !:om fram að ekki
væri hægt að útiloka að beiðni um
að hafa kjarnorkuvopn i Keflavíkur-
stöðinni bærist á hættutíma, en það
væri ólíklegt nema upplýsingar bær-
ust um að sovéski flotinn hefði hafið
undirbúning fyrir notkun taktískra
kjarnorkuvopna ... Foringjar I Kefla-
víkurstöðinni töldu ■njög ólíklegt að
Bandaríkjastjórn mundi óska eftir
því á hættutíma að leyfi yrði veitt
til að hafa kjarnorkuvopn í stöðinni
og álitu enn ólíklegra að þeir mundu
fara fram á slíkt við yfirmenn sína
í Bandaríkjunum," segir í riti Al-
berts (bls. 88).