Morgunblaðið - 22.07.1995, Síða 37

Morgunblaðið - 22.07.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995 37 MINNINGAR MESSUR BJARNI ÓLAFSSON + Bjarni Ólafsson fæddist á Vind- ási í Kjós 1. janúar árið 1906. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands hinn 12. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ólafur Einarsson og Helga Bjarnadóttir. Bjarni var sjötti í röðinni af níu börn- um þeirra hjóna. Bjarni festi kaup á jörðinni Króki í Hraungerðishreppi árið 1943 og bjó þar með eiginkonu sinni Guðríði Þórðardóttur frá Eilífsdal í Kjós. Þau fluttu til Selfoss árið 1993. Börn þeirra eru Harald- ur, f. 1942, og Ólafur, f. 1946. Ólafur er kvæntur Brynhildi Önnu Ragnarsdóttur og eiga þau tvo syni. Utför Bjarna fer fram frá Selfosskirlqu í dag og hefst athöfnin kl. 14. VIÐ bræðurnir viljum í örfáum orð- um minnast ástkærs afa okkar. Sem drengir hlökkuðum við alltaf til að fara í heimsókn til afa og ömmu í Króki. Þar var okkur alltaf tekið með ást og hlýju og okkur leið alltaf vel þegar við vorum þar. Þar var sama hversu vitlausar hug- myndir sem við fengum, allt var látið eftir okkur. Afi lánaði okkur verkfæri og þann efnivið sem við báðum um og hvergi var sá staður í Króki sem við máttum ekki leika okkur á. Afi var örlátur við okkur á ver- aldlega hluti og ekki síður á það sem mestu máli skiptir og eftir sit- ur í minningunni; ást, virðing og hvatning til að standa okkur vel. Afi hafði alltaf tíma til að tala við okkur. Hann sagði okkur frá því hvernig hann hafði það á okkar aldri, hvemig lífið var fyrr á ámm, hvað hann gerði í frístund- um sínum og hve mik- ið hann þurfti að vinna. Við erum hræddir um að við entumst ekki lengi við þær aðstæður. Við búum að því sem hann og hans kynslóð lögðu grunninn að. Við fyllumst þakk- læti og söknuði þegar við kveðjum afa okkar og óskum honum góðrar vistar á þeim stað sem hann er á núna. Bjarni og Ragnar. Það eru forréttindi að hafa kynnst honum tengdaföður mínum og notið þess velvilja og hlýju sem hann ávallt sýndi mér og mínu fólki. Bjarni í Króki lifði nærri alla þessa öld og þekkti því í raun tímana tvenna. Hann einkenndu viðhorf þeirrar kynslóðar sem byggði upp það samfélag sem við búum við í dag: Bjartsýni, æðruleysi, trú á landið og framtíðina. Bjami var góður afi, sem sýndi sonarsonum sínum þá virðingu frá fyrstu tíð að koma fram við þá sem vitsmunaverur í þroska. Engin um- ræðuefni voru þess eðlis að ekki væri hægt að ræða þau við börn á þann hátt sem þau skildu og til þess var ætlast að drengirnir tækju þátt í samræðunum. Öllum spurn- ingum var svarað. Ekkert verk var drengjunum sagt að væri þeim of- viða, svo fremi að þeir treystu sér til þess að takast það á hendur. Því var bara hagrætt þannig að þeir réðu við það. Hann vissi að þannig ýtti hann undir sjálfstraust ung- anna sinna til orða og verka. Hann var félagslyndur maður og tók virkan þátt í mannlífmu í Kjós- inni og Hraungerðishreppnum, en ekki fremur en aðrir samtímamenn hans, gerði Bjarni víðreist um ævina. Til þess var ekki tími. Jörð- ina þurfti að eija og skepnunum þurfti að sinna. Hverri árstíð fylgdu skyldur sem ekki gátu beðið. Bókin kom í stað ferðalaga og þegar dags- verkinu var lokið, beið hún á nátt- borðinu og var vinur hans langt fram á ævikvöldið. Síðustu árin fór hann sjaldnar af bæ, en oft var gestkvæmt í Króki. Þeim hjónum var lagið að bjóða alla þá sem að garði bar velkomna og ekki var gerður mannamunur á því hvernig gestum var tekið. Svo lengi sem hann hafði heilsu til, fylgdist hann með því sem var að gerast í þjóðlíf- inu og hafði gaman af því að ræða þjóðmálin við gesti og gangandi. Bjarni var sjálfstæður og skoð- anafastur maður. Enginn fór með hann þangað sem hann ætlaði ekki sjálfur og það var enginn efi í hans málflutningi. Það er öfundsverður eiginleiki að geta haldið stefnunni, sem búið er að taka og hvika hvergi frá henni. Lífið er of stutt til að eyða því í að tvístíga og horfa til baka. Það er núið og framtíðin sem máli skipta — ekki það sem liðið er. Gert er gert og á morgun kem- ur nýr dagur og hann ber okkur að nýta til góðra verka. Hann tengdafaðir minn varð aldrei gamalmenni í eiginlegum skilningi þess orðs, þótt árin yrðu mörg og líkaminn gæfi sig smátt og smátt. Hugsunin var skýr og minnið óskeikult þar til yfir lauk. Fram á síðustu stundu fylgdist hann af miklum áhuga með því sem fjöl- skyldan hans var að fást við og studdi við bakið á henni sem best hann gat. Þótt Bjarni hafi átt langa ævi að baki þegar leiðir okkar lágu sam- an, sá forsjónin nú samt til þess að ég nyti samvista við hann í nærri aldarfjórðung og fýrir það þakka ég. Ég kveð Bjarna Ólafsson í Króki með virðingu og þakklæti fyrir sam- fylgdina. Brynhildur. + Jón Örn Sæ- mundsson fæddist á Siglufirði 13. maí 1938. Hann lést 12. júlí síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Jónína Guðbjörg Braun (d. 1994) og Sæmund- ur Jónsson, sem lif- ir son sinn. Þau voru búsett á Siglu- firði. Systkini Jóns Arnar eru Stefanía, f. 1936, búsett í Skagafirði, Jórunn Gunnliildui’, f. 1943, búsett á Akureyri, Ulfar Helgi, f. 1945, býr í Mývatnssveit, Anna, f. 1948, búsett á Siglufirði, Sig- rún, f. 1951, dó á fyrsta ári, og Sigrún Björg, f. 1958, býr á Hofi í Öræfum. Hinn 29. desember 1962 kvæntist Jón Þórunni Þorgeirs- dóttur, f. á Siglufirði 1936, d. ÞAÐ óvænta er alltaf að gerast, síminn hringir og flutt er sú fregn, að Nonni Sæm sé látinn. Skjótt skipast veður í lofti. Fyrir örfáum dögum vorum við stödd á niðja- móti Lambanesættar. Þar var Nonni mættur ásamt börnum sín- um og systrum og fjölskyldum þeirra. Allt frá því ég man fyrst eftir mér var frændi minn aldrei langt undan. Ég fluttist til Siglufjarðar og var um tíma hjá afa okkar Jóni Kristjánssyni og stjúpömmu, Önnu Sigmundsdóttur, á Hvanneyrar- braut 25 C. Við Nonni áttum því oft samleið á þessum árum, og margar góðar stundir upp á Ijósa- 1977. Þau eignuð- ust þrjú börn sam- an: 1) Þorgeir Valdimar, f. 1960, í sambúð með Krist- ínu Ólafsdóttur. Þau eru búsett á Akureyri og eiga eina dóttur. 2) Jór- unn, f. 1962, I sam- búð með Óskari Jó- hannssyni. Þau eru búsett á Akureyri og eiga tvö börn. 3) Freyja, f. 1963, í sambúð með Ragn- ari Kárasyni. Þau eru búsett á Sauðárkróki og eiga tvö börn. Þórunn átti áður einn son, Gú- staf Daníelsson, f. 1958, sem kvæntur er Sigurósk Jónsdótt- ur. Þau eru búsett á Hólmavík og eiga fjögur börn. Útför Jóns fór fram frá Siglufjarðarkirkju 18. júlí. stöð hjá afa rifjast upp fyrir mér. Síðan rofnaði sambandið um nokk- urra ára skeið, þegar fjöiskylda mín flutti í Málmey og síðan á Sauðárkrók. Við vorum því orðnir stálpaðir þegar leiðir lágu saman á ný. Þau ár eru mér í fersku minni og þessi frændi var ávallt aufúsu- gestur, einkum var hlýtt milli móð- ur minnar og hans. Lambanesættin er fjölmenn og dreifð um landið og utan þess, og um árabil voru tengslin innan ættarinnar ekki rækt sem skyldi. Niðjamótin urðu til þess að breyting varð á, og hafa ættingjar og fjölskyldur þeirra kynnst betur og treyst vin- áttubönd. Okkur verður því fráfall góðs frænda og vinar, á svo svip- legan hátt, mikið áfall. Við erum þakklát fyrir það að hafa haft hann meðal okkar og sérstaklega fyrir þá daga sem við áttum með honum nú síðast. Ég átti þess kost að ræða við hann um liðna tíma og skynjaði gleðina sem tengdist þeirri upprifjun. Augu hans ljóm- uðu, enda Siglufjörður og árin þar til umræðu. Nonni var mikill Sigl- firðingur og því er vel við hæfi að hann verður til moldar borinn í sínum gamla heimabæ. Nonni Sæm var gjörvilegur maður og.eftir honum tekið hvar sem hann fór, glettinn á góðri stund en þó maður alvörunnar, mikið snyrtimenni, hugljúfur drengur og dagfarsprúður svo af bar. Þar sem við sátum og ræddum saman barst talið að bömum hans og fjölskyldum þeirra. Þá birti yfir svip hans, stoltið leyndi sér ekki og auðfundið að sambandið milli þeirra var náið og gott. „Já þetta er góður hópur,“ sagði hann og horfði í áttina til þeirra. Við, ætt- ingjar hans og vinir, erum þakklát fyrir það tækifæri sem okkur gafst þarna til að kveðja þennan góða dreng, og ógleymanlegur verður þáttur séra Magnúsar Gunnarsson- ar er hann með helgistund sleit þessu niðjamóti. Sú athöfn var ein- stök og mun lifa í minningunni. Jón Örn Sæmundsson var góður sómadrengur og það er vissulega mikill sjónarsviptir að honum látn- um. Hann var góður félagi og traustur vinur. Við, börnin hennar Báru og fjölskyldur okkar, þökkum þessum einstaka frænda fyrir góð kynni og trygga vináttu. Sæmundi frænda, systkinum, börnum og fjölskyldum þeirra svo og öðrum ættingjum og vinum vottum við okkar dýpstu samúð. Anton Jón I. Angantýsson. JÓN ÖRN SÆMUNDSSON ASKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks er bent á messu í Laug: arneskirkju kl. 11.00. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BUSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN:Messa kl. 11.00. Ferming, altarisganga. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Kjartan Sigurjónsson. Fermd verð- ur Helga Dís Árnadóttir, Holtagerði 58, Kópavogi. Eftir messuna verður bænastund á ensku. VIÐEYJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Hjalti Guð- mundsson. Organleikari Kjartan Sigurjónsson. Bátsferð úr Sunda- höfn kl. 13.30. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. .10. Prestur sr. Birgir Ás- geirsson. Einsöngur Hanna Björk Guðjónsdóttir. Organisti Kjartan Ólafsson. GRENSÁSKIRKJA: Lokað vegna viðhalds og viðgerða HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Organisti Douglas A. Brotchie. Ensk messa kl. 14.00. Sr. Örn Bárð- ur Jónsson. Orgeltónleikar kl. 20.30. Hans Uwe Hielscher, org- anisti frá Wiesbaden, Þýskalandi leikur. LANDSPÍTALINN:Messa kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Organisti Pavel Manasek. Helga Soffia Konráðsdóttir LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11.00. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org- anisti Þóra V. Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Sumarferð Laugarnessafnaðar. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 9.00 árdegis og far- ið í Skálholt. Áætluð heimkoma milli kl. 16. og 17. Ekkert fargjald. Hafið nesti meðferðis. Ólafur Jó- hannsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas- son. Farið verður til gróðursetning- ar í reit safnaðarins í Heiðmörk. Lagt af stað frá kirkjunni eftir guðs- þjónustuna um kl. 12.30 og eru allir velkomnir. Guðmundur Oskar Ólafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi- stund kl. 11.00 í umsjá sóknar- nefndar. Organisti Kristín Jónsdótt- ir. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Sigrún Stein- grímsdóttir. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20.00. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Þorþergur Kristjánsson FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta - helgistund kl. 20.30. í umsjón Ragnars Schram. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Prestarnir. Guðspjall dagsins: Réttlæti faríseanna. (Matt. 5). GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11.00. Organisti Guðjón Halldór Óskarsson. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Helgistund kl. 11.00. Bryndís Malla Elídóttir. KÓPAVOGSKIRKJA: Helgi- og bænastund kl. 11.00 í umsjá sr. Gylfa, Jónssonar. Orgelleikari Örn Falkner. Molakaffi eftir stundina. SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Altarisganga. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Gunnar Gunnarsson leikur einleik á flautu. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Allt messuhald fellur niður í sumar vegna sumarleyfis. Fyrsta messa eftir sumarleyfi er sunnudaginn 13. ágúst kl. 20.30. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpraeð- issamkoma kl. 20. Ragnheiður Ár- mannsdóttir talar. FÆREYSKA sjómannaheimilið: Samkoma sunnudag kl. 17. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sigurður Helgi Guðmunds- son. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs- þjónusta sunnudag kl. 11. Börn borin til skírnar. Organisti Steinar Guðmundsson. Baldur Rafn Sig- urðsson. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 21. Organisti Steinar Guðmundsson. Baldur Rafn Sigurðsson. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. FLATEYRARKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14. Sóknarpresturinn prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Flateyrarkirkju syngur undir stjórn frú Ágústu Agústsdótt- ur í Holti. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Prestur sr. Tómas Guðmundsson, Hveragerði. Organisti Ingunn Guðmundsdóttir. + Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR AXELSDÓTTUR Gógó, Hæðargarði 29, Reykjavík. Jón Steinar Guðmundsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Gunnar Sverrir Guðmundsson, Maria Helga Guðmundsdóttir, Þórarinn Jónsson, Anna Sigriður Guðmundsdóttir, Reynir Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bestu þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU ÁRNADÓTTUR, Miðbraut 19, Seltjarnarnesi. Starfsfólk Hrafnistu f Reykjavík fær bestu þakkir fyrir hlýlega og góða umönnun síðustu ár. Árni Þórðarson, Guðrún S. Tryggvadóttir, Hafdis Þórðardóttir, Einar V. Björnsson, Sigríður Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.