Morgunblaðið - 27.07.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1995 15
FRÉTTIR
Malbikað í Stykkishólmi
Stykkishólmur. Morgunblaðið
í SUMAR stendur til að malbika
allmörg svæði í Stykkishólmi og
er þessa dagana verið að undirbúa
framkvæmdir. A vegum Stykkis-
hólmsbæjar á að malbika 9.000
m2 og er áætlaður kostnaður bæj-
arins um 17 milljónir kr. Malbikuð
verða leiksvæði á lóð grunnskólans
og aðkeyrslan að skólanum. Þá er
búið að aka mikilli fyllingu fyrir
framan íþróttamiðstöðina og
sjúkrahúsið og verða bílastæðin
þar malbikuð. Við höfnina verður
Stykkið og hafnaraðstaðan hjá
flóabátnum Baldri einnig malbik-
að. Skipavík lætur malbika fyrir
framan sína verslun og þá eru það
nokkrir einstaklingar og stofnanir
sem nota tækifærið og láta mal-
bika fyrir framan sín hús.
Heimamenn sjá um allan undir-
búning, en Tak hf. í Búðardal sér
um efnisvinnslu og Króksverk hf. á
Sauðárkróki kemur með sína mal-
bikunarstöð og leggur malbikið á.
Þegar framkvæmdum er lokið
mun aðkoma að þessum stofnun-
um verða þægilegri og betri og
setja snyrtilegan svip á bæinn.
Morgunbl aðið/Árni.
ÁSKELL Áskelsson, Kolbeinn Björnsson og Helgi Haraldsson
undirbúa malbikun í Stykkishólmi.
Arneshreppur
Tún illa
kalin
í ÁRNESHREPPI á Ströndum hafa
orðið miklar kalskemmdir á túnum
í sumar og líkur eru á að bændur
leiti aðstoðar Bjargráðasjóðs.
„Á nokkrum bæjum hér í hreppn-
um eru allt að 80% túnanna kalin,“
sagði Hjalti Guðmundsson, formað-
ur Búnaðarfélags Árneshrepps á
Ströndum. „Veturinn var með ein-
dæmum harður og það voraði seint.
Það er að koma ágúst og grasið
er rétt að byija að spretta.
Það er gífurlegt tjón fyrir bænd-
urna hér að fá kannski bara 20%
af heyfeng og við verðum að kaupa
hey til að geta haldið bústofninum.
Bjargráðasjóður veitir styrk til
flutninga á heyi og það er mjög lík-
legt að við munum leita aðstoðar
sjóðsins,“ sagði Hjalti.
Jón Gíslason, formaður Búnað-
arfélags A-Húnavatnssýslu segist
hafa verulegar áhyggjur af heyfeng
í sýslunni. Þar mun víða vera kal
í túnum, en þó er lítið um að heilu
túnin séu skemmd.
Blab allra landsmanna!
-kjarnimálsins!
fTölvudeild
borgarverkfræðings
Tölvudeild borgarverkfræðings auglýsir eftir tveimur
kerfisfræðingum í áhugaverð og krefjandi störf.
Annað starfið er til frambúðar en hitt til eins árs.
Tölvudeildin hefur m.a. umsjón með 150 nettengd-
um einmenningstölvurh, 12 fjölnotendatölvum og
háhraðaneti Reykjavíkurborgar. Tækniumhverfið
samanstendur aðallega af UNIX, Novell Netware,
Windows NT, MS-DOS/Windows, Arclnfo (LUKR),
Oracle, HP-Openmail, MS-Mail, X.400, X.25, EDI
og Internet.
Við leitum að áhugasömum og duglegum einstakl-
ingum með háskólamenntun á tölvu- eða
tæknisviði og/eða reynslu á sem flestum af
ofantöldum sviðum.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður tölvu-
deildar og/eða starfsmannastjóri borgarverk-
fræðings.
Umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist starfs-
mannastjóra borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, eigi
síðar en 4. ágúst nk.
FYRSTUR KEMUR
FYRSTUR FÆR
Glussatjaldaefni
ÓTRÚLECT ÚRVAL
ÖRUCC 06 CÓÐ ÞJONUSTA.
cpcil
Faxafen 7, sími 568 7733
EÐA_
ÆLKERAMATSEÐILL
PARMASKINKA
MEÐ MELÓNU.
"sTlungaterrine
MEÐ
SAFFRAN VINAIGRETTE.
<Q>^9>
EGGALDINSÚPA
MEÐ PAPRl KURjÓMA.
STEIKTUR LAX
MEÐ HUMRL
: EÐA_
4 RHTTA VEISLUMALTIÐ
2.500™.
A LAUGARDÖGUM
NAUTAHRYGGSTEIK .
RIB EYE
MEÐ TÓMATBASIL
OG SKARLOTTULAUK.
<<á>»6s>
SÚKKULAÐI MARQUISE
MEÐ HUNANGSÍS.
3.200
KR.
Hfir
BORÐAPANTANIR I S1MA552 5700