Morgunblaðið - 27.07.1995, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ
26 FIMMTUDAGUR 27.. JÚLÍ 1995
AÐSENDAR GREINAR
„Sáð er forgengilegu,
en upprís óforgengilegt
SKÓGAR eru ólíkir flestu öðru
gróðurlendi um marga hluti. Þeir eru
fjölskrúðugri en önnur gróðurfélög
og vöxtur hvers árs safnast fyrir og
geymist í formi viðar, en í graslendi
hins vegar sölnar allur ofanjarðar-
vöxtur að hausti og ekkert stendur
eftir. Afurðirnar eru nýtanlegri en
flestra annarra gróðurfélaga og gefa
hámarksafrakstur af landi. Ekki er
minnst um vert að í skjóli trjánna
þrífst öll ræktun betur en á ber-
angri og gefur margfalda uppskeru.
Grasræktarlandið!
Almennt áhugaleysi og jafnvel
óbeit á skógrækt er nú á hröðu und-
anhaldi. I mörg ár risu ýmsir forkójf-
ar gegn skógrækt og sögðu, að ís-
land væri „grasræktarland" og því
bæri að teggja áherzlu á að dreifa
tilbúnum áburði og sá grasfræi.
Undanfarna þrjá áratugi hefur millj-
ónum á milljónir ofan verið ausið í
þetta og er árangur sáralitill, ef
undan eru skildar sáningar á mel-
gresi og t.únaræktun. Eg hef bent á
þetta áður og líkt þessu við að mála
hús með vatnslitum eða henda millj-
ónum úi um glugga á flugvél. Draga
má fram í dagsljósið fiölmargt sem
styður þessar fullyrðingar, sem
mörgum virðast fram settar af
ábyrgðarleysi og fákunnáttu. Þetta
byggi eg m.a. á eigin athugunum,
en ekki síður á staðhæflngum As-
laugar Heigadóttur, sérfræðings á
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
(Rala), um að sáðgresið 1974-1981
sé allt dautt. - Reyndar er þetta
löngu vitað og ábyrgöarhluti að
halda dreifingu áfram eftir 1975.
Meðal annars segir Björn Sigur-
björnsson í Mbl. 19. 8. 1978: „Það
nær engn átt að græða upp örfoka
land á íslandi rneð dönskum tún-
vingli.“
Fáein dæmi
Skal hér fyrst vitnað til þess, er
landgræðslustjóri boðaði fréttamenn
á sinn fund árið 1978. Þó að langt
sé um liðið, er þarft að vekja at-
hygli á þessum fundi nú og líta á
Hér fjallar-Ágúst H.
Bjarnason um Land-
græðslu ríkisins og
gróðurlendið.
það, sem þar var haldið fram. Af
því mega menn læra, hve óvarlegt
er að trúa staðhæfingum, sem eru
reistar á þrákelkinni óskhyggju og
óraunhæfum markmiðum.
Kjarninn í boðskap landgræðslu-
stjóra var þessi 1978: 1. íslendingar
eru í sókn í viðureigninni við eyðing-
ar- og uppblástursöflin. 2. Nú eru
græddir upp rösklega 5.000 hektar-
ar lands á ári með erlendu grasfræi
og gerir það mun meira en að halda
í við það, sem upp fýkur. 3. Ofbeit
er ekki lengur alvarlegt vandamál
hér á landi. 4. Algróið land brejdist
tvímælalaust til batnaðar, ef á það
er borinn áburður.
Nú er ljóst, að þessar fullyrðingar
fá ekki staðizt, en þær voru settar
fram, þó að engar athuganir lægju
fyrir um árangur, og tilgangurinn
aðeins sá að slá ryki í augu fólks,
svo að skuggi félli ekki á „áburðar-
flugið“, sem var kostað af þjóðar-
gjöfinni frá 1974.
Um tíma var áburði dreift á gróin
lönd í þeim tilgangi „að styrkja inn-
lendan gróður", og var kallað „haga-
bætur“. Sennilegra er þó, að áburð-
ardreifmgin hafí fremur skaðað
gróðurfélögin, valdið átroðningi og
spillt högum til lengri tíma litið.
Vert er að geta um stíflu í Eystri-
Rangá. Ætlunin var að veita hluta
árinnar yfir Imngvíuhraun og græða
það upp í einni svipan tii að sýna
mönnum, að hægur vandi væri að
„grasklæða“ allt Island, „að minnsta
kosti upp að jöklum," eins og kom-
izt var að orði. Árangurinn er nú
ekki meiri en svo, að örlitlar gróður-
teygingar eru meðfram sytrunni,
sem hverfur fljótt í sand og hraun.
Dýr uppgræðsla það.
Sem kunnugt er, var alaskalúpína
flutt til landsins 1945. Sennilega er
EKIÐ var með herfi í eftirdragi yfir gróskumikla loðviðirunna og
lúpínufræi sáð í nýgræður. Stórlega sá á runnunum eftir þessa yfirferð.
FYRIR um 20 árum var gerð fyrirhleðsia i Eystri-Rangá og kvísl
úr Iienni veitt þvert yfir Langvíuhraun til þess að græða upp allt
hraunið. Árangurinn er ekki annar en lítilfjörlegir gróðurteygingar
meðfram kvíslinni.
þetta sú planta sem bezt dugar skóg-
ræktarmönnum við að undibúa jök-
ulurðir undir gróðursetningu tijáa.
Þegar skógur vex upp hverfur hún
Begngal
Isotexúíp
Reykjavík sími 560 3878-Akureyri sími 4622850
Keftavík sími 421 3322 • Vestm.eyjum sími 481 1115
að mestu. Um 40 ár liðu þangað til
áhugi vaknaði hjá Landgræðslunni
að nýta hana, en segja má að síðan
hafi þeir farið offari. Vissulega er
það spurning hvort aðeins eigi að
planta alaskalúpínu þar sem rækta
á skóg, því að annars staðar er hún
býsna áleitin og hverfur seint. Um
þetta má vafalaust deila.
En hitt eru hroðaleg vinnubrögð
og óþolandi að menn frá Land-
græðslunni skuli draga herfi yfir
víðinýgræðing í örum vexti og rista
í sundur á svæði, sem vart eða ekk-
ert hreyfist, og dreifa þar lúpínufræi
eins og gert var norður í Keldu-
hverfi í fyrrasumar. Hér var illa að
verki staðið og framkvæmdir óþarf-
ar, sem kórónuðu endileysuna, því
að tveimur árum áður höfðu gróður-
spjöll verið unnin á algrónu útengi
þar hjá, þegar stórum bílum frá
Landgræðslunni var ekið yfír þau.
Og þar var fleira, sem athygli vakti.
Frammi á sjávarkambi var melgresi
sáð á nokkurra kílómetra belti vest-
an við Arnaneslón og var unnið við
það í um hálfan mánuð. Nú hefur
því öllu skolað í sjó fram og nokkrum
tonnum þar kastað á glæ.
Afram skal haldið þó
Nú mætti ætla, að ábendingar um
að miljónum króna hafi verið sólund-
að í hreina og klára vitleysu, myndu
hreyfa við ráðamönnum og þeir
krefðust skýringa og rannsókna á
starfseminni. Því er alls ekki að
heilsa, heldur er þagað þunnu hljóði
eða reynt að réttlæta mistökin, með-
al annars með því að halda fram að
hvorki var annarra kosta völ né bet-
ur vitað í þá tíð. En það sem kyndug-
ast er að enn er haldið áfram á sömu
braut undir forustu „fagráðs", sem
er launuð nefnd manna sem segjast
hafa áhuga á lándgræðslu, en hafa
litla og flestir enga mennlun á þessu
sviði, en þar sitja alþingismaður,
lögfræðingur, verkfræðingur, lands-
lagsarkitekt, búfræðingur og tann-
læknir.
Meðal annars gekk Halldór Blön-
dal fram fyrir skjöldu og reyndi að
bera blak af Landgræðslunni. Eina,
sem hann virtist þekkja til, voru
melgresissáningar á Hólsfjöllum, en
honum var ókunnugt um, að mel-
gresi er aldrei sáð úr flugvél. Þá er
oft vitnað í skýrslu Björns Sigur-
björnssonar (1990), sem er umsögn
um framkvæmd og mat á árangri
landgræðsluáætlana 1974-1990. Að
baki skýrslunni eru engar sjálfstæð-
ar athuganir, heldur er hún unnin
upp úr gögnum frá viðkomandi
stofnununum. Af henni er því engar
ályktanir unnt að draga um gagn-
semi „fluggræðslu" og lítið skjól ’að
vitna í hana. Sem dæmi um „vísinda-
leg“ vinnubrögð höfundar má nefna,
að í umsögn um árangur upp-
græðslu segir orðrétt: „Hópur þing-
manna fór um mörg svæðin 1984-86
og fannst sum þeirra i góðri fram-
för.“ Það er ekki ónýtt að eiga góða
að.
Þó að skýrslan sé þunn í roðinu
hvað fræðilega umfiöilun varðar,
má ýmislegt úr henni lesa, sem furðu
vekur. Til dæmis var Sandvatn á
Haukadalsheiði stækkað með fyrir-
hleðslu fyrir 1990. En eins og menn
rekur minni til var ný stífla gerð þar
sumarið 1994 við ærinn tilkostnað.
Það er því eðlilegt að spyija hvort
hér sé um tvíverknað að ræða, hvað
honum valdi og hver sé kostnaður-
inn. Þá áætiar Björn, að 1974-78
hafi verið uppgræddir samtals 6-7
þúsund hektarar lands. Á oama tíma
telur landgræðslustjóri, að græddir
væru rösklega 30.000 lia. Hér er
um slíkan mun að ræða, að krefjast
verður skýringa. En allt cr þetta nú
dautt og til einskis var unnið.
Undanhald
Þegar það rann upp fyrir land-
græðslumönnum a,ð grasið var allt
dautt, var eitt af haldreipum þeirra
að halda því fram að í kjölfarið hafi
upp sprottið víðir og birki, jiökk sé
túnvinglinum sem drapst. Um ínargt
minnir þetta á það, sem segir í iielgri
bók: „Sáð er forgengilegu, en upprís
óforgengilegt, sáð er í vansæmd en
upprís í vegsemd.“ Vera rná að telja
megi þingmönnum eða einstaka
landbúnaðarráðherra trú um r.ð birki
vaxi upp af grasfræi, en varla verð-
ur landgræðslumönnum ætlað slíkt
trúarþrek. Hér er því enn og aftur
verið að villa um fyrir fólki.
Það er löngu vitað að íand tekur
miklum breytingum bara við friðun
og mjög víða eru það einmitt birki
og víðir sem fyrst nema land. Full-
víst er að dreifing áburðar og fræs
hefur litlu breytt hér um, en kostað
sitt. Einnig má benda á að stundum
getur sáning grasfræs komið í veg
fyrir eða- tafið um nokkur ár land-
nám innlendra tegunda. Með öðrum
orðum hafa rándýrar aðgerðir Land-
græðslunnar seinkað eðlilegri fram-
vindu gróðurs við friðun.
Lokaorð
Hér hefur verið sýnt fram á mis-
tök og óhóflegan fjáraustur á opin-
beru fé. Að nokkru er þetta viður-
kennt af hálfu Landgræðslunnar í
verki, því að þar á bæ segjast þeir
stöðugt vera að breyta um aðferðir,
m.a. með því að fela bændum verk
að vinna í stað þess að nota flug-
vél, og nú eru þeir farnir að stunda
uppeldi plantna og rannsóknir. Allt
er þetta þarft en þegar eru fyrir
stofnanir sem sjá um sömu hluti.
Þar er kunnátta til staðar, sem er
ekki hjá Landgræðslunni. Um gróð-
ureftirlitið er það að segja, að það
byggir eingöngu á „sjónmati" en
ekki mælingum og er einsdæmi í
veröldinni. Nær væri að fela náttúru-
fræðistofum eða óháðum aðilum það
hlutverk. Þá eru hvergi til skýrslur
um árangur og hann aldrei metinn,
þótt ótrúlegt sé,.eins og Ríkisendur-
skoðun benti á fyrir fáum árum.
Mergurinn málsins er því sá, að
endurskoða starfshætti Land-
græðslu ríkisins og helzt sameina
hana öðrum stofnunum. Þá sparast
ófáar miljónir, sem nota mætti til
raunhæfra verkefna við að græða
upp landið.
Höfundur hefur lokið doktors-
prófi / grasufræði.