Morgunblaðið - 27.07.1995, Side 40

Morgunblaðið - 27.07.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LAUKUR TIL MATAR BLOM VIKUNNAR EITT algengasta kryddið sem við not- um við matargerð er laukur, þótt deila megi um hvort skil- greina eigi lauk sem krydd eða grænmeti. Óralangt er síðan að menn uppgötvuðu ágæti lauksins og má rekja notkun hans ár- þúsundir aftur í tím- ann til Kínveija. Um uppruna lauksins er margt á huldu. Tyrk- nesk þjóðsaga segir að skrattinn hafi skapað laukinn þegar hann var flasmdur brott úr himnaríki. Margs konar trú hefur verið tengd lauknum, sums staðar var hann talinn heilag- ur og aðeins guðafæða. Hvítlaukur- inn var talinn gefa mönnum styrk. Egyptar gáfu hann þrælum þeim, sem reistu pýramídana. Sama gerðu Rómveijar við verkamenn og hermenn fyrir bardaga. Neró keisari taldi púrru bæta söngrödd- ina. Þar sem mjög lítil hefð er hér fyrir laukræktun, gerum við lítinn greinarmun á hinum ýmsu tegund- um matarlauks. Að vísu er lauka- garður nefndur í fornsögum og frægt er að Guðrún Ósvífursdóttir gekk í laukagarð sinn, en ekki er vitað hvað ræktað var í íslenskum laukagörðum. Villilaukur finnst við Bæ í Borgarfirði. Menn hafa velt því fyrir sér hvort villilaukurinn hafi komið til landsins með enskum trúboðum, en á Bæ stofnaði Hróð- ólfur biskup, frændi Englandskon- ungs, klaustur um 1030. Auðvelt er að rækta hér margar tegundir af lauk og hef ég prófað sumar mér til gamans, reyndar með misjöfnum árangri, sem stafar líklega eingöngu af handvömm minni. Villilauk átti ég í potti úti í reit í nokkur ár, en tímdi aldrei að borða, rétt strauk blöðin til að full- vissa mig um lyktina. Þessi ein- kennandi lauklykt er talin stafa af brennisteinssamböndum, sem eru í öllum lauk. Graslaukur er auðveldastur allra lauka í ræktun, að mér finnst. Upphaflega sáði ég honum, en eins má skipta gömlum hnaus. Gras- laukur er íjölær jurt. Laukurinn 313. þáttur Imsjón Ajjústa Björnsdóttir sjálfur er lítill, enda eru það blöðin, sem eru notuð. Þau eru sí- völ, oddmjó og hol að innan. Graslaukur kemur snemma upp á vorin. Ofan af honum er klippt eftir hend- inni, en þess gætt að ganga ekki mjög nærri lauknum i hvert skipti til að hann nái að halda áfram vexti. Söxuð graslauksblöð eru góð í grænmetis- salat, í kryddsmjör, út á kjöthakk o.fl. Hann má frysta sax- aðan. Upphaflega hafði ég graslaukinn í grænmetis- garðinum, en langt er síðan ég flutti hann þaðan. Nú er graslauks- brúskur í venjulegum blómabeðum hér og þar í garðinum, en blóm hans, sem eru fjólubláar kúlur, sóma sér vel meða! annarra skraut- blóma. Ég hef prófað að rækta venjulegan matarlauk, Allium cepa sem stundum er kallaður sáðlaukur á íslensku. Til hans er hægt að sá eftir kúnstarinnar reglum, en miklu auðveldara er að kaupa smálauka, sem fást í ýmsum garðyrkjuversl- unum á vorin. Eigi að rækta lauk í beði, sama hvaða tegund er, skiptir máli að jarðvegur sé góður og þar sem laukur er áburðarfrekur, sakar ekki að dijúgum skammti af hús- dýraáburði sé bætt í hann. Smá- laukarnir eru settir í raðir, gjarnan með 5 sm millibili en 25 sm milli raðanna. Uppskera mín var svo sem' ekkert að hrópa húrra fyrir, enda braut ég flestar reglur við undirbúning beðsins og hafði lauk- inn ekki undir plasti. Skalotlaukur er líka settur niður sem smálauk- ur. Hann myndar fjölmarga lauka kringum móðurlaukinn. Skalot- laukur er fljótvaxnari og bragð- meiri en venjulegur matarlaukur og ætti því að henta hér betur til ræktunar. Laukurinn er þroskaður þegar blöðin taka að visna á báðum þessum tegundum. Þá er hann tek- inn upp og þurrkaður við góðan hita og síðan geymdur á þurrum, svölum stað. Hvítiauk hef ég líka prófað að rækta úti og í köldu gróðUrhúsi. Þá er sett niður vænt rif, sem síðan vex og myndar mörg smárif með einni heildarhimnu LAUKUR á báðum endum - Hjálmlaukur (loftlaukur) - Allium cepa var. viviparum. utan um. Hann hefur skilað sér ágætlega. Rússar rækta hvítlauk á freðmýrunum. Þeir setja hann nið- ur seinni hluta sumars, gjarnan í ágúst og hirða uppskeruna árið eftir. Hvort sem það er tilviljun eða ekki, finnst mér að síðan ég byij- aði að rækta hvítlauk í kalda gróð- urhúsinu hafí ég ekki séð blaðlús í húsinu. Pípulaukur eða vorlaukur er fjölær og líkist graslauk að mörgu leyti, en er þó öllu stórvaxn- ari og þarf þess vegna miklu meira pláss. Hann er mjög auðveldur í ræktun og er sáð til hans. Talið er hæfilegt að hafa um 20 sm milli lauka. Eins og hjá graslauki eru það blöðin sem eru nýtt til matar en þau eru stór og hol að innan. Hjálmlaukur eða loftlaukur er þó líklega skemmtilegasta laukteg- und sem ég hef reynt við. Hann er fjölær líkt og graslaukur og pípulaukur og mjög harðger. Ég hef haft hann á sama stað í græn- metisgarðinum í mörg ár algjörlega óvarinn og alltaf kemur hann upp, hvernig sem veturinn er. Eins ger- ir hjálmlaukurinn litlar kröfur til áburðar, þótt auðvitað skili hann betri uppskeru, sé vel að honum hlúð. Blöðin eru hol að innan og verða um 40-50 sm á lengd. Þau má nota svipað og graslauk fyrst á vorin, en þó er það sjálfur laukur- inn, sem sóst er eftir. Nafnið hjálm- laukur vekur furðu, enda er plantan sjálf furðuleg. Þegar laukurinn er orðinn nokkurra ára fer hann að blómstra. Fyrst kemur upp hár stöngull blómið er umlukið stórri himnu. Þegar hún rifn- ar í fyllingu tímaná, kemur í ljós að blómið er þyrping æxlilauka, sem sitja á stöngulend- anum. Þessir smálauk- ar eru venjulega full- þroskaðir í ágúst. Þeir eru ljómandi góðir til matar og eru skemmti- legir í pikkles. Séu þeir ekki hirtir af stönglin- um, sveigist hann niður að moldinni og þar ræta smálaukarnir sig. Eins myndar móðurlauk- irinn hliðarlauka, sem eru notaðir til matar. Púrru rækta ég líka, með misjöfnum árangri eins og margt annað. Púrru er sáð inni frekar snemma, gjarnan í bytjun mars. Hún spír- ar á hálfum mánuði til þrem vikum og vex hratt, þannig að grisja þarf hana í sáðbakkanum. Ræturnar eru langar og viðkvæmar. Því er ráð- lagt að sá 5 fræjum í moldarpotta eða sáðkökur, grisja síðan í 3 plönt- ur í pottinum og gróðursetja þann- ig, þá verða ræturnar ekki fyrir hnjaski. Pottarnir eru settir í raðir með 15 sm millibili og 50 sm milli raða. Til að púrruleggurinn verði ljós borgar sig að gróðursetja þær í djúpar rastir, en færa moldina að leggnum eftir því sem hann vex. Mér hefur hætt til að sá púrr- unni æði seint, svo eitt vorið setti ég hana í kalt gróðurhús. Nokkrar lélegustu plönturnar lét ég standa þar yfir veturinn. Næsta sumar blómstruðu þær skínandi fallegu blómi. Blómið er samsett úr mörg- um leggjuðum smáblómum sem mynda grábleika kúlu 10-15 sm á stærð. Það er mjög gott til afskurð- ar og stendur lengi, eins er það skemmtilegt í þurrskreytingar. Þarna er kominn skrautlaukur, sem gefur öðrum skrautlaukum lítið eftir. Allar þessar lauktegundir er unnt að rækta með góðum ár- angri, ef vel er að staðið, þess gætt að moldin sé góð og áburðar- rík og vel sé vökvað framan af sumri. Púrru, matarlaukinn (sáð- laukinn), skalotlaukinn og jafnvel hvítlaukinn borgar sig að rækta undir plastboga og þá muntu upp- skera ríkulega. S.Hj. BRIPS Umsjón: Arnór G. Ragnarsson Bikarkeppni 1995 ANNARRI umferð bikarkeppninnar 1995 er nú lokið og úrslit leikja sem ekki hafa birst áður eru eftirfarandi: Sv. Landsbréfa, Reykjavík, vann sveit Ólafs Lárussonar með 1. Imp 114-113 eftir að hafa verið 37 Imp undir fyrir síðustu lotu. Sv. Samvinnuferða, Reykjavík, vann sveit Kristins Þórissonar, Reykjavík, með 122 Imp gegn 31 Imp. Sv. Hjólbarðahallarinnar, Reykjavík, vann sv. Loðnuvinnslunnar, Stöðvar- fírði, með 140 Imp gegn 60 Imp. Sv. Jóns Þ. Daníelssonar, Reykjavík, vann sv. Guðmundar Ólafssonar, Akranesi, með 107 Imp gegn 87 Imp. Sv. Potomac, ísafirði, vann sveit Guðmundar T. Gíslasonar, Reykja- vík, með 101 Imp gegn 89 Imp. Sv. Antons Haraldssonar, Akureyri, vann sv. Sveins R. Eiríkssonar, Reykjavík, með 105 Imp gegn 88. Sv. Heiðars Agnarssonar, Keflavík, vann sv. Gísla Þórarinssonar, Sel- fossi, með 103 Imp gegn 92 Imp eftir að sv. Gísla hafði leitt allan leik- inn og verið 32 impum yfír fyrir síð- ustu lotu. Sv. Sveins Aðalgeirssonar, Húsa- vík, vann sveit BÍNU, Reykjavík, með 89 Imp gegn 84 Imp. Sv. VÍB vann sv. Sigtryggs Sig- urðssonar með 79 Imp gegn 77 Imp. Dregið var í þriðju umferð bikar- keppninnar í Þönglabakka 1 mánudginn 24. júlí. Þriðju umferð á að ljúka sunnudaginn 20. ágúst nk. Heiðar Agnarsson, Keflavik - Landsbréf, Rvík. Hjólbarðahöllin, Rvk. - Anton Haraldsson, Ak. Samv.f. Landsýn, Rvík. - Garðar Garðarss., Keflav. Sveinn Aðalgeirss., Húsav. - Sig. Vilhj., Súðav. Valdimar Elíasson, Hafnarfirði - Roche, Rvík. Neon, Kópavogi - VÍB, Rvík. Esther Jakobsd., Rvík. - Páll Þór Bergsson, Rvík. Jón Þór Daníelss., Rvík. - Potomac, Isaf. Keppnisstjóranámskeið í Mílanó í janúar 1996 í janúar 1996 verða haldin keppn- isstjóranámskeið í Mílanó á vegum Evrópusambandsins. Stjórn Brids- sambands Islands hefur ákveðið að senda a.m.k. einn mann á þetta nám- skeið og óskar eftir skriflegum um- sóknum fyrir 20. september nk. Námskeiðin eru frá sunnudeginum 14. janúar til föstudagsins 19. janúar 1996. Fremstu keppnisstjórar í Evr- ópu verða leiðbeinendur og reiknað er með 150-200 manns taki þátt. Góð enskukunnátta er nauðsynleg. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. ATVIN N tf A UGL YSINGAR Kennarar Vegna forfalla vantar kennara í Grunnskólan- um í Búðardal frá og með 15. nóvember nk. Aðalkennslugreinar eru íslenska í eldri bekkjum og almenn kennsla. Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 434 1124 og 434 1466. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst. Grunnskóli Tálknafjarðar auglýsir Kennarar, kennarar! Kennara vantar ennþá til almennrar kennslu næsta skólaár. Flutningsstyrkur og hús- næðishlunnindi í boði. Einnig vantar tónlistarkennara við sama skóla. Kjörið tækifæri fyrir fjölskyldufólk eða ein- staklinga til að koma á friðsælan og fallegan stað á Vestfjörðum, þar sem mannlíf er gott. Vinsamlega leitið upplýsinga hjá Eyrúnu Sig- urþórsdóttur í síma 456 2694 eða á sveitar- skrifstofu hjá Brynjólfi Gíslasyni, sveitar- stjóra, í síma 456 2539. Auglýsing um stöður fimm rann- sóknarprófessora Menntamálaráðherra hefur ákveðið með vís- an í 22. gr. laga nr. 61/1994 um Rannsóknar- ráð íslands að ráða allt að fimm rannsóknar- prófessora við Háskóla íslands. Markmiðið með þessum stöðum er að fá færa vísinda- menn til starfa á mikilvægum sviðum. Við val á umsækjendum verður fyrst og fremst farið eftir hæfni þeirra og getu Háskólans og samstarfsstofnana hans til að veita þeim nauðsynlega aðstöðu til rannsókna. Tekið er við umsóknum á sviði hugvísinda, félagsvísinda, heilbrigðisvísinda, raunvísinda og verkfræði. I stöðurnar verður að jafnaði ráðið til fimm ára sem þó mætti við sérstakar aðstæður framlengja um tvö ár. Rannsóknarprófessor er ætlað að hafa rannsóknir að aðalstarfi og taka að sér leiðbeiningu háskólanema í rannsóknatengdu framhaldsnámi, en hann hefur ekki kennsluskyldu að öðru leyti. Sá sem gegnir stöðu rannsóknarprófessors skal njóta sömu réttinda og aðrir prófessor- ar eftir því sem við á og tilgreint verður í þjónustusamningi milli menntamálaráðu- neytisins, Rannsóknarráðs íslands og Há- skóla íslands. Staðan felur í sér fullt starf og sá sem henni gegnir sinnir ekki öðru laun- uðu meginstarfi. Leitað er að umsækjendum sem hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu við rannsóknar- störf. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu á ensku um rannsóknir og vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar, svo og áætlun um þær rann- sóknir sem þeir hyggjast stunda á ráðningar- tímanum. Gera þarf nákvæma grein fyrir þeirri aðstöðu sem staðan krefst. Stöðunum fylgir fjárveiting til reksturs sem getur numið allt að tveimur þriðju hlutum árslauna rann- sóknarprófessorsins. Nánari upplýsingar um þessar stöður eru veittar á rannsóknarsviði Háskóla íslands í síma 525 4352. Þar má einnig fá upplýsingar um þau sérsvið sem Háskóli íslands og Rann- sóknarráð íslands leggja til að verði styrkt með þessum hætti. Umsóknarfrestur er til 1. október 1995 og skal umsóknum skilað í þríriti til menntamálaráðuneytins, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 25.júlí 1995.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.