Morgunblaðið - 17.08.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
j
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
Samið um alnetsþjón-
ustu á Norðurlandi
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
Helgi Kristinsson, framkvæmdastjóri Tölvufræðslunnar Akur-
eyri, og Sigurður Hrafnsson, forstöðumaður rekstrar- og mark-
aðssviðs Islenska menntanetsins, ganga frá samningnum á iðn-
sýningunni í gær.
Klippt á
borðann
Sýningin Iðnaður ’95 var
formlega opnuð á Hrafnagili
í Eyjafjarðarsveit í gær. Það
var sveitarstjórinn Pétur Þór
Jónasson sem klippti á borð-
ann sem strengdur var um-
hverfis sýningarsvæðið. Um
kvöldið var síðan haldin opn-
unarhátíð. Sýningin stendur
yfir fram á sunnudag og
verða fjölbreytt skemmtiat-
riði í boði alla dagana. I dag
verður svæðið opnað kl. 14.
000 flo0« ÍQQOBdBI
Kvæðaflutningur
Norðanpilta
Norðanpiltar flytja kvæðið
Hreyfingin skapar meistarann
í Deiglunni, Klúbbi Listasum-
ars og Karólínu í kvöld,
fimmtudagskvöldið 17. ágúst
kl. 22. Kvæðið er kvöld-
skemmtun og markar upphaf-
ið að sjötta starfsári Norðan-
pilta. í tilefni þess birtast þeir
í sinni upprunalegu mynd í
kvöld.
Einþáttungur á Karólínu
Einþáttungar er yfirskrift
tveggja ótengdra sviða skáld-
skaparins og skáldsins sem
flytja mun verkin á Café Ka-
rólínu föstudaginn 18. ágúst
kl. 21.30 og 23. Höfundur og
flutningsmaður er Guðbrandur
Siglaugsson. Eftir hann liggja
nú sjö ljóðabækur auk efnis í
handritum. Sem fyrr segir er
um tvo þætti að ræða og má
ætla að hvor taki u.þ.b. stund-
arfjórðung í flutningi. Sá fyrri
heitir Sæfarir en hinn síðari
Daglbgt líf. Er Karólína öllum
opin á þ^ssum degi skáldskap-
arins.
í GÆR var undirritaður samning-
ur milli_ Tölvufræðslunnar Akur-
eyri og íslenska menntanetsins um
internetþjónustu á Norðurlandi
eystra. Gengið var frá samningn-
um með viðhöfn á sýningunni Iðn-
aði ’95 sem opnuð var á Hrafna-
gili í gær, en þar skipa tölvur veg-
legan sess eins og nærri má geta.
íslenska menntanetið hefur á
undanfömum fimm árum rekið
internetþjónustu fyrir mennta-
stofnanir, fyrirtæki og almenna
notendur. Frá upphafi hefur
markmiðið verið að allir lands-
menn gætu tengst alnetinu (inter-
net) á innanbæjarsímgjaldi, óháð
búsetu. Islenska menntanetið rek-
ur innhringimiðstöðvar á Akur-
eyri, ísafírði og í Reykjavík.
Unnið að stofnun landsnets
Á vegum íslenska menntanets-
ins hefur verið unnið að stofnun
landsnets og ein svæðismiðstöð
var opnuð í þeim tilgangi. Næsta
miðstöð verður opnuð fyrir Suður-
land 22. ágúst nk. í samvinnu við
Tölvun hf. í Vestmannaeyjum.
Að sögn Helga Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Tölvufræðsl-
unnar, hefur frá upphafí verið inn-
hringimiðstöð á Ákureyri fyrir
Norðurland eystra. Starfsemin
MÖÐRUVEIÆIR í Hörgárdal eru
mjög í sviðsljósinu vegna deilna
um sóknarprestinn en deilurnar
tóku á sig aðra mynd laust fyrir
hádegi í gær þegar lögregla var
kölluð á vettvang til að stöðva
efnistöku í landi Möðruvalla.
Bjarni Guðleifsson, formaður
náttúruverndarnefndar Eyjafjarð-
ar, óskaði eftir aðstoð lögreglunn-
ar á Akureyri við að stöðva fram-
kvæmdir verktaka við malarnám
í landi Möðruvalla. Ekki lá Ijóst
hefur vaxið stórlega og í kjölfar
þess var ákveðið að Tölvufræðslan
og Menntanetið gerðu með sér
samning um internetþjónustuna.
„Tölvufræðslan Akureyri mun
auk þess annast markaðs- og sölu-
fyrir hvort efnistaka þessi væri
heimil en meirihluti nefndarinnar
hafði sett sig á móti henni.
Þegar lögreglan kom á staðinn
varð það að samkomulagi að frek-
ari framkvæmdum yrði frestað þar
til málið hefði verið kannað nánar
og það litla jarðrask sem orðið
hafði var lagfært.
Að sögn lögreglu var engin
kæra lögð fram i málinu og full
sátt um það að bíða þ'ar til ljóst
væri hvort tilskilin leyfí væru fyr-
starf á Norðurlandi eystra. Við
munum leggja áherslu á breiða
og víðtæka þjónustu, allt frá ein-
földum upphringiaðgangi til teng-
inga við staðarnet fyrirtækja og
stofnana," sagði Helgi.
ir hendi.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagði það vinnureglu hjá
Vegagerðinni að haft er samband
við fulltrúa Náttúruverndarráðs
áður efnistaka er hafin á nýjum
stað og henni hafi sem endranær
verið fylgt i gær. Ráðherra sagði
óhjákvæmilegt að gera umhverfis-
mat á svæðinu, gijótnám spillti
ævinlega landi, það væri óumdeilt
og eins væri um frægan sögustað
að ræða í þessu tilviki.
Sátta leit-
að í Möðru-
vallasókn
ALLIR sóknarnefndarmenn í
fjórum sóknum Möðruvalla-
prestakalls sátu sáttafund með
séra Bolla Gústavssyni vígslu-
biskupi á Hólum í Þelamerkur-
skóla í gærkvöld. Áður hafði
séra Bolli rætt við sóknarprest-
inni séra Torfa Hjaltalín Stef-
ánsson, en hann var einnig á
fundinum í gær.
Ágreiningur hefur verið milli
sóknarprests og sóknarbarna'
um skeið og var fyrir skömmu
leitað eftir aðstoð biskups ís-
lands til að leysa hann. Hafin
er undirskriftarsöfnun í sókn-
um kirkjunnar þar sem þess
er krafist að biskup víki sóknar-
presti frá störfum.
Fundurinn í Þelamerkur-
skóla hófst kl. 21.00 í gær-
kvöld en séra Bolli Gústavsson
átti ekki von á að lausn fyndist
á fyrsta fundi, fremur væri um
nokkurs konar kynningarfund
að ræða, hann hyggðist kynna
sér hug sóknarnefndarmanna í
málinu. Hann vænti þess að
allir myndu reyna sitt besta til
að leysa málið „ég vona af
heilum hug að sátt náist í mál-
inUj“ sagði séra Bolli.
Osætti hefur verið í Möðru-
vallaprestakalli um skeið, en
hámarki náðu deiiurnar þegar
préstur tilkynnti að hann myndi
ekki heimila öðrum prestum að
vinna prestverk í Möðruvalla-
kirkju. í kjölfár þess var undir-
skriftarsöfnuninni hrint af stað
um helgina.
Hólasands-
dagur 1995
Arangur af
uppgræðslu
skoðaður
LAUGARDAGINN 19. ágúst
nk. gangast samtökin Húsgull
fyrir svokölluðum Hólasands-
degi til að kynna árangur upp-
græðsluverkefnisins þar fyrir
landbúnaðarráðherra og öðrum
gestum.
Dagskráin hefst kl. 10.30 á
Hólasandi, rétt norðan við
Sandvatnsbrekku við gróður-
reit Skógræktarfélagsins. í
kjölfar skoðunarferðar flytja
ráðherra og aðrir gestir ávörp
og síðan verður haldið að Hótel
Reynihlíð í Mývatnssveit þar
sem sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps býður í kaffi.
Óllum er velkomið að taka
þátt í þessari ferð og er hægt
að fara með rútu frá Hótel
Húsavík kl. 9.45 um morguninn
og heim aftur frá Hótel Reyni-
hlíð kl. 12.15.
Uppgræðsla Hólasands er
samvinnuverkefni landeigenda,
áhugafólks, fyrirtækja, sveitar-
félaga, Landgræðslunnar og
Skógræktarinnar. Land-
græðsla ríkisins hóf baráttu
gegn jarðvegs- og gróðureyð-
ingu í austurjaðri Hólasands á
árinu 1961 en ný sókn var
hafin í uppgræðslunni á síðasta
ári að tilstuðlan áhugasamtak-
anna Húsgulls á Húsavík.
Við uppgræðsluna er í fyrstu
lögð megináhersla á lúpínu en
markmiðið með uppgræðslunni
er að klæða allt svæðið gróðri
og koma af stað sjálfbærri
gróðurframvindu um næstu
aldamót. Nú hefur lúpínu- og
grasfræi verið sáð í um 1000
hektara lands og um 18.000
lúpínu-, birki- og loðvíðiplönt-
um verið plantað, en Hólasand-
ur er alls um 13.000 hektarar
að stærð.
Efnistaka stöðvuð í landi
Möðruvalla í Hörgárdal