Morgunblaðið - 05.09.1995, Síða 5

Morgunblaðið - 05.09.1995, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 5 FRÉTTIR Söfnun RKÍ Tólf millj- ónir sendar til Bosníu RAUÐI kross íslands sendi í gær til Bosníu 12 millj. króna sem að sögn Sigrúnar Árnadóttur, fram- kvæmdastjóra RKÍ, er áætlað að nægi til að sjá um 8.000 manns fyrir nauðþurftum í mánuð. Peningarnir söfnuðust í lands- söfnun RKÍ, Konur og börn í neyð, um helgina. Að sögn Sigrúnar stefndi í gær í að söfnunin mundi skila allt að 25 milljónum. 1.000 sjálfboðaliðar 50 Rauða kross deildir tóku þátt í söfnuninni og gengu um 1.000 sjálfboðaliðar i hús með söfnunar- bauka. Sigrún sagði að undirtektir hefðu verið afar vinsamlegar og framar vonum; flestir hefðu lagt eitthvað af mörkum þótt upphæð- irnar hefðu ekki alltaf verið háar. Um 5 milljónum af söfnunarfénu verður varið til þróunarverkefnis sem RKÍ tekur þátt í ásamt danska Rauða krossinum í fjallahéruðum yíetnam til að efla heilsugæslu. Öllum þorra fjárins verður hins veg- ar varið til hjálparstarfs í Bosníu. Sigrún Árnadóttir sagði að þeir, sem ekki gafst kostur á að gefa til söfnunarinnar um helgina, geti komið framlögum til skila með því að hringja í síma 800-5050 næstu daga. Útsending- ar Sýnar hefjast í október PÁLL Magnússon, fyrrverandi út- varpsstjóri Stöðvar 2, hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Sýnar. Fyrir- hugað er að hefja útsendingar á sjálfstæðri dagskrá um eða eftir miðjan október. Páll segir of snemmt að segja frá hugmyndum um dagskrá Sýnar, hann sé þessa dagana að fara yfir áætlanir og útreikninga sem legið hafa fyrir frá fyrri tíð. Sýn er í eigu samnefnds hlutafé- lags. íslenska útvarpsfélagið hf. á 20% hlutafjár, sem er hámarks eignarhlutur samkvæmt samning- um eigendanna við útvarpsréttar- nefnd um sjálfstæði Sýnar, Chase Manhattan-bankinn á 20% og aðrir eigendur íslenska útvarpsfélagsins eiga sem einstaklingar megnið af þeim 60% sem eftir eru, að sögn Páls. Stöðin hefur undanfarin ár verið notuð til beinna útsendinga frá Alþingi og dagskrá Stöðvar 2 var send út á henni á meðan mynd- lyklaskipti stöðvarinnar stoðu yfir. Gestur Jónsson, lögmaður íslenska útvarpsfélagsins, gegndi stöðu út- varpsstjóra. Keypt þjónusta af Stöð 2 Páll segir að samið verði við ís- lenska útvarpsfélagið um að Sýn kaupi þjónustu af Stöð 2. Nefnir hann notkun myndlykla Stöðvar 2 og innheimtukerfi. Einnig sé hugs- anleg samvinna um tæknilega hluti á öðrum sviðum, til dæmis sé lík- legt að Stöð 2 annist útsendingu efnis stöðvarinnar. Hins vegar verði dagskrá Sýnar sett saman á sjálf- stæðan hátt, óháð Stöð 2. Páll er eini starfsmaður Sýnar enn sem komið er. Hann hefur ein- hveija aðstöðu til bráðabirgða í húsnæði íslenska útvarpsfélagsins á Lynghálsi en segist vera að leita sér að skrifstofuaðstöðu. Morgunblaðið/Þorkell ÓLAFUR Skúlason sleppir löxum í Reynisvatn. Laxi sleppt í Reynisvatn ÓLAFUR Skúlason í Laxalóni sleppti aðfaranótt föstudags 35 löxum í Reynisvatn að fengnu leyfi yfirdýralæknis. Laxasleppingar í ár og vötn hafa verið bannaðar eftir að kýlaveikitilfelli komu upp í Elliðaám og laxeldisstöðinni í Kollafirði. Olafur segir að fiskur- inn hafi komið úr Stofnfiski á Höfnum, kynbótastöð laxfiska. Ólafur hefur jafnan sleppt löx- um á haustin í Reynisvatn. Veiði- leyfi í vatnið eru seld á 2.000 kr. og fylgja þeim 5 fiskar. Takist ekki að veiða fiskana í fyrstu at- rennu má veiðimaðurinn reyna fyrir sér aftur þar til hann hefur veitt alla fiskana fimm. Búið er að veiða tæplega 8 þúsund fiska í Reynisvatni í ár og eru laxarnir nokkurs konar bónus fyrir þá sem veiða í vatninu á sumrin. „Ég fékk leyfi til þess að sleppa fiskunum vegna þess að þeir eru ósýktir. Fiskurinn frá Stofnfiski er einangraður og laus við sjúk- dóma og ef til vill eina vonin í fiskræktinni. Fiskeldismenn vildu gjarnan að laxfiskar væru hafðir í einangrun í slíkri stöð því þá væri hægt að ganga að heilbrigð- um stofni ef upp kænii óvæntur sjúkdómur," sagði Ólafur. -til móts við nýjan dag Morgunverðurinn er mikilvægasta máltíó dagsins. Rannsóknir hafa leitt í ljós að þeir sem borða morgunverð afkasta meiru og ná betri árangri en hinir sem borða ekki neitt á morgnana. tKellogg's kornflögur eru mikilvægur hluti af hollu og næringarríku fæði barna og fullorðinna. Kellogg's kornflögur innihalda ríkulegan skammt af kolvetnum, próteini, vítamínum og steinefnum. tKeílogg's kornflögur örva mjólkurneyslu barna og eiga þannig þátt í að börn fullnægi ríkri þörf sinni fyrir prótein og kalsíum. Heilsið nýjum degi með Kellogg's kornflögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.