Morgunblaðið - 05.09.1995, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Æðsta
höfuðið
Fyrír skömmu var haldin ráðstefna í Borgar-
nesi um fomsögur Borgfírðinga og Mýra-
manna. Fjallað var um Egils sögu, sögu
Bjöms Hítdælakappa og Gunnlaugs sögu,
langtum mest þó um þá fyrstnefndu. Guð-
rún Guðlaugsdóttir sótti ráðstefnuna og
ræddi við nokkra fyrirlesara.
BJARNI Einarsson hélt
fyrsta erindið: Um kveð-
skapinn í Egils sögu.
Bjarni hefur manna
mest rannsakað og skrifað um
Eglu. í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins sagði Bjarni að
Egils saga væri varðveitt í þremur
höfuðgerðum, Möðruvallarbók,
Ketilsbók og Wofen- ____________
buttelbók. „Það stendur
til nú á næstunni að
gefa út hjá Árnasafni í
Kaupmannahöfn alla _____________
þessa texta með skyld-
um textabrotum." sagði Bjarni.
„Jón Helgason byijaði á þessu
verki fyrir mörgum árum og lét
eftir sig drög að útgáfu fyrsta
bindis, Möðruvallarbókar og
skyldra textabrota. Ég var beðinn
að halda þessu verki áfram og hef
unnið við það í ígripum. Ég hef
nánast lokið því verki, en býst
ekki við að ég taki að mér vinnu
við hin bindin. Ég er líka að vinna
að útgáfu Egils sögu fyrir Árna-
stofnun, sem verður handhæg
lestrarútgáfa á grundvelli textans
Endalaust
rannsóknar-
efni
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
BJARNI Einarsson
í Möðruvallabók, einkum ætluð
útlendingum, enda með inngangi
og skýringum á ensku.“
Bjarni sagði ennfremur að Egils
saga og aðrar íslendingasögur
væru nánast endalaust rann-
sóknarefni fyrir fræðimenn.
„Einkum beinast sjónir manna að
bókmenntaumhverfi þessara
________ sagna og hvernig þær
hafa getað orðið til, sem
verður aldrei fyllilega
rannsakað. Menn hafa
misjafnar skoðanir á
þessum sögum. Sumir
vilja gera sem mest úr munnmæla-
sögum en aðrir vilja rannsaka sem
mest þá texta sem til eru, og það
er mín skoðun. Ég lít á Egils sögu
og aðrar íslendingasögur sem rit-
höfundaverk fyrst og fremst. í
doktorsritgerð minni, sem ég varði
við háskólann í Osló fyrir tuttugu
árum, gat ég m.a. bent á að Eglu-
höfuridur hafi haft mikið gagn af
frásögnum í Orkneyingasögu. Það
hefur enginn vefengt. Fjölbreyti-
leiki skáldskaparins í Egils sögu
gefur ákveðna bendingu um einn
höfuðtilgang sögunnar, það er að
efla áhuga á hefðbundnum skáld-
skap og vera um leið ungum skáld-
um þess tíma til fyrirmyndar og
hvatningar."
Bergljót S. Kristjánsdóttir flutti
fyrirlestur um höfuð Egils Skalla-
Grímssonar. „Það var búið að
bögglast fyrir mér árum saman
hvaða hlutverki þetta höfðatal í
Egils sögu gegndi. Ég fór að hugsa
um líkingamálið sem notað var á
miðöldum um konunginn sem höf-
uð en almenning sem líkamann.
Ég þóttist sjá að í Egils sögu
væri verið að tefla saman höfði
íslenska bændahöfðingjans og
Noregskonungs,“ sagði Bergljót.
„Egils saga er ákaflega margræð
saga og eigi að gera henni rétt til
í túlkun, má ekki gleyma því eitt
andartak. En rauði þráðurinn í
sögunni allri er að höfuð Skalla-
Gríms og afkomenda hans stendur
a.m.k. jafnhátt og höfuð norsku
konugnsfjölskyldunnar. I ofanálag
ræður það yfir gáfu skáldskapar-
ins og galdursins - sem beita má
konungum til þægðar og óþægð-
ar. Ég held að Egils saga sé ekki
bara saga af tiltekinni ætt og til-
teknum einstaklingi, heldur öðru
fremur sagan af hinu íslenska
primum caput (æðsta höfði),“
sagði Bergljót.
Snorri Þorsteinsson, formaður
Sögufélags Borgfirðinga, hélt
fyrirlestur sem hann nefndi Konur
í Egilssögu. „Ég las _____________
Egils sögu bam að aldri
og kenndi hana fyrir
mörgum árum. Þá fór
ég að velta fyrir mér
hlutverki kvenna í sög-
unni. Þær eru að sönnu ekki sér-
lega áberandi en þær eru notaðar
til þess að varpa ljósi á ákveðna
þætti í skaplyndi Egils Skalla-
Grímssonar. Éins og t.d. þegar
hann gengur á hólm við Ljót bleika
sem lagt hafði hug á stúlku sem
hafnaði honum og hann skorar svo
bróður hennar á hólm í framhaldi
af því. Egill hrærist til meðaumkv-
unar með stúlkunni og barðist því
við Ljót og felldi hann. Svipað má
segja um samúð Egils með Helgu
Þorfinnsdóttur sem lá sjúk af völd-
Akaflega
margræð
saga
um rúnaristu pilts sem vildi þann-
ig ná ástum hennar en kunni ekki
með að fara. Bæði atvikin sýna
jákvæða drætti í mynd ofstopa-
og bardagamannsins Egils. Fóstr-
an Brák, sem ég raunar leyfi .mér
að draga í efa að hafi verið til
með þeim hætti sem sagan segir,
hún fóstraði Egil. Hún var fjöl-
kunnug og bjargaði lífi hans, þeg-
ar Skalla-Grímur drepur hana þá
drepur Egill í staðinn þann sem
föður hans var kærstur. Élsta dótt-
ir Egils, Þorgerður, bjargar lífi
hans líka, þegar hann ætlar að
svelta sig í hel, fær hann til að
yrkja Sonartorrek. Þessi endur-
tekning, lífgjöf Egils, hún styrkir
atburðarásina og varpar skýrara
ljósi á hana. Þriðja konan sem
bjargar svo lífi hans í vissum skiln-
ingi er Þórdís stjúpdóttir hans, sem
hann unni mjög. Hún lætur grafa
bein hans í vígða mold og bjargar
þannig, samkvæmt skilningi tólftu
aldar manna, hinu andlega lífi
hans.“
Það var Stofnun Sigurðar Nor-
dals og heimamenn í héraði sem
stóðu að fyrrnefndri ráðstefnu í
Borgarnesi. Að sögn Ulfars
Bragasonar hjá Stofnun Sigurðar
Nordals var haldið svokallað
Hrafnkötluþing á Egilsstöðum árið
1993 að tilhlutan stofnunarinnar
og héraðsbúa. „Menn voru ánægð-
ir með að hafa slíkt fræðaþing
utan Reykjavíkur og fara á sögu-
slóðir,“ sagði Úlfar. „í framhaldi
af því kom upp sú hugmynd að
halda önnur slík annars staðar á
________ landinu og við ákváðum
að bera niður í Borgar-
nesi, bæði vegna þess
hve mikið hefur verið
skrifað um Egils sögu
“““““ og í annan stað vegna
þess að Sigurður Nordal gaf út
Egils sögu og hún var honum
hugleikin. Loks voru söguslóðir
hennar hæfilega langt frá Reykja-
vík til þess að vekja áhuga fólks
á að koma á þingið. Markaðsráð
Borgarness, sem Guðrún Jónsdótt-
ir veitir forstöðu, hefur unnið að
því að efia tengsl ferðaþjónustu
og menningarkynningar, sam-
starfið við okkur er liður í því. Á
þessa ráðstefnu komu hátt í tvö
hundruð manns,“ sagði Úlfar að
lokum.
Svefnlist
Bókmenntahátíð í Reykjavík
Fj öldi er-
lendra gesta
væntanlegur
Dagskrá
RúRek 1995
DAGSKRÁ RúRek í dag,
þriðjudag, er eftirfarandi;
Tríó Olafs Stephensens og
gestir leika í Menningarstofn-
un Bandaríkjanna kl. 20.30.
Andrew D’Angelo og félagar
verða í Leikhúskjallaranum kl.
21.30. Á Fógetanum kl. 22
leika Dixílandhljómsveit
Björns R. Einarssonar og
Kvartett Gests Pálssonar.
Kvartett Frits Landesbergen
verður á Jazzbarnum kl. 22
og á Kringlukránni leikur
Jazzband Hornafjarðar kl. 22.
Monteverdi í
Selfosskirkju
SEPTEMBERTÓNLEIKAR
Selfosskirkju byija í kvöld kl.
20.30. Aðgangur er ókeypis
sem fyrr.
Flytjendur á fyrstu tónleik-
unum eru fleiri en nokkurn
tíma fyrr í þessari tónleikaröð
frá því hún byijaði 1991.
Silfurverðlaunahafi úr
keppni ungra norrænna hljóm-
sveitarstjóra í fyrra, Gunn-
steinn Olafsson, hefur stefnt
til Selfoss, kór, barokhljóm-
sveit og sex einsöngvurum, þ.á
m. heimsfrægum enskum ten-
ór, Ian Partridge.
Á efnisskránni er eitt verk,
„Aftansöngur Maríu“ eftir
Monteverdi 1567-1643.
„ER þetta list?“ hafa Lundúnabú-
ar spurt sjálfa sig að þegar þeir
hafa séð nýjustu listauppákom-
una í borginni, sem leikkonan
Tilda Swinton tekur þátt í. Uppá-
koman „Kannskið" (The Maybe)
felst í því að Swinton sefur í gler-
búri í sýningarsal í London, um-
kringd undarlegum hlutum á
borð við vindlastubh Winstons
Churchill og sokka Viktoríu
drottningar. Sýningin hófst I gær
og stendur í eina viku.
Til að undirbúa sig sneri Swin-
ton sólarhringnum við og sefur
nú að degi til. Þá hefur hún
svefnlyf við höndina ef henni
gengur illa að sofa. Eru sýning-
argestir beðnir um að banka
ekki í glerið eða reyna á annan
hátt að trufla svefn leikkonunn-
ar. Bíða áhorfendur í ofvæni eft-
ir því hvort að eitthvað muni
gerast, hvort Swinton hrjóti,
dreymi illa eða verði jafnvel að
bregða sér á snyrtinguna.
Swinton öðlaðist frægð fyrir
leik sinn í kvikmyndinni „Or-
lando“ þar sem hún fór með hlut-
verk persónu sem í fyrstu er
karlkyns en breytist er á líður í
konu. Leikkonan hefur lítið vilj-
að Iáta hafa eftir sér um þýðingu
verksins, segir hana ekki tengj-
ast sér á nokkurn hátt og eftir-
lætur hveijum og einum að túlka.
BÓKMENNTAHÁTÍÐIN í
Reykjavík verður haldin í fjórða
sinn dagana 10. til 16. september
næstkomandi. Fjöldi erlendra
gesta verður á meðal þátttakenda
að þessu sinni. Þeirra á meðal er
bandaríski skáldsagnahöfundur-
inn William Styron sem kunnastur
er af sögu sinni Sophies Choice
en eftir henni hefur verið gerð
vinsæl kvikmynd. Styron mun lesa
upp úr verkum sínum á hátíðinni.
Áðurnefnd kvikmynd verður einn-
ig sýnd en fyrir sýninguna heldur
hann fyrirlestur um verk sín.
Meðal annarra erlendra höfunda
á hátíðinni er Englendingurinn
Martin Amis, sem þótt hefur meðal
eftirtektarverðustu höfunda síð-
ustu ára. Patrick Chamoiseau frá
eyjunni Martiníkk í Karíbahafymun
halda fyrirlestur um Kreóla-menn-
ingu Martiníkk og lesa úr verkum
sínum en -hann nýtur virðingar og
vinsælda í hinum frönskumælandi
heimi þrátt fyrir djörf efnistök og
stíl. Frá Noregi kemur Jostein
Gaarder sem er höfundur hinnar
geysivinsælu sögu um Veröld Soff-
íu sem þýdd hefur verið á íslensku.
Frá Svíþjóð kemur landflótta skáld-
kona frá Bangladesh, Taslima
Nasrin, sem skrifað hefur athyglis-
verðar bækur um réttleysi kvenna
í heimalandi sínu.
Skáldskapur og
sagnfræði
Meðal íslenskra höfunda á há-
tíðinni verða Einar Már Guð-
mundsson, Vigdís Grímsdóttir,
Ólafur Jóhann Olafsson og Stein-
unn Sigurðardóttir.
Á hátíðinni verða haldnar pall-
borðsumræður með þátttakendum
um ýmsar hliðar á þema hátíðar-
innar sem er skáldskapur og sann-
fræði.
Fjallað verður nánar um dagskrá
hátíðarinnar í menningarblaði
Morgunblaðsins næstkomandi
laugardag.