Morgunblaðið - 05.09.1995, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Larsen í
betri æfingu
en Friðrik
skák
Afmælismót Friö-
riks Ólafssonar
oj5 Skáksambands
í s 1 a n d s
ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI
2.-16. september 1995
ÞAÐ var sem íslensk skák-
hreyfing færðist 40 ár aftur í
tímann á sunnudaginn. Húsfyllir
var í Þjóðarbókhlöðunni til að
fylgjast með æsispennandi viður-
eign Friðriks og Larsens og mið-
að við frásagnir frá einvígi þeirra
í Sjómannaskólanum árið 1956
var stemmningin álíka góð. Frið-
rik náði nokkurn veginn að jafna
taflið eftir byijunina, en í mið-
tafli náði Larsen sóknarfærum.
Þrátt fyrir mikla bjartsýni áhorf-
enda reyndist danski víkingurinn
í mun betri æfíngu en Friðrik,
sem lítið hefur teflt í rúman ára-
tug og hann vann öruggan sigur.
Larsen virðist ávallt ná sínu
besta hér á íslandi og í fyrstu
umferðunum tveimur voru það
skákir hans sem langmesta at-
hygli vöktu. í fyrstu umferð á
laugardaginn byggði hann upp
mjög vænlega stöðu gegn Jó-
hanni Hjartarsyni, en varð of
bráður á sér og lék hveijum af-
leiknum á fætúr öðrum fyrir
tímamörkin. Þessi staða kom upp
eftir 37. leik Jóhanns:
Svart: Bent Larsen
abcdsfgh
Hvítt: Jóhann Hjartarson
37. - Hxf2?
Það var út í hött að gefa e
peðið með skák. Betra var 37. —
Df5 og 38. Bfl er þá svarað
með 38. — g4.
38. Dxe4+ - Kh6 39. Rd3!
- Bxc4? 40. Hb7!
Larsen hefur greinilega yfír-
sést þessi gagnsóknarleikur sem
hótar máti á h7. Nú er hann
gripinn örvæntingu og tapar
manni, en eftir 40. — Hf5! voru
úrslitin ennþá ekki ráðin.
40. - Rg6? 41. Hxc4 - Dal +
42. Hcl - Da3 43. Rxf2 -
Dxcl+ 44. Bfl og Larsen gafst
upp.
Við skulum líta á úrslit
tveggja fyrstu umferðanna og
stöðu keppenda:
1. umferð:
Friðrik - Þröstur 'h— 'h
Gligoric — Margeir 'h-'h
S. Polgar — Helgi Áss 'h— 'k
Jðhann—Larsen 1-0
Helgi Ól. — Smyslov 'k—'k
Hannes — Jón L. 1-0
2. umferð:
Larsen —Friðrik 1-0
Jón L. — Margeir 'k—'k
Smyslov — Jóhann 0-1
Helgi Áss — Gligoric 'k-'k
Hannes - Helgi Ól. 'A-'A
Þröstur - S. Polgar 'A-'/z
Staðan eftir 2 umferðir:
1. Jóhann 2 v.
2. Hannes 1 'A v.
3. -9. Larsen} Margeir,
Helgi Ól., Helgi Ass, S. Polg-
ar, Gligoric og Þröstur 1 v.
10.-12. Friðrik, Smyslov og
Jón L. 'h v.
Mótið hefur gengið mjög vel
það sem af er og aðsókn hefur
verið mjög mikil. Auk þess sem
hægt er að horfa á skákimar
stendur yfír sýning í tilefni af-
mælanna, þar gefur t.d. að líta
margar skemmtilegar ljósmyndir
frá sögu íslenskrar skáklistar.
Auk þess er hægt að fá sér létt-
ar veitingar og fylgjast með
skákunum á sjónvarpsskjám. Frí
er á mótinu í dag, þriðjudag, en
7--XAJJUi S.1—T
rst
Mfttrttit/
Nasa\n 11
friorik
ISL 7A<i$
B.LARSEN
DEN 2SIS
FRIÐRIK Ólafsson og Bent Larsen sitja að tafli.
Morgunblaðið/Þorkell
fjórða umferðin fer fram í Þjóð-
arbókhlöðunni á morgun klukk-
an 17.
Aldursforseti mótsins, Vassílí
Smyslov, 75 ára, tefldi góða skák
með svörtu í fyrstu umferð gegn
Helga Ólafssyni. Smyslov stóð
ívið betur í endatafli áður en
jafntefli varð niðurstaðan. En í
annarri umferð varð heimsmeist-
arinn fyrrverandi fyrir hroðalegu
áfalli gegn Jóhanni. Hann gerði
sig sekan um grófan fingurbijót
strax í 13. leik. Eftir annan af-
leik mátti hann svo gefast upp
eftir aðeins 16 leiki, en þá var
mannstap óumflýjanlegt.
Viðureign þeirra Friðriks og
Larsens gekk þannig fyrir sig:
Hvítt: Bent Larsen
Svart: Friðrik Ólafsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. f4 - g6 3. Rf3
- Bg7 4. Be2 - Rc6 5. 0-0 -
d6 6. d3 - Rf6 7. Khl - Hb8
8. Rc3 - b5 9. Del - Rd4 10.
Bdl — 0-0 11. Rxd4 — cxd4
12. Re2 — Rg4 13. c3 — dxc3
14. Rxc3 - Rf6 15. a3 - a5
16. b4 — Bg4 17. Bxg4 — Rxg4
18. Bb2 - Hc8 19. Dd2 - axb4
20. axb4 — Re3 21. Dxe3 —
Bxc3 22. Bxc3 - Hxc3 23. f5
- Dc7 24. h4
(Sjá stöðumynd)
Friðrik hefur teflt' fullmikið
uppá uppskipti og hvítur hefur
visst frumkvæði. Hér er skiljan-
legt að svartur veigri sér við
peðsráninu 24. — Dc4 25. Hf3
— Dxb4, en sú staða er reyndar
engan veginn ljós. Einnig kom
til greina að beita óvirkari vöm
með 24. — Kg7. í staðinn lætur
Friðrik peð af hendi án þess að
fá bætur í staðinn. Auk þess
átti hann innan við tíu mínútur
eftir.
24. - gxf5? 25. Hxf5 - f6
26. Hxb5 - Hc8 27. Ha7 -
Dd8 28. Hbb7 - H3c7 29. b5
- Hxb7 30. Hxb7 - Kf7 31.
b6 - Hc2 32. Dh6 - Kg8 33.
Dh5 - Hc5 34. Dg4+ - Kf7
35. d4 - Hb5 36. Hc7 - h5
37. De2 - Ha5 38. d5 - Dh8
39. b7 - Hal+ 40. Kh2 - Hbl
41. Hc8 og svartur gafst upp.
Heimasigur í London
Enski stórmeistarinn Michael
Adams sigraði á Intel útsláttar-
mótinu í atskák sem lauk í Lond-
on á sunnudaginn. Hann vann
Rússann Drejev í úrslitum. At-
skákum þeirra lauk 1—1, en í
úrslitahraðskák hafði Adams
betur. Mótið gekk þannig fyrir
sig:
1. umferð: 1. Ivantsjúk, Ukraínu, 2.780 - Malanjúk, Úkraínu 2.580 2-0
2. Margeir Pétursson 2.565 — Drejev, Rússlandi 2.670 '/2-1 'A
3. I. Sokolov, Bosníu 2.630 - Short, Englandi 2.645 2-1
4. Lautier, Frakklandi 2.645 — Anand, Indlandi 2.725 1-2
5. Morosevitsj, Rússl. 2.630 - Piket, Hollandi 2.625 0-2
6. Speelman, Engl. 2.620 - Adams, Engl. 2.660 'h-l'h
7. Lobron, Þýskalandi 2.595 — Van Wely, Hollandi 2.585 1-2
8. Miles, Englandi 2.600 - Kramnik, Rússlandi 2.730 2-1
Fjórðungsúrslit: ívantsjúk - Drejev 1-2
I. Sokolov-Anand 0-2
Adams vann Piket Miles vann Van Wely Undanúrslit: Drejev - Anand 2-1
Ádams-Miles 1 'h-h
Úrslit: Adams - Drejev 2-1
Margeir Pétursson
TILBOÐ
á barnamyndatökum
7.-21. september.
Kynntu þér verðið.
Pantaðu strax.
Barna og
Fjölskylduljósmyndir
sími: 588 7644
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 554 3020
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 4207
3 Ódýrari
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Rajjnarsson
Bridsfélag Kópavogs
byrjar á fimmtudaginn
STARFSEMI Bridsfélags Kópavogs
hefst nk. fimmtudagskvöld. Spilað-
ur verður eins kvölds tvímenningur.
Spilað er í Þinghól á Álfhólsvegin-
um og hefst spilamennskan kl.
19.45. Keppnisstjóri er Hermann
Lárusson.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 31. ágúst spiluðu
16 pör tvímenning og úrslit urðu
þessi:
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 242
Bergljót Rafnar - Soffla Theodórsdóttif 231
ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 229
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 222
Meðalskor 210
Sunnudaginn 3. september spil-
uðu 14 pör. Úrslit urðu þessi:
Ingunn Bergburg - Halla Ólafsdóttir 186
BaldurÁsgeirsson - Magnús Halldórsson 185
Fróði B. Pálsson - Haukur Guðmundsson 182
Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 173
SoffTa Theodórsdóttir - Bergljót Rafnar 173
Meðalskor 156
Og er þá einn sunnudagur eftir
í þessari keppni.
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Vetrarstarf deildarinnar hefst
mánudaginn 18. september kl.
19.30. Spilað verður í húsi Brids-
sambands íslands, Þönglabakka 1.
Sem fyrr spila Barðstrendingar
á mánudögum kl. 19.30.
Mánudaginn 18. september nk.
verður spilaður eins kvölds _tví-
menningur. Spilastjóri verður ísak
Örn Sigurðsson.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Vetrarstarfið hefst mánudaginn
11. september með eins kvölds tví-
menningi. Spilað er í nýja félags-
heimilinu og hefst spilamennskan
kl. 19. Nánari upplýsingar gefa
Páll í síma 55-13599 eða Karl í
síma 56-29103.
Mótaskrá Bridssambandsins
Mótaskrá Bridssambandsins fyr-
ir næsta vetur hefur nú verið ákveð-
in og send bridsfélögunum en helztu
mót á vegum sambandsins verða
þessi:
16.-17. sept.
Bikarkeppni BSÍ, undanúrslit og
úrslit
MÁLASKÓLI
552 6908
Danska, sænska, enska, þýska, franska, ítalska, spænska, rússneska og íslenska.
Innritun daglega frá kl. 13—19
Kennsla hefst 18. september.
Starfsmenntarsjóðir ýmissa starfsmannafélaga greiða skólagjöld félagsmanna að
og Verslunarmannafélag Reykjavíkur veitir sínum mönnum námsstyrk.
Kennslan fer fram I Miðstræti 7.
HALLDÓRS
552 6908
7.-8. okt.
íslandsmót í einmenningi
22. okt.
Ársþing BSÍ
28.-29. okt.
íslandsmót kvenna í tvímenningi
4.-5. nóv.
íslandsmót yngri og eldri spilara í
tvímenningi
17. nóv.
Landstvímenningur Philips Morris
18. -19. nóv.
Firmatvímenningur BSÍ
27.-28. jan.
íslandsmót í parasveitakeppni
16.-19. feb.: Bridshátíð BSÍ, BR
og Flugleiða
23. -25. feb.
Islandsmót kvenna og íslandsmót
yngri spilara í sveitakeppni
15.-17. mars
íslandsmót í sveitakeppni -
undanúrslit
26. -31. mars
Evrópumót í paratvímenningi og
sveitakeppni
3.-6. apríl
Islandsmót í sveitakeppni - úrslit
25.-26. apríl
íslandsmót í tvímenningi -
undankeppni
27. -28. apríl
íslandsmót í tvímenningi - úrslit
11.-12. maí
íslandsmót í paratvímenningi
25.-26. maí
Kjördæmakeppni BSÍ.