Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 29
28 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ fNftgiiiiftbifeií STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. DAGURISLENZKR- AR TUNGU * ISLENDINGAR eru ekki eina smáþjóðin sem hefur áhyggj- ur af tungu sinni og menningu á tímum alþjóðlegrar fjöl- miðlunar þar sem enskan ræður ferð. Við gerum okkur á hinn bóginn betur grein fyrir því, máski vegna fámennis þjóðarinn- ar, hve mikilvægt það er fyrir menningarlegt og stjórnarfars- legt sjálfstæði okkar að standa vörð um móðurmálið og menn- ingararfleifðina. Það er því sérstakt fagnaðarefni, að ríkis- stjórn landsins hefur ákveðið, að tillögu menntamálaráðherra, að fæðingardagur þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar verði framvegis Dagur íslenzkrar tungu, helgaður vernd og vöndun móðurmálsins. Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær, að næsta skref sé að útfæra hugmynd- ina að Degi íslenzkrar tungu, sem efnt verður til í fyrsta sinn 16. nóvember 1996. „Við höfum ár til að undirbúa þennan dag undir þessum formerkjum,“ sagði ráðherrann, „og ég mun fá fleiri til liðs við mig til að ákveða hvernig það verður gert.“ Kveikjan að þessu átaki er vilji til að auka veg íslenzkrar tungu. Sá vilji segir sem betur fer til sín víða í samfélaginu. Það er skynsamlegt að veita þeim kröftum í einn ákveðinn farveg, Dag íslenzkrar tungu. Og það er maklegt að sá dagur sé fæðingardagur listaskáldsins góða, sem lék af hvað mestri snilld á strengi þjóðtungunnar. Vitundin um mikilvægi móðurmálsins og menningarlegs sjálfstæðis okkar má ekki slævast í fjölbreytileika alþjóðlegr- ar fjölmiðlunar, í utanaðkomandi máláhrifum. Án vökullar varðstöðu er hætta á því „að móðurmálið streymi sína leið út í hið engilsaxneska hafdjúp," eins og Ragnheiður Briem, kenn- ari í íslenzku og málvísindum, komst að orði í greinaflokki í Lesbók Morgunblaðsins fyrir nokkrum árum. Dagur íslenzkr- ar tungu þarf að verða herhvöt til þjóðarinnar um málvernd og málvöndun. BREYTINGAR í REKSTRI RÍKISSTOFNANA IÞEIM miklu umræðum, sem staðið hafa undanfarin ár um leiðir til þess að draga úr opinberum útgjöldum, hefur athyglin fyrst og fremst beinzt að útgjaldafrekustu málaflokk- um ríkisins, svo sem heilbrigðismálum, velferðarkerfinu, menntamálum og landbúnaðarmálum. Minna hefur verið rætt um þann sparnað, sem hægt er að ná fram með endurskipu- lagningu í ríkisrekstrinum, þ.á m. breytingum á starfi ein- stakra ríkisstofnana, sameiningu þeirra eða jafnvel að þær ver.ði lagðar niður. Halldór Blöndal, samgönguráðherra, vakti athygli á þessum þætti ríkisrekstursins í ræðu á aðalfundi LIÚ fyrir skömmu. Hann skýrði frá áformum um sameiningu Vita- og hafnamála- stofnunar og Siglingamálastofnunar og vék í því sambandi að nauðsyn þess, að einstakar stofnanir búi við fjárhagslegt sjálfstæði og sagði: „Á síðustu árum hefur verið unnið mark- visst að hagræðingu og innra skipulagi Vita- og hafnamála- stofnunar og hefur stofnunin gert sérstakan þjónustusamning við samgöngu- og fjármálaráðuneyti, sem felur í sér meiri stjórn eigin mála en áður, þar á meðal fjármála. Reynslan af þessu nýja fyrirkomulagi er stutt, en ég er ekki í vafa um að nauðsynlegt sé að stíga hið fyrsta annað skref til meira fijálsræðis.“ Samgönguráðherra sagði ennfremur: „Ég held, að það geti verið árangursríkt að auka fjárhagslegt sjálfstæði einstakra ráðuneyta og stofnana. Ég tel skynsamlegt að keppa að því að reyna að auka sértekjur einstakra stofnana og er ekki í vafa um, að slíkt mundi auka hagræðingu og leiða til sparnað- ar.“ Með sama hætti og víðtæk endurskipulagning hefur farið fram í atvinnulífinu undanfarin ár, m.a. msð sameiningu fyrir- tækja, er eðlilegt að leita leiða til þess að spara í ríkisrekstrin- um á sama veg, kanna hvort einhveijar ríkisstofnanir eru í raun orðnar úreltar, þannig að ekkert mundi gerast þótt þær yrðu lagðar niður og hvort sameining annarra getur leitt til sparnaðar. Slíkar aðgerðir ásamt sölu ríkisfyrirtækja og ríkis- eigna geta haft umtalsverð áhrif til hins betra á fjárhags- stöðu hins opinbera. Það er hins vegar ljóst, að aðgerðir af þessu tagi geta mætt harðri mótspyrnu. Þegar t.d. hefur verið rætt um að leggja niður sýslumannsembætti, sameina og fækka, hafa talsmenh ýmiss konar hagsmuna risið upp til andmæla. Ein- stök byggðariög vilja ekki missa þessi embætti úr sínu lög- sagnarumdæmi og menn telja margvíslega hagsmuni tengda því að halda embættunum. Það er hins vegar ekki bæði hægt að halda og sleppa. Aukinn hlutur kvenna Áhersla á fléttulista eða frelsi einstaklings? Hvernig geta flokkarnir aukið hlut kvenna í flokksstjórn og á þingi? Þannig var spurt á fundi Kvenréttinda- félags íslands með forystumönnum flokk- anna. Hildur Einars- dóttir sat fundinn og hlustaði á ólík sjónarmið sem þar komu fram. ITILEFNI af því að áttatíu ár eru liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og öðluðust kjörgengi til Alþingis bauð Kvenréttindafélag íslands for- mönnum flokkanna á opinn fund á Grand Hótel 1 Reykjavík til að ræða um stöðu kvenna í flokkunum. Tveir formenn mættu til fundarins, Mar- grét Frímannsdóttir fyrir hönd Al- þýðubandalagsins og Jóhanna Sig- urðardóttir, Þjóðvaka. Fyrir Sjálf- stæðisflokk var Friðrik Sophusson, Valgerður Sverrisdóttir, Framsókn- arflokki, Rannveig Guðmundsdóttir, Alþýðuflokki, og Kristín Einarsdótt- ir, Kvennalista. Sú spurning var lögð fyrir forsvarsmenn flokkanna hvað þeirra flokkur hyggðist gera til að auka hlutfall kvenna í flokksstjórn og á þingi? 40% reglan Jóhann Sigurðardóttir kvað það vera lög í hennar flokki að þess væri gætt við kjör í stjórnir, nefnd- ir og ráð að hlutdeild annars kyns- ins væri aldrei undir fjörtíu prósent- um. í sama streng tók Margrét Frí- mannsdóttir og sagði að 40% reglan væri virk í Alþýðubandalaginu. Rannveig Guðmundsdóttir sagði áformað að festa þessa reglu í lög Alþýðuflokksins. Jafnframt sagði hún að Samband alþýðuflokks- kvenna hygði á öflugt uppbygg- ingarstarf sem hæfist á þessum vetri meðal annars með námskeið- um og verkefnavinnu. „Svo konur verði fjölmenn sveit, tilbúin til dáða í næstu sveitarstjórnarkosningum," eins og hún orðaði það. Valgerður Sverrisdóttir sagði Landssamband Framsóknarkvenna nú þegar hafa unnið mikið starf til þess að efla konur í Framsóknar- flokkhum og sagði jafnframt, „að flokkurinn hefði 40% regluna í huga.“ En engar aðgerðir á flokks- vísu væru í undirbúningi --------- til að auka hlut kvenna í flokksstarfinu eða á þingi. Valgerður taldi að alls staðar þar sem þing- sæti losnuðu eða ef þing- mönnum Framsóknar- flokksins fjölgaði ættu konur möguleika á að ná sætum vegna þess hve margar konur væru nú varaþingmenn eða 66,7%. Val- gerður sagði jafnframt að kjör- dæmaskipanin væri hluti af vandan- um. Það væri ekki þar með sagt að þeir flokkar sem nú væru I ríkis- stjórn væru tilbúnir til að gera land- ið að einu kjördæmi. Margrét Frímannsdóttir sagðist ekki viss um að það væri ein allsher- jarlausn að hafa landið eitt kjör- dæmi en Alþýðubandalagið hefði ályktað á einum fundi sínum að skoða réttlátari kjördæmaskipan. ÞRÍR af þátttakendum í ráðstefnunni, Hlín Daníelsdóttir, Aðal- heiður Franzdóttir og Sólveig Olafsdóttir. Kerfisbundið starfsmat grunnurað breyttu launa- kerfi Morgunblaðið/Ásdís FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra, Hansína Einarsdóttir fundarstjóri og Rannveig Guðmundsdótt- ir alþingismaður í ræðustól. enda svo ákvörðunartökur þeirra yrðu gagnsærri. Þannig að það væri ljóst af hveiju fólk fengi starfs- frama, stöðuhækkun, kauphækkun eða aukavinnu. Með þessu væri líka hægt að komast hjá því að óform- legt samband karla hefði áhrif á það hver hlyti starfsframan. Fjölga þarf konum í ríkisstjórn, þar eru völdin Forystumennirnir voru spurðir að því hver væri að þeirra mati helsta hindnmin að konur kæmust til frek- ari valda innan flokkanna? Svaraði Margrét því til að það væru hefðir i þjóðfélaginu og svo auðvitað karl- ar! Valgerður kvað okkur ekki vera komin nógu langt í jafnréttisbarátt- unni almennt og sagði enn ríkja mikið misrétti á heimilunum sem hindraði þáttöku kvenna í opinberu lífi. Rannveig taldi að konum þætti ekki eins eftirsóknarvert og körlum að komast í fremstu raðir í þjóðfélag- inu, þar spiluðu ef til vill inn í önnur gildi. Breyta þyrfti ásýnd stjórnmál- anna til að laða konur að. Sjónarmið þeirra væru oft önnur en karla og því nauðsynleg til að tryggja lýðræð- islega stjórnarhætti. Þær konur sem gæfu kost á sér til stjórnmálastarfa væru oft örþreyttar vegna mikils vinnuálags, sem stafaði af því hve konur væru fáar í forystustörfum innan flokkanna. Friðrik lýsti þeirri skoðun sinni að jafnréttislögin dygðu ekki ein og sér til að breyta ástandinu. „Mín skoðun er sú að skilvirkasta aðferðin til að breyta hugarfarinu sé að leggja áherslu á einstaklingsfrelsi kvenna fremur en höfða til meðaumkunar með því að líta á konur sem einsleit- an, undirokaðan hóp, sem hlotið hafi það ömurlega hlutskipti í vöggu- gjöf að ala upp börn og stunda önn- ur vanmetin umönnunarstörf. Þann- ig tryggjum við að mann- réttindi séu virt og þannig tryggjum við hag fjöl- skyldunnar," sagði Frið- rik. Jóhanna taldi að það væri fyrst og fremst í stóli .... ráðherra sem konur hefðu völd til að breyta einhveiju því þyrfti að ijölga konum í ríkisstjórn. „Það eru ótal dæmi um það að þegar konur eru búnar að olnboga sig af mikilli hörku gegnum karl- stýrt valdakerfið sé þeim ómögulegt eða ef til viil vilja þær ekki vinna að bættri stöðu kvenna,“ sagði Krist- ín. Kvaðst hún vilja gera orð Bríetar Bjarnhéðinsdóttur að sínum: „Höld- um saman, tökum höndum saman, fyrir utan og ofan flokkapólitíkina til að vinna hver með annarri, og hver fyrir aðra, að sameiginlegu heilla- og jafnréttismarki.“ Breytingarnar eðlilegar og óþvingaðar „Konum hefur fjölgað talsvert í hefðbundnu starfi flokksins, bæði í félögum og forystusveit ungs sjálf- stæðisfólks, sagði Friðrik Sophus- son. „Það er einmitt með þessum hætti sem við sjálfstæðismenn viljum sjá breytingarnar, þ.e. sem eðlilegar og óþvingaðar afleiðingar nýrra við- horfa." Jafnframt sagði Friðrik að verið væri að leita leiða til að haga flokks- starfseminni þannig að val á málefn- um taki tillit til kvenna og konur eigi meiri möguleika en áður að koma fram á vettvangi flokksins. Það ætti að leiða tiF sterkari stöðu kvenna þegar frambjóðendur eru valdir. Sem lið í þessu átti landsfundur sem halda átti 2.-5. nóvember sl. að stórum hluta að snúast um jafnréttismál. Jafnframt tók Friðrik undir það sjónarmið að kjördæmaskipunin væri ákveðin hindrun. Það væri tilhneig- ing hjá Sjálfstæðisflokknum, þá sér- staklega úti á landi, þegar raðað -------- væri á framboðslista að velja á listann fulltrúa frá hinum ýmsu atvinnu- greinum í stað þess að hugsa um jöfn hlutföll karla og kvenna. Rannveig talaði í þessu sambandi um möguleika á „fléttulista", þar sem konur og karlar skiptust á á framboðslistun- um. Eðli málsins samkvæmt sagðist Kristín Einarsdóttir, Kvennalista, ekki geta svarað spurningum um hvernig auka eigi hlut kvenna í flokksstjórn og á þingi. Hún sagði að sérframboð kvenna hefði haft gífurleg áhrif til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum og á alþingi. Breyta þarf vinnubrögðum til að ná fram launajafnrétti Þegar spurt var um stefnun flokk- anna í jafnréttismálum kvaðst Jó- hanna vilja breyta um vinnubrögð til að lög um launajafnrétti frá 1960 næðu fram að ganga. í því skyni vildi hún afnema mismunun á opin- berum og almennum vinnumarkaði því störf, menntun og ábyrgð væru svipuð hvort sem launamaðurinn starfaði í opinberri þjónustu eða á almennum markaði. Jóhanna kvaðst vilja taka undir tillögu Láru V. Júlíusdóttur um for- gjöf í launamálum. Þar sem lögð væri áhersla á að ákveðinn hluti þeirrar heildarfjárhæðar sem er til hækkunar á launum í kjarasamning- um renni sérstaklega til að jafna laun karla og kvenna. Þá nefndi Jóhanna að kerfisbundið starfsmat gæti, ef vel tækist til, orðið grunnur að því að breyta því launakerfi sem við búum við í dag. Sagði Rannveig að í ráðherratíð sinni hefði hún sett á laggirnar nefnd um starfsmat sem væri enn starfandi. Jóhanna kvaðst jafnframt vilja festa ákveðin forréttindaákvæði í lög; „Þegar konur hópast í eina starfsgrein og eru þar í meirihluta er tilhneiging til að greiða þeim lægri laun en i hefð- bundnum karlastarfs- greinum. Það þarf að lög- festa ákvæði sem kveður á um að séu kona og karl jafn hæf sem sækja um starf skal ráða konuna sé ..... hún almennt í minnihluta í viðkom- andi starfsgrein,“ sagði Jóhanna. í fyrirspurnum var þéirri spurn- ingu varpað til Friðriks Sophussonar hvað hann gæti gert nú sem fjár- málaráðherra til að auka jafnrétti í launamálum hjá þeim sem starfa hjá ríkinu og kvenna almennt? Sagði Friðrik að þrátt fyrir „öll völdin“ gæti hann ekki breytt hlutunum á svipstundu, en kvað nauðsynlegt að setja fram skýra starfstnannastefnu og gera úttekt á ráðuneytunum og stofnunum þeirra. Einnig kvað hann brýnt að breyta hugmyndum stjórn- Árangursrík- ast að leggja áherslu á ein- staklings- frelsi kvenna LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 29 STRAX á flugvellinum í Beir- út blasa við myndir af tveimur forsetum, Assad Sýrlandsforseta við hliðina á forseta Líbanons, Eliasi Hraoui. Þessar tvær myndir má sjá víðsveg- ar um borgina, ívíð fleiri af Hafiz- al-Assad. Þótt alkunna sé að Sýr- lendingar hafí í skjóli hers síns í landinu töglin og hagldirnar í Líban- on, þá verður maður dálítið hvumsa við sjá það svona opinskátt að land- ið er í rauninni hernumið. Þegar svo var litið í blöðin voru aðalfréttirnar af för þingforsetans Nabih Berry og forsætisráðherrans Rafic Hariri til Damaskus og gangi viðræðna þeirra við ráðamenn þar um ágrein- ingsefni svo sem kosningalög, efna- hagsmál ríkisstjórnar Líbanons o. fl. Spurningin hvort líbanski forsæt- isráðherrann mundi ná tali af Assad Sýrlandsforseta. En til Damaskus liggur frá Beirút beinn og breiður steyptur vegur vegna herflutninga sýrlenska hersins yfir Ijöllin og Bekadalinn, þar sem eru sýrlenskar hersveitir. Það kemur því ekki á óvart í samræðum við heimamenn að Líb- anir verði að makka rétt við Sýr- lendinga. Hvernig mönnum líki þetta ástand er svarað varfæmis- lega og með ofurlítið mismunandi hætti. Allt frá því að skelfílegt sé að þurfa að búa við hernám og upp í að það sé þó skárra að vera undir heivernd Sýrlendinga en að fá „hina“, þ.e. ísraelsmenn, sem þeir höfðu skelfílega reynslu af frá því þeir ruddust inn í Líbanon að sunn- an og allt norður til Beirút 1978 og 1982. Enn eru alltaf eijur og átök við suðurlandamærin milli ísraelsmanna og Hisbolanna, þótt vopnahlé eigi að ríkja og lið Samein- uðu þjóðanna að gæta þess að vopnahléð sé haldið. Allir viðmælendur sögðu þó að lokum að auðvitað vildu þeir vera fijáls lýðræðisþjóð, en að þeir yrðu að sætta sig við ástandið þar til ísraelsmenn og Sýrlendingar skrif- uðu undir friðarsamninga. Líbanir vilja vera sjálfstætt ríki, eins og þeir hafa verið síðan eftir síðari heimsstyijöldina, en milli fyrri og síðari heimsstyijaldanna voru þeir undir vernd Frakka. Frönsku áhrif- in finnur maður enn fljótlega, m.a. í tungumálinu, þar sem flestir tala arabísku og frönsku. Þótt margir bindi vonir við fram- gang friðarumleitana fyrir botni Miðjaðarhafs, þá bera þeir ugg í bijósti. Vitað er að Assad Sýrlands- forseti á sér draum. í skrifstofu hans er stór veggmynd sem sýnir Sýrland á þeim dögum er það náði suður fyrir Jerúsalem, eftir að Saladín sigraði krossfarana og náði borginni 1187 og Líbanon og Jórd- anía þá hluti af því ríki. Sýrlenski herinn kom fyrst inn í landið 1976 til að skakka leikinn í því skelfílega borgarastríði sem stóð meira og minna í 17 ár, þar sem þjóðabrotin börðust sitt á hvað. Og afskiptin fóru vaxandi. Og Banda- ríkjamenn og vestrænar þjóðir létu yfirtöku afskiptalausa í þakkar- skyni fyrir að AsSad^ studdi þá í Flóastríðinu gegn írak. Friður komst loks á í borgarastyijöldinni 1992 og núverandi fyrirkomulag upp tekið. Gengið var frá svonefnd- um öryggissamningi milli Líbanons og Sýrlands um „bræðralag, sam- vinnu og samhæfíngu“ og tengsli milli landanna á pólitísku, hemaðar- legu, öryggis- og efnahagssviði. Ný stjórn tók við eftir kosningar á miðju ári 1992 undir forustu Rafiks Hariris. Sýrlendingar halda áfram að vera þar með sinn fjölmenna her, og Ijóst að stjórn situr aðeins með þeirra samþykki. Uppbygging eftir 17 ára stríð Rafík Hariri forsætisráðherra Líbanons, sem er maroniti og fædd- ur í Líbanon, var auðkýfingur og stórverktaki í Saudi Arabíu. Hann raðaði tæknimönnum í stjórn sína. SUNDURSKOTIN hús og verktakar að hefja uppbyggingu ein- kenna alla miðborg Beirút. Líbanír bíða friðar- samninga Strax eftir morðið á Yitzhak Rabin forsætis- ráðherra Israels fór heimurinn að hafa áhyggj- ur af hvað nú yrði um friðarviðræður fyrir botni Miðjarðarhafs, m.a. samninga milli Sýr- * lendinga og Israela. Þar hangir fleira á spýt- unni, þ.e. Líbanon, sem er hersetið af Sýrlend- ingum. Hvaða skoðanir sem menn þar í landi létu nýlega í ljós við Elínu Pálmadóttur, þá voru allir sammála um að við þetta hemám yrðu þeir að búa þar til Sýrlendingar og ísrael- ar skrifuðu undir friðarsamninga. Morgunblaðið/EPá MYNDIR af Assad Sýrlandsforseta við hlið Hraoui forseta Liban- ons sjást hvar sem auðan vegg er að finna í Beirút. Yfírlýst markmið hans er að auðvelda uppbygginguna eftir eyðileggingu stríðsins og auka trú á efna- hagslegan bata. Og við það hefur sannar- lega verið tekið til hendi. Miðborg Beirút, þar sem barist var fram og aftur í 17 ár og þar sem varð græna línan milli stríðandi fylkinga kristinna og múslima, var ijúkandi rúst. HINIR sérkennilegu Dúfnaklfettar blasa við af strandgötu Beirútborgar og eru einkenn- istákn borgarinnar. Þegar maður ekur um borgina blasa við sundurskotnar, gluggalausar eða hrundar byggingar. Og þau hús sem ekki eru ónýt eru að minnsta kosti alsett kúlugötum eftir skot- hríð. Sama má segja um alla byggð- ina austur yfir fjöllin og suður um landið. En á milli þessara rústa rísa nú með ótrúlegum hraða nýjar stór- byggingar. Liggur við að maður horfí á þær teygja sig upp úr rústun- um eins og sveppi. Því miður liggur svo á að að þetta eru mest einslitar háar og ljótar nútímabyggingar. Allt er unnið af verktökum. Alþjóð- legt einkafyrirtæki, Solidaire, er t.d. að byggja upp miðborg Beirút. Sumir sögðu að í því væri mikil arabískt hlutdeild. En ítalskir og franskir verktakar komu strax inn til að bæta vatnskerfið og síma og orkukerfið. Raforkan er samt enn til mestra vandræða. Hún er svo ótrygg í borginni að rafmagn dettur út fyrirvaralaust um stund. Ég lenti í því að paufast upp fímm stiga í kolamyrkri í ókunnu húsi, og lyftan í hótelinu stöðvaðist í annað skipti. Þetta gerist, sögðu menn bara. En ef fer sem horfir líður ekki á löngu þar til það verður líka í lagi. Fjármagnið streymir inn Þótt ekki kæmi jafn mikið fé inn til hjálpar stríðshijáðum Líbönum í lok átakanna og lofað hafði verið, hefur Ijármagnið samt streymt inn í landið. Líbanir þykja miklir fjáraflamenn og margir þeirra sem búsettir eru erlendis, fjárfesta mikið og senda fé heim. En lykillinn að þeirri velmegun sem var í landinu fyrir stríð og því fjármagni sem streymir inn nú er sú bankaleynd, sem alltaf hefur verið bundin í lög- um, og er enn strangari en í sviss- nesku bönkunum. Undir engum kringumstæðum getur banki veitt upplýsingar um bankareikning, ekki heldur til erfingja. Það hefur haldið peningum í landinu og dregið þá að. Nú aftur í enn ríkara mæli en fyrr. Á þessum tveimur árum sem liðin eru frá því að átökum lauk og endurreisnarstarfið hófst, hefur því orðið þvílík uppbygging að maður trúir varla sínum eigin augum. Tafír hafa þó orðið við að í þess- ari fornu borg hefur við uppbygg- inguna verið komið niður á fornleif- ar, bæði í miðborginni og víðar í landinu. En sami kraftur hefur ver- ið settur í uppgröftin, svo hann tefji sem minnst. Sett var í gang tveggja ára áætlun og var mér sagt að við uppgröft ynnu nú um milljón manns, það samsvaraði því að 100 manns séu á hvern fermeter fom- minja. Sel það ekki dýrara en ég keypti. Aftur á móti virðast menn ekki vera farnir að þrífa á víðavangi. Liggur plast, msl, flöskur og óhrein- indi hvarvetna utanhúss í þessari fallegu borg. Líka í sjónum sem skolast upp á ströndina við helstu ! göngugötuna í borginni og kringum i hina frægu Dúfnakletta fyrir framan, i sem em séreinkenni Beirútborgar. ; Ekki er að furða þótt Líbanir horfi vonaraugum til þess að friður i haldist fyrir botni Miðjarðarhafsins. * Og að Sýrlendingar geti komið inn < í friðarsamninga við Israel. En þar . eru mörg ljón á veginum. Assad ' getur illa gengið að nokkru minna j en að fá allar Gólanhæðir aftur, en hann missti andlitið um leið og hann missti þær til ísraela og það er illt í arabísku samfélagi. Hann var end- urkosinn forseti til 7 ára 1985 og situr enn. En hann verður ekki eilíf- ur fremur en aðrir dauðlegir menn, býr raunar við hrakandi heilsu. Deilurnar um skiptingu vatnsins er stór þröskuldur. Vatnið í ána Jórdan kemur mikið til úr Gólanhæðum, sem hvorki ísraelsmenn né Jórdanir geta án verið. Raunar eru upphafs- kvíslarnar í Líbanon. Hasbanáin kemur þar upp og rennur suður til Israels, þar sem hún breytir um nafn og heitir þá Jórdan. ji (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.